Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2000, Qupperneq 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 20. júlí 2000
Fjórar Sumarstúlkur segja frá reynslu sinni af keppninni:
Jákvætt fyrir sjálfsálitið
I ár eru fimmtán ár síðan Sumarstúlkukeppni Vestmannaeyja var hleypt af stokkunum í fyrsta skipti. Keppnin hefur verið haldin óslitið síðan 198ó
utan 1990, en þá féll keppnin niður vegna þess að ekki fékkst viðunandi húsnæði til að halda keppnina. Fréttir hafa staðið fyrir _
sumarstúlkukeppninni frá upphafi og fengið til liðs við sig marga góða aðila til þess að sjá um og standa að framkvæmd keppninnar. í ár er
framkvæmdastjóri keppninnar Dagmar Skúladóttir, en Bjarni Ólafur Guðmundsson er skemmtanastjóri og kynnir. Keppnin verður með hefðbundnu
sniði undanfarinna ára og er undibúningur keppninnar á fullu fyrir lokakvöldið sem að þessu sinni verður laugardaginn 22. júlí á Höfðanum.
Fréttir höfðu tal af fjórum fyrrum sumarstúlkum Vestmannaeyja og fengu þær til að rifja upp kvöldið sem þær öðluðust titilinn og hvað á daga
þeirra hefur drifið síðan. Þær eru Vigdís Sigurðadóttir, sumarstúlka 1992, Aldís Gunnarsdóttir sumarstúlka 1993, Sara Guðjónsdóttir sumarstúlka
1994 og Hrund Gísladóttir sumarstúlka 1995.
Vigdís Sigurðardóttir:
Engin tár
þegar ég
var krýnd
Vigdís Sigurðardóttir varð Sumar-
stúlka Vestmannaeyja árið 1992 og
sagði kcppnina hafa verið mjög
skemmtiicga.
Vigdís a eina dóttur, tveggja ára, og
segist vera í hamingjusamri sambúð
með Erlingi Birgi Richardssyni.
Hún var nýkomin frá Nýja Sjálandi
sem skiptinemi, skömmu fyrir
keppnina, og þess vegna haft lítinn
tíma til þess að pæla í undirbún-
ingnum. „Það var lítill sameiginlegur
undirbúningur fyrir keppnina, þó
fengum við tíma í heilsuræktinni, sem
ég man reyndar ekki hvað hét og
einhverja tíma í ljósum. Það held ég
að hafi nú verið allt og sumt. Keppnin
sjálf var hins vegar ekki með hefð-
bundnu sniði fegurðarsamkeppni. Við
sýndum föt um kvöldið á tískusýningu
og svo voru strákar sem leiddu okkur í
salinn. Þetta var hellings stress og
taugatitringur sem fylgdi þessu, enda
alveg nýtt fyrir mér að sýna föt á
tískusýningu, en vissulega var rosa
gaman að taka þátt í keppninni.“
Vigdís sagði að það hafi komið
henni frekar á óvart að vinna sumar-
stúlkutitilinn. „Það var skipuð dóm-
nefnd sem dæmdi, en einnig var
gestum í sal gefinn kostur á greiða
atkvæði. Mér var svo sagt það síðar
að dómnefndin hefði ekki valið mig.
Hins vegar fékk ég flest atkvæði úr
salnum og að þeim samanlögðum
hlaut ég víst titilinn. Það féllu engin
tár þegar ég var krýnd titlinum. Mér
fannst þetta líkara því að vinna
íþróttakappleik ef eitthvað var. Ef ég
væri átján eða nítján ára í dag og stæði
til boða að taka þátt í keppninni, þá
held ég að ég myndi slá til.“
Vigdís fékk margar góðar gjafir í
verðlaun fyrir sigurinn. „Eg fékk
græjur, fullt af snyrtivörum, stand-
lampa, kort í sólarlampa og fataúttekt
í tískuvöruverslun.“
Þegar Vigdís er spurð að því hvort
hún hafi haldið á framabraut í sýn-
inga- og fegurðarsamkeppni í
framhaldi af sigrinum sagði hún það
ekki vera. „Eg hélt áfram námi í
Framhaldsskólanum í Vestmanna-
eyjum og útskrifaðist sem stúdent af
viðskipta- og hagfræðibraut, þá tók ég
mér eins árs frí frá námi og fór að
vinna í íslandsbanka. Síðan hélt ég í
Háskóla íslands og fór í við-
skiptafræði og hef unnið hjá Deloitte
og Touche í Vestmannaeyjum í
rúmlega ár.“
Hefurðu farið á þær sumarstúlku-
keppnir sem haldnar hafa verið síðan
þú tókst þátt, og ætlar þú að mæta á
laugardagsvöldið?
„Hvort ég hef farið einu sinni, mig
minnir það, en ég hef ekki tekið
ákvörðun um hvort ég mæti á laugar-
daginn," sagði Vigdís að lokum.
Viðtöl: Benedikt Gestsson.
Hrund Gísladóttir:
Sigurinn
kom á
óvart
loffl
1 H
Hrund Gísladóttir hreppti hinn
eftirsóknarverða sumarstúlkutitil
árið 1995, en þá var hún nýbúin að
Ijúka stúdentsprófi, árið sem hún
var í keppninni.
Þetta ár var keppnin haldin á Höfð-
anum, eins og svo oft áður og sagði
Hrund að keppni sem þessi hefði
mjög jákvæð áhrif, bæði á stúlkumar
til eflingar sjálfstraustinu og ekki
síður fyrir að bjóða upp á meiri fjöl-
breytni í skemmtanalífinu í Eyjum.
„Það er alltaf gaman þegar eitthvað
svona er um að vera,“ sagði Hmnd.
Hún sagði að hún hefði haft frekar
stuttan tíma til þess að undirbúa sig.
„Eg var hins vegar ekki lengi að
ákveða mig þegar Ragnheiður Borg-
þórsdóttir hringdi og bað mig um að
taka þátt. Eg var reyndar tuttugu og
eins árs og er líklega með þeim eldri
sem tekið hafa þátt í keppninni."
Hmnd sagði að undirbúningur hafi
verið með nokkuð öðmm hætti en nú
er. „Það vom æfingar í framkomu á
hverju kvöld, en þar fyrir utan var
ekkert, hvorki heilsurækt né sólar-
lampar. Ragnheiður Borgþórs sá um
framkvæmdina og leiðbeindi okkur í
framkomu. Annars fengum við mikið
að finna út sjálfar hvemig við vildum