Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2000, Qupperneq 13
Fimmtudagur 9. mars 2000
Fréttir
13
Ármann Höskuldsson skrifar:
Af eldfjöllum
ísland er eitt
samfelldasta eld-
fjallaland í
heiminum. Land-
ið er um 110
þúsund ferkíló-
metrar að flat-
armáli, af því er
um 60% hægt að
flokka sem virkt
eldfjallasvæði. Rannsóknir á upp-
byggingu landsins sýna að eldgos
verða að meðaltali á um 5 ára fresti.
Þetta er meðaltal fyrir síðustu 12
milljón ár. Meðaltalstölur þýða þó að
lengri eða skemmri tími getur liðið á
milli eldgosa en þessi 5 ár. Undanfarin
ár hafa til dæmis ekki Iiðið nema um
tvö ár á milli eldgosa, sfðasta eldgosið
er að sjálfsögðu Heklugosið sem hófst
laugardaginn 26. febrúar síðastliðinn.
Rannsóknir á eldgosasögu íslands
síðustu 10 þúsund ár sýna jafnframt að
eldvirkni á landinu kemur fram í
hrinum. I slíkum hrinum er styttra á
milli gosa og á milli hrina líður lengri
tími á milli. Rannsóknunt jarðvísinda-
manna á hegðun og eðli eldfjaila hefur
fleygt hratt fram síðustu 30 ár.
Fyrir um 30 árum voru öll eldfjöll,
sem ekki höfðu gosið á sögulegum
tíma, flokkuð sem útkulnuð eldfjöll.
Eftir gosið á Heimaey varð mönnum
ljóst að ekki gekk sú flokkun upp.
Ennfremur hafði þessi flokkun þá
annmarka að viðmiðunin var ekki sú
sama á milli landa. Virknitíminn var
því lengdur í 10.000 ár. Frekari rann-
sóknir hafa þó sýnt að þetta gengur
ekki heldur upp þar sem sum eldfjöll
gjósa með mun lengri tíma á milli. Er
þar skemmst að minnast skrifa sem
urðu vegna Yellowstone í Banda-
ríkjunum, en það eldfjall gýs á um
500-600 þúsund ára fresti. Það er því
ekki hægt að flokka Yellowstone með
10 þúsund ára reglunni. Nú í dag eru
eldfjöll ekki flokkuð sem útdauð nema
menn þekki til eldgosasögu þeirra og
tíðni eldgosa í viðkomandi eldstöð. En
þekkingu manna hefur ekki bara
fleygt fram í rannsóknum á eldfjöllum
heldur og á fyrirboðum eldgosa.
I dag hefur Veðurstofa Islands, með
Ragnar Stefánsson í fylkingarbroddi,
byggt upp eitt fullkomnasta viðvör-
unarkerfi jarðhræringa sem um getur í
heiminum. Kerfi þetta byggir á
jarðskjálftamælum, spennumælum og
GPS-staðsetningartækjum. Þrátt fyrir
að enn sé þetta kerfi ekki fullkomnað
fyrir ísland, er það þegar farið að skila
ótrúlega miklum árangri í framtíðar-
spám um eldsuppkomur og jarð-
skjálfta. Síðasta stórvirki þessa kerfis
var spá um Heklugosið þar sem til-
kynning um um eldsuppkomu barst
yfirvöldum um einni klukkustund
fyrir tímann og öllum almenningi um
30 mínútum fyrr.
Eins og sagt var í útvarpsfréttum:
„Heklugos hefst eftir um 20 mínútur“.
Nú er verið að koma upp skjálfitamæli
og GPS-mæli á Heimaey sem verða
hluti af þessu kerfi og verða báðir
komnir í gagnið á vordögum. Þrátt
fyrir að við reiknum ekki með að gjósi
á Heimaey í allra næstu framtíð þá
munu þessir mælar vonandi verða til
þess að tiyggja öryggi og vamir okkar
Eyjamanna um ókomna framtíð.
Höfundur er eldjjallafrœðingur og
forstöðumaður Náttúrustofu
Suðurlands.
Spennandi kosningar í FÍV:
Erum miklu betri en hinir
-segja talsmenn Kátra karla
Nú standa fyrir dyrum kosningar til
nemendaráðs FIV, næstkomandi
fbstudag. Mörg framboð hafa
óskað eftir atkvæðum nemenda og
er eitt framboðið sem kennir sig við
Káta karla. Guðmundur Kr.
