Fréttir - Eyjafréttir - 06.04.2000, Blaðsíða 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 6. apríl 2000
Landa-
KIRKJA
- lifandi samfélag!
Fimmtudagur 6. apríl:
Kl. 10.00. Foreldramorgunn.
Samvera foreldra með ungum
bömum sínum. Sr. Bára Frið-
riksdóttir er aftur mætt til leiks.
Kl. 17.00. TTT. Kirkjustarf 10-12
ára krakka. Lokaundirbúningur
fyrir mótsferðina í Vatnaskóg (7,-
8. apríl).
Kl. 18.00. Kyrrðar- og bænastund.
Næstsíðasta bænastund vetrarins.
Föstudagur 7. aprfl:
Kl. 13.00. Æfing hjá öllum Litlum
lærisveinum saman.
Sunnudagur 9. apríl:
Kl. 11.00. Bamasamvera á Hraun-
búðum með bamakómum Litlum
lærisveinum.
Kl. 11.00. Fermingarmessa með
altarisgöngu. Sjónvarpað verður
yfír í Safnaðarheimilið. Allir
velkomnir.
Kl. 14.00. Fermingarmessa með
altarisgöngu. Sjónvarpað verður
yfir í Safnaðarheimilið. Allir
velkomnir.
Kl. 20.30. Æskulýðsfundur í
Safnaðarheimilinu.
Þriðjudagur 11. aprfl:
Kl. 16.30. Kirkjuprakkarar. Kera-
mik, föndur, fuglar.
Kl. 20.00. Fundur um sorgar-
viðbrögð og missi.
Miðvikudagur 12. apríl:
Kl. 11.00. Helgistund á Hraun-
búðum. Heldri borgarar sérstak-
lega velkomnir.
Kl. 20.00. Opið hús hjá ung-
lingum í KFUM&K húsinu við
Vestmannabraut.
Fimmtudagur 13. aprfl:
Kl. 10.00. Foreldramorgunn. Sam-
vera foreldra með ungum bömum
sínum.
Kl. 14.30. Helgistund á Heil-
brigðisstofnuninni, dagstofu 3.
hæð.
Heimsóknargestir velkomnir.
Kl. 17.00. TTT-kirkjustarf 10-12
ára krakka.
Kl. 18.00. Kyrrðar- og bænastund.
Síðasta bænastund vetrarins.
Hvítasunnu
KIRKJAN
Fimmtudagskvöld
Kl. 20.30 verður Biblíulestur og
umræðurum l.Kor. 10-12
Föstudagskvöld
K1 20.30 unglingamir með Guðs
Orðið
Laugardagur
K1 20.30 Brotning brauðsins -
minnst kvalardauðans á
krossinum
Sunnudagur
K115.00 Samkoma til lækningar
á anda, sál og líkama. Guð svarar
sérhverri þörf. Samskot til
trúboðsins
Allir velkomnir í
Hvítasunnukirkjuna.
Aðvent-
KIRKJAN
Laugardagur 8. apríl
Kl. 11.00 Biblíurannsókn.
Allir velkomnir.
Urslitakeppni kvenna í handbolta: Tveir sigrar á Gróttu/KR
METTE, Anita, Hind og Guðbjörg fagna sigri í fyrsta leik úrslitakeppninnar. í kvöld mæta þær
Gróttu/KR í þriðja leik úrslitanna.
Stolt Vestmannaeyja um þessar
mundir, kvennaiið IBV í hand-
boltanum heldur áfram að gera það
gott í úrslitakeppninni. Liðið hefur
þegar sigrað í tveimur fyrstu viður-
eignunum, fyrst hér heima á
laugardag og svo á Seitjarnarnesi
siðasta mánudagskviild og leiðir
2-0. Með sigri á heimavelli í kvöld
geta stelpurnar tryggt sér Islands-
meistaratitilinn og þar með skráð
nafn sitt á spjöld handbolta-
sögunnar.
Fyrsti leikur liðanna fór fram í
Iþróttahöllinni að viðstöddu húsfylli.
Mikil stemmning var í húsinu og fólk
bytjaði að streyma að klukkutíma fyrir
leik. Leikurinn var einnig mikil
skemmtun þar sem hraður handbolti
og mikil barátta vom í fyrirrúmi, sem
að vísu kom niður á gæðunum en hver
tók eftir því?
IB V tók völdin á vellinum írá fyrstu
mínútu og var vamarleikur liðsins
nánast óaðfínnanlegur fyrsta fjórðung
leiksins, enda skoraði Grótta/KR
aðeins þrjú mörk á þessum kafla.
