Fréttir - Eyjafréttir - 13.01.2000, Síða 19
Fimmtudagur 13. janúar 2000
Fréttir
19
Knattspyrna: Innanhússboltinn
Ekkí nósu sóður áransur
Nú er sá tími genginn í garð að
íslandsmót í knattspyrnu innanhúss
hefjast og um síðastu helgi voru
fyrstu riðlakeppnirnar í vetur.
Þriðji flokkur karla spilaði sinn riðil
heima og vonuðust menn að heima-
völlurinn myndi reynast happadrjúgur.
Sú varð ekki raunin þar sem liðið
endaði í fjórða og neðsta sæti í
riðlinum.
Urslit urðu sem hér segir: ÍBV-Víðir
3-1, ÍBV-Reynir Sandgerði 1-5 og
ÍBV-Stjaman 2-5.
Bjöm Elíasson þjálfari liðsins sagði
að það virtist loða við flokkinn að
erfitt reynist að ná árangri í innan-
hússmóti. „Við höfum alltaf verið í
ákveðnum vandræðum með að ná
árangri í innanhússboltanum enda er
þetta allt önnur íþrótt en útiboltinn.
Menn mega ekki horfa á nöfnin á
liðunum og segja að við hefðum átt að
vinna þetta og þetta lið, það þarf bara
fimm sæmilega knattspymumenn, þá
standa þau jafnfætis okkur. Uti vinn-
um við þessi lið. Annars er líka ekki
hægt að ætlast til árangurs þegar við
emm kannski bara með einn
klukkutíma til æfingu á viku í fþrótta-
miðstöðinni," sagði Bjöm.
Öðmm flokki kvenna gekk betur
en betur má ef duga skal. Stelpumar
kepptu í Garðabænum sl. laugardag
og unnu 2 af 4 leikjum og gerðu eitt
jafntefli. ÍBV endaði í öðm sæti síns
riðils og á möguleika að komast í
úrslit, en það lið sem nær bestum
árangri í öðm sæti heldur áfram.
Urslit leikjanna vom sem hér segir:
ÍBV-FH 2-2 (Lind, Elva Dögg), ÍBV-
Haukar 6-0 (Lind 2, Hjördís 2, Elva
Dögg, Ema), ÍBV-Stjaman 3-4 (Lind,
Eva, Hjördís) og ÍBV-Grindavík 3-2
(Hjördís, Elva Dögg, Ema).
Þjálfari stúlknanna, Jón Ólafur
Daníelsson, sagðist vera þokkalega
sáttur við árangurinn. „Við vomm í
ágætismálum þegar kom að Stjömu-
leiknum, en tvö mjög ódýr mörk urðu
okkur dýrkeypt. Við hefðum átt að
vinna þann leik, eins leikinn gegn FH
en þetta lá ekki fyrir okkur þennan
daginn og því emm við í þeirri stöðu
að þurfa treysta á önnur lið til að
komast áfram.“
Þess má geta að stelpumar kepptu
einnig æfingaleik gegn Breiðabliki á
gervigrasinu í Kópavogi og unnu
glæsilegan sigur 4-0. Mörkin í leikn-
um skomðu þær Lind, Ema, Elva
Dögg og Hjördís.
Körfubolti:
Tap segn
Stjörnunni
Fyrsti leikur ÍV eftir jólahlé var
gegn Stjörnunni í Garðabæ.
Augljóst var að liðið hafði ekki æft
saman um jólin, leikmenn dreifðust
um alla landshluta og jólasteikin var
vegleg þetta árið. Það fór því svo að
ÍV átli á brattann að sækja allan
leikinn nema að einstaklingsframtak
Stefáns og Amsteins hélt liðinu inni í
leiknum í fyrri hálfleik en staðan í
leikhléi var42 - 41.
Byrjun seinni hálfleiks var afleit af
hálfu ÍV. Liðið skoraði ekki stig
fýrstu sjö mínútumar og lenti fljótlega
20 stigum undir. Mikil orka fór svo í
að vinna muninn upp, en þegar fimm
mínútur vom til leiksloka var mun-
urinn aðeins 9 stig. Sá munur hélst til
leiksloka og urðu lokatölur 86 - 77.
