Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 08.01.1998, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 08.01.1998, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 8. janúar 1998 Fréttir 9 Guðmundur H. Guðjónsson: Hefur leitt metnaðar- fullt starl Kórs Landakirkju í umsögn Frétta um Guðmund H. Guðjónsson, handhafa Fréttapýra- niídans vegna framlags til menn- ingarmála á árinu 1997 kemur fram að Guðmundur nam tónlist í Reykjavík áður en hann hélt til framhaldsnáms í Þýskalandi. Hann kom heim frá námi árið 1966 og starfaði í eitt ár vestur á fjörðum. Árið 1968 hélt hann til Englands þar sem hann nam almenna kirkjutóniist við Royal School of Church Music. Til Italíu fór hann til náms árið 1970 og sama ár kom hann til Eyja. Hann tók þá við stjóm Tónlistarskóla Vestmannaeyja auk þess sem hann tók við stjórn kirkjukórsins og organista- starfinu í Landakirkju. Þetta er í stuttu máli ferill Guðmundar áður en hann kom til Eyja. Starf hans í Vestmannaeyjum þarf ekki að kynna bæjarbúum því hann hefur komið við sögu á mörgum sviðum tónlistarlífs Eyjanna í bráðum þrjá áratugi. Kór Landakirkju á að baki langa sögu og á sinn þátt í því öfluga starfi í kirkjunni sem við þekkjum í dag. Undir stjórn Guðmundar hefur kórinn ráðist í stórvirki sem vakið hafa athygli langt út fyrir Eyjamar. Auk þess hefur hann sungið uppi á fastalandinu og farið í söngferðir til útlanda. Frá árinu 1978 hal'a jólatónleikar kórsins verið fastur liður á jólaföstu. Kórinn hefur á jólatónleikunum fengið okkar bestu söngvara til liðs við sig og má í því sambandi nefna Kristján Jóhannsson Guðmundur H. Guðjónsson. og Diddú. Þá hefur kórinn fjórum sinnum fengið Sinfóníuhljómsveit til liðs við. Þetta lýsir miklum metnaði í starfi kórsins og þó þar hafi margir komið að verki er það Guðmundur sem farið hefur nteð ferðina. Á síðasta ári má segja að starf kórsins hafi risið hærra en nokkm sinni áður. í samvinnu við Samkór Vestmannaeyja var ákveðið að taka til flutnings Pákumessu Jos- ephs Haydens. Til þess þarf stóran kór og sinfóníuhljómsveit. Guðmundur fór fyrir hópnum og í sameiningu tókst þeirn þetta stórvirki. Messan var flutt í Samkomuhúsinu 31. maí og fékk frábærar viðtökur tónleikagesta. En þar var ekki látið staðar numið því ákveðið var að gefa íbúum höfuð- borgarsvæðisins kost á að hlýða á Pákumessuna í fiutningi tónlistarfólks úr Vestmannaeyjum. Voru tónleik- amir haldnir í Langholtskirkju 1. október. Viðtökurvorugóðarog var farið lofsamlegum orðunt utn flutn- inginn í Morgunblaðinu. Ekki bmgðust Guðmundur og hans fólk þegar kom að jólatónleikunum fyrir síðustu jól. Þá var kallað á einn okkar besta tenórsöngvara, Ólaf Áma Bjarnason, sem kom gagngert frá Italíu til að syngja með Kór Landakirkju. Þá má geta þess að í febrúar á síðasta ári hélt Guðmundur tónleika með Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara og Gunnari Kvaran sellóleikara í safnaðarheimilinu. Af þessu má sjá að árið 1997 var viðburðarríkt hjá Guðmundi Hafliða Guðjónssyni. Hann hefur staðið í ströngu og hefur lagt sitt af mörkum til að efla menningarlíf í Vestmanna- eyjum. Fyrir þetta framtak viljum við veita honum Fréttapýramídann fyrir framlag til menningarmála á árinu 1997. Davíð Guðmundsson: Fyrirtæki hans er orðið leiðandi á sviði tölvumála Landsbyggðin hefur á undan- förnum árum átt undir högg að sækja gagnvart höfuðborgar- svæðinu sem sogar til sín fólk í æ ríkara mæli. Oft er borið við fábreyttu atvinnulífi og að mcnnta- fólki standi ekki til boða störf við sitt hæfi úti á landi. Það er því alltaf ánægjulegt þegar fólk leitar aftur í átthagana að loknu námi. Á það ekki síst við þegar það nær sjálft að skapa sér starfsvettvang sem nær að vinda utan á sig og skapa fleirum atvinnu. Þannig hljóðar upphafið á umsögn Frétta um Davíð Guðmundsson í Tölvun sem hlýtur Fréttapýramídann fyrir framlag til atvinnumála í Vest- mannaeyjum á árinu 1997. Sem betur fer eigum við Eyjamenn margt menntað fólk sem leitað hefur heim að loknu námi. Einn þeirra er Davíð í Tölvun. Davíð var eitt ár í Framhalds- skólanum í Vestmannaeyjum en hélt svo í Tækniskólann þaðan sem hann lauk stúdentsprófi. Að því loknu hélt hann til Danmerkur þar sem hann lauk mastersprófi í rafmagnsverkfræði. Eftir að hafa starfað eitt ár í Danmörku lá leiðin heim og fluttist hann til Eyja með ljölskyldu sinni árið 1989. Hann hóf störf hjá Samfrosti, sameiginlegu tölvufyrirtæki frystihúsanna. 1 kjölfar sameiningar frystihúsanna um ára- mótin 1992 og 1993, varð breyting á starfsemi Samfrosts. í framhaldi af því DauíðGuðmundsson stofnaði Davíð Tölvun sem m.a. hefur séð um tölvumál Isfélags og Vinnslu- stöðvar. Auk þess býður Tölvun upp á alhliða tölvuþjónustu, selur tölvur og tölvubúnað og er með Intemets- þjónustu. Á síðasta ári var ráðist í að samtengja ráðhúsið við allar stofnanir bæjarins. Til þess er notaður ljós- leiðari að hluta en að nokkm leyti fara samskiptin í gegnum örtölvusamband sem er nýjung hér á landi. Davíð á heiðurinn af þessu verki og hafa aðilar uppi á landi sýnt því áhuga. I upphafi vom starfsmenn Tölvunar tveir en í dag em stöðugildin sjö. Það er ekki lítils virði fyrir ekki stærra byggðarlag. Ef Tölvunar nyti ekki við má búast við að tölvuþjónustu yrði að sækja eitthvað annað með tilheyrandi aukakostnaði og óþægindum. Tölvur og samskipti um tölvur og Intemetið em að verða æ stærri þáttur í daglegu lífi okkar. Það er því ánægjulegt að sjá fyrirtæki á borð við Tölvun blómstra hér í bæ. Það er okkur heiður að veita Davíð Fréttapýramídann fyrir framlag til atvinnumála. Og vonandi verður árangur hans í starfi hvati fyrir annað ungt fólk til að skapa sér eigin starfsgmndvöll í Eyjum. Aynes Gústafs- dóttir oy Guðmundur Dauíðsson skemmtu gestum uiðgóðar undirtektir. Jóhannes Ólafsson: Þegar kemur að því að veita Fréttapýramídann fyrir framlag til íþróttamála í Vestmannaeyjum á árinu 1997 kemur ekki nema eitt til greina, knattspyrnan. Glæsilegur árangur meistara- llokks IBV á sl. ári verður lengi í minnum hafður en eftir árið stóðu strákarnir uppi sem meistarar meistaranna, deildarmeistarar, Islandsmeistarar og voru ekki nema hársbreidd frá því að verða bikarmeistarar. Auk þess náði liðið l'rábærum árangri í Evrópu- keppninni á móti stórliðinu Stuttgart. Þessi árangur hefur borið liróður Vestmannaeyja langt út fyrir landsteinana og er sennilega ein besta kynning sem bæjarfélagið hefur fengið frá upphafi. Verður þetta seint metið til fjár. Þetia kom ffam í umsögn blaðsins um Jóhannes Ólafsson, formann Knattspyrnudeildar IBV, sem fékk Fréttapýramídann fyrir framlag til íþrótlamála. I íþróttum eins og öðrti starfi er það aldrei svo að einn rnaður geri allt sem gera þarf lil að ná árangri. Þar koma margar hendur að verki en alltaf er það einhver sem þarf að leiða vagninn. 1 þessu tilfelli hefur það kontið í hlut Jóhannesar. Hann hefur setið í knattspyrnuráði frá haustinu 1987 og eru því komin tíu ár síðan hann hóf afskipti af knattspyrnu í Eyjum. Árið 1990 tók hann við formennsku í ráðinu sent nú er orðin deild innan ÍBV-Íþróttafélags. Á þeim tíma hefur hann og hans ntenn gengið í gegnurn ýmsar þrengingar. Árið 1989 vann liðið sig upp í 1. deild og náði 3. sæti árið á eftir. Næstu ár tók við svo til stanslaus botnbarátta og tvö ár, 1992 og 1993, bjargaði ÍBV sér frá falli á ævin- týralegan hátt með ntörkum Maitins Eyjólfssonar. bjargvættsins mikla. En Jóhannes missti aldrei sjóntu- á markmiðinu, hann ætlaði ÍBV stóra hluti og eftir 1994 fóru hjólin að snúast fyrst fyrir alvöru. Það var svo á síðasta ári sem Jóhannes sá afrakstur vinnu sinnar. ÍBV var Jóhannesúlafsson orðið besta og skemmtilegasta lið landsins og Islandsmeistaratitill í höfn eftir 18 ára bið. Þegar rætt er við Jóhannes kemur strax í Ijós að hann eignar sér ekki einum heiðurinn af uppbyggingu liðsins. Við hlið hans í knatt- spymuráði hal'a staðið menn eins og Tryggvi Kr. Ólafsson og Eggert Garðarsson. Síðast en ekki síst þakkar hann Lárusi Jakobssyni, sem lést langt fyrir aldur fram, fyrir óeigingjarnt starf í þágu íþróttar- innar. Hann þakkar líka þjálfurunum fyrir þeirna lramlag og síðast en ekki síst bendir hann á að á undanfömum árum höfum við haldið góðunt kjama leikmanna sem hafa verið tilbúnir til að leggja allt í sölurnar fyrir ÍBV og Vestmannaeyjar. Inn í þennan hóp höfum við svo fengið stráka sem hafa sntollið inn í. Það er okkur á Fréttum heiður að fá að afhenda Jóhannesi Ólafssyni Fréttapýramídann fyrir framlag hans til knattspymunnar í Vestmanna- eyjum á undanförnum árum. Að baki Jóhannesar er fjöldi rnanna sem líka á sinn þátt í velgengninni. Stöndum við Eyjamenn allir í mikilli þakkarskuld við Jóhannes og hans menn fyrir vikið. Undir hans stjóm er ÍBV komið í forystu

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.