Morgunblaðið - 15.10.2014, Síða 14

Morgunblaðið - 15.10.2014, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014 ...sem þola álagið! TRAUSTAR VÖRUR... VIFTUR Í MIKLU ÚRVALI Það borgar sig að nota það besta! • Bor›viftur • Gluggaviftur • I›na›arviftur • Loftviftur • Rörablásarar • Ba›viftur • Veggviftur Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is Almennri skurðdeild 12G á Land- spítala Hringbraut hafa verið færðir að gjöf tveir La-Z-Boy-hvíldarstólar. Gefendur eru Helga og Kolbrún Jónsdætur. Tildrögin eru þau að faðir þeirra, Jón Þráinn Magnússon, var sjúklingur á deildinni í nokkra mánuði á árinu 2013. Systurnar vildu þakka fyrir dvölina með því að færa sjúklingum á deildinni eitthvað sem kæmi að góðu gagni. Svona stól- ar koma sér vel því hægt er að fara með þá inn á stofur og gefa sjúkling- um kost á að sitja í þeim og hvíla sig þannig frá langri rúmlegu. Kolbrún og Helga söfnuðu fyrir stólunum með því að hlaupa hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar í nafni föður síns. Á myndinni eru Jón Þráinn Magn- ússon og Elín María Sigurðardóttir deildarstjóri. Aftan við Helga og Kolbrún og tveir starfsmenn, Bertha Sigurðardóttir og Inga Valdimars- dóttir. Hlupu maraþon og gáfu hvíldarstóla Hrafnaþing er heiti á fræðslu- erindum Náttúrufræðistofnunar Íslands sem eru á dagskrá yfir vetrartímann. Flutt verða fimm erindi og hefst Hrafnaþing fram- vegis kl. 9.15. Fyrsta Hrafnaþing vetrarins verður haldið að morgni miðvikudagsins 15. októ- ber. Þá mun Friðþór Sófus Sig- urmundsson, doktorsnemi við Há- skóla Íslands, flytja erindi sem nefnist Hnignun skóg- og kjarr- lendis í Þjórsárdal frá 1587 til 1938. Hrafnaþing er haldið í húsa- kynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garða- bæ. Það er öllum opið. Yfirlit yfir erindin fimm hafa verið birt á vef stofnunarinnar. Ræðir um hnignun skóg- og kjarrlendis Brjóstaheill - Samhjálp kvenna, Styrktarfélagið Göngum saman og Krabbameinsfélag Íslands efna til samstöðugöngu í tilefni af alþjóð- legum degi helguðum baráttunni gegn brjóstakrabbameini miðviku- daginn 15. október. Gangan hefst hjá Hljómskálanum kl. 17.30 og verður gengið í kringum Tjörnina í Reykjavík. Fólk er hvatt til að taka þátt í göngunni klætt ein- hverju bleiku og vekja þannig at- hygli á málstaðnum, segir í til- kynningu. Samstöðuganga STUTT BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mikið framboð af fæðu, ekki síst á kornökrum bænda, á þátt í að stöð- ugt fjölgar í álftastofninum og að fjölgun er í gæsastofnum, öðrum en blesgæs, eða jafnvægi. Sumum bændum sem verða fyrir tjóni svíður að mega ekki verja akra sína með skotvopnum ef annað dugar ekki til. Tjón af völdum álfta og gæsa hef- ur verið umrætt svo lengi sem korn- rækt hefur verið stunduð hér á landi og lengur því gæs og álft rífa einnig upp sáðgresi í nýrækt. Varnir duga skammt Bændur hafa reynt að verjast fuglunum með ýmsum aðferðum. Fuglahræðan er vel þekkt. Gas- byssur hafa verið notaðar og ýmsar aðrar hljóð- og hreyfifælur. Ekkert virðist duga nema skamman tíma því fuglarnir venjast áreitinu og fljótt sækir í sama farið. Tilraunir hafa verið gerðar með að strengja borða yfir tún og akra til að hræða fuglinn frá því að setjast en það er mikið fyrirtæki þar sem akrar