„Við vomm einfaldlega lélegir í
þessum leik,“ sagði Arnsteinn í
samtali við Fréttir. „Það var baráttu-
leysi og andleysi í liðinu, og úr því
verður að bæta ef við ætlum okkur
eitthvað í þessari deild. Annars er
rekstur deildarinnar virkilega erfiður
um þessar mundir og alls óvíst hvort
endar nái saman. Okkur vantar
einfaldlega meiri stuðning, bæði á
heimaleikjum sem og fjárhagslega ef
þetta á að ganga upp.“
ÍV er í fimmta sæti með 12 stig,
eins og Valur og Stjaman, en Breiða-
blik er aðeins tveimur stigum á eftir.
Aðspurður sagði Amsteinn að næsti
heimaleikur gegn Breiðabliki skeri úr
um það hvort liðið verði í toppbar-
áttunni, eða sigli lygnan sjó.
„Við verðum einfaldlega að vinna
Breiðablik á sunnudaginn, við unnum
útileikinn og því ekki að bæta fyrir
tapið gegn Stjömunni og sigra aftur.
Eg vil bara hvetja Eyjamenn til þess
að láta nú sjá sig í Höllinni og styðja
við bakið á okkar liði.“ sagði Am-
steinn að lokum.
Húsnæði óskast
Knattspyrnudeild ÍBV óskar eftir
að taka á leigu íbúðir af öllum
stærðum og gerðum fyrir næsta
sumar, bæði með og án
húsgagna. Leigutími frá 1. maí til
30. sept. og allt þar á milli.
Upplýsingar í síma 481 2608 eða
698 9645.
BARNFÓSTRA
Óska eftir barngóðri stúlku,
12 ára eða eldri í grennd við
Strembugötu, til að gæta 3
og hálfs árs drengs frá kl.
17.30 og 21.30 mánudaga og
miðvikudaga.
Uppl. s.863-0533
Líkamsrækt: Askorun Hressó
Foreldrarnir meðal þátttakenda
Þær systur á Hressó, Anna Dóra og
Jóhanna leituðu ekki langt yfir
skammt þegar kom að því að finna
fólk sem vildi koma fram opin-
berlega í áskorun þeirra um bætta
lífshætti. Fórnarlömbin eru for-
eldrar þeirra, Aðalbjörg Bern-
ódusdóttir, Lilla, og Jóhann Hall-
dórsson útgerðarmaður. Bæði
stunda þau líkamsrækt í ein-
hverjum mæli en þau eru sammála
um að betur má ef duga skal, á það
ekki síst við mataræðið.
Jói verður 58 ára í haust og stundaði
lengst af sjóinn en eftir að hann kom í
land hefur hann stundað sund og
göngur. „Mest er það sundið hjá mér
og reyni ég að synda 1000 m á dag,“
segir Jói um þá líkamsrækt sem hann
hefur stundað.
Er þetta ekki nóg? „Það virðist ekki
vera því perustefnið stendur í stað. Eg
er í dag 92 til 93 kg. en ætla að koma
mér niður í 80 til 85 kg. Ætli
stelpumar reyni ekki að píska okkur
áfram þannig að við náum tilsettum
árangri. Eg reikna með að það takist
því þær em það frekar."
Hefur þú aldrei farið í líkams-
ræktina í Hressó? „Nei, en nú neyðist
ég til þess fyrst ég sagði já við áskomn
stelpnanna," svaraði Jóhann.
Lilla sem er 55 ára er enginn ný-
TILBÚIN í slaginn.
græðingur í líkamsræktinni, var
byijuð löngu áður en dætumar opnuðu
Hressó. „Eg byrjaði svo á Hressó um
leið og þær byrjuðu," segir Lilla.
„Undanfama mánuði hef ég slakað á í
ræktinni en nú verður gefið í aftur og
við hjónin mætum bæði galvösk á
Hressó.“
Hreyfing er aðeins hluti líkams-
ræktar, mataræðið er lykillinn að
virkilegum árangri. Lilla segist vera
undirbúa þennan þátt á leiðinni til
betra lífs með því að lesa bókina,
Líkami fyrir lífið. „Hún er mjög góð
og nú veit ég að hverju við göngum
þegar í slaginn er komið. Sjálf þarf ég
að léttast um svona 5 kg.“
Hvemig líst þér á að takast á við
breytt mataræði? „Alveg þokkalega
hvað mig varðar. Ég held affur að það
verði meira átak fyrir eiginmanninn.
