Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2000, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 20. júlí 2000
Bókvitið ígsk
Ona
Nýfæddir ?cr
Vestmannaeyingar
Um atferli reyks
Eðvald Sigurðsson og Bretamir
koma. Deddi minn, Bretamir eru
Iöngu famir svo þú getur hætt að lesa
bókina. Það gat nú verið að Eðvald
myndi skora á þá sem eru honum
fremri. Eðvald hefur löngum sóst eftir
því að verða titlaður yfir VITA-
VÖRÐUR og ljái honum það hver
sem vill. Hann er eini og sanni Vi
vitinn í hópnum og sannast það best á
því að hann, ásamt yngsta syni sínum
þeim enska, hefur undanfarin ár verið
að smíða heimasíðu um VITANN
(www.eyjar.net) sem er samansafn af
fjöldskyldumyndum af þeim feðgum
og ein og ein og önnur til af frúnni
þegar þau koma í heimsókn þegar
Vitinn er vígður fyrir hverja
Þjóðhátíð.
Það var illa gert að skora á Ævar og
Geira sem bókaorma vikunnar. Þessir
öndvegismenn hafa engan tíma til að
lesa bækur hvorki á sumrin eða
Ævar Þórisson og Ásgeir
Þorvaldsson eru
bókaunnendur vikunnar
vetuma. Það sem hrjáir þá er vinna og
aftur næturvinna Þetta eru menn sem
vinna fullan vinnutíma og eru ekki
komnir heim kl 15.15 á daginn eins
og sumir, hvað þá að eiga frí í eina
viku af hverjum tveim. I öræfaferðir
og göngutúra um Látrabjarg geta þeir
ekki leyft sér að fara. Annað slagið á
Ásgeir það til að lesa úr skorkorti og
getur það verið hin mesta þraut, það
er í hans annarri vinnu en það er full
vinna hjá Ævari að koma þeim tölum
til skila á réttan stað í tölvinni.
Jæja er ekki best að snúa sér að
alvöru málsinns. Einn er sá maður
sem lesið hefur og kynnt sér vel
atferli reyks. Hann á það úl að rjúka á
lappir og stappa niður fótunum, kalla
á slökkvilið og MALA einhver ósköp
er hann verður var við reyk. Hans
vinna er reykur og rýkur oft úr
honum. Þessi MALARI er Magnús
Bragason sem hefur eflaust frá ýmsu
að segja og verður hann að okkar mati
ágætur bókaunnandi næstu viku.
Orðspor
-Nokkur styrr hefur staðið um sum listaverkanna úr
verkefninu Hraun og menn sem unnið var ífyrra. Þess hefur
verið farið á leit að a.m.k. tveimur verkanna verði valdir nýir
staðir. En þriðja verkinu var fyrir skömmu fundinn nýr staður,
algerlega óvart og óforvarendis. Starfsmenn hjá Áhaldahúsi
bæjarins fengu fyrirskipun um að fjarlægja grjót sem hrunið
hafði í jarðskjálftunum í fyrri mánuði og þótti til óprýði.
Gengu þeir vasklega að verki eins og þeirra er háttur og
hreinsuðu brekkur og önnur svæði. Svo ráku glöggir menn
augun í að í þeirri hreinsun hafði verið fjarlægt grjót úr einu
ágætu hraunlistaverki neðan við Sýslumannskór og því
væntanlega fundinn nýr samastaður. Gæti ýmissa hluta
vegna orðið torvelt að koma því aftur á sinn fyrri stað. Þeir
bæjarstarfsmenn höfðu þá afsökun fyrir gjörðum sínum að þá
skorti því miður þann kúltúr og innsæi sem þyrfti til að greina
listrænt grjót frá ólistrænu.
-Keppni á British Open golfmótinu hefst í dag og væntanlega
verða margirtil að fylgjast með henni í sjónvarpi. I fyrra vakti
það hvað mesta athygli þegar franski kylfingurinn Van der
Velde stal senunni með því að afklæðast sokkum og skóm og
reyna ótrúlega tilburði ítjörn á síðustu brautinni. Á sunnudag
gerðist ekki ósvipað á Meistaramótinu í golfi í Eyjum. Einn
ágætur kylfingur, sem var að berjast um toppsæti, fékk
boltann sinn illsláanlegan við tjörnina á 16. braut. Hann óð út
í tjörnina (raunar bæði í skóm og sokkum) en tókst því miður
illa upp og tapaði þar með tveimur höggum í baráttunni um
toppinn. Illgjarnir starfsfélagar hans kalla hann eftir þetta ekki
öðru nafni en Van derVelde.
Upplifun að spila með Elliða
Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja
varháð í síðustu viku. Óhætt erað segja
að enginn hafi spiiað betur en ungur
kylfingur í 1. flokki. Hann lék hringina
fjóra á 305 höggum, eða um 76 högg að
meðaltali á hring og sigraði með
yfirburðum, næsti maður var á 323
höggum. Þessi árangur hefði nægt til 2.
sætis í meistaraflokki. Þessi frábæri
kylfingur er Eyjamaður vikunnar.
