Fréttir - Eyjafréttir - 06.04.2000, Síða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 6. apríl 2000
frettir
Svipaðogsíðast
Alls voru 159 færslur í dagbók
lögreglu í sl. viku eða svipað og
vikuna á undan. Frá föstudegi fram
til sunnudags voru 34 færslur sem
einnig er nánast sami fjöldi og
helgina áður.
Handalögmál
Svo til fastur liður er að líkamsárás
sé kærð til lögreglu eftir helgi. Svo
var einnig nú og átti sú árás sér stað
á einu af öldurhúsum bæjarins. Þar
hafði orðið ósætti milli tveggja
gesta og endaði nteð handa-
lögmálum. Ekki var um alvarleg
meiðsli að ræða.
Búðahnupl
Einn þjófnaður var tilkynntur
lögreglu og var þar um að ræða
búðarhnupl. Var það afbrot talið
minni háttar og ekki lögð fram
kæra vegna þess.
Áttakærðir
Átta ökumenn voru kærðir í
vikunni fyrir brot á umferðarlögum.
Tveir fyrir of hraðan akstur, tveir
fyrir vanrækslu á skoðun, tveir fyrir
að leggja ranglega og tvö brot voru
minni háttar.
Fórmannlaus
ytirgötu
Mildi var að ekki urðu slys á fólki á
mánudag. Þá rann mannlaus bif-
reið af stað af bifreiðastæði við
Vilberg kökuhús, yfir götuna og
braut rúðu í versluninni Róma.
Vinnuslys
Eitt vinnuslys var tilkynnt lögreglu
í vikunni. Háseti um borð í Sæfaxa
VE slasaðist við vinnu sína um
borð. Meiddist hann á hendi en
ekki munu hafa orðið alvarlegir
áverkar af.
Lögregla mælir með
lyfjaprófum
1 tilkynningu frá lögreglunni segir
að aldrei sé góð vísa of oft kveðin.
Enn og aftur óskar lögreglan eftir
aðstoð bæjarbúa í baráttunni við
fíkniefnin. Lögreglu vantar alltaf
upplýsingar varðandi fíkniefnabrot
og eru allar upplýsingar vel þegnar.
Bent er á sjálfvirkan símsvara
lögreglunnar í Vestmannaeyjum
481-1016 og grænt númer rfkis-
lögreglustjóra 800-5005. Fullum
trúnaði er heitið og nafnleynd ef
þess er óskað.
Þá vill lögregla benda foreldrum á,
gruni þeir börn sín um að vera
byrjuð að neyta ffkniefna, að hægt
er að fá svokölluð „lyfjapróf' í
apótekum. Þau kosta lítið, 500 -
1000 kr. Með þvagsýni er einfalt
að prófa hvort börnin eru í einhverri
neyslu. Þessi próf em mjögeinföld
í notkun, einungis þarf þijá dropa af
þvagi og kemur niðurstaðan innan
fimm mínútna.
Fyrirlestur um Bibl-
íuna
Á þriðjudaginn verður llutt
fræðsluerindi um Bibltuna í sal
járniðnaðarmanna, Heiðarvegi 7.
Sérstaklega verður athugað hvernig
innihald Biblíunnar sjálfrar bendir
til þess að hún sé innblásin og
traustur leiðarvísir. Allir eru
velkomnir að hlýða á erindið sem
mun heíjast kl. 20.00. Fyrirlesari er
Roger Paterson, norskur trúboði og
farandumsjónarmaður hjá Vottum
Jehóva hér á landi.
Fermingar helgarinnar
Börn sem fermast í Landakirkju sunnudaginn 9. aprfl kl. 11.00 ásamt prestum kirkjunnar: Arna Björg
Sigurbjörnsdóttir, Baldvin Þór Sigurbjörnsson, Björgvin Már Þorvaldsson, Charlotte Sigrid
Martinsdóttir á Kosini, Garðar Örn Sigmarsson, Guðrún Jóna Stefánsdóttir, Kristín Stefánsdóttir,
Magnús Berg Magnússon, Ragnar Tryggvason, Sævald Páll Hallgrímsson.
fréttir
BagurTónlistar-
skólans
Dagur Tónlistarskóla Vesmtanna-
eyja verður haldinn, nk. laugardag,
þann 8. apríl, í samkomusal skólans
frá kl. 15.00. Eins og áður hefur
verið auglýst varð að fresta þessum
átiega degi vegna veikinda en nú
eru allir í góðu formi.
