Morgunblaðið - 15.10.2014, Síða 34

Morgunblaðið - 15.10.2014, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014 Gunnar Björnsson, prestur og cellóleikari, heldur tónleika íkvöld í tilefni af afmælinu. „Ég hef klimprað ögn á hljóðfærifrá því ég man eftir mér, lærði á píanó, fyrst hjá prúðmenn- inu Carli Billich. Ég var feilnótusæll krakki og þegar ég sló vitlausa nótu, beitti pabbi mig höstugu aðkalli. Ágústa Ágústsdóttir, kona mín, gaf út geisladisk fyrir skemmstu með óperuaríum og ljóðalög- um, en ég potaði undir á píanó í stórum veikleika. Ég kenndi við Tónlistarskóla Bolungarvíkur og fleiri góða skóla, en veit ekki um árangurinn, því að kennari getur aldrei kennt neitt annað en sjálfan sig. Ég held samt, að ég hafi verið sæmilegur vélritunarkennari. Dr. Heinz Edelstein stofnaði Barnamúsíkskólann árið 1952. Hann mælti svo fyrir, að ég skyldi læra á celló. Ég innritaðist í Tónlistar- skólann, lærði hjá Einari Vigfússyni, lauk einleiksprófi og spilaði í Sinfóníuhljómsveitinni í nokkur ár. Á öldinni sem leið sótti ég celló- námskeið í Weimar, Lübeck og Hartt School of Music í Connecticut í Bandaríkjunum. Í kvöld læt ég mig hafa það að halda afmælistónleika í Salnum í Kópavogi og hefjast þeir kl. 20.00. Með mér leikur Halldór Haralds- son píanóleikari, mikill virtúós og hámenntaður, fyrrverandi skóla- stjóri Tónlistarskólans í Reykjavík. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.“ Gunnar Björnsson er sjötugur í dag Dúett Gunnar og Halldór munu m.a. leika Tilbrigði eftir Beethoven við stef úr Töfraflautunni eftir Mozart og ljóðalög eftir Brahms. Heldur tónleika í kvöld í Salnum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykjavík Freydís Edda fæddist 5. febrúar 2014 kl. 15.20. Hún vó 3.200 g og var 51,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Sigrún María Guðlaugsdóttir og Axel Freysson. Nýir borgarar Akureyri Júlíus Darri Guðmundsson fæddist 29. apríl 2014 kl. 11.31 á heim- ili sínu í Völvufelli 26, Akureyri. Hann vó 3.850 g og var 53 cm langur. For- eldrar hans eru Aðalheiður Hann- esdóttir og Guðmundur Ragnar Sverrisson. H örður fæddist í Reykjavík 15.10. 1944, ólst upp í Vest- urbænum og var mörg sumur í sveit hjá frændfólki sínu í Drangshlíð und- ir Eyjafjöllum. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1964, lauk BS (Hons)- prófi í lífefnafræði við University of St Andrews í Skotlandi 1968, vann við rannsóknir í ensímafræði og ens- ímtækni til 1971 og lauk PhD-prófi í lífefnafræði 1972. Á námsárum vann Hörður í bygg- ingarvinnu, við síldarverksmiðjur, síldarsöltun og við hvalskurð. Hörður var sérfræðingur í líf- efnafræði við Meinefnafræðistofu Rannsóknadeildar Landspítalans 1971-74 og í hlutastarfi þar til 1993, var lektor og síðan dósent í hluta- starfi við læknadeild HÍ frá 1971, dósent þar í fullu starfi 1975-95 og stofnaði og veitti forstöðu Lífefna- fræðistofu læknadeildar HÍ til 1995, var stundakennari í lífefnafræði og rannsóknatækni við Tækniskóla Ís- lands 1972-82, dósent við raunvís- indadeild HÍ frá 1996, prófessor þar frá 2004 og gegndi starfi deildar- forseta 2001-2007. Hörður var gestur við rannsóknir við Háskólann í Lundi 1983, fór kynnisferð til nokkurra háskóla, Hörður Filippusson, prófessor við HÍ – 70 ára Fjölskyldan Hörður og Margrét ásamt dætrum, tengdasonum, móður Margrétar og nokkrum af barnabörnunum. Með vísindin í fyrirrúmi Á leiðinni á Stálfjall Hörður á göngu fyrir austan Rauðasand, skammt frá Skor. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Sandblásum myndir og texta á spegla, lýsing á bakvið spegla afmælis afsláttur af speglum 30% -VOTTUÐ FRAMLEIÐSLA Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is Gler n speglar n sandblástur n slípun Opið alla virka daga 08:00-17:00 Sendum um allt land framleiðsla í 45 ár

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.