Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2000, Síða 1
27. árgangur • Vestmannaeyjum 20. júlí 2000 • 29. tölublað • Verðkr. 140,- * Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
Sumarstúlka
Vestmannaeyjs
2000
Á Höfðanum á laugardaginn kemur í Ijós hver verður Sumarstúlka
Vestmannaeyja árið 2000. Sumarstúlkukeppnin er orðin ein af
aðalskemmtunum sumarsins og verður vandað til hennar sem aldrei
fyrr.
Þær sem taka þátt í Sumarstúlkukeppninni eru Anita Ársælsdóttir,
Aðalbjörg Jóhanna, Agnes Ósk Þorsteinsdóttir, Lilja Björg
Arngrímsdóttir, íris Dögg Konráðsdóttir, Jóhanna Björk
Guðmundsdóttir og Þórey Jóhannsdóttir. Stúlkurnar fá glæsilega
vinninga og er Edinborgarferð fyrir einn í haust frá Úrvai-Útsýn meðai
þeirra.
Framkvæmdastjóri er Dagmar Skúladóttir, kynnir og skemmtana-
stjóri kvöjdsins er Bjarni Ólafur Guðmundsson, ljósmyndari Guð-
mundur Ásmundsson, búningahönnuður Selma Ragnarsdóttir, höfundur
málverks á sviði Nada Borosak, ljósa- og hijóðmaður Rúnar Karlsson og
aðstoð við skreytingar Björg Valgeirsdóttir.
Aðalstyrktaraðilar eru Fréttir, Veisluþjónusta Gríms, Hótel Þórs-
hamar og Kaffi Tímor, Úrval Útsýn, Hárgreiðslustofa Guðbjargar,
Snyrtistofan Am'ta, Sparisjóðurinn og Flugfélag íslands.
Áðrir styrktaraðilar eru Metro málning Reynistað, Sprett úr spori,
Eyjablóm, Hressó, Betri línur, Róma, Foto, Eðalsport, Flamingo, Tölvun
og Bókabúðin Penninn.
ATH. Vegna leiks IBV íkvöld verða miðapantanir afhetttar á Höfðanum
frá kl. 18.00 til 19.30 íkvöld en ekki kl. 20.00 til 22.00 eins og kemur fram í
auglýsingu. Afram verður hœgt að panta miða ísíma 481-2665.
Lækkun á heitu vatni og
rafmagni til húshitunar
-Iðnaðar- og viðskiptaráðherra vill gera sitt til að hamla gegn fólksflótta af landsbyggðinni
Veruleg lækkun hefur orðið á
töxtum Bæjarveitna Vestmanna-
eyja, bæði á heitu vatni og raímagni
til húshitunar. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Sigurjóni Ingólfssyni,
skrifstofustjóra Bæjarveitna, er
þessi lækkun í samræmi við
byggðaáætlun 1999-2001 sem
alþingi samþykkti vorið 1999. í
fjárlögum yfírstandandi árs voru
framlög til niðurgreiðslna á landinu
öllu aukin um 160 milljónir króna.
Þessar niðurgreiðslur leiða til u.þ.b.
7% lækkunar á verði heita vatnsins frá
þeirri gjaldskrá sem stjóm Bæjar-
veitna samþykkti 20. júní sl. Lækkun
til þeirra sem nota rafmagn til
upphitunar er breytileg eftir stærð
húsa. Mest er lækkunin til þeirra ssem
eiga stór hús en lækkunin nemur á
bilinu ffá 4-20%.
Niðurgreiðslumar aukast með
tvennum hætti, annars vegar með
beinni krónutölulækkun og hins vegar
með breyttum viðmiðunum í magni.
Fram að þessu hefur niðurgreiðslan
miðast við notkun að hámarki 30.000
kWh í rafkyndingu og 663 m3 af heitu
vatni. Þessar við.miðanir breytast
þannig að hámarksnotkun í rafkynd-
ingu verður 50.000 kWh og há-
marksnotkun á heitu vatni verður
1.111 m3.
Þeir sem eiga stór hús og nota heitt
vatn til upphitunar hafa ekki fundið
fyrir þessum hámarksviðmiðunum þar
sem þeir njóta alltaf sama verðs þó að
þeir hafi notað meira en 663 m3 á ári.
