Morgunblaðið - 18.10.2014, Page 27

Morgunblaðið - 18.10.2014, Page 27
lausan dag óhugsandi en enn verra sé að tapa einvígi. „Að tapa er verra en að deyja,“ segir Samuel, sem lærði að tefla fimm ára gamall. „Ég varð ástfang- inn af leiknum,“ segir hann. Það var pabbi hans, Armen, sem kenndi honum en þegar feðgarnir tefla í dag er taflmönnunum raðað þannig að pabbinn hafi smáforskot á þann stutta. Armen er stoltur af syninum en hefur einnig áhyggjur af honum og hefur reynt að stýra honum í áttina að öðrum áhugamálum. Hann var sjálfur meistari þegar hann var yngri en vill ekki að Samuel verði „skákfrík“. Armen viðurkennir þó að strákurinn hafi einstaka hæfi- leika. „Átta ára tefldi hann fimm skákir á sama tíma, með bundið fyrir augun,“ segir hann. „Hann vann þær allar.“ Nýtur aðstoðar Kasparovs Samuel fær reglulega ráðgjöf frá Garry Kasparov gegnum tölvu, en Armen segir að Samuel hefði ekki náð jafnmiklum árangri og raun ber vitni nema með aðstoð Garry Kasparov-sjóðsins, sem hefur greitt hluta af kostnaði Samuels við ferðalög. Sjálfur segist Samuel ekki leggja á minnið fyrri skákir þar sem það sé ekki nauðsynlegt. Í staðinn legg- ur hann mikið upp úr því að skoða lykilstöður í einvígjum. Þá liggur hann yfir bókum og skákforritum og hittir stórmeistarann Alexander Chernin á tveggja til þriggja mán- aða fresti. holmfridur@mbl.is AFP Feðgar Þegar Samuel teflir við föður sinn gefur hann honum forskot til að gera sjálfum sér aðeins erfiðara fyrir að vinna hann. FRÉTTIR 27Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014 Phnom Penh. AFP. | „Þið færðuð upp sögu sem var einföld, en þrátt fyrir allt bara ævintýri fyrir börn … til mikilla vonbrigða höfð- uð þið réttlætið að háði og spotti,“ sagði Nuon Chea, einn af leiðtog- um Rauðu khmerana, í vitnisburði fyrir sérstökum dómstól í Kambó- díu í gær. Réttarhald stendur nú yfir í máli gegn Nuon Chea, sem er einnig þekktur sem „Bróðir númer tvö“, og Khieu Samphan, fyrrverandi forseta ógnarstjórnar khmeranna, en þeir hafa verið ákærðir fyrir þjóðarmorð, þvinguð hjónabönd og nauðganir. Nuon Chea, 88 ára, og Khieu Samphan, 83 ára, voru báðir fundnir sekir um glæpi gegn mannkyninu í ágúst sl. en khmer- arnir, sem voru við völd 1975- 1979, eru taldir hafa myrt allt að tvær milljónir Kambódíumanna. Vegna þess hve ákærurnar gegn mönnunum tveimur voru umfangs- miklar og vegna aldurs þeirra var ákveðið að skipta málinu gegn þeim niður í smærri réttarhöld. Ólýsanleg hroðaverk Fjöldamorð khmerana á 100.000-500.000 Cham-múslimum og 20.000 Víetnömum eru grund- völlur ákæru á hendur Nuon Chea og Khieu Samphan fyrir þjóð- armorð. Þeir hafa einnig verið ákærðir fyrir glæpi gegn mann- kyninu og stríðsglæpi í seinni rétt- arhöldunum. „Orð fá ekki lýst því hvernig Rauðu khmerarnir misþyrmdu okkur. Markmið þeirra var að út- rýma kynætti okkar,“ sagði Seth Maly, 64 ára, sem var fangi í þrælkunarbúðum khmeranna. Hún missti um 100 ættmenni í valdatíð ógnarstjórnarinnar, þ.á m. tvær dætur, foreldra og fimm systkin. Tugþúsundir neyddar til að ganga í hjónaband „Bróðir númer eitt“, Pol Pot, fór fyrir khmerunum, sem rifu niður innviði samfélagsins til að skapa landbúnaðarútópíu í Kambódíu. Í þeirri viðleitni beittu þeir ýmsum aðferðum en í því máli sem nú er fyrir þeim dómstól sem fjallar um glæpi khmeranna eru Nuon Chea og Khieu Sam- phan m.a. ákærðir fyrir að hafa átt þátt í því að tugþúsundir manna og kvenna voru neyddar til að giftast, oft í fjöldaathöfnum, í tilraun til að fjölga íbúum Kambó- díu. Mennirnir tveir hafa einnig ver- ið ákærðir fyrir nauðganir en sak- sóknararnir