eru víðáttumiklir. Vel hefur gefist að sá höfrum eða öðrum plöntum sem standa vel í rönd í kringum akra. Það hindrar för álfta og gæsa. „Aðstæður eru mismunandi og varnir þurfa að vera í samræmi við þær. Það er alltaf að koma eitthvað nýtt fram. Mér virðist fjölbreytileiki í fælingu góður,“ segir Borgar Páll Bragason, fagstjóri á sviði nytja- plantna hjá Ráðgjafarmiðstöð land- búnaðarins (RML). Erfitt er að meta tjón á nýrækt en unnt á að vera að meta uppskerutjón við kornrækt og er að því unnið á vegum Umhverfisstofnunar og Bændasamtakanna. Þegar hafa rúmlega 100 tilkynningar borist í gegn um ræktunarvef bænda, svo- kallað Bændatorg, en bændur hafa frest út mánuðinn til að senda til- kynningar. Tjónið er þá tengt ákveðnum spildum sem skráðar eru inn á vefinn. Fjárhagslegt tjón er ekki eingöngu vegna þess sem fugl- arnir éta heldur geta þeir einnig sest á akra og brotið grösin. Stöðug fjölgun í álftastofninum Kristinn Haukur Skarphéðinsson, sviðsstjóri dýravistfræði hjá Nátt- úrufræðistofnun, staðfestir að mjög hafi fjölgað í álftastofninum. Talið er að um 30 þúsund fuglar hafi verið í stofninum þegar talið var síðast, í janúar 2010, en að stofninn hafi talið um 12 þúsund fugla 1980. Einnig er fjölgun eða jafnvægi í gæsastofnum, öðrum en blesgæs. Hann segir vitað að fuglinn sæki í kornið. Fuglar hafi ekki meira fyrir hlutunum en þeir þurfi og nýti þetta hlaðborð eins og þeir geta. Drýgst telur hann þó að sé það korn sem sit- ur eftir á ökrunum þegar búið er að þreskja. Það dugi fram á vetur. Hann segir að gera þurfi óháða rannsókn á tjóni af völdum fugla. Hann upplifir málið þannig að mest sé kvartað undan tjóni þegar önnur vandamál steðji að kornræktinni, svo sem bleyta og rok, eins og var í fyrrasumar. Á hverju ári koma fram kröfur frá bændum eða félögum þeirra um að gripið verði til aðgerða gegn ágangi álftar í ræktarlönd. Bændum verði gefið leyfi til að verja akra sína með skotvopnum en greiddar bætur ella. Búnaðarþing hefur ekki tekið beint undir slíkar kröfur heldur lagt áherslu á söfnun upplýsinga um tjónið og að á grundvelli þeirra verði metið hvort veiðar verði heimilaðar í tilraunaskyni. Vitað er að eitthvað er skotið á álftir, til að fæla hópa frá ökrum. Högl finnast til dæmis í fuglum sem rannsakaðir eru á vetrarstöðvunum í Bretlandi. Álftin hefur verið friðuð í hundrað ár og telur Kristinn Haukur að seint yrði leyft að taka upp veiðar enda myndi það valda uppnámi hjá fólki víða í heimkynnum svansins. Hann telur einnig að veiðar myndu hafa takmörkuð áhrif og alltaf yrði eitt- hvert tjón. „Það væri uppgjöf að grípa til byssunnar og leita ætti allra annarra ráða. Það vantar til dæmis frumkvæði ríkisins og leiðbeiningar við að hjálpa bændum að takast á við þetta vandamál.“ Álftir og gæsir valda miklu tjóni  Fuglar valda tjóni á kornökrum  Bændasamtökin og Umhverfisstofnun taka saman upplýsingar  Fuglafræðingur telur uppgjöf að aflétta friðun álftar og reyna ætti allar aðrar leiðir Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þröng á þingi Álft og gæs á hlaðborði korns á akri sem búið er að þreskja á Suðurlandi. Fóðrið dugar fram á vetur. Fuglafræðingar hafa talið mörg þúsund gæsir og hundruð álfta saman á akri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.