Morgunblaðið - 15.10.2014, Qupperneq 23
23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014
Elliðaárdalur Undanfarna daga hefur snöggkólnað í Reykjavík en fólk sem hugar að heilsunni lætur það ekki á sig fá heldur býr sig eftir aðstæðum og stundar áfram heilsubótargöngu.
Ómar
Nokkrum dögum
eftir að þing kom sam-
an að nýju óskaði for-
maður þingflokks Sam-
fylkingarinnar eftir
aðstoð frá fjár-
málaráðherra. Hann
vildi hressa upp á eigið
minni og spurði því
hvort það væri rétt
munað að fyrirhuguð
hækkun á lægra þrepi
virðisaukaskatts væri ekki „stærsta
skattahækkun Íslandssögunnar eða
a.m.k. eftir hrun“?
Auðvitað er það skiljanlegt að
þingmenn, sem samþykktu hverja
skattahækkunina á fætur annarri í
síðustu vinstri ríkisstjórn, eigi erfitt
með að muna og að sumir vilji ein-
faldlega gleyma. Í tíð ríkisstjórnar
Samfylkingar og Vinstri grænna
voru gerðar um 200 breytingar á
skattkerfinu, flestir skattar hækk-
aðir og nýir teknir upp. Ein-
staklingar og fyrirtæki áttu erfitt
með að fylgjast með öllum breyting-
unum og svo virðist sem þáverandi
stjórnarþingmenn hafi einnig verið í
erfiðleikum.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra kom þingflokksformanninum
til hjálpar en benti um leið á að það
sé „svo fjarri vinstri mönnum í þessu
landi að geta séð fyrir sér skatta-
lækkun að þegar hún raunverulega
birtist þeim með jafnskýrum hætti
og í þessu máli trúa þeir því ekki að
þetta sé hún“. Það bara geti ekki
verið að hægt sé að lækka skatta.
„En það er hægt,“ sagði Bjarni
Benediktsson og bætti við:
„Við erum með þeim skattkerf-
isbreytingum sem hér
er verið að kynna til
sögunnar að gefa eftir
af ríkistekjum tæpa 4
milljarða. Hvert fara
þeir 4 milljarðar? Þeir
verða eftir hjá fyr-
irtækjum og þeir verða
eftir hjá almenningi. Í
þessu tilviki fyrst og
fremst hjá almenningi
sem greiðir þessi vöru-
gjöld og greiðir þennan
virðisaukaskatt. Það er
íslenskur almenningur
sem nýtur góðs af því að við leggjum
fram tillögu um að draga úr tekjum
ríkisins um 4 milljarða. Það heitir,
háttvirtur þingmaður, skattalækk-
un, það er skattalækkun.“
Árás á launafólk
Þegar stuðningsmenn „norrænu
velferðarstjórnarinnar“ leggja mat á
fyrirhugaðar kerfisbreytingar í inn-
heimtu neysluskatta færi vel á því að
þeir horfðu á heildaráhrifin; hækkun
á neðra virðisaukaskattsþrepi, lækk-
un á því efra og loks afnám al-
mennra vörugjalda, fyrir utan veru-
lega hækkun barnabóta. Slík yfirsýn
hefði kannski breytt afstöðu þeirra
til skattastefnu vinstri stjórn-
arinnar. Þeir hefðu ef til vill spyrnt
við fótum þegar tekjuskattskerfið
var eyðilagt með stighækkandi
skatthlutföllum (þremur skatt-
þrepum) og auknum tekjuteng-
ingum. Þeim hefði þá orðið ljóst hve
freklega var gengið fram gagnvart
almennu launafólki.
Árið 2008 var tekjuskattsprósent-
an 22,75% og meðalútsvar 12,97%.
Eftir að vinstri stjórnin hafði koll-
varpað kerfinu var lægsta prósentan
komin upp í 22,90% og meðalút-
svarið hafði hækkað töluvert. Árið
2013 var skattprósentan í stað-
greiðslu eftirfarandi:
· 22,90% af tekjum 0 – 241.475 kr.
+ 14,42% meðalútsvar: Alls 37,32%
· 25,80% af tekjum 241.476 –
739.509 kr. + 14,42% meðalútsvar:
Alls 40,22%
· 31,80% af tekjum yfir 739.509 kr.
+ 14,42% meðalútsvar: Alls 46,22%
Þannig var tekjuskattskerfið gert
flóknara og dýrara jafnt fyrir rík-
issjóð sem skattgreiðendur
„Afrekalistinn“
Áhlaupi vinstri stjórnarinnar á
einstaklinga var þar með ekki lokið –
langt í frá. Þeir sem nú hafa áhyggj-
ur af kerfisbreytingu í innheimtu
óbeinna skatta höfðu litlar áhyggjur
af auknum álögum á einstaklinga
þegar þeir sátu við völd:
- Heimild til frádráttar iðgjalda
frá tekjuskattsstofni vegna viðbót-
arlífeyrissparnaðar lækkuð um
helming; fór úr 4% í 2%.
