Morgunblaðið - 18.10.2014, Page 11

Morgunblaðið - 18.10.2014, Page 11
Laugardagur Kl. 11.30 Lifandi leiðsögn með sögum og tónum. Hlíf Sig- urjónsdóttir, fiðluleikari og dóttir listamannsins Sigurjóns Ólafssonar, leiðir gesti á æv- intýralegan hátt um sýninguna Spor í sandi. Frá kl. 12.30 Vídeó-portrett þátttökugjörningur. Vertu fyr- irmynd í verki Snorra Ásmunds- sonar. Kl. 13 „Við eigum afmæli í dag“ – afmælissöngur og kaka í boði fyrir gesti safnsins. Kl. 13.30 / 14 / 14.30 / 15.00 Innlit í málverkageymslu safns- ins. Ólafur Ingi Jónsson for- vörður og Dagný Heiðdal, deild- arstjóri listaverkadeildar, leiða gesti á bak við tjöldin. Kl. 16 Hugskot – Björk Viggós- dóttir ræðir við gesti um verk sitt í Hugskoti, nýju fræðslu- og upplifunarrými safnsins. Kl. 11-17 Takið þátt í skemmti- legri myndlistargetraun fyrir unga sem aldna – vegleg verð- laun í boði. Sunnudagur 19. október. Sunnudagur í söfnunum Kl. 14 Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastræti 74. Rakel Pét- ursdóttir safnafræðingur leiðir gesti um safn Ásgríms. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Kl. 15 Laugarnestanga. Birgitta Spur sýningarstjóri leiðir gesti um sýninguna Spor í sandi – Æskuverk Sigurjóns Ólafssonar. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014 Í hverjum mánuði er sérstakur af- sláttur af gjaldi á Þjóðminjasafn Ís- lands. Á morgun, sunnudaginn 19. október, er tveir fyrir einn á aðgangs- eyri. Þetta getur komið sér einkar vel fyrir fjölskyldur því alla jafna er ókeypis inn fyrir börn yngri en 18 ára. Á Þjóðminjasafninu er boðið upp á fjölbreyttar sýningar, ratleiki, kaffi- hús og safnbúð. Fram til áramóta stendur sýningin Silfur Íslands yfir í Bogasal safnsins og þar gefur að líta íslenska silfurgripi frá síð-miðöldum til fyrri hluta 20. aldar. Ratleikirnir eru prýðileg leið til að kynnast grunn- sýningum safnsins. Núna eru fimm nýir ratleikir á safninu og eru þeir myndskreyttir af Sigrúnu Eldjárn í til- efni af 150 ára afmæli safnsins. Er- lendir gestir geta líka nýtt sér leikina því þeir eru til á fimm tungumálum og má nálgast þá í móttöku safnsins. Tveir fyrir einn á Þjóðminjasafnið Morgunblaðið/Kristinn Menning Ratleikir eru prýðilegir til þess að kynnast grunnsýningum safnsins. Menningarferð á sunnudegi Ráðstefnan Björgun 2014 stendur nú yfir í Hörpu og lýkur á sunnudag. Slysavarnafélagið Landsbjörg stendur fyrir ráðstefnunni en þar gefst björgunarsveitarfólki tækifæri til að auka við þekkingu sína og fylgjast með nýjungum í leitar- og björgunarmálum í heiminum og deila þekkingu sinni með öðrum. Einstakt tækifæri gefst til að skoða tækjakost björgunarsveit- anna á sérstöku útisvæði við Hörpu. Þar verða tugir tækja á borð við stjórnstöðvarbifreið, ýmsar teg- undir jeppa, björgunarskip, báta, svifnökkva og hópslysakerrur, svo eitthvað sé nefnt. Útisýning- arsvæðið er opið í dag frá klukkan 9-18. Klukkan 17 hefst fjallabjörgunar- sýning við Hörpu. Björgunarhundar ásamt eigendum verða á svæðinu, hægt verður að skoða inn í tæki, sýnt verður hvernig vörum er hent úr flugvél í fallhlíf og margt fleira áhugavert. Nánar um Björgun 2014 á vefnum www.landsbjorg.is. Það nýjasta í leitar- og björgunarmálum Morgunblaðið/Ómar Sýning Ýmiss konar búnaður verður til sýnis við Hörpu um helgina. Björgunarskip, svifnökkvar, hópslysakerrur og fleira þessi tegund listforms henti Íslandi mjög vel einkum ef litið er til land- fræðilegrar staðsetningar. Það getur verið mikill hausverkur að flytja verk á milli landa á sýningar.“ Vasulka-hjónin Vasulka-stofan heitir í höfuðið á Steinunni Briem Bjarnadóttur, sem alltaf er kölluð Steina, og manni hennar Woody Vasulka. Leiðir þeirra lágu saman upp úr 1959. Það ár fékk Steina, sem þá var 19 ára gömul, styrk frá ríkisstjórninni til að nema fiðluleik í Prag í Tékkóslóvakíu. Þar hitti hún mannsefni sitt, Woody. Skemmst er frá því að segja að þau giftu sig 1964. Hann fékk íslenskan ríkisborgararétt eftir það. Þess má geta að íslenska nafnið hans er Tímó- teus Pétursson. Hann er kvikmynda- gerðarmaður og verkfræðingur að mennt. Þau fluttu til Bandaríkjanna árið 1968 og settust að í New York. Þar byrjuðu þau að garfa í þess- um nýja miðli vídeóinu „Þetta var al- gjörlega nýr miðill þá og upptökuvélin mjög þyngslalegt,“ segir Halldór Björn. Hann skýtur inn í að Steina hafi oft látið hafa eftir sér að hún hafi hætt í fiðluleik þegar hún áttaði sig á því að hún gæti vel haldið á upp- tökuvélinni því fiðluleikurinn hefði gert vinstri hönd hennar svo sterka. Á sjötta og sjöunda áratugnum þræddu þau hjónin neðanjarðarlífið í New York og tóku heimildarmyndir inni á helstu neðanjarðarklúbbum þar sem jaðarhópar samfélagsins lifðu góðu lífi. Þau tóku upp á vídeó þekkta tónlistarmenn eins og Miles Davis og fleiri. Þau sýna á sömu stöð- um og Andy Warhol. Þau fara sífellt lengra inn í þennan miðil og smíða sín eigin tæki og tól. Alla tíð hafa þau verið virk í að sækja um styrki í ný- sköpunar- og tæknisjóði. Árið 1971 stofnuðu þau frægasta margmiðlunarhús í heimi sem nefnist the Kitchen. „Þau eru brautryðj- endur. Þetta var strax vinsælt en þau héldu að þetta myndi vara í nokkra mánuði en það er enn starfrækt.“ Á árunum 1973-1979 voru þau prófessorar við margmiðlunardeild í háskólanum í Buffalo í New York. Þar gátu þau moðað úr tækninni og gert ýmsar tilraunir að vild. Það má segja að þau séu mikið uppfinn- ingafólk. Þegar köld veðrátta var farin að segja til sín, að sögn Halldórs Björns, þá ákváðu þau að flytjast búferlum til Santa-Fe í Nýju-Mexíkó og búa þar enn. Stjarna þeirra fór að rísa fyrir alvöru í kringum 2000. „Við þurftum að hafa snör handtök svo þau rynnu okkur ekki úr greipum. Því var ákveðið að stofna þessa nýju deild,“ segir Halldór Björn. Allur kjallari Listasafnsins er undirlagður af verkum beggja sem sýna tækniundrin. Stór innsetning er á verkum hjónanna og gestir leiddir um hana. Þar gefur á að líta meðal annars prentverk, grafíkverk sem búin eru til úr vídeóstillum. Steina setti upp gagnvirkt margmiðl- unarverk. Ljósmynd/Hallgrímur Arnarson Tertugallerí Gestir og gangandi geta gætt sér á einstaklega fallegum tert- um sem prýddar eru listaverkum. Listin á líka að bragðast vel. Morgunblaðið/Ómar Listasafn Íslands Hluti sýningarinnar Þá og nú í Listasafni Íslands. Sýningin tengist útgáfu Íslenskrar listasögu í fimm bindum. Fyrir alla fjölskylduna LISTASAFN ÍSLANDS 130 ÁRA NÝ UPPLÝSINGASÍÐA UM FJÁRMÁL Á LÍFEYRISALDRI Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is facebook.com/VIB.stofan | @vibstofan | www.vib.is HOLLRÁÐ VIÐ STARFSLOK Fjármál flækjast til muna þegar taka lífeyris hefst. Starfsfólk VÍB hefur sérhæft sig í fjármálum í aðdraganda og kjölfar starfsloka. Við höfum sett upp einfalda vefsíðu þar sem leitast er við að svara áleitnum spurningum er kunna að brenna á fólki á þessum tímamótum. » Hvernig eru greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar? » Hvernig og hvenær ætti ég að taka út séreignarsparnaðinn minn? » Hvað þarf ég að vita varðandi skattkerfið? » Hvaða áhrif hefur ávöxtun sparifjár? Kynntu þér málið á vib.is/60 eða bókaðu fund þér að kostnaðarlausu í síma 440 4900.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.