Morgunblaðið - 18.10.2014, Side 33
MESSUR 33á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Aðventkirkj-
an, Ingólfsstræti 19, Reykjavík. Biblíufræðsla
laugardag kl. 11. Tónlistarguðsþjónusta kl. 12.
Kórinn Adventsangerne frá Noregi kemur í heim-
sókn og sér um guðsþjónustuna.
AÐVENTKIRKJAN í Vestmannaeyjum | Að-
ventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum.
Biblíufræðsla laugardag kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 12. Bein útsending frá Reykjavíkursöfnuði.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi | Safn-
aðarheimili aðventista, Eyravegi 67, Selfossi.
Biblíufræðsla laugardag kl. 10. Guðsþjónusta
kl. 11. Lokað vegna sameiginlegrar guðsþjón-
ustu í Reykjavík.
AKRANESKIRKJA | Dagur hjónabandsins í
Akraneskirkju. Guðsþjónusta kl. 14. Stutt pré-
dikun um ástina og kærleikann. Fallegir sálmar
og létt lög. Einsöngur: Halla Jónsdóttir. Sr. Páll
Ágúst Ólafsson héraðsprestur messar. Kaffi-
veitingar eftir messu. Sunnudagaskólinn verður
í kirkjunni kl. 11. Umsjón: Nanna María Elfars-
dóttir. Undirleikur: Sveinn Arnar Sæmundsson.
AKUREYRARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Umsjón sr. Sunna Dóra Möller og
Hjalti Jónsson. Yngri barnakór Akureyrarkirkju
syngur. Stjórnandi er Sigrún Magna Þórsteins-
dóttir. Bleik messa kl. 20. Prestar eru sr. Hildur
Eir Bolladóttir og sr. Sunna Dóra Möller. Inga
Vala Jónsdóttir og Heiðrún Frímannsdóttir segja
reynslusögur. Lára Sóley, Hjalti og Stúlknakór
Akureyrarkirkju flytja tónlist Dusty Springfield.
Stjórnandi kórsins er Sigrún Magna Þórsteins-
dóttir.
AKURINN | Samkoma kl. 14 í Núpalind 1,
Kópavogi. Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar.
Guðmundur Ómar Óskarsson organisti. Kirkju-
kórinn leiðir safnaðarsöng. Kirkjuþjónar lesa
lexíu og pistil dagsins. Barnamessa á sama
tíma í safnaðarheimili kirkjunnar, umsjón hafa
Valli og Fritz. Safnaðarkaffi á eftir.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Barn
verður skírt í messunni. Linda Jóhannsdóttir
djákni annast samverustund sunnudagaskól-
ans. Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Kammerkór Áskirkju
syngur, organisti Magnús Ragnarsson. Kaffi-
sopi að messu lokinni.
BAKKAGERÐISKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
11 undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur. Vina-
dagur, allir komi með vin með sér. Gospel-
guðsþjónusta kl. 20. Kór Ástjarnarkirkju syngur
undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Prestur
er sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, fv. dóm-
kirkjuprestur, og meðhjálpari Sigurður Þórisson.
BESSASTAÐAKIRKJA | Kl. 11 Sunnudaga-
skóli í Brekkuskógum 1. Umsjón hafa Fjóla og
sr. Hans Guðberg. Kl. 14 Kirkjudagurinn;
messa í Bessastaðakirkju. Sr. Hans Guðberg
og Margrét djákni þjóna. Álftaneskórinn syngur
undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar. Ræðu-
maður Gunnar Valur Gíslason bæjarfulltrúi. Að
messu lokinni er kaffisala kvenfélagsins í hátíð-
arsal íþróttamiðstöðvarinnar til styrktar Líkn-
arsjóði Álftaness.
