Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2000, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 20. júlí 2000
Útvegsbændafélag Vestmannaeyja:
Afhendir bænum
sinn hlut í Gullborgu
Vígsla stafkirkjunnar
Opinberir
gestir hátt í 40
Norsku konungshjónin verða meðal gesta
Kúamálið í
Bændablaðinu
í Bændablaðinu frá 30. maí sl. rilar
Eyjamaðurinn Jóna Sveinsdóttir,
nýútskrifaður búfræðingur frá
Hvanneyri, um nautgriparækt í
Vestmannaeyjum og árangurslausar
tilraunir tveggja blaðamanna til að
hefja þá grein til vegs og virðingar á
ný-
I greininni rekur Jóna m.a. við-
skipti þeirra tvímenninga við
bæjaryfirvöld og segir að þrátt fyrir
synjanir séu þeir ekki hættir við þá
ætlun sína að koma upp nautpeningi
í Eyjum. í lok greinarinnar segir:
„Ekki er öll nótt úti enn og aldrei að
vita nema að á næstu árunr, þegar
Islendingar fara að flytja erfðavísa
úr norskum kúm til íslands, að farið
verði að flytja inn íslenskar kýr til
Vestmannaeyja."
Staðsetning ó reiki
Eitthvað hafa sum þeirra listaverka,
sem unnin vom undir heitinu Hraun
og menn, verið að vefjast fyrir
nefndum bæjarins, þ.e.a.s. stað-
setning verkanna. Skipulagsnefnd
hafnaði staðsetningu tveggja þeitra
á fundi fyrir tæpu ári og nú hefur
menningarmálanefnd óskað eftir
tillögu frá skipulagsnefnd um réttan
stað fyrir verkin tvö.
Vilja framlengingu
Myndlistarsýningin í Vélasalnum í
Listaskólanum hefur vakið verð-
skuldaða athygli. Sparisjóður Vest-
mannaeyja hafði veg og vanda af
uppselningu hennar. Að frum-
kvæði menningarmálanefndar hefúr
menningarfulltrúa verið falið að
ræða við fulltrúa Sparisjóðsins um
framlengingu á sýningunni.
Svipting leyfis
Á síðasta fundi bæjatráðs lágu fyrir
tvö erindi er snerta vínveitingaleyfi.
Annað var umsókn frá Lundanum
um vínveitingaleyfi og lcngri
afgreiðslutíma áfengis. Hitt var
bréf frá sýslumanni, dagsett 11. júlí,
um tímabundna sviptingu á
rekstrarleyfi. Ekki er greint frá
hvaða aðili jrar á í hlut. Þessum
erindum var báðum vísað til af-
greiðslu bæjarstjómar og verða þau
væntanlega afgreidd á fundi í dag.
Innheimt fyrir list fró
áramótum
Nú liggja fyrir drög að reglurn, frá
menningannálanefnd, um útleigu
listaverka úr Listasafni Vestmanna-
eyja. Hel'ur þess verið óskað að
bæjanáð samþykki reglurnar.
Gildistími hinna nýju reglna er frá
1. ágúst nk. en ekki mun þó verða
innheinrt samkvæmt þeim t'yrr en
um árarnót.
Skemmdir á kofum
Tvö skemmdarverk voru unnin í
vikunni, bæði á kofum í kofa-
byggðinni við Húsey. Voru þar
böm að verki og leiðinlegt að þau
skuli ftnna hjá sér þörf til að
skemma sköpunarverk annarra.
Kristjana í kvöld
Vestmannaeyingar hafa verið tíðir
gestir í þætdnum Kvöldsiglingu á
Útvarpi Suðurlands. 1 kvöld kl. 22
mætir enn einn Eyjamaður til
viðtals þar, Kristjana Þorfinnsdóttir,
fotmaður Félags eldri borgara.
SÍÐASTLIÐINN þriðjudag af-
henti Útvegsbændafélag Vest-
mannaeyja Vestmannaeyjabæ
eignarhlut sinn í Gullborginni
VE, því mikla aflaskipi. Fyrir-
hugað er að Gullborgin verði
einn höfuðdýrgripur í upp-
byggingu Sjóminjasafns í
Eyjum. Útvegsbændafélagið
ásamt Vestmannaeyjabæ og
Hafnarsjóði keyptu Gullborgina
á sínum tíma af bræðrunum
Friðriki og Benóný Benónýs-
sonum með það fyrir augum að
hún yrði varðveitt, komandi
kynslóðum til nokkurs lærdóms.
Myndin er tekin þegar eignar-
hlutur Útvegsbændafélagsins
var formlega afhentur. Fr. v.
eru Guðjón Rögnvaldsson út-
gerðarmaður, Olafur Kristins-
son hafnarstjóri, Guðjón Hjör-
leifsson bæjarstjóri, Þórður
Rafn Sigurðsson útgerðar-
maður, Magnús Bjarnason
starfsmaður Útvegsbændafé-
lagsins og Leifur Ársælsson
útgerðarmaður.