Hins vegar hafa Bæjarveitur ekki haft
tekjur af þeim rúmmetrum sem eru
umfram 663 m3.
Eftir þessar breytingar fer kostnaður
við að kynda 720 m3 hús (meðalhús)
með heitu vatni úr 64 þús, kr. í 60 þús.
kr. áári.
Það er Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar og viðskiptaráðherra, sem
hvað mest hefur beitt sér fyrir þessum
lækkunum en með þessari aðgerð er
verið að taka myndarlega á þeirri
þróun sem verið hefur í fólksflótta af
landsbyggðinni yfir á höfuðborgar-
svæðið. Ættu Vestmannaeyingar að
ftnna verulega fyrir þessum auknu
niðurgreiðslum í buddum sínum.
Norðurlandamótið í golfi
hefst í Eyjum í næstu viku
Óhætt er að segja að stærsti
viðburður golftímabilsins í Vest-
mannaeyjum hefjist í næstu viku.
Þá verður Norðurlandamótið hald-
ið á vellinum í Eyjum.
Þar eigast við landslið áhugamanna
frá öllum Norðurlöndunum. Vest-
mannaeyingar eiga einn fulltrúa í
íslenska landsliðinu, Þorstein Hall-
grímsson, sem um þessar mundir
spilar hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.
Þorsteinn hefur verið að spila mjög
vel í sumar og auk þess ætti
„heimavöllurinn“ að koma honum til
góða.
Sex manna sveitir skipa karla-
landsliðin og í kvennaflokki eru ljórar
í sveit. Um 50 keppendur mæta því til
leiks auk þess sem mikill fjöldi
aðstoðarfólks, dómgæslu- og eftir-
litsfólks og fréttamanna fylgir að
sjálfsögðu með.
Fjárhagslegur ávinningur GV er
enginn af því að halda þessa keppni en
óneitanlega mikill heiður og viður-
kenning fyrir Golfklúbb Vestmanna-
eyja að hafa orðið fyrir valinu enda er
reiknað með að þetta verði góð
kynning á vellinum sem komi til með
að skila sér.
Keppendur munu koma til Eyja
snemma í næstu viku til að kynna sér
völlinn og æfa en sjálf keppnin hefst á
miðvikudag og lýkur á laugardag. Þá
daga verður völlurinn lokaður öðrum
en keppendum í mótinu.
Rekstur Herjólfs
boðinn út
Við
munum
senda
inn
tilboð
-segir framkvæmdastjóri
Nú er endanlega ákveðið að
rekstur Herjólfs verður boðinn
út, ekki aðeins innanlands heldur
á öllu Evrópska efnahags-
svæðinu. Samkvæmt reglugerð-
um mun slíkt skylt.
Magnús Jónasson, framkvæmda-
stjóri Herjólfs hf., segir að félagið
muni bjóða í reksturinn. „Við
höfum fengið lögfræðilegt álit,
vegna þess hve stór hlutur ríkis og
bæjar er í Heijólfi, talið var að sá
hlutur væri of stór til að við
mættum bjóða í reksturinn. En
samkvæmt því áliti er okkur
leyfilegt að bjóða og það munum
við gera. Reyndar höfum við ekki
séð útboðsgögnin ennþá en það
verður væntanlega skammt að bíða
þess. Ágústmánuður verður vænt-
anlega notaður til að ganga frá
tilboði en þau verða opnuð 11.
september," sagði Magnús Jónas-
son framkvæmdastjóri Heijólfs.
■"* ■"■■■ ■ TM-ÖRYGGI
_Í@L FYRIR
ÖRVGGI FJÖLSKYLDUNA
Sameinar öll trygg'ngamáHn
- á óilum svidum1 H 7 á einfaldan og hagkvæman hátt
Bílaverkstæ PTp''1 ðið Braggii ItinnAr nn QnTgi nn s.f. ifnrrú
n c liii iljcii uy opi dú 1 LU I I
Flötum 20 - Sími 481 1535
m.
Sumaráætlun
Frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alladaga. kl. 08.15 kl. 12.00
Aukaferðir fimmtud., föstud. og sunnud.
kl. 15.30 kl. 19.00
4»^Herjólfur
Sími 481 2800 - Fax 481 2991