Nokkrir lengra komnir nemendur
skólans koma fram og Litla
lúðrasveitin mun leika nokkur lög.
Foreldrafélag sveitarinnar mun
selja kafft og gæðameðlæti til
fjáröfluntu' í ferðasjóð. Það stefnir
sem sé í þessa ftnu kaffihúsa-
stemmningu. Treystir foreldrafélag-
ið og kennaralið skólans á góða
mætingu allra velunnara skólans og
sveitaiinnar. Verð fyrir fullorðna er
kr. 500 á mann og kr. 250 fyrir
börn. Þess má geta, að Litla
lúðrasveitin stefnir á sína aðra
utanlandsferð í vor, og nú til
Englands. Sveitin er með tjöl-
mennasta móti um þessar mundir
og það er reyndar skólinn líka, þar
sem aðsókn hefur aldrei verið meiri
frá upphafi.
Börn sem fermast í Landakirkju sunnudaginn 9. apríl kl. 14.00 ásamt prestum kirkjunnar: Andri
Eyvindsson, Anna Ragnheiður ívarsdóttir, Bergvin Oddsson, Elvar Már Þrastarson, Erla Signý
Sigurðardóttir, Hanna Carla Jóhannsdóttir, Hersir Mar Jónsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Thelma
Sigurðardóttir. Á myndina vantar Egil Andrésson.
Fermingartölvan í ár !!
Fujitsu T-Bird 466 mhz celeron
64MB vinnsluminni
8,4 GB harður diskur
40x geisladrif
16 bita hljóðkort
56k mótald
8 MB AGP skjákort
17" Fujitsu skjár
MS Word 2000
MS Works 2000
Windows 98
...og margt fleira
Öflug heimilistölva,
tilvalin í skóla-
verkefnin
Sannkallað „bónus“ verð !!!
K3 Aðeins
^kr 99.990.-stgr
^ Urslitakeppni kvenna
í handknattleik
IBV-GROTTA/KR
50 viðskiptavinir Sparisjóðsins sem koma
í dag fá einn miða á leikinn hver á meðan
birgðir endast
Fyrstur kemur fyrstur fær
n
Sparisjóðurinn styður
stelpumar til sigurs
Sparisjóður
Vestmannaeyja
TIIDalvíkur
frekarenKFS
Knattspymufélagið Framherjar-
Smástund helúr skrifað undir
samning við Papa Assane N'Daw
sem leikið hefur þrjá U-21 lands-
leiki rneð Senegal sem markvörður.
Félagið ætlar sér stóra hluti í sumar
eins og sést hefur á úrslitum
vetrarins.
Félagið bauð ÍBV samstarf um
leikmenn í sumar eins og undan-
farin ár en enn einu sinni var það
hunsað. í fréttatilkynningu frá KFS
segir að leikmenn frá IBV séu á
leiðinni til Dalvíkur o.s.frv. frekar
en að fara til KFS. „Engu að síður
óskum við þeim alls hins besta í
sumar," segir í tilkynningunni.
Vorsöfnun
slysavarnardeildar-
innar Eykyndils
Slysavamatdeildin Eykyndill er að
fara af stað með árlega vorsöfnun
dagana 6. til 27. apríl. Eykyndill
hefur verið með vorsöfnun meðal
fyrirtækja í bænum í fjöldamörg ár
og er hún jafnframt aðalijáröflunar-
leið deildarinnar. Ágóði hefur
alltaf runnið til góðra málefna til
eflingar slysavama í bænum. Sem
dæmi um góð og þörf málefni sem
þær Eykyndilskonur hafa styrkt eru
umferðarljósin á homi Heiðarvegar
og Strandvegar, gjafir til Heil-
brigðisstofnunarinnar í Vest-
mannaeyjum, Lóðsins, slökkviliðs
og lögreglu. Vonast Eykyndils-
konur eftir að vei verði tekið á móti
þeim eins og undanfarin ár.
Fréttatilkynning.
Rúðubrot
Einhvem tíma í síðustu viku var
brotin rúða í skúr sem stendur við
íþróttavöllinn við Löngulág. Ekki
er vitað hver þar var að verki og
óskar lögregla eftir upplýsingum
um málið.
FRETTIR
Útgefandi; Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Heijólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraösfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.