Eins og greint hefur verið frá mun
stafkirkjan, sem Norðmenn gefa
íslensku þjóðinni í tilefni afmælis
kristnitöku á íslandi og kirkju-
viðaflutningi, verða vígð sunnu-
daginn 30.júlínk.
Að sögn Guðjóns Hjörleifssonar
bæjarstjóra hefur framkvæmdum
miðað ágætlega og allar líkur á að
minnsta kosti allt er að Stafkirkjunni
sjálfri snýr verði tilbúið til vígslu.
„Þetta verður söguleg stund í Eyjum,"
sagði Guðjón. „Það er ekki óvarlegt
að áætla að fjöldi opinberra gesta og
embættismanna fylli vel á íjórða
tuginn."
Gert er ráð fyrir íjölmennu fyrir-
menni, erlendu og innlendu á
vígsluhátíðina. „Endanlegur fjöldi
opinberra gesta við vígsluna er ekki
ljós enn þá, en í fylgdarliði norsku
konungshjónanna verða að minnsta
kosti tíu manns. í fylgarliði forseta
Islands, Olafs Ragnars Grímssonar,
munu verða sjö til tíu manns. Um
fjölda gesta frá ýmsum ráðuneytum
hef ég ekki endanlegar upplýsingar,
en forsætisráðherra, íjármálaráðherra,
kirkjumálaráðherra og fulltrúar frá
utanríkisráðuneytinu munu koma til
vígslunnar. Biskup og fulltrúar kirkj-
unnar, þingmenn Suðurlands og svo
mætti lengi telja," sagði Guðjón.
Sjómannamótið ó
laugardag
Eitt stærsta golfmót ársins í Eyjum,
Sjómanna- og útvegsmannamótið,
verður haldið á laugardag. Keppt
verður í tveimur verðlaunaflokkum
nteð og án forgjafar. í öðrum
flokknum keppa starfandi sjómenn
og útgerðamienn en allir aðrir í
hinum flokknum. Þetta er opið mót
og hefur þátttaka ofan af landi
ævinlega verið mikil enda eru
verðlaun sérlega glæsileg. Þátttaka
miðast við 18 ára og eldri. Kvöld-
verður verður á laugaidag í Golf-
skálanum og verðlaunaafhending á
eftir. Keppnisgjald er kr. 3000 og
er kvöldverður innifalinn. Skrán-
ingu í mótið lýkur á fóstudag kl. 20.
/
I sumarskapi
f síðustu viku vom tærslur í dagbók
lögreglu 144 talsins og er það
nokkru minna en í vikunni þar á
undan. Lögreglumönnum ber sam-
an um að rólegt sé yfir vötnunum
um þessar mundir og lítið um
alvarleg mál. Þessi árstími hefur
enda yfirleitt verið rólegur hjá lög-
reglu þar sem fólk er í sumarskapi
og margir í sumarfríum.
Listþjófnaður
I vikunni var járnskúlptúr stolið frá
Kirkjuvegi 53. Var þetta skúlptúr í
mannslíki, þungur og boltaðui' niður
en hafði verið losaður og fjarlægður
og hefur gerandinn þurft að hafa
talsvert fyrir því. Líkast til gerðist
þetta aðfaranótt sunnudagsins 9.
júlí. Ekki er vitað hver þama var að
verki, né heldur hvaða hvatir hafa
legið að baki, hvort um er að ræða
óffóman listunnanda eða hvoit hann
hefur ágimst málminn í lista-
verkinu. Óskar lögregla eftir upp-
lýsingum sem komið gætu að gagni
við að endurheimta verkið.
Enn tekinn stútur
Fimm vom kærðir fyrir að fara ekki
að lögum og reglunt í umferðinni.
Alvarlegast þeina var að ökumaður
var tekinn vegna ölvunaraksturs en
hinir vom kærðir fyrir að hafa ekki
ökuskírteini meðferðis, einn sem ók
án skráningarmerkja, einn hafði of
marga farþega í bfl sínum og hjá
einum var aðbúnaði ökumanns og
farþega ábótavant. Þá var lögreglu
tilkynnt um tvö umferðaróhöpp
sem reyndust minni háttar.
Aukið eftirlit
Lögregla vill benda á að nú er að
fara af stað landsátak í eftirliti með
ungum ökumönnum og verður
fylgst með hraðakstri, öryggis-
beltanotkun og fleim. Er þessu
átaki hrundið af stað þar sem
kannanir sýna að flestir þeir sem
valda óhöppum í umferðinni em
ungir ökumenn. Minnt skal á að
þeir sem eru með bráðabirgðaöku-
skírteini missa það við 8 punkta en
12 punkta þarf á fullnaðarskírteini.
Óbreytt óstand
í gær var tala atvinnulausra í Eyjum
18 eða nákvæmlega hin sama og
fyrir tveimur vikum. Þessar tölur
em fengnar hjá Atvinnumiðlun Vm.
ffifSIUN BVURR
s
Utsalan hefst í dag,
fimmtudag kl. 10.00
FLAMINGO
FRETTIR
8
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.