Morgunblaðið - 18.10.2014, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014
VIÐTAL
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Ég er með prófið en ég keyri nú
ekki orðið mikið. Bíllinn er hérna
við dvalarheimilið og ég býð fé-
lögum mínum stundum á rúntinn
um bæinn. Annars tek ég lífinu
bara rólega og hef það ágætt,“ seg-
ir Guðjón Daníelsson, 101 árs fyrr-
verandi bóndi á Kolmúla við Reyð-
arfjörð, en undanfarin þrjú ár
hefur hann búið á Dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Uppsölum á
Fáskrúðsfirði. Guðjón fæddist 18.
mars árið 1913, eða nokkrum mán-
uðum áður en Morgunblaðið var
stofnað!
Sjö ökumenn 98 ára og eldri
Guðjón er næstelsti ökumaður
landsins með gilt skírteini, en eins
og kom fram í Morgunblaðinu sl.
mánudag er Jón Hannesson í
Kópavogi elstur, 102 ára. Guðjón er
hins vegar elstur ökumanna á
Austurlandi.
Tveir ökumenn eru 99 ára
gamlir, þrír 98 ára og sá áttundi 97
árs gamall. Elstu ökumennirnir eru
nokkuð dreifðir um landið en eng-
inn þó á Vesturlandi, Vestfjörðum
eða Suðurnesjum. Allt eru þetta
karlmenn. Elsti ökumaðurinn í
Reykjavík er 99 ára gamall.
Eitt ár í senn eftir áttrætt
Að sögn Jónasar Ragn-
arssonar, umsjónarmanns síðunnar
Langlífis á Facebook, eru 19 Ís-
lendingar 95 ára og eldri með öku-
skírteini í gildi, þar af 17 karlar og
tvær konur.
Gildistími ökuréttinda þeirra
sem hafa náð 80 ára aldri er eitt
ár. Til skamms tíma var endurnýj-
unin ókeypis en nú þarf að greiða
1.650 kr. Eftir 65 ára aldur þarf að
skila læknisvottorði þar sem stað-
fest er að umsækjandi sjái og heyri
„nægilega vel“, eins og það er orð-
að, og sé að öðru leyti „nægilega
hæfur“ andlega og líkamlega til að
aka bíl.
Ekki með tölu á
afkomendum
Guðjón ekur um á Toyota sem
hann hefur átt í mörg ár. Öku-
skírteinið hefur aldrei verið fellt úr
gildi og hann er því búinn að hafa
próf í meira en 80 ár, aldrei þó
með meirapróf.
„Ég fer annað slagið út í
göngutúra og þarf ekki mikið orðið
á bílnum að halda, hef allt til alls
hérna á Uppsölum.“
Guðjón var með búskap til
fjölda ára á Kolmúla en stundaði
einnig sjómennsku.
„Ég er vel hress þó að ald-
urinn færist yfir og hef aldrei orðið
fyrir skakkaföllum. Ég hef haldið
góðri sjón og les því bækur og
blöð. Mér líður bara vel þó að ég sé
orðinn þetta fullorðinn,“ segir Guð-
jón en hann eignaðist sjö börn með
Jónu Björgu Guðmundsdóttur. Hún
lést árið 2002, á 82. aldursári. Börn
þeirra komust öll á legg og Guðjón
segir þau hafa dreifst um landið,
mörg búi þau á höfuðborgarsvæð-
inu.
Spurður um fjölda barnabarna
og annarra afkomenda sagðist
hann bara ekki hafa tölu á þeim,
þau væru svo mörg!
Tekur vinina
stundum með
sér á rúntinn
19 Íslendingar eldri en 95 ára eru
með gilt ökuskírteini, þar af 17 karlar
Ljósmynd/Óskar Þór Guðmundsson
Ökumaður Guðjón Daníelsson á Fáskrúðsfirði með ökuskírteini sitt, glaður
í bragði. Hann er næstelsti ökumaður landsins, 101 árs, og við góða heilsu.
Guðjón Daníelsson á Fáskrúðsfirði elstur ökumanna á Austurlandi og næstelstur á öllu landinu
Morgunblaðið/Albert Kemp
Þorp Þjóðvegurinn í gegn um
franska hverfið á Fáskrúðsfirði.
Ársæll Jóns-
son, fv. öldr-
unarlæknir,
segir það af-
ar mikilvæg
réttindi fyrir
eldra fólk að
hafa bílpróf
og geta ek-
ið.
„Það er
hægt að treysta á dómgreind
fólks að haga akstri eftir eigin
aðstæðum og fara ekki út í vit-
laust veður eða þungar ak-
brautir. Fólk vill ekki lenda í
tjóni. Margir aka bara innan
síns hverfis á björtum degi og
yfirleitt gengur þetta bara
mjög vel,“ segir Ársæll.
