Morgunblaðið - 18.10.2014, Page 46

Morgunblaðið - 18.10.2014, Page 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014 Söfn • Setur • Sýningar Sunnudagur 19. október: Tveir fyrir einn af aðgangseyri Skemmtilegir ratleikir og búningamátun fyrir krakka í haustfríi Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Svipmyndir eins augnabliks. Ljósmyndir Þorsteins Jósepssonar í Myndasal Natríum sól á Veggnum Silfur Íslands í Bogasal, Silfursmiður í hjáverkum í Horni Safnbúð og kaffihús Skemmtilegir ratleikir • Safnbúð og kaffihús Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið frá 11-17 alla daga nema mánudaga. Listasafn Reykjanesbæjar Leikfléttur, Kristín Rúnarsdóttir 4. september – 26. október Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Hönnun - Net á þurru landi Listasafn Erlings Jónssonar Opið virka daga 12-17, helgar 13-17. Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn Verið velkomin ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is Ný sýning gull og silfursmiðir LISTASAFN ÍSLANDS Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga. 130 ÁRA AFMÆLISHÁTÍÐ LÍ 16.-19. okt. 2014 Ókeypis aðgangur alla dagana. Sjá dagskrá á www.listasafn.is LEIÐSÖGN sunnudag 19. okt.: kl. 14 - í Safni Ásgríms Jónssonar, Rakel Pétursdóttir safnafræðingur kl. 15 - í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar - Birgitta Spur, fv. safnstjóri STEINA & WOODY VASULKA - VÉLRÆN SÝN 3.10. - 2.11. 2014 SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson - Yfirlitssýning 23.5. - 26.10. 2014 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur. KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar, LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson Yfirlitssýning 24.5. - 30.11. 2014 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Lokað í des. og jan. www.lso.is SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Sýningarnar, HÚSAFELL ÁSGRÍMS og FORYNJUR. Opið sunnudaga kl. 14-17. Rás Síðasta sýningarhelgi Listamannsspjall Sunnudag 19. Október kl. 15 Ívar Valgarðsson Tónleikar - Hljóðön Sunnudag 19. október kl. 20 Markus Hohti sellóleikari Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is, sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Þekkt dægurlög verða flutt á tón- leikum í Salnum á morgun, sunnu- dag, kl. 16. Flytjendur eru söngvararnir Ein- ar Clausen tenór og Ragnhildur Þór- hallsdóttir sópran ásamt hljómsveit sem skipuð er þeim Lilju Eggerts- dóttur á píanó og klukkuspil, Grími Helgasyni á klarinett, Guðbjörgu Sigurjónsdóttur á harmonikku og Þórði Högnasyni á kontrabassa. Lögin eru úr ýmsum áttum og má þá nefna lög eins og „Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig“, „Manstu gamla daga“, „Í Hallormsstaða- skógi“, „Indæl er æskutíð“ (Bjössi á mjólkurbílnum) og fleiri góðar perl- ur. Miðaverð er 3.500 kr. Ljósmynd/Gunnar W. Reginsson Flytjendur Lilja Eggertsdóttir, Einar Clausen, Guðbjörg Sigurjónsdóttir, Grímur Helga- son, Ragnhildur Þórhallsdóttir og Þórður Högnason koma fram á morgun kl. 16. Þekkt dægurlög flutt í Salnum Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta verður sterk og falleg sýning,“ segir Kristinn Sigmundsson um upp- færslu Íslensku óperunnar á Don Carlo eftir Giuseppe Verdi í leik- stjórn Þórhildar Þorleifsdóttur sem frumsýnd verður í Eldborgarsal Hörpu í kvöld kl. 20. Kristinn fer með hlutverk Filippusar II konungs, en í öðrum aðalhlutverkum eru Jóhann Friðgeir Valdimarsson sem fer með titilhlutverkið, Helga Rós Indr- iðadóttir í hlutverki Elisabettu drottningar, Hanna Dóra Sturludótt- ir sem Eboli prinsessa og Oddur Arn- þór Jónsson sem Rodrigo. Með smærri hlutverk fara Viðar Gunn- arsson, Guðjón Óskarsson, Erla Björg Káradóttir, Örvar Már Krist- insson og Hallveig Rúnarsdóttir, auk Kórs Íslensku óperunnar. Hljóm- sveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnarsson, lýsingu hannar Páll Ragnarsson en leikmyndar- og bún- ingahöfundur er Þórunn S. Þorgríms- dóttir. „Leikmyndin er mjög vel heppnuð að því leyti til að hún kastar hljóðinu vel út í sal. Það er mjög þægilegt að syngja í þessari leikmynd,“ segir Kristinn og fer fögrum orðum um hljómburðinn í Eldborgarsal Hörpu. „Mér finnst mjög gaman að syngja í þessum sal, enda er hann afar vel heppnaður hvað hljóðið varðar. En þetta er auðvitað ekki leikhús eins og væri ákjósanlegast í sambandi við óp- eru, en hljómburðurinn er á við það besta sem maður þekkir.