Morgunblaðið - 18.10.2014, Síða 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014
Grænn markaður ehf. | Réttarhálsi 2, 110 Reykavík | www.flora.is | Sími 535 8500 | info@flora.is
Verslunareigendur!
Ítalskir pappírspokar í úrvali
Eingöngu
sala til fyrirtækja
STUTTAR FRÉTTIR
● Ákvörðun um
að afnema ekki
gjaldeyrishöfin við
núverandi að-
stæður felur í
raun í sér ákvörð-
un um að búa við
gjaldeyrishöft um
ókomna tíð, segir
Þorsteinn Víg-
lundsson, fram-
kvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, í nýju frétta-
bréfi samtakanna. Aðstæður til af-
náms hafta eru um þessar mundir
eins góðar og völ er á, að mati Þor-
steins, og alls óvíst er hversu lengi
það ástand varir. Vanda verði vel til
verka við afnám gjaldeyrishafta enda
verkefnið flókið. Lengja þurfi afborg-
unarferil svokallaðs Landsbankabréfs
og búa svo um hnútana að uppgjör
þrotabúa gömlu bankanna raski ekki
þjóðhagslegum stöðugleika.
Eins góðar aðstæður til
afnáms hafta og völ er á
Þorsteinn
Víglundsson
● Greinendur Ar-
ion banka spá því
að vísitala neyslu-
verðs haldist
óbreytt í október
og verðbólga verði
undir 2,5% mark-
miði Seðlabankans
út árið. Greinendur
bankans spá lágri
verðbólgu næstu
mánuði og að hún
standi í 2% í janúar. Yrði það þá tólfti
mánuðurinn í röð sem verðbólga er
undir markmiði Seðlabankans.
Hagfræðideild Landsbankans spáir
því að vísitalan hækki um 0,1% í októ-
ber og að tólf mánaða verðbólga
mælist því 1,9% í stað 1,8%.
Spá því að verðlag
standi í stað í október
Verðbólga Mælist
nú einungis 1,8%.
BAKSVIÐ
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Ráðast ætti í heildstæða úttekt á
kostnaði íslensks verðbréfamarkað-
ar í samanburði við kauphallir á hin-
um Norðurlöndunum. Þar eigi ekki
aðeins að horfa til kostnaðar við að
eiga viðskipti í Kauphöll Íslands
heldur einnig þann kostnað sem
fylgir því að gefa út og skrá verðbréf
á markað.
Þetta segir Páll Harðarson, for-
stjóri Kauphallar Íslands, í samtali
við Morgunblaðið.
Frá því var
greint í Morgun-
blaðinu í gær að
sérstakur verð-
bréfahópur Sam-
taka fjármálafyr-
irtækja (SFF)
væri þeirrar
skoðunar að
lækka þurfi gjald-
töku Kauphallar-
innar. Kostnaður við að eiga þar við-
skipti sé mun hærri en hjá öðrum
Kauphöllum innan NASDAQ OMX
samstæðunnar og á öðrum ná-
grannamörkuðum. Í tillögum að úr-
bótum á starfsumgjörð á verðbréfa-
markaði leggur hópurinn til að farið
verði í samstarf við Kauphöllina um
að safna saman upplýsingum um
verð hér á landi og í nágrannaríkjum
í því skyni að efla samkeppnishæfni
íslensks verðbréfamarkaðar.
Páll tekur undir með SFF að mik-
ilvægt sé að kanna kostnaðarmynd-
un á íslenskum verðbréfamarkaði.
„Nauðsynlegt er hins vegar að gera
það með heildstæðum hætti og að-
komu allra hagsmunaaðila,“ útskýrir
Páll, „en ekki kanna aðeins einhvern
örþátt sem skiptir litlu máli í hinu
stóra samhengi.“
Samsvarar 1-2 útboðslýsingum
Páll segir að Kauphöllin hafi sjálf
haft áhyggjur af kostnaðarmyndun á
verðbréfamarkaði og vísar þar meðal
annars til verðlagningar fjármála-
fyrirtækja þegar kemur að umsjón
með útgáfu og skráningu bréfa á
markað. Páll bendir á að viðskipta-
gjöld Kauphallarinnar muni að lík-
indum nema um 200 milljónum
króna á þessu ári en sú fjárhæð sam-
svari kostnaði við 1-2 útboðslýsingar
hjá bönkunum þegar bréf séu tekin
til viðskipta í Kauphöllinni.
