Fréttir - Eyjafréttir - 06.05.1999, Blaðsíða 1
26. árgangur • Vestmannaeyjum 6. maí 1999 • 18.tölublað • Verðkr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax:481 1293
ORYGGI
á ölluni
sviðum
FYRIR
FJOLSKYLDUN
Snmcinru- bll tryggin.g
á cinfnldnn, odj
og Þægilegnn
imiáOI
FS1I7Q
Ooá'Éö
Um næstu helgi er síðasta sýninngarhelgi myndlistarsýningar Lóu Sigurðardóttur sem er jafnframt síðasta sýningin af fimm
á Myndlistarvori íslandsbanka í Eyjum 1999. Krökkum af leikskólum Vestmannaeyja hefur staðið til boða að skoða sýn-
ingu Lóu og má hér sjá krakka af leikskólanumSóla fylgjast einbeitt með útskýringum listakonunnar á myndheimi sínum.
Kosningahitinn nálgast suðumark
Kosningabarátta flokkana fór hægt
af stað.eins og kunnugt er en kosn-
inga(á)róðurinn hefur eflst með
hverjum degi og einkennst mjög af
niðurstöðum skoðanakannana.
Þrátt fyrir að enginn taki þó mark
á könnunum, nema þegar ekki
hallar á viðkomandi og mun víst
vera meðvitað öllum.
Ur Suðurlandskjördæmi herma
heimildir hlutlausra kosningaspá-
manna blaðsins, sem eru meðal
annars studdar síðustu skoðana-
könnun í kjördæminu, að hið mikla
fylgi Sjálfstæðisflokksins sé að
mestum hluta hægt að eigna Kjartani
Olafssyni, þrátt fyrir gott persónulegt
fylgi Ama Johnsen í Eyjunt. Kjartan
Olafsson á mikið fylgi á Suðurlandi í
landbúnaðar- og grænmetisgeiranum
og stuðningsmenn hans þar keppast
því við að efla sóknarvél hans. Sömu
heimildir segja að þessar vinsældir
Kjartans séu eðlilega á kostnað Sam-
fylkingarinnar og Framsóknarflokks-
ins. í framhaldinu, ef sjálfstæðis-
menn ná þriðja manninum inn á
Suðurlandi, þá er ráðherrastóll fyrir
Ama öraggur, eðlilega með þeim
fyrirvara þó að Sjálfstæðisflokkurinn
nái oddaaðstöðu á þingi að afloknunt
kosningum.
Hlutlausir kosningasérfræðingar
blaðsins sem fóra á almennan borg-
arafund Samfylkingarinnar í bæjar-
leikhúsinu í fyrrakvöld segja að hann
hafi verið mjög vel sóttur og mikil
baráttustemmning. Var og hörmuð
fjarvera Arna Johnsen á þeim fundi
sem sýndi ótta sjálfstæðismanna við
að mætta andstæðingum sínum í
opinni umræðu. Þó láðist að upplýsa
að Arni var bókaður á fund í Ara-
tungu sama kvöld. Hafði Sam-
fylkingin fengið bréf þar sem þetta var
ti'ikynnt samkvæmt upplýsingum
sjálfstæðismanna. Þrátt fyrir það telja
samfylkingarmenn þessa hertækni
mjög svo í anda Davíðs Oddssonar,
sem hafi og gagnast flokknum vei
fram að þessu.
Kosningabarátta Framsóknar hefur
einkennst af nokkrum krampa undan-
farna daga, sér í lagi í ljósi síðustu
skoðanakönnunar á Suðurlandi.
Herja þeir nú stóram í gegnunyfjöl-
miðla og á fundum til vamar Isólfi
Gylfa. Allt um það bíða kjósendur á
Suðurlandi eftir 8. maí með óþreyju
og eiga von á spennandi kosningum.
Blaðið hafði samband við fulltrúa
Samfylkingar, Framsóknar og Sjálf-
stæðisflokks í Eyjum rétt áður en
blaðið fór í prentun. Lúðvík Berg-
vinsson sagði að mikil vinna væri
framundan og mikil barátta í
mönnum. „Baráttan nú stendur um
annan mann framsóknar og þriðja
mann íhaldsins á Suðurlandi og ég tel
að það muni ráðast í Vestmanna-
eyjum hvort Samfylkingin heldur
öðram manni inni.“
Ármann Höskuldsson sagði að
Framsókn hefði allt að vinna á
þessum tímapunkti. „Niðurstöður
síðustu könnunar era það slæmar fyrir
okkur að við verðum að taka mark á
henni. Við þurfum á öllum okkar
mönnum að halda nú og höfum allt að
vinna, og getum ekki hunsað þessar
niðurstöður."
Ámi Johnsen sagði að baráttan
gengi mjög vel og að það væri léttur
gangur hjá flokknum. „Það er
bægslagangur í Samfylkingunni sem
við tökum mjög léttvægt. Við eram
með væna stöðu í takt við þjóðfélagið.
Um 44% fylgið sem kom fram í
skoðanakönnun Gallup í vikunni
teljum við þá niðurstöðu vísbendingu
um góða stöðu, en eigum ekki
endilega von á að það fylgi haldi.
Vonum hins vegar að guð láti gott á
vita.“
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉWNGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 481
Spröngu-
skellur
byrjarídag
í dag hefst Sprönguskellur í
verslunum félaga í Félagí kaup-
sýslumanna í Vestmannaeyjum
og stendur hann fram á laug-
ardag en þá verða verslanir
opnar til kl. fjögur síðdegis.
Sigurbjörg Axelsdóttir, formaður
Félags kaupsýslumanna segir að
komin sé hefð á Sprönguskellina
sem era tilboðsdagar kaupmanna í
Vestmannaeyjum, í líkingu við
langa laugardaga sem víða era
haldnir. „Sprönguskellurinn byrjar í
dag og heldur áfram á morgun og
föstudag. Við munum hver og einn
bjóða upp á nokkrar vörar á mjög
hagstæðu verði eins og venjulega.
Þessu framtaki okkar hefur verið
mjög vel tekið og vonast ég til að
bæjarbúar bregðist vel við og líti til
okkar þessa daga. Sjón er sögu
ríkari og ég er viss um að það
borgar sig að líta við,“ sagði Sigur-
björg.
Áhyggjurvegna
Vinnslustöðvar
Á fundi bæjarráðs á mánudag
var m.a. rætt um málefni
Vinnslustöðvarinnar og þann
vanda sem þar blasir við. Á
fundinum var bókað að bæjar-
yfirvöld vilji einskis láta ófreistað
til að á málinu flnnist viðunandi
lausn.
Atvinnuöryggi mörghundruð
starfsmanna og framtíð Vest-
mannaeyja, sem öflugs bæjarfélags,
gæti verið í veði. Samþykkt var að
fela bæjarstjóra að fylgjast áfram
með málinu og ræða við
forráðamenn félagsins um að þeir
beiti öllunt tiltækum ráðum til að
snúa vöm í sókn.
Sjöathugasemdir
uið skipulag í
Herjölfsdal
Fyrir skömmu rann út frestur til
að gera athugasemdir við hið
nýja deiliskipulag af Herjólfsdal.
Alls bárast sjö athugasemdir við
skipulagið og tvær umsagnir.
Skipulagsnefnd hefur farið yfír
bæði athugasemdir og umsagnir og
lagt drög að því að svara þeim.
Væntanlega verður tekin ákvörðun
um skipulagið á næsta fundi
nefndarinnar.
Vetraráœtlun Herjólfs
Frá Eyjum Frá Þorl.höfn
Mán - lau
Sunnudaga
Föstud. aukaferðir
kl. 08.15
kl. 14.00
Kl. 15.30
kl. 12.00
kl. 18.00
kl. 19.00
lieriólfur
/mícw ái/tð
Sími 481 2800 Fax 481 2991