“ Miklir gæðasöngvarar Aðspurður segir Kristinn afar ánægjulegt að syngja í uppfærslu á vegum Íslensku óperunnar á ný, en hann steig síðast á óperusviðið hér- lendis í Rakaranum í Sevilla sem Ís- lenska óperan setti upp í Gamla bíói árið 2002. „Það er gaman að fá tæki- færi til að vinna með gömlum kunn- ingjum á borð við Guðjón, Viðar og Þórhildi, sem leikstýrir þessu verki af sinni alkunnu snilld. Það er alltaf svo gaman að vinna með Þórhildi vegna þess að hún er svo glögg og fljót að átta sig á aðalatriðunum,“ segir Filippus er drauma- hlutverk fyrir bassa  Íslenska óperan frumsýnir Don Carlo eftir Verdi í kvöld Ljósmynd/Gísli Egill Hrafnsson Ofsi Valdsmannslegur Kristinn Sigmundsson sem Filippus og óttaslegin Helga Rós Indriðadóttir sem Elisabetta. ónáð, til liðs við sig ásamt Ívari (Hilmir Snær), grjóthörðum yf- irmanni víkingasveitarinnar, óafvit- andi að erlenda glæpagengið undir stjórn Sergej (Zlatko) er einnig lent á hálum ís í stærra samhengi alþjóð- legrar glæparefskákar og að með- limir þess munu því svífast einskis til að verja sig. Leikstjóranum Ólafi de Fleur og meðhandritshöfundi hans Hrafnkeli Stefánssyni tekst ágætlega að gera þétta og nokkuð raunsæja löggu- mynd. Persónur myndarinnar hafa hver sinn djöful að draga, þær eru hvorki ófeigar né ofurmannlegar og því er myndin laus við hetjublæti. Persónusköpunin er heildstæð og áhorfandinn skilur hegðun og for- sendur allra aðalpersóna hvort sem honum geðjast að þeim eður ei. Per- Blóð hraustra manna er sjálf-stætt framhald kvikmynd-arinnar Borgríkis semfrumsýnd var 2011. Mynd- in fjallar um Hannes (Darri), metn- aðarfullan lögreglumann sem lendir á hálum ís þegar hann hefur rann- sókn á Margeiri (Siggi Sigurjóns), spilltum yfirmanni fíkniefnadeildar lögreglunnar, eftir ábendingu frá Gunnari (Ingvar E.), knésettum glæpaforingja sem situr inni. Mar- geir er á spena hjá harðsvíraðri er- lendri glæpaklíku sem hefur töglin og hagldirnar í undirheimunum svo Hannes sér fram á að slá tvær flugur í einu höggi, afhjúpa svikarann í lögg- unni og koma höfuðpaurum glæpa- klíkunnar í járn. Hann fær Andreu (Ágústa Eva), löggu sem fallið hefur í sónurnar eru enn fremur sam- kvæmar sjálfum sér og afdrif þeirra og örlög eru mátulega ófyrirsjáanleg. Þær virðast allar vera peð í spilltu valdatafli annarra og víða er maðkur í mysunni enda glæpaheimurinn fjandsamleg lögleysa. Samtöl myndarinnar eru nokkuð lipur og leikurinn framúrskarandi. Darri og Zlatko ljá sínum persónum svo mikla tilfinningadýpt að þær verða ódauðlegar í minningu áhorf- enda. Siggi Sigurjóns og Ingvar E. eru engu síðri enda sannkölluð leikarakamelljón sem geta brugðið sér í sérlega einstök og eftirminnileg gervi. Ágústa Eva og Hilmir Snær eru einnig feiknasterk en persónur þeirra virðast meira ætlaðar til að styrkja hinar fjórar. Aukaleikarar á borð við Þorbjörgu Helgu, Elvu Ósk, Framúrskarandi „Samtöl myndarinnar eru nokkuð lipur og leikurinn fram- úrskarandi,“ segir m.a. í dómi. Darri Ingólfsson í stillu úr Borgríki 2. Maðkar í blóðugri refskák Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó, Borgarbíó, Selfossbíó, Ísafjarðarbíó og Bíóhöllin Akranesi Borgríki 2: Blóð hraustra manna bbbbn Leikstjórn: Ólafur de Fleur. Handrit: Ólafur de Fleur og Hrafnkell Stef- ánsson. Aðalhlutverk: Darri Ingólfsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar E. Sig- urðsson, Sigurður Sigurjónsson, Zlatko Krickic og Hilmir Snær Guðnason. 95 mín. Ísland, 2014. HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.