Málfríður - 15.03.2013, Qupperneq 4
Nordplus Junior er skólahluti menntaáætlunar
Norrænu ráðherranefndarinnar og veitir m.a. styrki
til bekkjarheimsókna og kennaraheimsókna. Styrkir
Nordplus Junior nýtast ekki síst kennurum sem sinna
dönsku og öðrum Norðurlandamálum. Reynsla síð-
ustu ára sýnir að bekkjarheimsóknir hafa jákvæð áhrif
á skólastarfið (sjá dæmi frá Flúðaskóla hér á eftir), og
hafa reynst einstök innspýting í dönskukennslu því
krakkarnir fá tilfinningu fyrir gagnsemi dönskunnar.
Umsóknarfrestur er 1. febrúar hvert ár fyrir verkefni
sem eiga sér stað skólaárið á eftir. Nánari upplýsingar
er að finna á nordplus.is. Einnig er hægt að hafa sam-
band við Guðmund Inga Markússon á netfangið: gud-
mundur.ingi.markusson@rannis.is.
Nemendaskipti Flúðaskóla
Flúðaskóli hefur verið nær samfellt í samstarfi við
danska skóla síðan 2001, og frá 2005 hefur skólinn
alfarið haft samstarf við Grantofteskolen í Ballerup.
Forsenda fyrir þessu samstarfi eru styrkir sem Nordplus
hefur veitt . Unnið hefur verið með ýmis verkefni sem
sniðin hafa verið að markmiðum Nordplus sem segja
má að séu eins konar stikur fyrir kennsluáætlun og
markmiðssetningu samstarfs.
Báðir skólar hafa að mestu unnið sameiginlega að
hugmyndavinnunni og þar hafa nemendur og hug-
myndir þeirra haft stærsta vægið þar sem forsendan
fyrir slíku samvinnuverkefni er að nemendurnir hafi
áhuga á því og að þau sjái tilganginn með verkefninu. Í
síðustu þremur verkefnum hefur Flúðaskóli verið aðal-
umsækjandi styrkjanna hjá Nordplus og því hafa verk-
efnin og hugmyndavinnan nær alfarið verið á höndum
okkar í Flúðaskóla í þeim verkefnum.
„Skoler i skoven“ var hugmynd sem byggði á þeirri
staðreynd að Flúðaskóli hafði unnið Menntaverðlaun
Suðurlands fyrir frumkvöðlastarf sitt með útiskóla
og kennslu í skóginum. „De skandinaviske ambas-
sadører“ var verkefni sem undirrituð prjónaði við
hugmyndir nemenda um samanburð á menningu
nemenda í Danmörku og á Íslandi. Hugmyndafræði
norrænna tungumálafrömuða (sprogpiloter) gaf tóninn
í þessu verkefni. Síðasta verkefni okkar, „Fremtidens
energi“, er sameiginleg hugmynd nemenda og kenn-
ara í báðum skólum í kjölfar umræðu innan hins nor-
ræna samfélags um orku, orkulindir og orkunýtingu.
Í öllum þessum verkefnum höfum við notið
samstarfs við fleiri faggreinakennara í báðum skólum.
Við leggjum ávallt áherslu á að aðrir kennarar taki þátt
í samstarfinu. Enskukennarinn, raungreinakennarinn,
stærðfræðikennarinn, samfélagsfræðikennarinn og
umsjónarmaður tölvuvers, hafa verið okkar helstu
samstarfsaðilar og hafa lyft samstarfinu á allt annað
stig en ella.
Ekkert hefði orðið af samstarfi ef ekki hefði komið til
ómetanlegur stuðningur stjórnenda, foreldra og sam-
félagsins og svo að sjálfsögðu styrkjakerfi Nordplus .
Stjórnendur í báðum skólum hafa stutt við allar
hugmyndir og fylgt samstarfinu eftir á ýmsan hátt.
Foreldrar og nemendur hafa lagt gríðarlega vinnu á
sig við fjáröflun og einnig hafa nokkrir foreldrar ávallt
komið með okkur í ferðalögin og séð um gæslu, elda-
mennsku og ýmsa aðra aðstoð. Samfélagið í heild sinni
hefur verið afar jákvætt gagnvart þessu samstarfi með
því að styrkja okkur, bjóða okkur í heimsókn á ýmsa
vinnustaði og á heimili og taka þátt í þeirri dagskrá
sem við höfum boðið upp á hverju sinni. Að lokum
má segja að styrkjakerfi Nordplus hafi veitt okkur þetta
stórkostlega tækifæri til að vinna að áhugaverðum og
gjöfulum nemendaskiptum.
4 MÁLFRÍÐUR
Guðmundur Ingi
Markússon
Anna Kristjana
Ásmundsdóttir
Samvinna og gleði danskra og íslenskra nemenda í heimsókn
Flúðaskóla til Grantofteskolen síðastliðið haust .
Anna Kristjana Ásmundsdóttir, kennari, Flúðaskóla.
Guðmundur Ingi Markússon, verkefnisstjóri Nordplus
Junior, Rannís
Tungumálaferðir og nemendaskipti:
Nordplus Junior
– tækifæri fyrir tungumála-
kennara