Í skýrslu verðbréfahóps SFF er sú
tillaga að lækka þurfi gjaldtöku bæði
Kauphallarinnar og Verðbréfa-
skráningar Íslands, sem starfar inn-
an OMX samstæðunnar, á meðal
helstu forgangsmála í því skyni að
bæta starfsumgjörð á verðbréfa-
markaði. Páll segir að það skjóti
óneitanlega skökku við ef markmiðið
sé að leita allra leiða til að draga úr
kostnaði á verðbréfamarkaði. Fjár-
hæðirnar sem um er að ræða séu
„dvergvaxnar“ í samanburði við
þóknanir bankanna. „Þannig að mér
þykir þetta afskaplega
sérkennilegur málflutningur.“
Hann vonast þó til að tillögur SFF
leiði til þess að farið verði í heild-
stæða úttekt á kostnaðarmyndun á
verðbréfamarkaði í samanburði við
aðrar kauphallir á Norðurlöndunum.
Þar eigi að skoða bæði hlutdeild
Kauphallar Íslands í þeim kostnaði
og fjármálafyrirtækjanna. „Ég ótt-
ast ekki hvernig Kauphöllin kemur
út úr slíkum samanburði,“ segir Páll.
Verðbréfahópur SFF var settur á
fót í janúar á þessu ári. Skipaður var
þriggja manna stýrihópur sem í áttu
sæti Sigurður Atli Jónsson, forstjóri
MP banka, Tryggvi Björn Davíðs-
son, framkvæmdastjóri Markaða hjá
Íslandsbanka, og Andri Guðmunds-
son, forstjóri H.F. Verðbréfa. Í
skýrslu hópsins, sem var birt á vef-
síðu SFF í fyrradag, eru settar fram
22 úrbótatillögur um starfsumgjörð
verðbréfamarkaðar. Á fundi stjórnar
SFF í september sl. var ákveðið að
leggja áherslu á átta tillögur sem
forgangsmál.
Til viðbótar við lægri gjaldtöku
Kauphallarinnar, þá eru önnur
helstu áherslumál verðbréfahópsins
meðal annars að undanþága frá stað-
greiðslu skatts taki til allra fjármála-
fyrirtækja sem hafa leyfi til að
stunda verðbréfaviðskipti. Núna
gildi sú undanþága aðeins um banka,
sparisjóði og lánafyrirtæki en ekki
verðbréfafyrirtæki.
Kallar eftir úttekt á kostn-
aði verðbréfamarkaðar
Forstjóri Kauphallarinnar hefur áhyggjur af verðlagningu fjármálafyrirtækja
Markaður Forstjóri Kauphallarinnar vill sjá heildstæða úttekt á kostnaðarmyndun á verðbréfamarkaði.
Morgunblaðið/Ómar
!"#
!"$
#
"%
%
"$
%
$%$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
"
!"
!$
#
""
""
%#"
$#
"
"%
!"$
!$
#%#
"%
"$
%#%
$
!"#
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Eignarhaldsfélag Verðbréfaþings,
sem rekur bæði Kauphöll Íslands
og Verðbréfaskráningu Íslands,
hagnaðist um 327 milljónir króna
á síðasta ári. Minnkaði hagnaður
félagsins um 15 milljónir króna frá
fyrra ári. Allt hlutafé er í eigu
Nasdaq OMX Nordic Oy í Finn-
landi.
Heildartekjur námu 1.069 millj-
ónum króna og stóðu nánast í
stað á milli ára. Tekjur vegna
starfsemi Verðbréfaskráningar
voru 592 milljónir á liðnu ári og
hækkuðu um ríflega 30 milljónir
frá árinu 2012. Hins vegar lækk-
uðu tekjur Kauphallarinnar um
tæplega 20 milljónir sem skýrist
af minni þóknanatekjum vegna
viðskipta. Tekjur af útgáfum bréfa
á markað námu 123 milljónum og
hækkuðu um nærri 30 milljónir
frá fyrra ári. Eignir nema 2.300
milljónum og eiginfjárhlutfall var
liðlega 49% í lok síðasta árs.
Stjórn félagsins lagði til að
greiddur yrði arður til hluthafa að
fjárhæð 300 milljónir vegna af-
komu á árinu 2013. Félaginu er
hins vegar ekki heimilt að greiða
út arðinn til erlendra hluthafa í
gjaldeyri. Fram kemur í sam-
stæðuársreikningi að vegna fjár-
magnshafta hafi ógreiddur upp-
safnaður arður numið 950
milljónum króna í árslok 2013.
Hagnaðist um 327 milljónir
FJÁRMAGNSHÖFTIN STOPPA ARÐGREIÐSLUR TIL NASDAQ OMX
Páll
Harðarson