Fréttir - Eyjafréttir - 06.05.1999, Síða 26
26
Fréttir
Fimmtudagur 6. maí 1999
LANDA-
KIRKJA
Fimmtudagur 6. maí
Kl. 17.00 Lokafundur í TTT-
starfinu.
Kl. 20.30 Opið hús í KFUM&K-
húsinu fyrir unglingar.a.
Sunnudagur 9. maí
Kl. 14.00 Messa á almennum
bænadegi kirkjunnar. Barnakór
Hallgrímskirkju leiðir sönginn
ásamt Kór Landakirkju.
Molasopi að messu lokinni.
Messunni verður útvarpað sam-
dægurs á FM 104 kl. 16.00.
Miðvikudagur 12. maí
Kl. 10.00 Síðasti foreldramorgun
vetrarins.
Kl. 12.05 Bæna og kyrrðarstund
í hádeginu. Tekið á móti bæna-
efnum hjá prestunum.
Fimmtudagur 13. maí
Uppstigningardagur.
Kl. 14.00 Guðsþjónusta, helguð
eldri borgurum. Rúta fer frá
Hraunbúðum til kirkjunnar.
Messukaffi á degi aldraðra í boði
Kvenfélags Landakirkju.
Símanúmer prestanna.
Sameiginlegur sími í safnaðar-
heimilinu er 481 2916 og eru
símatímar frá þriðjudögum til
föstudaga á milli 11 og 11.50.
Séra Kristján Bjömsson hefur
heimasími 481 1607 og farsíma
893 1606.
Séra Bára Friðriksdóttir hefur
heimasíma 481 2847 og farsíma
891 9628.
Hvíta-
SUNNU-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Aðalfundur safnaðarins
Föstudagur
Kl. 20.30 Unglingasamkoma
með heilögum anda og krafti.
Laugardagur
Kl. 20.30 Bænasamkoma. Beðið
sérstaklega fyrir þeim sem munu
stjóma landinu næstu íjögur árin.
Sunnudagur
Kl. 15.00 Vakningasamkoma -
Gestir safnaðarins verða Ester og
Vörður, forstöðuhjón Ffladelfíu í
Reykjavík. Samskot til Lindar-
innar.
Fjölbreyttur söngur og lifandi
orð.
Hjartanlega velkomin!
Aðvent-
KIRKJAN
Laugardagur 8. maí
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Sunnudagur 9. maí
Kl. 20.30 Net'98.
Allir velkomnir.
Handboltinn:
NÝKRÝNDIR bikarmeistarar ÍBV í 4. flokki voru heiðraðir sérstaklega í hófi sem haldið var sl. sunnudag.
ÍBV bikarmeistari 1999
í fiórða flokki karla
BIKARMEISTARAR ÍBV í 4.flokki karla ásamt Mikka og Sigurði Bragasyni, þjálfurum. Davíð
Oskarsson, Einar H. Sigurðsson, Kári Kristjánsson, Bjarni Einarsson, Karl Haraldsson, Kristinn
Jónatansson, Sindri Olafsson, Sveinbjörn Oðinsson, Sindri Haraldsson, Kristinn Þórsson, Jens Elíasson,
Benedikt Steingrímsson, Sigþór Friðriksson og Jóhann Magni Jóhannsson. Á innfelldu myndinni sést
hvað fögnuður drengjanna var ósvikinn í leikslok.
Sá flokkur sem vakið hefur mesta
athygli í handboltanum í vetur er
án efa 4. flokkur karla en þeir
spiluðu einmitt um miðjan apríl til
úrslita um Islandsmeistaratitilinn
við KA. Þeim leik töpuðu strák-
arnir með einu marki í fram-
lengdum leik. Síðasta fimmtudag
bættu þeir heldur betur einni
skrautfjöðurinni í hattinn er þeir
spiluðu til úrslita um bikar-
meistaratitilinn við FH. Þar sigruðu
þeir 21-17 í framlengdum leik.
Okkar strákar komu heldur óklárir í
leikinn þar sem allt byrjunarliðið hafði
verið í þriggja daga skólaferðalagi.
Þeir voru því mjög þreyttir þegar
flautað var til leiks í Austurbergi.
Þreytan kom strax í Ijós hjá
peyjunum og leiddu FH-ingar mest
allan leikinn með 2-3 mörkum. Einar
Hlöðver Sigurðsson var sá eini sem
var með einhverju lífsmarki hjá IBV
og þegar hann var tekinn úr umferð af
FH-ingum hrundi sóknarleikur ÍBV
algjörlega.
Þegar tvær mínútur voru svo til
leiksloka og IBV þrjú mörk undir 17-
14 var eins og sjóarablóðið kæmi upp
í þeim (enda flestir synir manna sem
vinna á eða í kringum sjóinn). Þeir
byrjuðu að spila eins og þeir eru búnir
að vera að spila eftir áramót, Sindri
Olafsson, sem var ekki búinn að sjást
í leiknum fram að þessu, skoraði tvö
glæsileg mörk og það var svo Jóhann
Magni Jóhannsson sem jafnaði leikinn
þegar 12 sekúndur vom eftir 17 -17.
Ekki skemmdi fyrir að þá fóm 80
krakkar, sem vom í fyrmefndu skóla-
ferðalagi, í gang og þegar Magni
skoraði jöfnunarmarkið ætlaði þak
hússins að rifna af.
í framlengingunni var aldrei spum-
ing hvar sigurinn myndi lenda og á
meðan ÍBV skoraði 4 mörk náðu FH-
ingar ekki að skora eitt einasta mark.
Leikur ÍBV liðsins var stórkostlegur í
framlengunni, með sterkri vöm með
þá Einar, Sindra og Sigþór Frið-
rikssyni sem sterkustu menn og Krist-
inn Jónatansson markmaður góður
fyrir aftan þá.
Það var svo Kristinn sem hampaði
bikamum góða í leikslok og mikill
fögnuður brast út og stóð veislan lengi
yftr.
Þetta em allt góðir strákar og ef þeir
halda áfram eins og þeir hafa verið í
vetur er engin spumig að ÍBV gæti
farið að eignast sína fyrstu Islands-
meistara í karlaflokki.
nýrra og notaðra bíla
VOLVO
DAIHATSU
Tvisturinn
Faxastíg 36 • Vestmannaeyjum • Sími 481 3141,481 3337
brimborg
Bíldshöfða 6 • Rvk • Sími 515 7000