BOÐUNARKIRKJAN | Laugardag kl. 11 er
samkoma í Boðunarkirkjunni, Álfaskeiði 115,
Hafnarfirði. Ræðumaður dagsins er Guðný Sig-
fúsdóttir sem mun vera með vitnisburð og pré-
dikun. Samkomugestir og systkini bera uppi
sönginn. Barnastarf á meðan prédikun stendur
yfir. Sunnudag kl. 16 býður dr. Steinþór Þórð-
arson upp á frábæran boðskap úr Opinber-
unarbókinni, sem er síðasta bók Biblíunnar, og
fjallar um okkar tíma, þ.e. um síðustu tímana.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
11. Messa kl. 11. Prestur sr. Gísli Jónasson.
Kór Breiðholtskirkju syngur, organisti er Örn
Magnússon. Kaffi í safnaðarheimili að messu
lokinni.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa með léttu og
glaðværu viðmóti kl. 11. Samvera fyrir alla fjöl-
skylduna. Hlutverkamessa kl. 14.
Allt öðruvísi messa í formi og tónlist. Páll Þór
Jónsson meðferðarráðgjafi flytur hugleiðingu.
Hvað merkir: ADHD, meðvirkni, geðsveiflur,
kulnun, andlegt eða geðrænt, óþekkt, huglægt,
sjálfstyrking.
Matthías Stefánsson blúsar bæði á gítar og
fiðlu og Jónas Þórir á Hammond. Bústaðakórinn
flytur nýja sálma. Prestur sr. Pálmi Matthías-
son, messuþjónar aðstoða. Molasopi eftir
messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli. Prestur sr. Úrsúla Árnadóttir. Organisti
Sólveig Sigríður Einarsdóttir og kór Digra-
neskirkju sér um söng. Súpa í safnaðarsal að
messu lokinni.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö. kl.
8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnu-
dagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra Karl Sig-
urbjörnsson biskup prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Dómkórinn og organisti er Kári Þormar.
Barnastarf á kirkjuloftinu á sama tíma í umsjón
Ólafs og Sigurðar. Fermingarbörn og foreldrar/
forráðamenn þeirra sérstaklega boðin velkom-
in. Eftir messu er boðað til fundar með þeim í
safnaðarheimilinu við Vonarstræti þar sem boð-
ið verður upp á létta hressingu og samtal þar
sem sr. Karl og sr. Sveinn fjalla um ferminguna
og starfið í vetur. Æðruleysismessa kl. 20.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta í minn-
ingu séra Hallgríms Péturssonar. Séra Svavar
Stefánsson þjónar fyrir altari. Dr. Einar Sig-
urbjörnsson prédikar og minnist séra Hallgríms.
Kór kirkjunnar flytur sálma eftir Hallgrím. Org-
anisti Eyþór Franzson Wechner. Kaffisopi eftir
guðþjónustu. Sunnudagaskóli á sama tíma í
umsjá Hreins og Péturs.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl.
11. Sameiginleg guðsþjónusta með Kvenna-
kirkjunni kl. 14. Fríkirkjukórinn og Fríkirkjuband-
ið leiða sönginn undir stjórn Aðalheiðar Þor-
steinsdóttur, organista Kvennakirkjunnar.
FRÍKIRKJAN Kefas | Enginn sunnudagaskóli
sökum vetrarfría í grunnskólum Kópavogs. Al-
menn samkoma kl. 13.30 með prédikun, tón-
list og kaffi og samveru að samkomu lokinni.
Aðstaða fyrir börn en engin gæsla í boði.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 14. Erla Björk Jónsdóttir guðfræðingur
leiðir stundina. Sönghópur Fríkirkjunnar í
Reykjavík leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunn-
arssyni organista.
GLERÁRKIRKJA | Barnasamvera og messa
kl. 11. Söngur, gleði, fræðsla. Sameiginlegt
upphaf. Kvöldmessa kl. 20.30. Gospelkór Ak-
ureyrar syngur undir stjórn Heimis Ingimars-
sonar.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Séra Sigurður Grétar Helgason þjónar fyrir alt-
ari. Sigurbjörn Þorkelsson rithöfundur flytur hug-
vekju. Barnakór Grafarvogsksirkju syngur. Org-
anisti: Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11.
