Morgunblaðið - 18.10.2014, Síða 16

Morgunblaðið - 18.10.2014, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarni Bene- diktsson fjármála- og efnahags- ráðherra kynntu boðaða leiðrétt- ingu húsnæðislána hinn 30. nóvember í fyrra. Tekið var tillit til þessarar að- gerðar í hagspá ASÍ sl. vor en þar sagði að leiðréttingin myndi örva innflutning og óbeint leiða til versnandi verðbólguhorfa. Meiri innflutningur myndi þrýsta geng- inu niður. Þá lýsti hagfræðingur Samtaka atvinnulífsins yfir áhyggjum af tímasetningu leiðréttingarinnar. Ef spá Seðlabankans gengi eftir væri gert ráð fyrir framleiðsluspennu á Íslandi á næsta ári. Leiðréttingin væri líkleg til að auka þá spennu í íslensku hagkerfi. Nú er hins veg- ar útlit fyrir lága verðbólgu næstu mánuði, þróun sem lækkandi heimsmark- aðsverð á hrá- vöru gæti stutt við. Þá hefur raungengi krónu haldist stöðugt á árinu, þrátt fyrir til dæmis ríflega 30% aukningu í bílainnflutningi fyrstu níu mánuði ársins. Verðbólgan hefur nú verið undir 2,5% markmiði Seðlabankans samfleytt í átta mánuði. Aukinn innflutningur hefur því ekki ógnað verðstöðugleika. Því má velta fyrir sér hvort verðbólguáhrif leiðrétt- ingarinnar hafi e.t.v. verið ofmetin. Misstu spár um spennu marks? Leiðréttingin var talin auka spennu. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Lækkandi heimsmarkaðsverð á hrá- vörum gæti skapað skilyrði til verð- lækkana á nauðsynjavöru á Íslandi. Slíkar lækkanir gætu stuðlað að því að verðbólga verði áfram lág, jafnvel undir verðbólgumark- miði Seðlabank- ans, ásamt því að auka kaupmátt heimila í aðdrag- anda kjarasamn- inga. Dæmi um verð- lækkanir eru sýndar á gröfum hér til hliðar. Annað grafið sýn- ir verðvísitölu korns og olíu til mat- argerðar, hitt framtíðarverð á bens- íni í New York. Svipuð þróun kemur fram á fleiri mörkuðum. Fara þarf aftur til ársins 2009 til að finna jafn lágt heimsmarkaðsverð á járngrýti. Vísitala hrávöru hjá Alþjóðabank- anum hefur heldur ekki verið jafn lág síðan 2009. Alþjóða fjármálakreppan skall á með fullum þunga haustið 2008, með falli bandaríska stórbankans Leh- man Brothers. Skuldakreppan á evrusvæðinu fylgdi í kjölfarið og sér ekki fyrir endann á henni. Þessir at- burðir ollu mikilli lækkun á hrá- vöruverði. Alþjóðabankinn fjallar um þessa þróun í nýrri skýrslu og segir þar að hrávöruverðið verði lágt út þetta ár og ef til vill lungann af árinu 2015. Lítill hagvöxtur á evrusvæðinu og í nýmarkaðsríkjum, sterkur Banda- ríkjadalur, auknar olíubirgðir og út- lit um góða uppskeru í flestum flokk- um matvöru leiði til verðlækkana. Neikvæð teikn á lofti Yngvi Harðarson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri ráðgjafa- fyrirtækisins Analytica, segir nei- kvæðar horfur í efnahagsmálum heimsins skýra verðlækkanir á hrá- vörum að undanförnu. Meiri líkur en minni séu á að verðið verði áfram lágt eitthvað fram á næsta ár, að minnsta kosti. „Það sem veldur verðlækkunum eru horfur á minni hagvexti í um- heiminum. Litið hefur verið til þró- unarinnar í Kína og Evrópu. Eftir- spurn eftir hrávörum hefur farið minnkandi vegna þróunar þar. Síðan er það hækkun dollarans. Það er heilmikil neikvæð fylgni milli gengisbreytinga dollars og verð- breytinga hrávara. Hækkun doll- arans hefur því ýtt undir lækkun hrávöruvara.“ – Eru einhver merki um að þessi þróun muni snúast við á næstunni? „Það er útlit fyrir að verðlækk- anirnar haldi áfram frekar en hitt. Það er erfitt að segja til um þró- unina í Kína en það er dauft yfir evrusvæðinu. Það eru fremur horfur á að þessi þróun komi til með að vara áfram.“ – Hvaða áhrif getur þetta haft fyrir verðþróun á Íslandi? „Þetta ætti að ýta undir verðlækk- anir hér heima á þessum vörum. Þó ef til vill ekki alveg hlutfallslega í takt við þá þróun sem við sjáum á heimsmarkaði, vegna þess að ýmis gjöld koma þar ofan á, flutnings- kostnaður og fleira. En þetta ætti að geta þýtt verðlækkanir hér heima á þessum varningi.