Eyjólfsson er efstur á lista Kátra
karla og að hætti ofurmennisins
ávarpar hann væntanleg atkvæði
sín á þýsku:
„Guten tag, við piltamir í fram-
boðsflokknum Kátir karlar höfum
ákveðið að bjóða okkur fram til
nemendaráðs FIV.“
Astæðu framboðsins segir hann
vera þá að Kátir karlar vilji gera
skólann að skemmtilegri stað, þó að
það muni reynast erfitt, því núverandi
nemendaráð hafi staðið sig með
miklum ágætum. „Einnig teljum við
okkur vera miklu betri en hinir
flokkamir og við höfum mikla reynslu
af skemmtanalífinu. Þó að allir í
flokknum séu kannski ekki með 100%
í skólamætingu þá emm við allavega
með 100% í skemmtanamætingu og
er það okkar helsti styrkur. “
I fréttatilkynningu frá Flokknum er
hann sagður skipaður nokkmm valin-
kunnum mönnum. „Þar má fyrstan
nefna formannsefni flokksins, Guð-
mund Kr. Eyjólfsson en þar er
mikilmenni á ferð og ábyggilega
miklu betri formaður en Hafsteinn
Dan að ekki sé nú talað um Hjalta.
Annars hefur Guðmundur ekki mikla
reynslu af formannsstörfum, þó hann
sitji í stjóm Skemmtiklúbbsins
Indriða. Næstur á lista er gjaldkeraefni
flokksins en það er Kolbeinn Olafsson
yngri (í Mozart), hann hefur þó ekki
reynslu af gjalkerastörfum en það sem
ber hæst á afrekaskrá Kolbeins er að
hann vann stærðfræðikeppni í 10.
bekk og þess má til gamans geta að
formannsefnið okkar var í öðru sæti.
Næst ber að nefna þá þrjá sómadrengi
sem bjóða sig fram í sæti með-
stjómenda og vinna alveg pottþétt,
það em þeir Birkir Atlason, Sigurður
Bjöm Oddgeirsson og Jóhann Magni
Magnason (magnaður náungi).
GUÐMUNDUR Kr. Eyjólfsson og Kolbeinn Ólafsson.
Ennfremur segir í opinbemm
gögnum flokksins að þess megi til
gamans geta að Jóhann lék í leikriti í
bamaskóla en ekki Birkir og að
Sigurður Bjöm eða Bongó Bjarki eins
og hann er kallaður hafi þótt efnilegur
píanóleikari á sínum yngri ámm og
kann enn að spila „Góða mamma“.
Allir þessir karlar em mjög
sigurvissir og em þegar famir að
skipuleggja næsta karlakvöld og að
fjarlægja borðtennisborðið. Kátir
karlar vildu einnig þakka þeim sem
hafa klappað á kollinn á þeim og sýnt
þeim bæði andlegan og líkamlegan
stuðning. Með von um drengilega
kosningabaráttu og frið á jörð.
Kosningastjóri Kátra karla er Helgi
Möller og er hann einnig formaður
saumaklúbbsins Faxa. Hann er og
áhugamaður um geimvísindi og búta-
saum.
ÞESSA dagana er verið að bora
í Nýjahraunið þar sem áætlað
er að menningarhús verði reist.
Er það rétt upp af kantinum
ofan við FES.
Flugfélag íslands:
Nýtt farsölu- og
upplýsingakerfi
JÓN Karl Ólafsson framkvæmdastjóri og Árni Gunnarsson
sölu- og markaðsstjóri.
Flugfélag íslands undirbýr nú
breytingar á farsölu- og upplýs-
ingakerfi sínu. Nýja kerfið byggir
á farmiðapöntunum í gegnum
Netið og er mjög nútímalegt og
notendavænt.
Kerfið kemur til með að spara
viðskiptavinum bæði tíma og fyrir-
höfn, auk þess sem kerfið mun stuðla
að bættri þjónustu og draga úr
rekstrarkostnaði. Líkt og hingað til
verður hægt að panta flugferðir
gegnum síma en pantanir á Netinu
eru hins vegar nýr valkostur fyrir
viðskiptavininn. Birgðakerfismál
Flugfélagsins hafa verið í endur-
skoðun í um þijú ár og var ákveðið í
desember sl. að fara út í þessar
breytingar núna. Nú vinnur tíu
manna hópur að því að koma upp
kerfinu, og gera áætlanir ráð fyrir því
að breytingamar taki gildi í lok mars
eða byijun april á þessu ári.
