Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2000, Qupperneq 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 20. júlí 2000
Sumardjamm fm 957:
Landsbyggðin buslar í sundlaugum
Á laugardaginn var útvarpsstöðin
FM 957 á ferð í Eyjum með mikla
glcðidagskrá sem útvarpað var úr
sundlaug Vestmannaeyja. Kynnar
og dagskrárstjórnendur voru Karl
Lúðvíksson og Bjarki Sigurðsson.
Ágætis mæting var á þessa rúmlega
þriggja tíma dagskrá, bæði í laug og
á sundlaugarbakkana, en hvernig
sem á því annars stóð var nú samt
nóg pláss fyrir fleiri, bæði í laug og
á bökkunum. Einkennilegt í Ijósi
þess að ein vinsælasta hljómsveit
landsins, Skítamórall, mætti á
staðinn og lék órafmögnuð öll
vinsælustu lög sín, auk þess sem
Valgerður Friðriksdóttir söng með
þeim eitt lag Virðist duga ágætlega
til að fá yngri eyjaskeggja út úr
húsi, eða í laugina. Skítamórall var
svo á balli á Kaffi Tímor um
kvöldið og spilaði fyrir fullu húsi.
Þau skemmtiatriði, sem þeir fm
957arar buðu Eyjamönnum að taka
þátt í, tengudust meira eða minna
lauginni og innihaldi hennar, vatni.
Má þar nefna verstu lendinguna,
boðsund, körfuboltakeppni og
blautbolskeppni, sem sex stelpur tóku
þátt í. Verstu lendinguna átti Ragnar
Þ. Jóhannesson. I boðsundinu urðu
hlutskarpastar Tinna R. Kristinsdóttir
og Sigrún Halldórsdóttir. Dómnefnd
dæmdi síðan um hver þeirra tæki sig
best út og væri flottust í blautum bol.
En hlutskörpust í blautbolskeppninni
varð Eva Lind Ingadóttir og fékk hún
tilheyrandi verðlaun fyrir.
Að sögn fararstjóra fm957, Stefáns
Sigurðssonar, var þessi heimsókn til
Eyja liður í ferð útvarpsstöðvarinnar
um landið í sumar. „Við köllum þetta
Sumardjamm og höfum nú þegar
verið í Keflavík, Borgamesi, Uthlíð í
Biskupstungum, Selfossi og förum
næst til Akureyrar og áætlum að verða
á Akranesi og Egilsstöðum í
ágústmánuði. En tæklunin í þessu
djammi er að leggja undir okkur
sundlaugamar á viðkomandi stöðum í
heilan dag, sem lýkur svo með balli
um kvöldið, þar sem Skítamórall
heldur uppi stuðinu."
„Við vomm mjög ánægðir með
hvernig til tókst í Eyjum," sagði
Stefán. Yngri kynslóðin fjömennti í
sundlaugina og þeir eldri mættu á
ballið um kvöldið á Kaffi Tímor og
slógu öllu við, enda uppselt og komust
færri að en vildu." sagði Stefán að
lokum.
Skítamórall tekur lagið með
Valgerði sem lifði sig inn í
túlkunina í röku
andrúmsloftinu.
Boðsund á fullu og hver keppandi með kúta á fjórum útlimum.
Mikil spenna í farvatninu, eins og skinja má greinilega.
Tinna og Sigrún veita verðlaunum viðtöku fyrir sigur í boðsundinu
úr höndum Karls og Bjarka.
Engin gremi í þessum andlitum að dást að Skítamóral og blautum
keppnisanda.
©DP® QDQOCKaDf*
Félagar í Fombflaklúbbi íslands heimsóttu
Eyjar um helgin. Bflamir voru á planinu
fyrir ofan gamla áhaldahúsið á sunnudaginn
og bar þar fyrir augu marga glæsibifreiðina.
Var ekki laust við að færi mjúkur víbringur
um nokkurn bensínfótinn að fá að kitla
pinnann, en eins og svo oft áður og iðulega er
sagt við blessuð bömin; „Ekki snerta bara
skoða.“ Hér til hliðar má sjá nokkra
eðalvagna hvar þeir dormuðu á planinu ofan
við gamla áhaldahúsið, vekjandi sælar
minningar og sumar úr aftursætinu.
JOtOTA
WBtVt!