Morgunblaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014 Árlegt Sól- kveðjukaffi Ís- firðingafélagsins verður haldið á Grand Hótel í Reykjavík á morgun, sunnu- dag kl. 15. Boðið verður upp á tón- listaratriði og fyrirlestur og svo kaffi, pönnukök- ur og annað meðlæti. Gestur í kaffi- boðinu verður Sigurður Pétursson sagnfræðingur, sem segir frá og kynnir bók þeirra Sigurjóns J. Sig- urðssonar Húsin í bænum. Þar segir frá ýmsum gömlum húsum á Ísa- firði. Sólkveðjukaffið vísar til þess að á Ísafirði hverfur sólin upp úr miðjum nóvember – og kemur ekki aftur upp fyrir fjöll fyrr en langt er liðið á janúar. Rúm 20 ár eru síðan hátíð þessi var fyrst haldin en Sólarkaffið var aftur á móti fyrst haldið 1946. Sólkveðjukaffi Ís- firðinga á sunnudag Ísafjörður Þar skín sólin stundum Málþing um heilbrigðisþjónustu við krabbameinssjúklinga verður hald- ið í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, mánudaginn 20. október kl. 17. Helgi Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir lyflækninga krabba- meina á Landspítala, flytur erindið: „Eru krabbameinslækningar á Ís- landi í fallhættu?“ Einnig flytur Gylfi Ólafsson heilsuhagfræðingur erindið: „Dýr og vandmeðfarin lyf: Hver er innkaupastjórinn?“ Síðan verða pallborðsumræður og verða þátttakendur Helgi Sig- urðsson, Ófeigur Tryggvi Þorgeirs- son læknir, Ragnheiður Haralds- dóttir forstjóri, Rannveig Einarsdóttir lyfjafræðingur og Þór- unn Sævarsdóttir hjúkrunarfræð- ingur. Allir eru velkomnir. Ræða þjónustu við krabbameinssjúka Kokkalandsliðið æfir nú stíft fyrir Heimsmeistarakeppnina í mat- reiðslu sem fram fer í Lúxemborg í nóvember nk. Önnur keppnisgreinin er kalt borð þar sem sýndir eru yfir 30 réttir sem tekur um 48 klukkustundir að útbúa. „Borðið er sannkallað listaverk þar sem hvert smáatriði hefur verið hugsað í þaula. Liður í æfingarferl- inu er að flytja réttina milli staða þannig að þeir haldi fullkomnu útliti sínu enda þurfa þeir að vera til sýnis í margar klukkustundir á keppn- isstað,“ segir í tilkynningu. Lands- mönnum gefst kostur á að skoða keppnisborðið þegar kokkarnir stilla því upp til sýnis í Smáralind sunnudaginn 19. október kl. 13-18. Kokkalandsliðið, sem hefur æft fyrir keppnina síðustu 18 mánuði, er skip- að 13 matreiðslumönnum. Þeir eru: Hafliði Halldórsson, faglegur fram- kvæmdastjóri liðsins, Þráinn Freyr Vigfússon fyrirliði, Viktor Örn Andrésson liðsstjóri, Fannar Vern- harðsson, Bjarni Siguróli Jakobsson, Ylfa Helgadóttir, Hafsteinn Ólafs- son, Axel Clausen, Garðar Kári Garðarsson, Daníel Cochran, Ari Þór Gunnarsson, Hrafnkell Sigríð- arson og María Shramko. Kokkalandsliðið frumsýnir kalda rétti Séra Jón Dalbú Hróbjartsson er að láta af störf- um eftir fjörutíu ára þjónustu í þjóðkirkjunni. Hann kveður söfnuð sinn í Hallgrímskirkju á sunnudaginn kl. 11:00. Þar hefur hann þjón- að sem prestur og sóknarprestur í 17 ár, ásamt því að hafa verið pró- fastur í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra í 20 ár. Hann var kallaður til þjónustu af hinu kristilega stúd- entafélagi og kristilegum skóla- samtökum sem skólaprestur og hef- ur verið sóknarprestur í Laugar- neskirkju og Hallgrímskirkju. Ennfremur hefur hann þjónað ís- lenskum söfnuðum erlendis og ver- ið sendiráðsprestur í Svíþjóð og Noregi, en hann stofnaði söfnuðinn í Gautaborg 1994. Séra Jón Dalbú kveður söfnuð sinn í Hallgrímskirkju Jón Dalbú Hróbjartsson ÓTAKMARKAÐIR MÖGULEIKAR MEÐ REDKEN MÓTUNARVÖRUM GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST. FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM Hárlökkin gefa 24 tíma vörn, 8 tíma hald og fallegan glans. HÁRLÖKK Volume vörurnar gefa ótrúlega fyllingu án þess að þyngja hárið. FYLLING/LOFT Glans- og sléttunarefni sem dregur úr ýfingu og gefur glans. SLÉTT/GLANS Mótunarvörurnar sem gefa góða hreyfingu og loft í hárið. HREYFING/HALD Blástursvörurnar veita vörn gegn hitatækjum og tryggja endingu. FORM/HITAVERND Dreifing: HÁR EHF s. 568 8305 har@har.is REDKEN Iceland á vertu vinur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.