- Fjármagnstekjuskattur ein-
staklinga hækkaður í tveimur áföng-
um árin 2010 og 2011, fyrst úr 10% í
18% og síðan í 20%.
- Auðlegðarskattur lagður á árið
2009 og átti að vera til þriggja ára.
Skatturinn var í upphafi 1,25% á
eignir einstaklinga yfir 90 milljónir
króna að frádregnum skuldum en
120 milljónir hjá hjónum/sambýlis-
fólki.
- Auðlegðarskatturinn fram-
lengdur til ársloka 2014 og skatt-
hlutfallið hækkað í 1,50%. Frímörk
eigna lækkuð úr 90 milljónum í 75
milljónir hjá einstaklingum og úr
120 milljónum í 100 milljónir hjá
hjónum. Nýtt þrep innleitt þannig
að á hreina eign einstaklings um-
fram 150 milljónir króna og hreina
eign hjóna umfram 200 milljónir
leggst 2% skattur.
- Almenna virðisaukaskattsþrepið
hækkað úr 24,5% í 25,5%.
- Sjómannaafsláttur afnuminn í
þrepum og síðast veittur við álagn-
ingu 2014 vegna tekjuársins 2013.
- Olíugjald hækkað um 1,65 krón-
ur á lítra og bensíngjald hækkað um
2,5 krónur.
- Bifreiðagjöld hækkuð um 0,85
krónur fyrir hvert kíló af eigin
þyngd bifreiðar allt að 1.000 kíló og
um 1,15 krónur á hvert kíló af eigin
þyngd bifreiðar umfram það að
3.000 kg og um 2,82 kr. af hverju
byrjuðu tonni af eigin þyngd bifreið-
ar umfram 3.000 kg.
- Gjald af áfengi og tóbaki hækkað
um 10%.
- Hlutfall erfðafjárskatts hækkað
úr 5% í 10% auk hækkunar á frí-
eignamörkum.
Listinn hér að ofan er ekki tæm-
andi en „norræna velferðarstjórnin“
gekk ekki aðeins hressilega gegn
einstaklingum á valdatíma sínum.
Eðli máls samkvæmt var einnig
gengið að atvinnulífinu. Tekjuskatt-
ur fyrirtækja var hækkaður úr 15% í
20% og tryggingagjald hækkað úr
5,34% í 8,65%. Veiðigjöld tífölduð og
kolefnisgjöld lögð á, svo fátt eitt sé
nefnt.
Varlega áætlað má gera ráð fyrir
að vinstri stjórnin hafi hækkað
skatta á einstaklinga og fyrirtæki
um liðlega 80 þúsund milljónir króna
m.v. við heilt ár.
Lélegt minni ASÍ
Minni forystumanna Alþýðu-
sambands Íslands er lítið betra en
hjá formanni þingflokks Samfylk-
ingarinnar. Þess vegna er fjárlaga-
frumvarpi ríkisstjórnarinnar mót-
mælt og blásið til mikillar
auglýsingaherferðar. En barátta
ASÍ væri ólíkt trúverðugri ef bar-
áttugleðin hefði verið jafnmikil á síð-
asta kjörtímabili þegar gengið var
harðar fram í skattheimtu á ein-
staklinga og fyrirtæki en dæmi eru
um á síðari tímum. Þá var stjórn-
sýslan þanin út á kostnað heilbrigð-
isþjónustu og álögur á sjúklinga
náðu nýjum hæðum.
Getur það verið að það skipti
mestu hverjir það eru sem hækka
skattana og hverjir framkvæma
skattalækkanir?
Fjárlagafrumvarp 2015 er langt í
frá hafið yfir gagnrýni. Álögur á ein-
staklinga og fyrirtæki eru enn of
miklar. Lækkun skatta gengur of
hægt og umfang ríkisrekstrar er of
mikið. Forgangsröðun ríkisútgjalda
er enn skökk þótt núverandi rík-
isstjórn hafi tekist að rétta af kúrs-
inn í þeim efnum m.a. með auknum
fjárveitingum til heilbrigðismála og
almannatrygginga. En gagnrýni
skattaglaðra vinstri manna, sem
glíma auk þess við minnisleysi, snýst
ekki um þetta.
Eftir Óla Björn
Kárason » Auðvitað er það
skiljanlegt að þing-
menn, sem samþykktu
hverja skattahækk-
unina á fætur annarri
í síðustu vinstri ríkis-
stjórn, eigi erfitt
með að muna.
Óli Björn Kárason
Höfundur er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokks.
Hresst upp á minni vinstri manna