Morgunblaðið - 15.10.2014, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014
Jónas Guðbjarts-
son, útgerðar-
maður á Ísafirði,
var í gær dæmd-
ur til að greiða
Helga Áss Grét-
arssyni, dósent
við lagadeild Há-
skóla Íslands,
300 þúsund krón-
ur í skaðabætur
vegna ummæla
sem hann lét falla um Helga í þætt-
inum Í bítið á Bylgjunni 18. febrúar
2014 og ummæla sem höfð voru eft-
ir honum á vef Bæjarins besta 13.
febrúar 2014.
Fjögur ummæli voru dæmd dauð
og ómerk, þ. á m. „… það svolítið
skrýtið að Helgi Áss Grétarsson
starfsmaður LÍÚ upp í háskóla
hann skuli hafa verið beðinn um að
búa til álit fyrir atvinnuveganefnd“,
sem féllu á Bylgjunni, og „Helgi Áss
er á launum hjá LÍÚ sem borgar
stöðu hans við háskólann“, sem
voru höfð eftir á fréttavefnum
bb.is. Helgi taldi ummælin ekki
eiga við rök að styðjast, þau væru
röng enda væri hann ekki og hefði
aldrei verið á launum hjá LÍÚ.
Auk skaðabótanna þarf Jónas að
greiða 63.252 kr. til að kosta birt-
ingu dómsins í einu dagblaði og
660.600 kr. í málskostnað.
Jónas dæmd-
ur fyrir
meiðyrði
Helgi Áss
Grétarsson
„Þrátt fyrir varfærar forsendur
kemst Talnakönnun að þeirri nið-
urstöðu í skýrslu sinni að starf
VIRK sé mjög arðbært og um 10
milljarða króna ávinningur hafi
verið af starfseminni árið 2013,“
segir í umfjöllun VIRK Starfsend-
urhæfingarsjóðs um niðurstöður
nýrrar úttektar Talnakönnunar á
starfsemi VIRK.
Þar kemur fram að hagnaður líf-
eyrissjóða af starfi VIRK hafi
numið nærri fimm milljörðum í
fyrra, hagnaður Tryggingastofn-
unar hátt í fjórum milljörðum
króna og ríkið hafi fengið viðbót-
arskatttekjur upp á 1,5 milljarða
króna. Ofan á þetta bætist svo
bættur hagur einstaklinga, bæði
fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða
sem felist í því að geta tekið þátt í
samfélaginu.
VIRK fékk Talnakönnun til að
greina árangur og hagnað af starf-
semi VIRK árið 2013 út frá óper-
sónugreinanlegum upplýsingum úr
gagnagrunni VIRK auk þess sem
unnið var með upplýsingar lífeyr-
issjóða um meðallaun. Fram kem-
ur í fréttatilkynningu að markmið-
ið var að finna mælikvarða á
sparnað af starfsemi VIRK sem
taki mið af raunverulegum árangri
undanfarin ár. Sá árangur felist í
að flýta endurhæfingu, stytta
tímabil óvinnufærni einstaklinga
og minnka tíðni örorku.
Í skýrslu Talnakönnunar segir
að eftir miklu geti verið að slægj-
ast ef endurhæfing tekst vel til. Þá
sé fjárhagslegur hagnaður reikn-
aður í milljörðum króna.
10 milljarða ávinningur
Morgunblaðið/Golli
Störf Markmið VIRK er að fólk komist aftur út á vinnumarkaðinn.
Endurhæfing skilar miklu skv. úttekt Talnakönnunar
Héraðsdómur
staðfesti í gær
ákvörðun Sam-
keppniseftirlits-
ins þess efnis að
Forlagið ehf.
hefði brotið gegn
samkeppnis-
lögum þegar það
fór á svig við sátt
fyrirtækisins og
Samkeppniseftir-
litsins um samruna JPV útgáfu ehf.
og Vegamóta ehf. frá 2008.
Samkeppniseftirlitið sektaði For-
lagið um 25 milljónir króna í júlí ár-
ið 2011, fyrir að hafa brotið gegn
sáttinni með því m.a. að hafa gefið
smásöluaðilum leiðbeinandi verð á
bókum sínum. Forlagið hafnaði því
hins vegar að það hefði reynt að
hafa áhrif á smásöluverð útgáfu-
verka sinna og sagðist enn fremur
ítrekað hafa reynt að fá sáttina
fellda niður eða endurskoðaða, þar
sem fyrirtækið væri ekki í ráðandi
stöðu á markaði og því ósanngjarnt
að það væri bundið af fyrrnefndri
sátt.
Héraðsdómur féllst ekki á það
með Forlaginu að brot fyrirtækisins
hefðu verið framin af gáleysi né að
álögð sekt hefði verið óhófleg og
staðfesti hana.
Dómurinn
staðfesti 25
milljóna sekt
Forlagið laut í
lægra haldi.