Morgunblaðið - 18.10.2014, Qupperneq 23
VITINN 2014
Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni
leitað að áhugaverðum vaxtarbroddum í atvinnu
lífinu um land allt. Lesendur eru hvattir til að senda
blaðinu ábendingar á netfangið vitinn@mbl.is.
smádýrum á borð við stökkmýs
eða hamstra séu algengir, segir
Hanna svo ekki vera, en það komi
þó fyrir að þeir séu gerðir. „Til
dæmis þegar krabbameinsæxli
liggur utan á. En það eru tak-
mörk fyrir því hvað við leggjum
til með smádýrin og það er miklu
minna um stórar aðgerðir hjá
þeim.“
Tekur á að aflífa ung dýr
Dýralæknar lækna ekki bara
og auka lífsgæði dýra. Hluti af
starfi þeirra er að aflífa dýr og
það getur tekið á. Að sögn Hönnu
er nokkuð um að ung og hraust
dýr séu aflífuð, ástæðan sé yfir-
leitt að eigandinn treysti sér ekki
til að vera lengur með dýrið í
umsjá sinni. „Sumir fá sér dýr án
þess að átta sig á þeirri ábyrgð og
vinnu sem fylgir. Aðrir þurfa að
flytja þangað sem ekki má hafa
dýr. Sumir eru hræddir um að
dýrið lendi á vergangi þegar þeir
geta ekki haft það lengur, treysta
engum nema sjálfum sér og vilja
frekar að því sé lógað,“ segir
Hanna.
Hún segir að hvaða skoðun
sem dýralæknirinn kunni að hafa
á því að aflífa ungt og hraust dýr,
þá sé það eigandinn sem ráði. Í
tilvikum sem þessum sé alltaf
bent á Dýrahjálp Íslands og Katt-
holt og þannig hafa mörg gæludýr
fengið ný og góð framtíðarheimili.
Flestir eru til fyrirmyndar
Hugarfar varðandi gæludýra-
eign hefur breyst mikið, að sögn
Hönnu. „Fólk er orðið upplýstara
og gæludýraeigendur eru almennt
meðvitaðir um þá siðferðilegu
ábyrgð sem felst í því að taka að
sér dýr. Allflestir eru fyrirmynd-
ardýraeigendur og viðurkenna að
það þurfi að gera ráð fyrir dýrinu
í daglegu lífi. Að hugsa vel um
dýr snýst ekki um að kaupa dýrt
dót handa dýrunum eða jafnvel föt
eins og sumir gera. Þetta snýst
um hjartalagið; ást og umhyggju.“
Með skerm Bára er rúmlega ársgömul border collie-tík og brotnaði illa á
fæti. Til að varna því að hún fiktaði í umbúðunum bar hún skerm um hálsinn
í fjórar vikur. Hún kom á Dýraspítalann ásamt eiganda sínum, Hermanni
Georg Gunnlaugssyni, til að láta fjarlægja umbúðirnar og skerminn.
Geldingar Dýralæknarnir á Dýraspítalanum í Garðabæ framkvæma talsvert af geldingum og ófrjósemisaðgerðum á gæludýrum, einkum köttum og hund-
um, en einnig á kanínum. Myndin til vinstri sýnir geldingu á högna og sú til vinstri sýnir læðu sem verið er að framkvæma ófrjósemisaðgerð á.
Morgunblaðið/Þórður
snyrtivörum um borð í flugvélum.
Sif Cosmetics er fjögurra ára
gamalt dótturfyrirtæki ORF Líf-
tækni og einbeitir sér að fram-
leiðslu fyrir snyrtivörumark-
aðinn. Fyrirtækin starfa undir
sama þaki við Víkurhvarf í Kópa-
vogi og eru með um fjörutíu
starfsmenn. Gert er ráð fyrir um
650 milljóna króna veltu sam-
stæðunnar á þessu ári. Móðurfyr-
irtækið selur vörur sínar til
sjúkahúsa, lyfjafyrirtækja og
rannsóknarstofnana.
Vörur Sif Cosmetics eru seldar
undir vörumerkinu EGF. Það er
frumuvaki sem gegnir lykilhlut-
verki í líffræði húðarinnar og
stuðlar að endurnýjun hennar
með því að örva framleiðslu húð-
arinnar á elastíni og kollageni.
Fyrirtækið segir að húðvörurnar
veiti húðinni unglegt yfirbragð,
hún verði stinnari og sléttari, fái
frísklegri áferð, aukinn raka og
jafnari lit. Húðvörurnar séu of-
næmisprófaðar og henti öllum
húðgerðum.
Undirstaða framleiðslu Sif
Cosmetics og ORF Líftækni eru
sérvirk prótein sem ræktuð eru í
byggplöntum í gróðurhúsi ORF
Líftækni í Grindavík.
gudmundur@mbl.is
Húðvörur Sif Cosmetics hefur boð-
ið upp á sjö vörutegundir.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014
Kolbrún Arna Sigurðardóttir dýrahjúkrunarfræðingur var að hreinsa
tennur hunds og brjóta tannstein hans með hljóðbylgjum þegar útsend-
ara Morgunblaðsins bar að. Hvutti lá á meðan sallarólegur og svaf á sitt
græna eyra, enda ekki furða þar sem hann hafði fengið svefnlyf. „Vatnið
og hljóðið getur pirrað hundinn og þess vegna er best að sofa á meðan,“
segir Kolbrún. Að sögn Hönnu er mikilvægt að hreinsa tennur hunda og
katta. Miklar kvalir geti fylgt skemmdum tönnum, rétt eins og hjá fólki,
og sé ekkert að gert geti þetta leitt til sýkinga og veikinda. Dýrin geti
ekki sagt frá því og því séu sárir verkir vegna tannskemmda oft skrifaðir
á kostnað einhvers annars, eins og t.d. aldurs.
Dýrin geta ekki sagt frá
TÆKNIN NOTUÐ VIÐ TANNHREINSUN DÝRA
Í tannhreinsun Hundurinn sem hér er sagt frá svaf á meðan dýrahjúkrunarfræð-
ingurinn Kolbrún hreinsaði tennur hans. Tannhirða hunda og katta er mikilvæg.
Skjól í amstri dagsins
Smiðjuvegur 9 • 200 Kópavogur • Sími 535 4300 • Netfang axis@axis.is • www.axis.is
EINRÚM Hönnuður: Sturla Már Jónsson Húsgagna og innanhúsarkitekt