Það verður algjör kúvending fyrir
hann að fara úr saltkjötinu, hryggnum
og lærinu yfir í fisk, hrísgrjón, pasta
og grænmeti sem aldrei hefur verið
hátt skrifað hjá honum. En við erum
ákveðin í að standast áskomnina og þá
verður bara að búa til veislurétti úr því
sem við megum borða og hreyfa sig
nóg,“ sagði Lilla að lokum.
Margir hafa tekið áskomn Hressó.
„Við getum tekið á móti 25 en þegar
em 35 skráðir. Við byrjum á mánu-
daginn og þá kemur í ljós hvað
mörgum er alvara í að takast á við
þessa áskomn okkar. Þama er leið
fyrir fólk sem vill breyta urn lífsstíl og
komast í sitt besta form. Á það við
fólk á öllum aldri. Áskomnin stendur
í tólf vikur og þær á fólk að nota til að
búa sig undir að breyta sínum lífsstíl
til frambúðar. Það er verkefni sem
tekur 52 vikur á hverju ári,“ sagði
Anna Dóra í samtali við Fréttir sem
munu fylgjast með Lillu og Jóa næstu
vikumar.
HERRA
fyrir alla stuðningsmenn ÍBV verður í
Týsheimilinu föstudaginn 21. janúar
nk. Húsið opnar kl. 19.00
Glæsilegt sjávarréttahlaðborð að
hætti Gríms Gíslasonar.
Ræðumaður kvöldsins Jóhannes
Atlason fyrrv. þjálfari ÍBV og íslenska
landsliðsins.
Skemmtiatriði • Happdrætti með
glæsilegum vinningum (utan-
landsferð o.fl.), uppboð o.fl.
Mætið í búningi uppáhalds
liðs ykkar í ensku knattspyrnunni
eða í ÍBV búningi
Miða er hægt að fá hjá leik-
mönnum ÍBV, stjórnarmönnum
eða í Þórsheimilinu.
Miðaverð: 2.500 kr.
Karla- og kvennalið
ÍBV spila innanhúss
um helgina
íslandsmótið í innanhússknatt-
spymu hjá meistaraflokki karla og
kvenna fer fram um helgina.
Karlalið ÍBV spilar í 1. deild og er
með Þrótti, Grindavík og Víði í
riðli. Kvennalið ÍBV er einnig í 1.
deild og spilar með Sindra, KR,
Stjömunni og Fjölni. Einnig verður
5. flokkur drengja f eldlínunni unt
helgina.
ÍBV fær liðsauka í 2.
flokki í knatt-
spyrnunni
ÍBV hefur fengið liðsauka í 2.
flokki karla. Tveir leikmenn frá KÍS
(Knattspymufélagi ísafjarðar og
Bolungaivíkur) hafa flutt til Eyja og
em komnir á samning hjá ÍBV. Þeir
styrkja mikið hinn gríðarlega öfluga
2. flokk ÍBV sem spennandi verður
að fylgjast með næsta sumar.
Piltaruir heita Pétur Runólfsson (frá
Bolungarvík) og Tómas Reynisson
(frá ísafirði), báðir á nítjánda ári og
þykja mikið efni á knattspymu-
vellinum.
Dregið í
deildarbikarnum
í síðustu viku var dregið í deild-
arbikarkeppninni. Þetta árið vom
þrjú lið frá Vestmannaeyjum í
pottinum, karla og kvennalið ÍBV
og svo KFS. í karlaliðunum lentu
ÍBV og KFS einmitt saman í riðli
og munu leika sannkallaðan Derby-
leik hér í Eyjum 22. apríl. Önnur
lið í riðlinum em Keflavík, ÍR,
Leiknir og Bmni og munu liðin
héðan leika leiki sína uppi á landi.
í kvennaboltanum lentu Eyja-
stelpur í riðli með Breiðabliki,
Stjömunni, Grindavík og Þór/KA.
Framundan
Laugardagur 15. janúar
Kl. 20.00 IBV - Haukar kvenna-
handbolti
íslandsmót innanhúss:
Mfl. kvenna ÍBV Austurbergi
Mfl. karla ÍBV Laugardalshöll
5. flokkur karla Smáranum
Sunnudagur 16. janúar
Kl. 16.30 IV-Breiðablik karfan
íslandsmót innanhúss:
Framherjar Austurberg 3. deild
Eik
Beyki
Mahoni
11 og18 þús.
snúninga
HÚS Y
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA