Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2000, Síða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 9. mars 2000
frettiF
Uonbrigðivegna
flugs
Á bæjarráðsfundi sl. mánudag var
fýst yfir vonbrigðum með að
Islandsflug skuli hafa ákveðið að
hætta áætlunarflugi til Vestmanna-
eyja þann I. apríl nk. Bæjarráð
telur að samkeppni á tlugleiðinni
milli Vestmannaeyja og Reykja-
víkur á undanfömum árum hafí leitt
til lægri fargjalda sem augljóslega
hafi komið farþegum til góða.
Bæjamáð beinir því til íslandsflugs
að endurskoða afstöðu sína. Þá
skorar bæjarráð á Flugfélag íslands
að tryggja nægt sætaframboð rnilli
Vestmannaeyja og Reykjavíkur ef
íslandsflug hættir umræddu
áætlunarflugi.
Bjóðasttil aólirifa
Haugasvæðið
Oft er yfir því kvartað að unglingar
nú til dags séu heimtufrekir og vilji
láta rétta sér allt upp í hendumar.
Ekki er þó sú raunin á með nem-
endur Framhaldsskólans í Vest-
mannaeyjum. Fyrir síðasta fundi
bæjarráðs lá bréf frá nokkrum
þeirra þar sem þeir bjóðast til að
þrífa Haugasvæðið fyrir sanngjama
upphæð til að safna fyrir vímulausri
skemmtun. Bæjarráð þakkaði fyrir
þennan áhuga og fól garðyrkju-
stjóra að ræða við fulltrúa bréf-
ritara.
Fiórir sóttu um
Hraunbúðir
Eins og komið hefur fram í fréttum
barst aðeins eitt tilboð í rekstur á
eldhúsi Hraunbúða þegar sá þáttur
var boðinn út. Það þótti of hátt og
var því auglýst eftir matreiðslu-
manni til starfans. Fjórir sóttu um
starfið, Tómas Sveinsson, Stefán
Sigurðsson, Sigríður Óskarsdóttir
og Sonja Andrésdóttir. Félags-
málastjóra hefur verið falið að ræða
við Tómas Sveinsson vegna
starfsins.
Sólí 40 óra
Næstkomandi sunnudag, 12. mars,
em 40 ár liðin frá stofnun Leik-
skólans Sóla sem á þeim tíma hét
niunar Barnaheimilið Sóli. Gífur-
legar breytingar hafa orðið á öllu
fyrirkomulagi og rekstri Sóla á
þessum 40 ámm og sífelld þróun átt
sér stað. Svokölluð Hjallastefna
hefur verið reynd á Sóla undanfarin
misseri en hún byggist nt.a. á
aðgreiningu nemenda leikskólans
eftir kynjum, að nokkru leyti. I
tilefni þessara tímamóta hefur fé-
lagsmálaráð ákveðið að veita
tiltekið íjárframlag til áfram-
haldandi þróunar á Hjallastefnunni
á leikskólanum.
Viljaauka
samgöngurásjó
Fyrir fundi bæjatráðs á mánudag lá
tillaga og greinargerð frá fulltrúum
V-listans, þeim Ragnari Óskars-
syni, Guðríinu Erlingsdóttur og
Þorgerði Jóhannsdóttur, um að
leitað verði allra leiða lil að bæta og
auka samgöngur á sjó milli lands
og eyja. Þessari tillögu var vísað til
Þróunarfélags Vestmannaeyja.
Sparisjóður Vestmannaeyja:
Opnað á Selfossi í vor
í febrúar á síðasta ári samþykkti
stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja að
hafa forgöngu um opnun sér-
hæfðrar fjármála- og banka-
þjónustu á Selfossi.
Þegar sú ákvörðun lá fyrir var gengið
til samninga við Kaupþing hf. og SP
fjármögnun hf. og ákváðu þessi
fyrirtæki sparisjóðanna að standa að
rekstrinum á Selfossi. Enginn spari-
sjóður er starfandi á Suðurlandi, allt
austur til Hornafjarðar, að frátöldum
Sparisjóði Vestmannaeyja.
I ágúst sl. var gengið frá kaupum á
húsnæði við Austurveg á Selfossi. Sú
staðsetning mun leiða til stóraukinnar
þjónustu við viðskiptavini Kaupþings,
SP fjármögnunar og sparisjóðanna á
Suðurlandi. Þá verður einnig boðið
upp á þjónustu Alþjóða líftrygginga-
félagsins.
Gengið hefur verið frá ráðningu
Péturs Hjaltasonar sem forstöðumanns
fyrir starfsemina á Selfossi en hann
hefur víðtæka reynslu á sviði stjóm-
unar og fjármála. Gengið verður frá
ráðningu á öðru starfsfólki á næstunni
en starfsmenn verða 3-4 í upphafi.
Ráðgert er að starfsemin hefjist í vor.
Hún mun marka nokkur þáttaskil í
samstarfi sparisjóðanna því að þar
mun fara fram almenn og sérhæfð
íjármálaþjónusta áðumefndra aðila.
Kernur skelfilega á óvart
verði hann ekki sýknaður
-segir verjandi Gunnars Bergs Runólfssonar
Mál ákæruvaldsins gegn Gunnari
Bergi Runólfssyni var dómtekið í
héraðsdómi Reykjaness síðastliðinn
mánudag að undangengnum vitna-
leiðslum og málflutningi. Gert er
ráð fyrir að dómsniðurstöðu verði
að vænta 24. mars næstkomandi.
Málið snýst um meinta ásetn-
ingstæklun Gunnars Bergs sem endaði
með fótbroti þess er varð fyrir
tækluninni í fótboltaleik milli ÍBV og
HK í 2. flokki knattspymu innanhúss.
Jóhann Pétursson, verjandi Gunnars
Bergs, segir að það myndi koma sér
skelfilega á óvart ef hann verður ekki
sýknaður.
„Málsvömin er í sjálfu sér einföld.
Umrætt brot átti sér stað innan eðlilegs
leiks í knattspymu og það kom skýrt
fram að sá sem fótbrotnaði var með
boltann á löppunum, þegar Gunnar
Bergur lenti á honum. Hvort bolti eða
löpp var á undan er aukaatriði en
reyndar hefur Gunnar Bergur alltaf
haldið því fram að hann hafi farið í
boltann fyrst. Jóhann segir og að
fjölmörg vafaatriði hafi komið fram í
framburði vitna HK og framburður
þeirra mjög á reiki. „Það liggja ekki
fyrir neinar lögregluskýrslur um
meintan ásetning nema frá brotaþola.
Hitt em allt skýrslur sem sendar vom
aganefnd KSÍ. Ég tel málið því mjög
vanhugsað af ákæranda hálfu.“
Jóhann sagði að ef svo ólíklega færi
að Gunnar Bergur yrði ekki sýknaður
verði málinu áfrýjað til Hæstaréttar.
fréttir
7,5 milljbnirí
vatnsveitu
Á fundi stjórnar Bæjarveitna í
síðustu viku upplýsti Friðrik Frið-
riksson. vcitustjóri, að fjárveiting
upp á 7,5 milljónir væri á tjáilögum
ríkisins á þessu áii vegna lagningar
aðveituæðar Vatnsveitu Vest-
mannaeyja undir Markarfljót.
Kostnaður við þetta verket'ni er
mun meiri en þessari upphæð
nemur og hefur veitustjóra verið
falið að ræða við forráðamenn
Viðlagatryggingar um þessa
framkvæmd sem orðin er mjög
aðkallandi. Núverandi lögn vatns-
veitunnar eru um gömlu Markar-
fljótsbrúna sem mjög er komin til
ára sinna.
BrevUngaráskipan
orkumála
Fyrir liggja breytingar á eignarhaldi
á nokkmm orkuveitum sveitar-
félaga. Þá eru fyrirhugaðar breyt-
ingar á RARIK og hugsanlegur
flutningur til Akureyrar og sam-
eining við orkufyrirtæki Akur-
eyrarbæjar. Ljóst er að miklar
breytingar munu verða á skipan
orkumála hér á landi jafnt við
orkuöflun, orkudreifingu og sölu á
næstu ámm. Stjóm Bæjarveitna
hefur fylgst með þessari þróun og
var í síðustu viku farið í kynnisferð
til Samorku, Orkuveitu Reykja-
víkur, Akranesveitu o.fl.
í gær, öskudag, fóru krakkar um bæinn klædd búningum af öllum
gerðum, gengu milli fyrirtækja og sungu og þáðu fyrir sælgæti. Eftir
hádegi var kötturinn sleginn úr tunnunni á Stakkó og í framhaldi af
því grímuball í Féló.
Nýr formaður knattspyrnudeildar
Á fundi sl. laugardag var gengið frá því að Ásmundur Friðriksson verði
næsti formaður knattspyrnudeildar IBV.
Ásmundur lekur við af Jóhannesi Ólafssyni sem verið hefur lörmaður
deildarinnar í um áratug. Ásmundur segir að haft hal'i verið samband við sig
vegna þessa og eltir nokkrar pælingar hafii hann ákveðið að láta slag standa.
„Það verða einhverjar breylingar, nýir siðir koma með nýjum mönnum og
öðruvísi áherslur. Ekki nein bylting, það verður stigið eitt skref í einu. Ég
kvíði þessu ekki, það eru góðir menn og vanir með mér í þessu og ég á ekki
von á að þetta komi til með að halda fyrir mér vöku eða trufla mig í vinnunni.
Það mál, sem liæst ber núna, er stúkumálið og það verðum við að leysa á
næstunni. Þetta leggst vel í mig, bæði stúkumálið og svo sumarið framundan
og ég vona að við munum eiga gott samstarf við Veslmannaeyinga, bæði sem
einstaklinga og svo fyrirtækin í bænum. Ég er ekki kvíðinn fyrir sumrinu, að
vísu erum við með svo til nýlt lið í höndunum en ég er þeirrar skoðunar að við
eigum að láta reyna á okkar menn. sleppa því að sækja vatnið yfir lækinn.
Grasið er nefnilega ekki alltaf gtænna á hinum bakkanum," sagði Ásmundur
Friðriksson.
Knattspyrnud.ÍBV:
Herrakvöld
í Reykjavík
annað
kvöld
Hið árlega herrakvöld knatt-
spyrnudeildar ÍBV verður haldið í
Framheimilinu í Reykjavík fóstu-
daginn 10. mars nk. Húsið verður
opnað kl. 19.00.
Boðið verður upp á glæsilegt
sjávarréttahlaðborð. Veislustjóri er
Éúðvík Bergvinsson alþingismaður.
Ræðumaður kvöldsins er Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra. Þá
mun Davíð Þór Jónsson Radíusbróðir
og skemmtikraftur skemmta. Leik-
menn IBV munu sjá um þjónustu á
herrakvöldinu.
Miðapantanir í síma 899 5067
(Kristinn R. Jónsson), 896 6854 (Elli
Bjössi), 698 9645 (Þorsteinn
Gunnars) eða hjá leikmönnum IBV.
Herrakvöld ÍBV í Reykjavík eru orðin
fastur liður í menningu höfuðborg-
arbúa og hafa tekist ljómandi vel
undanfarin ár.
ÍBV - knattspyrnudeild.
Græjumstolið
Einn þjófnaður var tilkynntur lög-
reglu í vikunni. Farið var utn borð
í bátinn Þorra VE og þaðan stolið
hljórnflumingstækjurn. Mun þjófn-
aðurinn hafa átt sér stað á
tímabilinu 1.-3. mars. Þeir sem
geta gefið upplýsingar um þjófn-
aðinn eða grunsamlegar manna-
ferðir við bátinn, em beðnir að hafa
samband við lögreglu.
Fíltn lefní og brugg
í vikunni v;ir gerð húsleit í húsi
einu í bænum vegna gmns um
fíkniefnaneyslu. Engin fíkniefni
fundust en áhöld fundust, ætluð til
neyslu slíkra efna. Málið telst upp-
lýst. Þá kom upp bmggunarmál sl.
fösmdag. í bílskúr einurn fundust
um 80 lítrar al' gambra og eimingar-
tæki. Hald var lagt bæði á gambra
og tæki.
Varúð-ruðningar
Lögregla vill minna ökumenn á að
þar sem snjómðningar eru víða á
götum eru þær þrengri en ella og
því getur verið varasamt að mætast.
Við slíkar aðstæður er sjálfsagt að
draga úr hraða og það í tíma, áður
en bifreiðar mætast. Þá vill
lögregla einnig benda ökumönnum
á að vanda til við að leggja
bifreiðum, sérstaklega þar sem
mðningar em. Rétt er að forðast að
leggja við ruðninga þannig að gata
þrengist við það. Ökumenn em
hvattir til að finna stæði þar sem
ekki skapast hætta af.
FRETTIR
8
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Tuminum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.