Fréttir - Eyjafréttir - 06.05.1999, Blaðsíða 14
EtfZfctir
Fimmtudaguró. maí 1999
Eg set allt mitt traust
á stuðning Eyjamanna
-og við eigum mikla möguleika, ef vel gengur, segir Árni Johnsen alþingismaður
Ámi Johnsen
I skipar 1. sæti á
lista
Sjálfstæðismanna
fyrir Alþingis-
kosningarnar sem
fara munu fram
laugardaginn 8.
maí næstkomandi.
Arni hefur ekki
legið áskoðunum
sínum um menn
og málefni og
hefur stundum þótt
nokkuð umdeildur
þingmaður. Þegar
þetta viðtal var
tekið var nýbúið
að birta I
niðurstöður Gallup
skoðanakönnunar
sem gerð var í
Suðurlandskjör-
dæmi. Samkvæmt
þeini könnun ná
Sjálfstæðismenn
þremur mönnum í
kjördæminu,
Framsókn einum
og Samfylkingin
einum, aðrir
✓
mælastekki. I
ljósi þessara talna
var Arni spurður
hversu raunhæfar
niðurstöður þetta
væru.
■mmrbhhhmbmh
ÁRNI: Martröðin í þessu tilviki núna er að Alþýðubandalagið hefur klofnað. Formaðurinn situr uppi
sem gísl Alþýðuflokksins og búinn að tapa flokknum, fylginu og forystunni og notaður sem blaðafulltrúi
Sighvats Björgvinssonar.
„Sjálfstæðismenn í landinu hafa al-
mennt fundið fyrir mjög góðum byr
og í fimmtán skoðanakönnunum á
undanfömum mánuðum á Suðurlandi
er þetta nálægt meðaltalinu, eða um 44
prósent. Það sem vekur spumingar í
þessu er hvort þama sé eitthvað á
svipuðum nótum og oft áður, því að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur komið
sterkur út úr skoðanakönnunum, en
með slakari stöðu í kosningum. Þetta
veit maður ekki um, hins vegar verður
maður var við að fólk hefur minni
áhyggjur af stöðu þjóðmála í dag en
áður og vill eyða minni tíma í kosn-
ingabaráttuna. Það em hins vegar
ótrúlega margir sem hafa á orði að þeir
ætli nú í fyrsta skipti að kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn Það er eins og fólk
hugsi meira í árangri en pólitík og það
hlýtur að koma Sjálfstæðisflokknum
til góða, vegna þess að Sjáfstæðis-
flokkurinn er fylking, sem nær árangri
í meira mæli en aðrir. Bestu dæmin
eru hér í Eyjum; hafnamppbyggingin,
Rannsóknasetrið, verknámsbyggingin,
flugvöllurinn, flugstöðin, vegakerfið
og lagfæring sjúkrahússins svo
nokkuð sé nefnt. Þetta em fram-
kvæmdir upp á milljarða króna og það
hefur ekkert komið af sjálfu sér.“
Þú sagðirfylking?
„Já. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
alltaf verið meiri fylking en flokkur.
Hins vegar er Sjálfstæðisflokkurinn
engin partasala, það er munurinn.
Samfylkingin er ótrúverðug partasala,
þar sem kaupmaðurinn sjálfur er
Alþýðuflokkurinn, svo er afgangurinn
einhveijir armar.“
Að vinna öll almenn verk og
meira til
Hvers konar stjómmálamaður er Ami
Johnsen?
„Óhefðbundinn kjördæmaþingmað-
ur.“
Hvað er það í pólitík að vera óhefð-
bundinn?
„Ég vinn öll hefðbundin verk
stjómmálamanna og kannski dálítið
meira, en að auki geri ég ýmsa hluti
sem aðrir gera ekki. Ég tek að mér
ýmis verkefni, starfa mikið í félags-
málum. Ég legg lið víða um allt land í
þeim efnum og hef alltaf nógan tíma.
Ég er haldinn þeirri ónáttúm."
Nú tókst þú þátt í umreeðufundi í sl.
laugardag í sjónvarpi ásamt fram-
bjóðendum Suðurlandskjördœmis.
Þetta er eini sameiginlegi sjón-
varpsfundurinn sem kjósendum
stendur til boða. Ertu sáttur við þinn
hlut í þeim þœtti?
, Já ég er það. Hins vegar em svona
fundir afskaplega slakir. Þeir gefa
ekki mikið færi. Við emm að veija og
sækja margslungin mál sem gengur
auðvitað ekki upp á einhveijum tíu til