Ámi Gunnarsson sölu-og mark-
aðsstjóri Flugfélags Islands segir að
nýja kerfið þýði tvær megin-
breytingar. „Annars vegar hættum
við útgáfu farmiða, en það er sú
breyting sem snýr beint að við-
skiptavinum félagins og skiptir þá
mestu máli. Hin breytingin sem
fylgir þessu er að við höfum mögu-
leika á að veita betri aðgang að okkur
í gegnum Netið, sem þýðir að fólk
getur afgreitt sig sjálft á Netinu og
þarf ekki að bíða eftir því að
starfsmaður hjá okkur sinni því.
Viðskiptavinurinn sér því strax hvort
sæti er laust eða ekki og fær stað-
festingu á því um leið, þannig verður
þjónusta í gegnum Netið í raun
tuttugu og fjórir tímar á sólarhring.
Annað í þessu sambandi, eins og við
sjáum líka í bankakerfinu, er að fólk
afgreiðir sig meira sjálft og einfald-
ara verður fyrir fólk að nálgast
þjónustu félagsins og í framtíðinni
verður til dæmis hægt að senda
upplýsingar sem SMS skilaboð í
farsíma Öll afgreiðsla á flugvelli
mun því taka skemmri tíma.“
Ámi segir að bókunarkerfið, sem
nú á að skipta út, sé orðið mjög
gamalt og staðnað, þó að útgáfa
farseðla sé í samræmi við núgildandi
alþjóðareglur. „Farmiðar eru í sjálfu
sér ekkert annað en bókhaldsgögn og
hafa verið nauðsynlegir til þess að
flugfélög út í heimi eigi að geta
rukkað fyrir sölu. Þar sem við
vinnum á tiltölulega einangmðum
markaði sem er bundinn að mestu
við innanlandsmarkað, þó að við
séum líka með flug á Færeyjar og
Grænland. En 80 til 85 prósent af
okkar sölu fer fram beint hjá okkur
svo við sjáum okkur því fært að fara
út í þessar breytingar án þess að það
skapi mikla erfiðleika fýrir annað
umhverfi og þá sem hafa verið að
selja okkur hingað til.“
Afgreiðsla og bókanleiki Flugfé-
lags Islands í gegnum Netið verður
bæði fyrir ferðaskrifstofur og
umboðsmenn FI um allt land, sem fá
beinan aðgang að nýja kerfinu og
segir Ámi að kerfið bjóði líka upp á
hvers kyns pakka og tilboð. „Fyrir
ferðaskrifstofur og umboðsmenn
verða bókanir auðveldari auk þess
sem aðgengi allra sem hafa Net-
aðgang verður mjög einfaldur.
Gmnnurinn að þessu kerfi er
öðmvísi að því leyti að hann er
byggður upp í hinu venjulega flug-
félagakerfi. Þetta er byggt upp sem
gagnagmnnur og þeir sem byggt
hafa upp kerfið, hafa notað það til
þess að halda utan um hótelgistingar
og skemmtigarða, þar sem sama
hugmyndafræðin er í raun í gangi.
Það er verið að taka eitthvað frá fyrir
viðskiptavininn, en hvers eðlis
þjónustan er skiptir í raun ekki máli.
Við munum nýta okkur þetta kerfi
þannig að fólk mun geta bókað
bílaleigubíla, hótel og aðra þjónustu
sem við emm að selja."
Ámi bendir á að vegna þess að
þetta séu pappírslaus viðskipti, þá sé
lagt mikið upp úr öryggisþættinum.
„Til dæmis varðandi greiðslur á
Netinu með kreditkortum em notaðir
bestu öryggisstaðlar sem til em og
vinnum við það í samvinnu við
íslensku kortafyrirtækin. Hvað við
kemur öryggi við að halda utan um
bókanir höfum við notað alþjóðlega
kerfið AMADEUS. Bókanir í því
hafa dottið út úr kerfinu eftir tvo
daga, en svo mun ekki verða raunin í
þessu nýja kerfi, þannig að við
getum í sjálfu sér haldið utan um
bókanir sem em orðnar eldri og
höfum við sett okkur að halda þeim
inni í allt að ár aftur í tímann til að
byrja með. Allar endurgreiðslur og
breytingar og að rekja bókanir aftur í
tfmann verður því mun einfaldara.
Hins vegar er rétt að hafa í huga að
lfka verður hægt er að bóka á Netinu
og geiða svo við brottför með debet-
korti, eða peningum."