Morgunblaðið - 18.10.2014, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014
KEMUR HEILSUNNI Í LAG
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Engu er líkara en verið sé að reisa risavaxinn
kross á Hólmsheiði við Reykjavík þessa dagana.
Ekki er þó um trúarlega byggingu að ræða held-
ur er hér nýja fangelsið sem fangelsismála-
yfirvöld hafa lengi beðið eftir. Fangelsið er nú
óðum að taka á sig mynd en framkvæmdir við
það hófust í febrúar. Það á að geta tekið við
fyrstu föngunum um áramótin 2015-2016. Ís-
lenskir aðalverktakar byggja fangelsið.
Nýja fangelsið myndar kross á Hólmsheiði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framkvæmdir í fullum gangi og þeim á að ljúka eftir rúmt ár
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hönnuðir nýrrar Vestmannaeyjaferju telja að
siglingar hennar til Landeyjahafnar falli aðeins
niður í tíu heila daga á ári. Að auki verði skerðing
á siglingum í tuttugu daga til viðbótar. Kom
þetta fram á fundi stýrihóps og hönnuða skipsins.
„Mér fannst merkilegast að sjá að hönnuðir ferj-
unnar telja sig geta leyst samgönguvanda Vest-
mannaeyja með nýrri ferju,“ sagði Elliði Vign-
isson bæjarstjóri eftir fundinn.
Hann segir það einnig traustvekjandi að nýja
ferjan muni að mati hönnuða nota allt að 50%
minni olíu en Herjólfur. „Það þýðir að fyrir sama
fjármagn er hægt að sigla langtum fleiri ferðir.“
Fundurinn var vel sóttur og telur bæjarstjór-
inn að um 300 íbúar hafi mætt. Spurður um af-
stöðu fólks sagði Elliði: „Mér fannst áberandi að
fundarmenn höfðu meiri vantrú á stjórn-
málamönnum en hönnuðum, að ríkið myndi ekki
standa við að nýta lægri rekstrarkostnað til að
auka þjónustuna með fjölgun ferða.“ Lýsti Elliði
þeirri skoðun sinni að þjónustan væri ekki í lagi
og þörf væri á að fjölga ferðum. „Nú fer hlut-
verki embættismanna að verða lokið og ábyrgðin
færist til stjórnvalda, að tryggja að hönnun verði
snúið í veruleika með smíði nýs skips,“ segir
Elliði.
Að því er fram kom á fundinum í gær er ferjan
hönnuð til siglinga í að minnsta kosti 3,5 metra
ölduhæð á grunnsævi sem er fyrir utan Land-
eyjahöfn. Farþegarýmið er á einni hæð með
kaffiteríu og hvíldarrými. Þegar sigla þarf til
Þorlákshafnar stendur farþegum til boða að nota
kojur á efsta þilfari.
Hægt að sigla mun oftar
Ný Vestmannaeyjaferja siglir oftar og er mun sparneytnari en Herjólfur
Ný ferja Þannig gæti ný Vestmannaeyjaferja litið út, samkvæmt hönnun sem kynnt var íbúum í gær.
Hættu- og lokunarsvæði norðan
Vatnajökuls hafa verið endurskil-
greind á grundvelli nýs hættumats
Veðurstofu Íslands og Jarðvísinda-
stofnunar Háskóla Íslands. Við
hættumatið er litið til gasmeng-
unar frá eldgosinu í Holuhrauni og
mögulegs sprengigoss með gjósku-
falli og jökulhlaupum frá Dyngju-
jökli eða Bárðarbungu.
Skilgreint hættusvæði er stækk-
að en svæðið þar sem umferð er
bönnuð er heldur þrengt. Vegna
gasmengunar er almenn umferð
bönnuð í 25 km fjarlægð frá að-
algosgígnum. Veðurstofan telur
90% líkur á að innan þess svæðis
geti myndast varasöm eða hættu-
leg mengun. Vegna mögulegs
jökulhlaups er umferð takmörkuð
um slóðir sem liggja í flóðafarvegi
Jökulsár á Fjöllum. Hætta er á
töluverðu öskufalli innan þessa
svæðis ef eldgosið nær undir
Dyngjujökul. Nýjar reglur eru
settar um aðgang að bannsvæðinu.
Hættusvæði er skilgreint í um
60 km frá gosstöðvunum en á því
svæði eru taldar helmingslínur á
að óhollt geti orðið að anda lofti að
sér. Þá eru innan svæðisins flóða-
farvegir nokkurra áa sem renna
undan jöklum. Umferð um hættu-
svæðið er ekki bönnuð en ferða-
fólk hvatt til að sýna sérstaka ár-
vekni.
Enn er mikil skjálftavirkni á
Bárðarbungusvæðinu en aðeins
mismunandi eftir dögum. Síðustu
daga hafa orðið allmargir jarð-
skjálftar í og við Tungnafellsjökul
sem er norðvestan við Bárðar-
bungu. helgi@mbl.is
Bannsvæði við jökul þrengt
en hættusvæði víkkað út
Umferð ekki tak-
mörkuð utan 25 km
fjarlægðar frá eldgosi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Baugur Kvikurennsli úr gígnum er
svipað og verið hefur.
Sigríður
Friðjónsdóttir
ríkissaksóknari
segir að það séu
vissulega vís-
bendingar um að
refsivert brot hafi
verið framið þeg-
ar kæru Sam-
keppniseftirlits-
ins til sérstaks
saksóknara á
hendur ell-
efumenningunum
hjá Eimskip og
Samskipum var
lekið til Kastljóss
Ríkisútvarpsins.
Blaðamaður
sendi ríkissak-
sóknara svohljóð-
andi fyrirspurn í
gær: „Metur embætti ríkissaksókn-
ara það svo að refsivert brot hafi
verið framið þegar trúnaðargögnum,
kæru á hendur ellefumenningunum,
var lekið til Kastljóss?“ Svar rík-
issaksóknara í tölvubréfi var svo-
hljóðandi: „Það eru vissulega vís-
bendingar um það. Ríkissaksóknari
getur hins vegar ekki metið það á
þessu stigi hvort refsivert brot hafi
verið framið.“
Vilja opinbera rannsókn
Samkeppniseftirlitið óskaði síð-
degis í gær eftir opinberri rannsókn
á miðlun trúnaðarupplýsinga. Í frétt
frá embættinu segir:
„Samkeppniseftirlitið hefur í dag
beint erindi til ríkissaksóknara þar
sem farið er fram á opinbera rann-
sókn á því hvaðan og hvernig
trúnaðarupplýsingum um efni kæru
Samkeppniseftirlitsins til embættis
sérstaks saksóknara hafi verið miðl-
að til óviðkomandi aðila. Um er að
ræða kæru um ætluð brot tiltekinna
starfsmanna tveggja fyrirtækja á
samkeppnislögum. Er þetta gert í
tilefni af umfjöllun Kastljóss um
málið nú í vikunni. Samkeppniseft-
irlitið lítur framangreinda miðlun
upplýsinga mjög alvarlegum augum.
Hefur ríkissaksóknara verið
greint frá þeim aðgerðum sem gripið
hefur verið til innan Samkeppniseft-
irlitsins til þess að ganga úr skugga
um hvort upplýsingarnar hafi borist
þaðan og jafnframt auðvelda rann-
sókn málsins.“ agnes@mbl.is
Vísbend-
ingar
um brot
Sigríður J.
Friðjónsdóttir
Óskað eftir
opinberri rannsókn
Páll Gunnar
Pálsson