Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2000, Side 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 20. júlí 2000
Þórunn Sveinsdóttir VE:
A
Ahöfnin verðlaunuð
fyrir góða framleiðslu
ÁHÖFNIN fékk viðurkenninguna á sjómannadaginn og hér er hún ásamt eiginkonum og unnustum og
einnig Garru Warner, forstjóra WFM, sem kom í eigin persónu til að afhenda viðurkenninguna.
Fyrirtækið Warner’s Fish Merc-
hants Ltd. kaupir afurðir frysti-
togarans Þórunnar Sveinsdóttur
VE, sem fara á Bretlandsmarkað,
og hefur verðlaunað áhiifnina fyrir
frábæra framlciðslu.
í viðurkenningarskjali frá WFM
segir að al'urðir Þórunnar Sveinsdóttur
séu í hæsta gæðaflokki og að áhöfnin
sinni störfum sínum af samviskusemi.
„Við erum sannfærðir um að við erum
að bjóða fiskneytendum á Bretlands-
eyjum það langbesta af fslenskri
framleiðslu sjávarafurða,“ segir í
viðurkenningarskjali frá WFM.
Sigurjón Oskarsson, útgerðarmaður
Þórunnar, segist mjög ánægður með
viðurkenninguna sem sýni að þeir séu
á réttri leið. „Wamer’s Fish Merchants
kaupir allan þorsk og ýsu sem við
veiðum en öll framleiðsla okkar á
þessum tegundum fer á Bretland,"
segir Sigurjón. „WFM selur beint til
fínni veitingastaða og í sjoppur sem
selja ftsk og franskar ( ftsh and chips).
Við höfum verið hjá þeim í ein þrjú
eða fjögur ár og viðskiptin gengið vel
fyrir sig eins og sést best af
viðurkenningunni."
Þórunn Sveinsdóttir er með hluta-
hærri skipum í Vestmannaeyjum.
Brúttóaflaverðmæti síðasta árs var 349
milljónir og laun og launatengd gjöld
vom 134 milljónir. „í áhöfn em 18
manns en með skipti mönnum em
þetta um 25 manns sem em á launum
hjá okkur. Sipstjóri er Guðmundur
Guðlaugsson og hafa orðið litlar
breytingar í áhöfninni. Flestir em
Eyjamenn en við höfum verið með
fastan kjarna af aðkomumönnum í
mörg ár en þeim hefur eitthvað
fækkað undanfarið á meðan heima-
mönnum fjölgar sem hlýtur að vera
jákvætt fyrir bæjarsjóð. Það er mikils
virði fyrir hverja útgerð að hafa góða
áhöfn og stöðugan kjama. Það er
lykillinn að góðum árangri, ekki síst á
frystiskipum.” sagði Sigurjón að
lokum.
Græddur er geymdur eyrir og
stundum gott betur
í vor gengust sparisjóðir landsins fyrir sparnaðarátaki á landsvísu fyrir unglinga á aldirnum 12 til 16 ára.
Sparnaðarkeppnin var kennd Startklúbbi sparisjóðanna sem er sparnaðarleið fyrir ungt fólk. Keppnin
hófst í apríl með því krakkar stofnuðu reikning með 500 króna innleggi sem síðan varð að fylgja eftir með
jafn háu innleggi í maí og júm. Dregið hefur verið um vinninga, en einn aðalvinningur var veittur og kom
hann í hlut Helenar Óskar Magnúsdóttur í Vestmannaeyjum. Til stóð að aðalverðlaunin yrðu ferð til
Noregs á brettakeppni, en hún féll niður svo ákveðið var að veita peningaverðlaun í staðinn og námu þau
150 þúsund krónum. Á myndinni er vinningshafinn Helen Ósk ásamt Ólafl Elíssyni sparisjóðsstjóra,
Önnu Huldu Long móður Helenar, Ríkarði Magnússyni bróður hennar og Magnúsi Ríkharðsyni föður
hennar.
Útsala
Hefst í dag, fimmtudag
u n i n
D r í f a n d a
Heilbrigðisstofnunin íVm:
Framkvæmdir
upp á 200 m.
Fyrir dyrum standa meiri háttar
breytingar á húsnæði Heilbrigðis-
stofnunarinnar í Vestmannaeyjum.
Áætlað er að þær komi til fram-
kvæmda á næstu fimm árum.
Kostnaður við breytingarnar er
áætlaður 200 milljónir króna og er
hiutdeild bæjarins 15% af þeirri
upphæð, ríkið greiðir 85%.
Gunnar K. Gunnarsson. forstöðu-
maður Heilbrigðisstofnunar, segir að
íýrsti áfanginn fari í útboð í ágúst og
sé gert ráð fyrir að honum verði lokið
um mitt næsta ár. Hann felst að
verulegu leyti í því að báðar legu-
deildir verða sameinaðar á einni hæð.
Gunnar segir að frá því að flutt var í
húsnæðið, fyrir um 25 árum, hafi
mjög lítið verið framkvæmt í viðhaldi
innanhúss og orðin full þörf á því. Þá
hafi af hagkvæmnisástæðum verið
ákveðið að ráðast einnig í sameiningu
deildanna um leið.
Ólafur lagður
af sfað til Eyja
á Hvítserknum
Vikingaskipið Kvitserk lét úr
höfn frá Háholmen á miðnætti
aðfaranótt sl.miðvikudags. í
áhöfn skipsins eru 6 Norðmenn
og einn íslendingur, Ólafur
Olafsson, bæjartæknifræðingur í
Vestmannaeyjum. Tiigangur
ferðarinnar er að minnast
siglingar Hjalta Skeggjasonar og
Gissurar hvíta með gjafaviði í
stafkirkju í Vestmannaeyjum.
Eftir að altari og voldug
dyrahella höfðu verið lögð í lestar
skipsins lagði skipið upp frá
Háholmen sem er á Avero
skammt sunnan við Kristjansand
í Noregi. Það var hátíðleg stund
þegar 16 metra langur knörrinn
sigldi út Atiantarhafsvegen og tók
stefnu á Færeyjar. Veður á
leiðinni hefur verið afbragðs gott,
en heldur lítill byr enn sem komið
er. Ferðin hefur í alla staði gengið
vel þegar þetta er skrifað og
víkingaskipið lagt af baki 80
sjómflur.
ÓLAFUR gengur um borð í
Hvítserk þegar lagt var upp
frá Noregi.