Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 08.01.1998, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 08.01.1998, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 8. janúar 1998 Fréttiir 11 J K> (0)13:17 ^EBOffíÁ; \K a © '7? íslandsmeistarar ÍBV1997. Tuær af 16 hetium ÍBV í sumar, Steingrímur Jóhannesson og Guðni Búnar Helgason, fagna enn einu markinu. Steingrímur lék alla leiki IBV í sumar og skoraði 18 mörk og hefur nú leikið 93 leiki í röð fyrir ÍBV. Guðni Búnar lék flestar stöður í liðinu, lék 17 leiki og skoraði 1 mark. I oksins, loksins, loksins! Eftir 18 ára bið landaði IBV loks sjálfum Islandsmeistaratitlinum í _______| knattspyrnu. Fæstir af núverandi ieikmönnum IBV muna þá stund. En stolt okkar Eyja- manna, knattspyrnulið IBV, kom sá og sigraði sumarið 1997. IBV var einfaldiega langbesta knattspyrnulið sumarsins og kórónaði eftirminni- legt sumar með frábærri franimi- stöðu gegn þýska stórliðinu Vfb Stuttgart í Evrópukeppni bikarhafa í haust. ÍBV bættist góður liðsauki fyrir sumarið. Sverrir Sverrisson kom frá Leiftri og Guðni Rúnar Helgason kom frá Völsungi. Þá kom Hjalti Jóhannesson úr 3. deildinni og hann kom manna mest á óvart í sumar. 1 byrjun móts kom svo happadrátturinn Sigurvin Olafsson frá Stuttgart sem var síðasti bitinn í púsluspil hins nýja þjálfara IBV. Bjarna Jóhannssonar. Nafnamir Friðrik Friðriksson og Sæbjöms- son lögðu hins vegar skóna á hilluna ásamt Jóni Braga Arnarssyni. ÍBV byrjaði á því að vinna deildarbikarkeppnina með því að leggja Val í úrslitaleik, 3-2, eftir framlengingu. I deildinni byijaði ÍBV á því að taka þáverandi íslandsmeist- ara Skagamanna j kennslustund, 3-1. Þegar íslandsmótið var hálfnað var IBV efst með 20 stig en Keflavík í 2. sæti með 19 og ljóst að Eyjamenn höfðu sett stefnuna á efsta sætið. Hemiann Hreiðarsson yfirgaf ÍBV í byrjun ágúst og vom þá margir svartsýnir. En skarð hans fyllti Zoran Miljkovic sem fór hreint á kostum í vörninni. Þegar fjórar umferðir voru eftir var mótið einvígi ÍBV og ÍA en ÍBV hafði 3ja stiga forystu. Tryggvi skoraði þrennu á loka- mínútunum gegn Val í 15. umferð, hann skoraði sig- urmarkið gegn KR og í 17. umferð skoraði Tryggvi þrennu gegn Keflavík þegar IBV tryggði sér Islandsmeistarabikarinn með því að vinna 5-1. IBV vann deildina með 5 stiga mun, skoraði flest mörkin eða 44 og fékk fæst á sig eða 17, eins og Leiftur. Tryggvi var markakóngur með 19 mörk og valinn besti leikmaður Islandsmótsins. Sigurvin Olafsson var valinn sáefnilegasti og IBV var prúðasta liðið. IBV eignaðist nokkra landsliðsmenn á árinu, þá Tryggva, Ivar Bjarklind og Sigurvin. IBV lék til úrslita í bikarkeppninni annað árið í röð, nú gegn Keflavík. Leifur Geir kom IBV yfir í úrslitaleiknum en Keflavík jafnaði metin á lokamínútu í framlengingu. Því þurfti annan leik og var hann settur á að Islandsmóti loknu og reyndar aðeins fjórum dögum eftir Evrópuleik ÍBV í Stutt- gart. Eftir markalausan leik réðust úrslit í víta- spyrnukeppni þar sem Kefl- víkingai' höfðu betur. Sorglegur endir á annars stórskemmti- legum bikaileikjum. Við tökum bikarinn bara næst. I Evrópukeppninni lék IBV við Hibernians frá Möltu í forkeppninni. IBV vann 1-0 á Möltu og 3-0 í Eyjum. ÍBV datt heldur betur í lukkupottinn í 1. umferðinni, gegn Stuttgart frá Þýskalandi. ÍBV tapaði fyrri leik liðanna á Laugardalsvelli, 1-3. Sigurvin skoraði mark IBV en okkar menn áttu stórleik. Leikurinn ytra fór 2-1 fyrir Stuttgart og skoraði Bjamólfur Lárusson mark IBV á glæsilegan hátt. Frammistaða ÍBV vakti verð- skuldaða athygli og geta fáir ímyndað sér hve frábær auglýsing frammistaða liðsins var fyrir okkar heimabyggð. Sumarið 1997 verður lengi í minnum haft. Islandsmeistaratitill- inn hafðist með gríðarlegri vinnu jafnt utan sem innan vallar. Liðið lék sem ein heild og maður kom í manns stað. Vonandi hafa leikmenn liðsins áframhaldandi metnað til þess að halda áfram að sópa til sín titlum. Þeir eru kornnir á bragðið og nú má ekkert slaka á klónni. 19. maí 1997. íslandsmótið hefst með leik ÍBV og háuerandi íslandsmeistara, ÍA. Eyjamenn tóku Skagamenn í bakaríið og unnu 3-1. Fyrirliðarnir Hlynur Stefánsson og Úlafur Þórðarson heilsast fyrir leikinn. Sígunrin Úlafsson mætirtil leiks í upphafi móts. Hann kom sem frelsandí engill af himnum ofan og átti frábært sumar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1670-4061
Tungumál:
Árgangar:
50
Fjöldi tölublaða/hefta:
2604
Skráðar greinar:
1
Gefið út:
1974-í dag
Myndað til:
21.12.2023
Útgáfustaðir:
Lýsing:
Héraðsfréttablað Vestmannaeyja.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað: 1. tölublað (08.01.1998)
https://timarit.is/issue/375308

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

1. tölublað (08.01.1998)

Aðgerðir: