Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 08.01.1998, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 08.01.1998, Blaðsíða 2
2 Fréttir Fimmtudagur B.janúar 1998 Fréttir Rólegt um áramótin Að sögn lögreglu fóru áramótin firemur friðsamlega fram. Færslur í dagbók frá 30. 12. og fram til 6. janúar voru 173 og þótti það ekki mikið miðað við að þama eru áramót og mikið um skemmt- anahald. Það sem lögreglu þótti hvað gleðilegast var að engin líkamsárás var kærð um áramótin. Lögreglan í Vestmannaeyjum vill óska bæjarbúum gleðilegs árs og þakka fyrir það gamla. Skallaði í rúðu á lögreglubílnum Séu áramótin tekin ein og sér þá voru alls 30 færslur í dagbók lögreglu frá kl. 12 á hádegi á gamlaársdag fram til hádegis á nýársdag. Tveir fengu að gista fangageymslur lögreglu, báðir eftir að hafa brotið rúður í bifreiðum. I öðru tilvikinu var um að ræða sjónrann af rússneskum togara og henti hann grjóti í framrúðu á bifreið á Strandveginum. Hinn var eitthvað ósáttur við að vera handtekinn og skallaði hann í framrúðu á lögreglubílnum og fékk skurð á enni. Báðir voru þessir menn undir áhrifum áfengis og fengu að fara eftir að hafa sofið úr sér vímuna. Gölluð blys ollu nokkrum slysum Að vanda voru Vestmannaeyingar skotglaðir unr áramótin. Hvergi mun meira skotið upp en við Illugagötuna og óopinber keppni þar í gangi milli nokkurra aðila. Svo mikið gekk á á Illugagötunni að kviknaði í grindverki út frá öllu fýrverkinu. Ekki var þar þó um alvarlegan bruna að ræða. En Vestmannaeyingar fóru ekki alveg varhluta af gölluðum handblysum því að tilkynnt var til lögreglu um tvö slys þar sem blysin sprungu og ollu brunasárum á höndum. Auk þess hefur blaðið frétt af tveimur til þremur slysum sem ekki voru til- kynnt. Rúðubrot á nýju ári Þó svo að friðsamlegt hafi verið um áramótin fundu þó einhveijir hjá sér hvöt til að brjóta rúður. Brotin var rúða í Hamarsskóla á nýársnótt og önnur tveimur dögum seinna. Þá voru einnig brotnar rúður í Bamaskólanum og Sparisjóðnum og óskar lögregla eftir upplýsingum frá þeim sem kynnu að vita hveijir þama vom að verki. Punktakerfið komið í gagnið í síðustu viku voru tíu umferðar- lagabrot kærð og voru þau flest minniháttar. Um áramót varð sú breyting að upp var tekið svokallað punktakerfi vegna umferðarlaga- brota. Það hefur í för með sér að við hvert brot ökumanna safnast upp punktar og getur svo farið að menn verði sviptir ökuleyfi, haldi þeir sig ekki innan ramma laganna. Gámaþjónustan yfir- taknr rekstnr Sorpu Drög að samningi milli Bæjarveitna og fyrirtækisins liggja fyrir. V-listinn mótmælir að ekki skuli efnt til útboðs Stjórn Bæjarveitna Vestmannaeyja hefur lagt til að gengið verði til samninga við Gámaþjónustu Vestmannaeyja um yfirtöku og rekstur Sorpeyðingarstöðvarinnar. Osk þessa efnis var lögð fram að frumkvæði Gámaþjónustu Vest- mannaeyja 15. júlí síðastliðinn. Síðan hafa verið haldnir fjórir fundir um málið og niðurstaðan sú að lagt verði til að gerður verði samningur um að Gámaþjónusta Vestmannaeyja taki að sér alla þætti rekstursins. Guömundur Þ.B. Ólafsson (V) greiddi atkvæði gegn tillögunum. Hann telur að vinnubrögð meiri- hlutans í þessu máli hafi ekki verið með eðlilegum hætti, eða eins og segir í bókun hans. „Að mínu mati er óeðlilegt og beinlínis siðlaust að semja beint við einn aðila, án þess að öðrum bæjarbúum, sem eru eigendur stofnunarinnar, sé gefinn kostur á að koma að rekstrinum." Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri segir ástæðu þess að gengið var til viðræðna við Gámaþjónustuna vera í beinu framhaldi af uppsögn forstöðu- manns Sorpeyðingarstöðvarinnar. Þá hafi Gámaþjónustan sent bréf til stjórnar Bæjarveitna og óskað eftir viðræðum um hugsanlega yfirtöku á rekstri stöðvarinnar eða hluta hans. „Það var allt opið í þeim efnum,“ segir Guðjón. Krafa um bætta umgengni við náttúruna Hann segir að krafa um bætta umgengni við náttúruna sé alltaf að aukast. „Við teljum okkur vera að horfa til framtíðar með þessum samn- ingi. Með því að gera einn aðila ábyrgan fyrir allri sorphirðu og sorpeyðingu á Eyjunni mun það bæta skipulagið og minnka rekstrarkostnað. Það hefur því miður komið of oft fyrir að ekki er hægt að benda á einhvem einn aðila þegar eitthvað hefur farið úrskeiðis í þessum málum. Þetta er mjög vandmeðfarin þjónusta sem yfirleitt er „gott“ að gagnrýna ef svo mætti að orði kornast." Með þessum samningi er verið að tala um að kostnaður vegna nýrrar flokkunarstöðvar auki ekki útgjöldin. „Hins vegar er það nú oft þannig að þegar þjónusta er aukin eins og með flokkunarstöðinni verður einhver viðbót á rekstrarkostnaði og að okkar mati væri ekki óeðlilegt að hann yrði 5 - 8%.“ Vanir menn Guðjón segir og að Guðmundur Riehardsson eigandi Gámaþjónust- unnar hafi unnið við Sorpeyðingar- stöðina í upphafi og hafi unnið við uppsetningu hennar á sínum tíma með fulltrúum Norsk Hydro. „Hann þekkir því stöðina mjög vel og er vel kunnugur öllum sorphirðumálum hér í Eyjum. Þess vegna hafi ekki verið farið út í útboð að þessu sinni.“ Gert er ráð fyrir að samningurinn verði gerður til 5 ára og taki gildi frá og með 1. niars 1998. Verktaki skal uppfylla allar núverandi kröfur sem í gildi eru vegna núverandi starfsleyfis stöðvarinnar. Einning skal verktaki sjá um viðbætur vegna flokkunar samkvæmt nýju skipulagi og skulu skrifaðar verklagsreglur um hveming staðið verður að flokkun og þjónustu ásamt reglurn um viðhald véla og húsakosts. Auknar lántökur samþykktar: Sjötíu milljóna króna uiðbótarlán -Tilkomnar vegna breytinga á fjárbagsáætlun ársins 1997 Á fundi bæjarráðs 30. desember var meðal annars rætt um helstu breytingar á fjárhagsáætlun ársins 1997. Bæjarráð samþykkti að gera yrði ráð fyrir auknum lántökum bæjarsjóðs vegna breytinga á fjárhagsáætlun. Gert er ráð fyrir allt að 70 milljón króna lántöku og þar af allt að 11 milljónum króna vegna félagslegra íbúða. Síðar sama dag var haldinn fundur í bæjarstjóm þar sem fulltrúar V-listans Ragnar Óskarsson og Guðmundur Þ.B. sátu hjá við atkvæðagreiðslu málsins. Ragnar Óskarsson, segir þessa fjárhagsáætlun vera á ábyrgð meirihlutans og þeir geti þar af leiðandi ekki samþykkt hana. „Ég bendi til dæmis á mjög mikla framúrkeyrslu varðandi Listaskólann sem nemur um 19 milljónum króna, auk mistaka vegna gútsvars sem Vestmannaeyjabær verður að endurgreiða í rfkissjóð." Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins óskuðu eftir því að bókað yrði að ýmis ófyrirsjáanleg mál hefðu komið upp, eins og til dæmis kjarasamningur við grunnskólakennara sem ekki hafi verið gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Meiri framkvæmdir og tækjakaup vegna Bamaskólans og Listaskólans hafi einnig óhjákvæmilega leitt til aukaútgjalda fyrir Bæjarsjóð á þessu ári. Langflestir aðrir útgjaldaliðir væm samkvæmt áætlun. í bókun V-listamanna benda þeir á að lántakan eigi að vera vegna breytinga á fjárhagsáætlun en ekki til að endurgreiða ofgreitt útsvar til ríkissjóðs. Teikningar á breytingum á íþróttamidstöðinni tilbúnar: Beðið umsagnar Brunamála- stofnunar og Vinnueftirlits Á fundi skipulagsnefndar Vestmannaeyjabæjar sem haldinn var 11. desember síðastliðinn var lagt fyrir erindi bæjarins um leyfi skipulagsnefndar til að klæða að utan, byggja við og breyta Iþrótta- miðstöð Vestmannaeyja. Teikningar að framkvæmdum liggja fyrir en eru til umsagnar hjá Brunamálastofnun og Vinnueftirliti Ríkisins. Skipulagsnefnd sá sér ekki fært að afgreiða leyfið og frestaði því erindinu þar til niðurstöður áður- nefndra stofnana lægju fyrir. kjo Tar m'Kiuaf ngnmgar um nóttina. Ekki urðu slys og grjól Veg en hrunlð sklldi si9 ' \ FRÉTTIR Gisli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent hfVesSZÍAlr6."1-0"1^ CfðaJrSSOn * II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift o? eirmiu ri re!!ir@eyiar-iS; ^ÉTTIR twiin,, Tvicrinnm Amian k'mnni d - • ,, °8 einniS 1 lausasolu i Tijrninum, Kletti, Novu, líÍsld’lalumrRevkSÍ TccnttUnnU' AV°rUVal’ Heri°lfi' Hugvallarversluninni, Tanganum, eru prentaðar í 2000 iintöicím FR&ffi^£g£lk4 ^rtoeft FRETTIR Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt Íema hTmild°a sígelð ’

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.