Stelpumar tóku áhættu með því að
keyra á hraðaupphlaupum, sú áhætta
skilaði sér í fimm marka forystu 7-2,
en staðan í leikhléi var 14-11 ÍBV í
vil.
Ekki leit út fyrir fimm marka sigur í
upphafi seinni hálfleiks, því eftir
aðeins sex mínútur jöfnuðu gestimir
leikinn og spennan í hámarki.
Sigbjöm Óskarsson spilaði þá út einu
af trompunum sem hann lumaði á,
besti maður Gróttu/KR var tekinn úr
umferð og aftur komst ÍBV í þriggja
marka forystu. Þegar sex mínútur
vora eftir þá var aftur orðið jafnt. Þá
var sóknarleikur ÍBV dálítið stirður
enda Amela tekin úr umferð. En
Eyjastelpur náðu áttum og skoraðu
fjögur mörk gegn aðeins einu marki
gestanna og tryggðu sér öruggan og
sætan sigur í fyrsta leik liðanna.
Mörk IBV: Amela 11/7, Anita 7,
Andrea 4, Guðbjörg 3, Ingibjörg 3,
Mette 1/1, Hind 1.
Varin skot: Vigdís 1, Lúsí 14.
Vöruvalsmótió:
Vöruval
til liðs
við ÍBV
Stúlknamót ÍBV-íþróttafélags í knatt-
spymu verður í sumar Vöruvals-
mótið.
Vöraval er aðastyrktaraðili mótsins
og sagðist Ingimar Georgsson,
kaupmaður vera mjög ánægður með
að vera kominn í samstarf við
íþróttahreyfinguna. „Mótið hefur
verið að vaxa um leið og kvenna-
knattspyman í landinu og er gaman að
fá að taka þátt í því,“ sagði Ingimar.
Ingimar og Þór Vilhjálmsson,
formaðurÍB V-íþróttafélags
skrifa undir samninginn.
Hörkurimma á
útivelli
I öðrum leik liðanna sem fór fram á
heimavelli Gróttu/KR leit framan
af ekki út fyrir að IBV myndi sigra.
ÍBV-stelpumar byrjuðu reyndar
leikinn eins og þær enduðu þann
fyrsta. Fyrstu tvö mörkin vora þeirra
og tóku þær Öllu Gorgorian úr umferð
í vamarleiknum. Heimamenn svöraðu
með þremur mörkum og komust svo
fljótlega í þriggja marka forystu. En
með mikilli baráttu náðu stelpumar að
saxa á forskot Gróttu/KR íyrir hlé og í
hálfleik var staðan 13-12.
ÍBV byrjaði leikinn heldur illa í
seinni hálfleik og lentu stelpumar
fljótlega fjóram mörkum undir 16-12.
Bragðið var á það ráð að taka tvo af
sóknarmönnum Gróttu/KR úr umferð,
en það herbragð virkaði engan veginn
enda erfitt að verjast aðeins fjórar.
Það var ekki fyrr en að Ingibjörgu
Jónsdóttur var vikið af velli í tvær
mínútur þegar vel var liðið á seinni
hálfleik að hlutimir fóra að ganga.
Ekki svo að skilja að Ingibjörg hafi
verið liðinu Akkilesarhæll, þvert á
móti en liðið varð hins vegar að breyta
vamarleiknum í kjölfarið og eftir það
var spiluð 6-0 vöm út leikinn með
prýðisgóðum árangri. Stelpumar
sýndu það sem eftir lifði leiks að þær
geta ráðið við hvaða manneskju og
hvaða lið sem er þegar þær spila
eðlilegan vamarleik.
Fljótlega var munurinn aðeins orð-
inn tvö mörk og aðeins sex mínútur til
stefnu. Þrátt fyrir að hafa skotið
tvisvar í stöng á þessum lokakafla
leiksins, og reyndar sex sinnum í
seinni hálfleik, náði ÍBV liðið að jafna
leikinn og fékk tækifæri á að gera út
um hann á síðustu andartökum
leiksins en tíminn reyndist of naumur.
Lokatölur urðu 21-21 og því varð að
framlengja.
I framlengingunni var ÍBV mun
sterkari aðilinn. Þrátt fyrir að staðan
væri jöfn eftir fyrri hálfleik, þá héldu
stelpumar sínu striki og skoraðu
fjögur mörk á síðustu fimm mín-
útunum og tryggðu sér mikilvægan
sigur í baráttunni um Islands-
meistaratitilinn, 25-27.