Morgunblaðið - 18.10.2014, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014
Ekkert bendir til
þess að bókfærð-
ar kröfur Lána-
sjóðs íslenskra
námsmanna séu
ofmetnar.
Þetta segir
Hrafnhildur Ásta
Þorvaldsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Lánasjóðs
íslenskra náms-
manna, og bendir á að það heyri til
undantekninga að kröfur hjá sjóðn-
um séu fyrndar.
Tilefnið er viðtal við lögfræðing í
Morgunblaðinu 15. október sem
leiddi líkur að því að bókfærðar kröf-
ur sjóðsins kynnu að vera ofmetnar.
Rökstuddi hann það með því að taka
dæmi um samninga hjá LÍN og
ákvæði í þeim um fyrningar.
Hvert mál skoðað fyrir sig
Hrafnhildur Ásta segir það heyra
til undantekninga að kröfur séu
fyrndar. „Það þarf að skoða hvert
mál fyrir sig. Það getur komið fyrir
að kröfur séu fyrndar en það er þá í
undantekningartilfellum. Við teljum
allavega ekki svo vera að bókfærðar
kröfur LÍN séu ofmetnar. Sjóðurinn
er með almenna vinnureglu varðandi
meðferð krafna. Við vitum ekki til
þess að við séum að innheimta
fyrndar kröfur. Hins vegar eru kröf-
ur afskrifaðar hjá sjóðnum á grund-
velli fyrningar, en það er allt gert á
einstaklingsgrundvelli,“ segir
Hrafnhildur Ásta. baldura@mbl.is
Kröfur
LÍN ekki
ofmetnar
Hrafnhildur Ásta
Þorvaldsdóttir
Undantekning ef
kröfur eru fyrndar
Sjö umsækjendur eru um embætti
sóknarprests og prests í Hallgríms-
prestakalli, Reykjavíkurprófasts-
dæmi vestra. Fimm þeirra sækja um
bæði embættin.
Um embætti sóknarprests sækja:
Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir,
séra Kristján Björnsson, séra María
Ágústsdóttir, sr. Sigurður Árni
Þórðarson og sr. Skúli S. Ólafsson.
Um embætti prests sækja auk
fyrrnefndra þau Anna Þóra Pauls-
dóttir guðfræðingur og sr. Árni
Svanur Daníelsson.
Frestur til að sækja um embættin
rann út 13. október sl. Biskup Ís-
lands skipar í embættið að fenginni
umsögn valnefndar. Valnefnd skipa
níu manns úr prestakallinu auk pró-
fasts. Embætti sóknarprests veitist
frá 1. nóvember nk. og embætti
prests veitist frá 1. apríl 2015.
Báðir prestar kirkjunnar, sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson og sr. Birgir
Ásgeirsson, láta senn af störfum.
Sjö umsækj-
endur í Hall-
grímssókn
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íslenskir listamenn verða áberandi
í Manitoba í Kanada á næstunni og
hefst „innrásin“ um helgina.
Rithöfundurinn Sjón áritar bæk-
ur í stærstu bókaverslun Winnipeg,
McNally Robinson, á morgun og
sérstök dagskrá verður með honum
í Manitoba-háskóla á mánudag auk
þess sem skipulögð hafa verið út-
varpsviðtöl við hann báða dagana.
Sjón kemur til Winnipeg frá
Calgary og fer
síðan þaðan til
Vancouver.
Dagana 24.
október til 1.
nóvember gengst
Sinfóníuhljóm-
sveit Winnipeg
fyrir norrænni
hátíð og býður
meðal annars
upp á Sigrúnu
Eðvaldsdóttur fiðluleikara og Vík-
ing Heiðar Ólafsson píanóleikara í
dagskránni auk þess sem Víkingur
Heiðar verður með tónleika í
Brandon 2. nóvember. Áður en
hann kemur til Winnipeg verður
hann með tónleika í Ottawa og To-
ronto og fer síðan til Calgary og
Vancouver áður en hann flýgur aft-
ur til Berlínar.
Kvikmyndin Björk: Biophilia
Live, sem fjallar um tónleikaferð
Bjarkar og Biophiliu-veröldina,
verður sýnd í Winnipeg í fyrsta sinn
24. október og er gert ráð fyrir að
myndin verði sýnd í viku.
Uppsetning Vesturports á ævin-
týrinu um Hróa hött, The Heart of
Robin Hood, í leikstjórn Gísla Arn-
ar Garðarssonar, verður á aðalsviði
konunglega leikhússins í Winnipeg
13. nóvember til 6. desember. Sýn-
ingin hefur vakið mikla athygli í
Boston, en allir leikarar í Winnipeg
eru úr röðum heimamanna.
„Það er gaman að geta lagt
menningunni lið,“ segir Hjálmar W.
Hannesson, aðalræðismaður Ís-
lands í Winnipeg, sem kemur að
málum með heimamönnum.
Íslensk menning í Manitoba
Víkingur Heiðar
Ólafsson
Íslenskir listamenn áberandi í Winnipeg og fleiri borgum næstu vikurnar
Hinn árlegi Urriðadans í Öxará
verður laugardaginn 18. október en
þá mun Jóhannes Sturlaugsson hjá
rannsóknafyrirtækinu Laxfiskum
fræða gesti Þjóðgarðsins á Þing-
völlum um Þingvallaurriðann.
Kynningin hefst klukkan kl.
14.00 og fer fram á bökkum Öx-
arár.
Gönguferðin hefst við bílastæðið
þar sem Valhöll stóð. Síðan er
gengið með ánni upp undir Drekk-
ingarhyl þar sem risaurriðar og
aðrir minni verða skoðaðir og
fjallað um lífshætti þeirra.
Gert er ráð fyrir því að kynn-
ingin taki um eina og hálfa klukku-
stund. Allir eru velkomnir.
Fylgst verður með
risaurriðum í Öxará
eftir georgeS bizet
www.opera.is
2. sýning 25. október kl. 20
3. sýning 1. nóvember kl. 20
4. sýning 8. nóvember kl. 20
Frumsýning í kvöld Lýsing:PállRagnarsson
Leikmyndogbúningar:ÞórunnS.Þorgrímsdóttir
Hljómsveitarstjóri:GuðmundurÓliGunnarsson
Leikstjóri:ÞórhildurÞorleifsdóttir
JóhannFriðgeirValdimarsson
HelgaRós Indriðadóttir
Kristinn Sigmundsson
OddurArnþór Jónsson
HannaDóra Sturludóttir
GuðjónÓskarsson
ViðarGunnarsson
ErlaBjörgKáradóttir
HallveigRúnarsdóttir
Miðasala í Hörpu
og á harpa.is
Miðasölusími 528 5050
eftir
Giuseppe
Verdi