Fullt nafn ? Viktor Pétur Jónsson.
Fæðingardagur og ár? 14. júlí 1985.
Fæðingarstaður? Akranes.
Fjölskylduhagir? Bý hjá pabba, Jóni
Péturssyni.
Menntun og starf? Fer í 10. bekk í
haust. Hef verið í Vinnuskólanum í
sumar en misst
talsvert úr þar út af
golfinu.
Laun? Já.
Bifreið? Drossían
hans pabba sem ég má ekki aka
ennþá.
Helsti galli? Er stundum svolítið
skapstór.
Helsti kostur? Metnaðargjarn,
gefst aldrei upp.
Uppáhaldsmatur? Lasagna.
Versti matur? Ég fæ sjaldan mat
sem mér finnst vondur.
Uppáhaldsdrykkur? Pepsí.
Uppáhaldstónlist? Ég hlusta lítið
á tónlist. Gítargaulið hjá pabba er
ágætt.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Að spila golf.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þú gerir? Að komast ekki ígolf.
Hvað myndirðu gera efþú ynnir
milljón íhappdrætti? Kaupa mér
nýtt golfsett, Wilson, og leggja svo afganginn inn á
banka til síðari nota.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Enginn, pæli ekki í
því.
Uppáhaldsíþróttamaður? Tiger Woods erágætur
en ég held meira upp á Nick Faldo. Hann er að vísu
í lægð núna en hann er góður og hefur rosalega
fallega sveiflu.
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Golf-
klúbbi Vestmannaeyja.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Simpson fjölskyldan.
Uppáhaldsbók? Allar bækur um golf.
Hvað metur þú mest í fari annarra ? Góðan húmor.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Grobbið fólk og fólk með lélegan húmor.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Það eru
margir fallegir staðir í Svíþjóð.
Hve lengi ert þú búinn að
stunda golf? Ég byrjaði fyrir
alvöru fyrir þremur árum.
Hvað er skemmtilegast við
golfið? Að sjá kúluna fljúga.
Svo getur maður alltaf bætt sig.
Hvað var eftirminnilegast í
þessu móti? Að spila með
Elliða Aðalsteins. Það er upp-
lifun.
Fáum við að sjá þig spila af
hvítum teigum (meistara-
teigum) á næsta ári? Já, ég
lækkaði úr 9,4 í 6,3 í forgjöf og
stefni að því að lækka mig enn
meira svo að það eru allar líkur
á því.
Eitthvað að lokum? Vona að
fleiri taki sig til og stundi þessa
íþrótt. Ég vona líka að pabbi
reyni að lækka sig í forgjöf.
Þann 21. júní . , . * ■ ' . , 3'
eignuðust Iris
Dögg
Jóhannesdóttir og ^HPRkk
Þórir Grétar
Bjömsson dóttur. Wá tB
Hún vó 16
merkur og var 54
cm að lengd.
Hún hefur fengið
heitið Gréta
Dögg. Hún "-gg
fæddist á j—— ' j)
fæðingardeild
Landsspítalans. * ¥>
Ljósmóðir var • r » * % . . *
Valgerður V * y
Sigurðardóttir. r . • > . ~‘r’
i *. • **
Þann 6. maí eignuðust Eydís Unnur Tórshamar og Þórður Þorgeirsson
dóttur. Hún vó 16 XA mörk og var 53 cm að lengd. Hún hefur fengið
nafnið Isabella Tórshamar. Ljósmóðir var Laufey Ó Hilmarsdóttir.
Fjölskyldan býr í Reykjavík
Á döfinni— 4*
08. -30. júlí Myndlistarsýning lærðra, leikra og látinna
lislamanna á vegum Sparisjóðs Vestmanna
eyja og Vestmannaeyjabæjar í gamla
vélasalnum á homi Græðisbrautar og
Vesturvegar
20. júlí Sfárleikur ÍBV - ÍA í Landssímadeildinni.
IBV sigur og ekkert annað
22. júlí Sumarstúlkukeppni í Eyjum haldin á
Höfðanum
22. júlí Sjómanna- og útvegsmannamót í golfi.
Haldið í Vestmannaeyjum
22.-23. júlí Meistaramót íslands í frjálsum. Aðalhluti
fvllorðinna.
25. júlí Aðalfundur Herjólfs hf.haldinn um borð í
Herjólfi
26. -29. júlí Norðulandameistaramótið í golfi haldið í
Vestmannaeyjum. Stórviðburður.
28. -29. júlí Vestmanneyjameistaramót í frjálsum
30. júlí Konungur Noregs afhendir Davtð Oddssyni
forsætisráðherra Stafkirkjuna, sem afhendir
hana biskupi Islands, Kadi Sigurbjömssyni til
vígslu. Mikið fjör á Skansinum
4. 5. og 6. ágúst Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Ekki gleyma því.
12.-13. ágúst Bikarkeppni FRÍ.