vilja meina að hvert einasta þvingaða samræði sem átti sér stað innan þessara hjónabanda teljist til glæpa gegn mannkyninu. Gert er ráð fyrir að réttarhöldin standi til 2016. holmfridur@mbl.is Aðrir lykilleiðtogar Önnur mál sem rekin hafa verið fyrir dómstólnum Pol Pot Ta Mok „Slátrarinn“ og fyrrverandi hershöfðingi Var handtekinn 1999 en lést 2006, 80 ára gamall, á meðan hann beið eftir að réttað yrði yfir honum Lést 1998, 73 ára gamall, í stofufangelsi uppreisnarmanna innan Rauðu khmeranna Heimild: ECCC/Documentation Centre of Cambodia 50 km Tonle Sap Fyrir fyrrverandi leiðtoga ógnarstjórnarinnar 1975-1979 Dómstóll Kambódíu vegnaRauðu khmeranna Khieu Samphan Ieng Sary Fyrrverandi forseti Kambódíu, andlit Rauðu khmeranna út á við Hafa að auki verið ákærðir fyrir þjóðarmorð í tengslum við drápin á 100.000-500.000 Cham-múslimum og 20.000 Víetnömum fyrir glæpi gegnmannkyninu, lífstíðarfangelsi fyrir glæpi gegnmannkyninu, lífstíðarfangelsi Fyrrverandi utan- ríkisráðherra stjórnarinnar Lést 2013, 87 ára gamall - á meðan réttarhald stóð yfir - sakaður um stríðsglæpi og þjóðarmorð Aldur:83 Ieng Thirith Fyrrverandi „fyrsta frú“ stjórnarinnar Var sleppt árið 2012 eftir að hafa verið úrskurðuð óhæf til að svara til saka vegna versnandi andlegrar heilsu Aldur: 82 Nuon Chea „Bróðir númer tvö“ Aldur: 88 Sérstök dómsdeild við dómstóla Kambódíu Fundinn sekur Fundinn sekur Kaing Guek Eav kallaður Duch Dæmdur í 30 ára fangelsi 2010 - lengt í lífstíðarfangelsi eftir áfrýjun - fyrir að hafa skipulagt morð á 15.000 manns Fyrrverandi fangelsisstjóri Aldur: 71 Fundinn sekurLést Sleppt Stofnaður árið 2003 af Kambódíu og Sameinuðu þjóðunum til að sækja til saka háttsetta leiðtoga og þá „sem bera mesta ábyrgð“, fyrir glæpi framda á árunum 1975-1979 Hámarksrefsing: lífstíðarfangelsi; engin dauðarefsing og engar bætur til fórnarlamba Komust til valda í Kambódíu 1975-1979, afnámu trúarbrögð og gjaldmiðla, lokuðu skólum Myrtu allt að 2 milljónir manna með svelti, þrælavinnu, pyntingum og aftökum „Bróðir númer eitt“ og leiðtogi Rauðu khmeranna „Blóðvellir“ aftökustaðir RK fangelsi 380 189 Rauðu khmerarnir Siem Reap Battambang KAMBÓDÍA Mekong Phnom Penh Sihanoukville Enn réttað yfir öldnum khmerum  Ákærðir fyrir þjóðarmorð  Hundr- uð þúsunda myrt  Á níræðisaldri Nuon Chea Khieu Samphan ORGANIC FACE Skilar húðinni hreinni, ferskri og glóandi á náttúrulegan hátt Byggir á hreinum og lífrænt vottuðum innihaldsefnum. Brokkolí, sjóþörungar, agúrka, Aloe Vera, ólífuolía, kókóshnetu, sólblóma og repjufræolíur eru allt dæmi um hrein náttúruleg innihaldsefni sem veita húðinni þá næringu, vernd og raka sem hún þarfnast. brokkoli.is CREAM CLEANSER Hreinsar burt mascara og farða á árangursríkan hátt. Inniheldur Brokkolí, kókóshnetu-og sólblómafræolíu sem gefa raka og vernda húðina. Djúphreinsar - stíflar ekki svitaholurnar. FOAMING CLEANSER Sápulaus léttfreiðandi andlitshreinsir með rakagefandi ólífuolíu og næringu úr brokkolí. Hjálpar að eyða bakteríum sem geta valdið bólgum og unglingabólum Frábær í sturtuklefann ! BALANCING TONER Lífrænn tóner fyrir jafnvægi húðarinnar. Efni úr agúrku, brokkolí og sjóþörungum gefa náttúrulegan raka sem fær húðina til að endurnærast og ljóma af ferskleika. MOISTURE BOOSTER Yfirburða lífænt rakakrem - fyrir allar húðgerðir Lífræn olía úr brokkolí- fræjum, olía úr repju- fræjum og þang eru dæmi um hágæða náttúruleg innihaldsefni sem auka raka húðarinnar. Ný hágæða lífræn andlitshreinsilína og rakakrem sem hreinsar og verndar án þess að þurrka eða erta húðina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.