Hann segir alþjóðanefndir
hafa fjallað um akstur eldra
fólks og formaður einnar slíkr-
ar nefndar, írskur prófessor,
hafi lagt áherslu á að fólk fengi
að aka bílnum eins lengi og
heilsan leyfði og það treysti sér
til.
„Aðstandendur fólks með
heilabilun verðar hræddir um
að það fari sér að voða og það
getur orðið mjög erfitt að eiga
við það,“ segir Ársæll og bendir
á að eldri ökumenn geti farið í
sérstök hæfnispróf. „Aðstand-
endur hafa einnig beitt fjár-
hagslegum rökum fyrir því að
pabbi gamli eða mamma end-
urnýi ekki ökuskírteinið, það sé
svo dýrt að reka bíl að það sé
hægt að taka marga leigubíla
fyrir sömu upphæð.“
Ársæll segir öldrun geta
hellst yfir fólk og komi fram í
skertri samhæfingarfærni og
ratvísi. „Einn góður vinur minn,
á tíræðisaldri, lenti einu sinni í
því að taka vitlausa beygju inn í
hverfi sem hann átti ekki heima
í. Hann tók bara mann upp í og
bað hann að vísa sér rétta leið
heim. Þakkaði honum síðan fyr-
ir með því að bjóða honum út
að borða á hamborgarastað.“
Mikilvæg
réttindi að
geta ekið
ÖLDRUNARLÆKNIR
Ársæll Jónsson
Óháð ráðgjöf
til fyrirtækja
Firma Consulting gerir fyrirtækjum
tilboð í eftirfarandi þjónustu:
• Kaup, sala og sameining.
• Verðmat fyrirtækja.
• Samningaviðræður, samningagerð
• Áætlanagerð.
• Fjárhagsleg endurskipulagning.
• Samningar við banka.
• Rekstrarráðgjöf.
Firma Consulting, Þingasel 10, 109 Reykjavík.
Símar: 820-8800 og 896-6665. Fax 557-7766
info@firmaconsulting.is, www.firmaconsulting.is
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, gagnrýndi stefnu ríkis-
stjórnarinnar harðlega í ræðu sinni á
flokksráðsfundi VG sem settur var í
gær. Að þessu sinni er fundurinn
haldinn í Flensborgarskóla og lýkur
honum í dag með afgreiðslu ályktana
og málþingi um olíuleit og loftslags-
mál.
Munu ekki kaupa flatskjá
Gagnrýndi hún meðal annars
skattabreytingar ríkisstjórnarinnar
sem myndu ekki gagnast þorra al-
mennings. „Okkur er sagt að skatta-
breytingar ríkisstjórnarinnar eigi að
auka ráðstöfunartekjur heimilanna.
En hvaða heimila, verð ég að spyrja,
eru það heimili öryrkja, heimili leigj-
enda, heimili venjulegs fólks sem allar
kannarnir sýna að eyðir stórum hluta
tekna sinna í mat og er ekkert að fara
að kaupa flatskjá eða aðrar slíkar
græjur á næstunni. Nei, ráðstöfunar-
tekjur þessara hópa og margra ann-
arra munu líklega ekki aukast,“ sagði
Katrín.
Þá vék Katrín einnig að stefnu rík-
isstjórnarinnar í menntamálum, þar
sem boðaðar hefðu verið umbætur á
sama tíma og aðgengi eldri nemenda
væri takmarkað, nemendaígildum
fækkað og virðisaukaskattur á bækur
hækkaður.
Jafnframt sagði Katrín vera ósam-
ræmi á milli orða og gerða ríkisstjórn-
arinnar í loftslagsmálum, þar sem for-
sætisráðherra lýsti yfir stuðningi
sínum við kolefnisskatta á leiðtoga-
fundi Sameinuðu þjóðanna, á sama
tíma og ríkisstjórnin lækkaði kolefn-
isgjöld og losunargjöld fyrirtækja.
Breytingin ekki til góðs
Katrín sagði við Morgunblaðið að
hún væri ánægð með fundinn, sem
hefði verið vel sóttur. Þá væri verið að
leggja línur fyrir næsta landsfund
flokksins og hefja málefnastarf fyrir
hann. „Við erum að draga fram hvað
hafi orðið mikil breyting á stjórnar-
stefnunni, og ekki til góðs,“ segir
Katrín.
„Við leggjum áherslu á það að við
teljum þessar skattabreytingar sem
boðaðar hafi verið ekki gagnast lág-
tekjuhópum, og að sama skapi lýsum
við yfir áhyggjum af lækkandi hlut-
falli landsframleiðslu sem rennur til
velferðarinnar,“ segir Katrín og bætir
við að þessi mál skipti miklu máli.
„Þetta eru stór mál, sem lúta almennt
að því hvernig við viljum stuðla að
jöfnuði í samfélaginu.“
Ráðstöfunartekjur
aukast líklega ekki
Formaður VG gagnrýnir fyrirhugaðar skattabreytingar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flokksráðsfundur Katrín Jak-
obsdóttir flytur ræðu sína í gær.