Séra Guðrún Karls Helgudóttir hefur umsjón
ásamt Þóru Björgu Sigurðardóttur.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10,
bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11. í um-
sjón Lellu o.fl. Messa kl. 11. Altarisganga.
Samskot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Messu-
hópur þjónar. Kór frá Domus vox syngur, skóla-
stjóri Margrét J. Pálmadóttir. Organisti Ásta
Haraldsdóttir. Prestur sr. Guðný Hallgríms-
dóttir. Molasopi eftir messu. Hversdagsmessa
með Þorvaldi Halldórssyni á fimmtudag kl.
18.10.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðs-
þjónusta í umsjá Félags fyrrum þjónandi
presta. Séra Ægir Frímann Sigurgeirsson þjón-
ar. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Krist-
ínar Waage organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Prestur sr. Karl V. Matt-
híasson, organisti Hrönn Helgadóttir. Norski
stórkórinn Adventsangerne syngur í messunni.
Meðhjálpari er Kristbjörn Árnason. Kirkjuvörður
Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi og föndur í
safnaðarheimili eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sálmahátíð og
sunnudagaskóli kl. 11. Í messunni mun Mark
Anderson organisti leiða söfnuðinn í almenn-
um sálmasöng og fjalla um mikilvægi hans
ásamt Guðmundi Sigurðssyni organista. Prest-
ur Jón Helgi Þórarinsson. Sunnudagaskólinn
verður í safnaðarheimlinu undir leiðsögn Önnu
Elísu, Hebu og fleiri. Kaffisopi á eftir. Orgel-
tónleikar Marks Anderson laugardag kl. 17,
ókeypis aðgangur. Morgunmessa miðvikudaga
kl. 8.15.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson kveður söfn-
uð sinn eftir 17 ára þjónustu. Sr. Jón prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni
og messuþjónum. Félagar úr Mótettukórnum
syngja, organisti er Hörður Áskelsson. Barna-
starf í umsjá Ingu Harðardóttur. Eftir messu er
hátíðarkaffi til heiðurs sr. Jóni Dalbú og fjöl-
skyldu hans.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Prestur Eiríkur Jóhannsson. Organisti Kári
Allansson. Félagar úr Kór Háteigskirkju syngja.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Organisti
Jón Ólafur Sigurðsson. Félagar úr kór kirkj-
unnar leiða sálmasöng og messusvör. Sunnu-
dagaskóli kl. 13 á neðri hæðinni. hjallakirkja.is
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Mýsla og Rebbi koma í heim-
sókn – syngjum, hlustum á Biblíusögu og biðj-
um. Eftir stundina er boðið upp á djús og
meðlæti og börnin geta litað. Helga Gunn-
arsdóttir kennari sér um stundina.
HREPPHÓLAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Kirkjukór Hruna- og Hrepphólasókna syngur
undir stjórn Stefáns Þorleifssonar.
HVERAGERÐISKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Prestur: Séra Jakob Ág. Hjálm-
arsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Kl. 11
samkoma. Helgi Guðnason prédikar. Kaffi og
samfélag eftir samkomu. Kl. 14 samkoma á
ensku hjá Alþjóðakirkjunni. Kl. 18 kvöld-
samkoma.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
13.30 með lofgjörð og fyrirbænum. Shane
Hopkins frá Bandaríkjunum prédikar. Barna-
starf á sama tíma. Kaffi á eftir. Kl. 20.00 mun
Shane Hopkins kenna um trúboð. Kennslan op-
in öllum og verður túlkuð.
Kirkjuselið í Spöng | Guðsþjónusta kl. 13.
Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Vox Populi syngur. Organisti: Hilm-
ar Örn Agnarsson. Sunnudagaskóli á sama
tíma. Umsjón hefur Ásthildur Guðmundsdóttir.
Undirleikari: Stefán Birkisson.
KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
14. Prestur: Séra Axel Árnason Njarðvík.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar
ásamt messuþjónum og kirkjuverði. Sönghóp-
urinn Góðir grannar syngur við athöfnina undir
stjórn og undirleik Jóns Stefánssonar org-
anista. Jóhanna, Snævar og Esja taka á móti
börnunum í sunnudagaskólanum. Kaffi á könn-
unni eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Söngur og gleði, messukaffi að
guðsþjónustu lokinni.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sérstakir gestir frá Úganda heimsækja söfn-
uðinn og segja frá. Túlkur er Bjarni Gíslason,
framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar. Kór
Lágafellssóknar syngur undir stjórn Arnhildar
Valgarðsdóttur organista. Prestur er Ragnheið-
ur Jónsdóttir.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórn-
um leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn
Ólafsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og
þjónar fyrir altari og kveður söfnuðinn að sinni,
en hann mun þjóna sem prestur í Noregi í vetur.
Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barna-
starfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum
hafa Sigurvin Lárus æskulýðsprestur, Ari tón-
listarmaður, Katrín Helga og Andrea Ösp. Sam-
félag og kaffisopi á Torginu.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Vitnisburðir. Túlkað á ensku. Sunnudaga-
skóli fyrir börnin.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Al-
menn guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann
Borgþórsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Seljakirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti: Tóm-
as Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason sókn-
arprestur þjónar. Dr. Douglas Brotchie er organ-
isti. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju
leiða almennan safnaðarsöng. Kaffiveitingar.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar. Kór kirkjunnar
undir stjórn Sigurbjargar Kristínardóttur leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Þessi sunnudagur er
sérstaklega tileinkaður heilbrigðisþjónustu og
þeim sem við hana starfa. Meðhjálpari er Jó-
hann Grétar Einarsson. Sunnudagaskóli fer
fram á sama tíma í safnaðarheimili. Umsjón
hafa Ísold, Jón Arnór, Stefán og Sveinn ásamt
fermingarbörnum vetrarins.
Boðið er upp á kaffi, djús og ávexti eftir stund-
ina.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prests-
þjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason.
SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og prédikar.
Ester Ólafsdóttir organisti leiðir almennan safn-
aðarsöng. Meðhjálpari er Erla Thomsen.
STÓRA-Núpskirkja | Guðsþjónusta kl. 14.
Kirkjukór Stóra-Núps- og Ólafsvallasókna syng-
ur undir stjórn Þorbjargar Jóhannsdóttur.
VÍDALÍNSKIRKJA | Dagur heilbrigðisþjónust-
unnar. Útvarpsmessa og sunnudagaskóli kl.
11. Sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir sjúkra-
húsprestur prédikar. Kór Vídalínskirkju syngur.
Organisti Jóhann Baldvinsson. Lesarar Rósa
Ólöf Ólafíudóttir, hjúkrunarfræðingur og djákna-
nemi, og Kristín J. Sigurðardóttir ljósmóðir. Alt-
arisþjónustuna annast sr. Friðrik J. Hjartar.
Sunnudagaskólinn mætir á sama tíma.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Hulda Hrönn
Helgadóttir þjónar. Félagar úr kirkjukórnum
leiða söng undir stjórn Helgu Þ. Guðmunds-
dóttur organista. Molasopi á eftir.
ÞORLÁKSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11.
Æðsta boðorðið
(Mark. 12)
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonHjaltastaður
nbforlag.com
Núi & Nía er glæsileg
barnabók, úr hugarfylgsnum
listakonunnar Línu Rutar,
um samnefndar ævintýraverur.
Lína Rut Wilberg - Höfundur og myndskreyting
Þorgrímur Þráinsson - Höfundur texta
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Ljósheimar 22, 202-2285, Reykjavík, þingl. eig. Vilborg Sigríður
Gunnarsdóttir, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
og Reykjavíkurborg, fimmtudaginn 23. október 2014 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
17. október 2014.