“ – Verð á bensíni í framvirkum samningum í New York lækkaði fyrir helgi. Er raunhæft að búast við frekari lækkun á bensínverðinu? „Það lítur út fyrir það.“ – Gæti þróun heimsmarkaðsverðs á hrávöru stuðlað að því að verð- bólga haldist áfram lág á Íslandi? „Alveg tvímælalaust, þetta vegur það þungt í útgjöldum heimilanna. Þetta getur haft talsverð áhrif á verðbólguhorfur hér heima.“ – Er raunhæft að verðbólgan verði áfram undir 2,5% verðbólgu- markmiði Seðlabankans, líkt og hún hefur verið síðan í febrúar sl? „Ég tel líklegt að verðbólga hald- ist áfram undir markmiðinu, að minnsta kosti út þetta ár. Þegar horft er inn í næsta ár eru hins veg- ar fjölmargir óvissuþættir. Kjara- samningar og slíkir hlutir. Það er líklegt að verðbólga verði undir 2% í árslok, endi árið jafnvel nærri 1%.“ Hveitiverð að lækka Yngvi segir að senn geti skapast svigrúm fyrir verðlækkanir á mat- vöru á Íslandi. Sem dæmi nefnir hann að verð á hveiti sé nú ríflega 500 dalir á skeppuna, eða svipað og það var um mitt ár 2010. Það var ríf- lega 900 dalir í september 2012. Gengi krónu gagnvart Banda- ríkjadal hefur veikst að undanförnu. Miðgengi dalsins gagnvart krónu var þannig t.d. 111,72 kr. 8. maí sl., 119,6 kr. sl. föstudag og 115,9 kr. 19. ágúst. Yngvi telur að þótt Banda- ríkjadalurinn hafi hækkað vegi það ekki á móti lækkun á hrávöruverði. „Hún er svo mikil,“ segir Yngvi. Verð á hrávörum að lækka  Hveiti, korn, bensín og járngrýti meðal hrávara sem hafa lækkað í verði að undanförnu  Hagfræðingur telur þessar lækkanir geta skapað svigrúm fyrir lægra vöruverð á Íslandi Framvirkir samningar með bensín í NewYork Verð í bandaríkjadölum á gallon* 3.8 3.6 3.4 3.2 3.0 2.8 2.6 2.4 2.2 2.0 1.8 1.6 1.4 1.2 1.0 0.8 0.6 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 *Gallonið er 3,78 lítrar Heimild: Thomson/Reuters 16.10.2014 2,21 Vísitala matarverðs Heimild: Alþjóðabankinn 160 140 120 100 80 60 jan. ‘07 jan. ‘11jan. ‘08 jan. ‘12jan. ‘09 jan. ‘13jan. ‘10 jan. ‘14 Síðasta athugun á við sept. 2014 Grunnur vísitölunnar, 100, miðast við 2010 Korn Olíur til matargerðar AFP Kornakur í Maryland Framleiðsla á sojabaunum og korni í Bandaríkjunum hefur sjaldan verið jafn mikil og í ár. Aukið framboð þrýstir niður verðinu. Yngvi Harðarson Verð á hrávörum ræðst af ýmsum þáttum. Framboð og eftirspurn er augljós áhrifavaldur. Fram kemur í októberskýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um þró- un hrávöruverðs að verð á sykri lækkað um 7% í september vegna góðrar birgðastöðu og er verðið sagt það lægsta í fjögur ár. Sjávarafurðir lækkuðu mest í verði, eða um 8%, og rækjur þar af mest, um 10%. Verð á nauta- kjöti hækkaði hins vegar um 5%. Jafnframt hafi verð á hveiti lækkað um 7% í september vegna væntinga um að næstum yrði slegið met í heimsfram- leiðslu hveitis í ár. Á sama hátt hafi verð á maís lækkað um 8% vegna væntrar metuppskeru í Bandaríkjunum. Annað dæmi er að bresku bændasamtökin, NFU, spáðu því fyrr í þessum mánuði að hveiti- uppskeran í Bretlandi í ár mundi slá met, verða 8,6 tonn á hekt- ara, eða 16% meiri en 2013. Þá sendi bandaríska landbún- aðarráðuneytið frá sér skýrslu fyrr í þessum mánuði þar sem sagði að uppskeran á korni og sojabaunum í Bandaríkjunum mundi slá met í ár. Fram kom frétt í AP-fréttastofunnar um þessi mál að vænst væri metupp- skeru á korni í 22 sambandsríkj- um Bandaríkjanna. Framleiðslumetin eru að falla VÍÐA ERU VÆNTINGAR UM GÓÐA UPPSKERU Hveitiakur Verð á hveiti er að lækka. Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is mánudaginn 20. október, kl. 18 í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg Louisa Matthíasdóttir Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Verkin verða sýnd laugardag 11–17, sunnudag 12–17, mánudag 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Listmunauppboð í Gallerí Fold

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.