Morgunblaðið - 18.10.2014, Síða 26

Morgunblaðið - 18.10.2014, Síða 26
26 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is „Það er komið fram við okkur eftirlif- endurna eins og holdsveikisjúklinga, við erum útilokuð úr samfélaginu sem við höfum alist upp í,“ segir Se- nessieh Momoh, þegar 35 einstak- lingar sem hafa náð sér af ebólu hitt- ast í borginni Kenema í Síerra Leóne. Til umræðu á fundinum er hvað fyrr- verandi ebólusjúklingar, sem nú eru ónæmir, geta lagt af mörkum til að hjálpa til í baráttunni gegn útbreiðslu veirunnar. „Fólk sem var vinir okkar og sem við höfðum deilt pálmavíni með vildi ekki lengur vera með okkur. Jafnvel þegar ég sýndi öldungunum í sam- félaginu læknisvottorð um að ég væri laus við ebóluna hristu þeir hausinn,“ segir Momoh, sem vonast til þess að fundurinn, sem var skipulagður af staðaryfirvöldum, UNICEF og bandarísku sóttvarnastofnuninni, verði til þess að breyta hugarfari fólks. Nýleg könnun á vegum UNICEF sýndi að fjöldi fólks sem lifir af ebólu- smit mætir fordómum, skömm og mismunun. Bóndinn James Gebbeh var tvo mánuði að ná sér eftir að hafa smitast af ebólu en þegar hann snéri aftur í þorpið sitt forðaðist fólk hann og grýtti hundinn hans. „Ég má ekki lengur sækja vatn í brunninn og ég er alfarið háður matargjöfum frá hjáp- arsamtökum,“ segir hann. Gefa öðrum von Þegar Isata Yillah smitaðist af ebólu óttaðist systir hennar að Isata yrði útskúfuð og sagði henni að fela sig þegar opinberir starfsmenn komu heim til þeirra að leita að mögulegum tilfellum. „Þegar ég þoldi ekki við lengur fór ég í greiningarmiðstöðina þar sem ég var greind með ebólu og farið var mig í læknamiðstöðina,“ segir Yillah en þegar hún var útskrif- uð vikum seinna komst hún að því að hún hafði smitað eiginmann sinn, sem lést af völdum veirunnar. UNICEF stefnir að því að halda samskonar fundi víðsvegar um Síerra Leóne á næstu sex mánuðum. „Fólk sem hefur lifað af ebólu gefur öðrum, sem enn eru að berjast við sjúkdóminn, von,“ sagði velferðar- ráðherra landsins í tilkynningu. Læknast af ebólu en mæta fordómum og útskúfun heima  Komið fram við eftirlifendur „eins og holdsveikisjúklinga“  Halda fundi AFP Neyð Starfsmaður hjálparsamtaka yfirgefur heimili í Monroviu í Líberíu eftir að hafa heimsótt fjölskyldu sem þjáist af ebólu og er í einangrun. Stjórnvöld í Níg- eríu sögðust í gær hafa komist að vopna- hléssam- komulagi við hryðjuverka- samtökin Boko Haram og að þau hefðu heitið því að frelsa 219 stúlkur, sem rænt var í apríl sl., frá Chibok. Margir hafa dregið yfirlýsing- arnar í efa en tímasetning sam- komulagsins þykir sérstaklega grunsamleg í ljósi þess að gert er ráð fyrir að forsetinn, Goodluck Jonathan, gefi kost á sér til endur- kjörs á næstunni. Þá segjast þeir sem þekkja til Boko Haram ekki kannast við Danladi Ahmadu, sem var sagður fulltrúi samtakanna í samningaviðræðunum. „Ég hef aldrei heyrt um þennan mann og ef Boko Haram vildu lýsa yfir vopnahléi myndi slík yfirlýsing koma frá leiðtoga samtakanna, Abubakar Shekau,“ sagði Shehu Sani, sérfræðingur í málefnum Boko Haram, sem hefur samið við samtökin fyrir hönd stjórnvalda. Efasemdir um yfir- lýst samkomulag við Boko Haram Fá stúlkurnar loks að snúa heim? NÍGERÍA Sextán létu lífið og níu slösuðust alvarlega þegar loftrist gaf sig á útitónleikum í Seongnam í Suð- ur-Kóreu í gær. Að sögn björg- unarmanna stóð fólkið á ristinni til að hafa betra útsýni yfir sviðið en féll 10 metra niður í bílastæða- kjallara þegar ristin gaf sig undan þunganum. Talið er að flestir hinna látnu hafi verið stúdentar en nokkrir þeirra sem slösuðust eru enn í lífshættu. 16 látnir eftir slys á útitónleikum SUÐUR-KÓREA Björgunarmenn standa við ristina. Washington. AFP. | Samuel Sevian er aðeins 13 ára gamall en honum liggur á; hann langar til að verða yngsti stórmeistari í sögu Banda- ríkjanna. Núverandi methafi er Ray Robson, sem var útnefndur stórmeistari tveimur vikum áður en hann varð 15 ára. Samuel verður 15 ára í desember á næsta ári en er aðeins 14 stigum frá stórmeist- aratitlinum. „Ég vil eignast þennan titil,“ sagði Samuel í samtali við AFP á hliðarlínum skákmóts í Arlington í Washington. Þegar hann hefur náð því markmiði ætlar hann að láta annan draum rætast: að verða heimsmeistari í skák. Hann hefur fulla ástæðu til bjartsýni; árið 2006 varð hann yngsti skákmaðurinn í Bandaríkjunum til að verða „ex- pert“; ná 2.000-2.199 stigum. Og 12 ára og 10 mánaða gamall varð hann yngsti Bandaríkjamaðurinn til að verða alþjóðlegur meistari. Varð ástfanginn En hver er lykillinn að velgengni hans? Jú, æfing. Samuel gengur ekki í skóla þar sem hann þarf að laga nám sitt að mótaáætlun sinni en eftir að hann hefur lært heima teflir hann í allt að sex klukku- stundir á dag. Hann segir skák- Vill verða yngsti stórmeistarinn  Varð alþjóðlegur meistari 12 ára  „Að tapa er verra en að deyja“ AFP Skák Samuel er undrabarn en jafn- framt duglegur að æfa sig. Svo virðist sem ótti vegna mögulegs ebólufaralds sé að breiðast út en í gær lokuðu hermálayfirvöld í Pentagon inngangi og bílastæði eftir að kona, sem hafði nýlega ferðast til Afríku, kastaði upp fyrir utan bygg- inguna. Ekki lá fyrir hvaða Afríkuland eða lönd konan heimsótti á ferða- lagi sínu. Þá hafa stjórnmálamenn vestanhafs gripið til ebólunnar í kosningabar- áttunni fyrir yfirvofandi þingkosningar og slást um það hvernig á að tak- ast á við vandann. Repúblikanar hafa verið sérstaklega duglegir við að benda ásakandi fingri á forsetann en Barack Obama tilkynnti í gær að hann hefði útnefnt Ron Klain, forstjóra eignarhaldsfélagsins Case Holdings, til að samræma viðbrögð Bandaríkjanna við ebólufaraldrinum. Ebóla orðin að pólitísku vopni PENTAGON GRÍPUR TIL VARÚÐARRÁÐSTAFANA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.