Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2000, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 20. júlí 2000
Fréttir
13
Strákarnir mæta Skagamönnum á Hásteinsvelli í kvöld:
r
IBV stendur á tímamótum
með nýjum þjálfara, nýjum leikmönnum og ungum mönnum sem eru að koma inn í
liðið, segir Kristinn R. Jónsson sem segir að hér eftír verði hver leikur úrslitaleikur
Eins og allir stuðningsmenn ÍBV
vita hefur gengi IBV fram að þessu
verið lélegt í Landsímadeildinni.
Aðeins þrír sigrar úr tíu leikjum er
afleitur árangur hjá félagi með
mannskap eins og IBV hefur á að
skipa. IBV hefur aðeins einu sinni á
síðustu fimm árum byrjað tímabilið
jafn illa, það var árið 1995 þegar
liðið var aðeins með tíu stig eftir níu
leiki, en endaði svo með 31 stig og í
þriðja sæti deildarinnar.
Margir eru á því að til þess að verða
meistari í efstu deild á Islandi þá þurfi
a.m.k. 38 stig. ÍBV á einmitt mögu-
leika á að ná þessum stigafjölda, en þá
verður liðið að sigra í þeim leikjum
sem eftir eru þannig að möguleikamir
eru kannski ekki ýkja miklir, sér-
staklega ekki á meðan liðinu er
fyrirmunað að koma tuðrunni í netið,
í síðustu fimm leikjum í deildinni,
fyrir Fylkisleikinn, hefur ÍBV aðeins
tekist að skora einu sinni og það úr
víti. Fréttir höfðu samband við Kristin
Jónsson og spurðu hann hvað honum
fyndist um frammistöðu ÍB V til þessa.
Náðum ekki settu marki í
fyrri umferð
„Ef maður fer yfir stöðuna þá
stefndum við á að vera með 18 stig
eftir fyrri umferðina en eins og við
sjáum þá erum við töluvert á eftir
áætlun. Þetta eru náttúrulega fyrst og
fremst þessir leikir sem við áttum að
klára en kláruðum ekki. Framleikurinn
situr í manni sem og Leiftursleikurinn
og Fylkisleikurinn héma heima. þama
em sex stig sem við hendum nánast út
um gluggann. Tapið á móti Grindavík
er kannski ekkert frekar í þessum hópi
því að Grindavík er einfaldlega besta
liðið sem við höfum keppt við í ár.
Við töpuðum stigunum sem við áttum
að taka annars staðar en í Grindavík.“
Jafnteflin of mörg
En aðeins þrír sigrar úr tíu fyrstu
leikjunum, það á ekki að þekkjast hjá
þessu liði?
„Þetta er bara þannig að jafnteflin telja
ekkert, við emm einfaldlega með allt
of mikið af jafnteflum, fimm jafntefli
og þau vega þungt. Við höfum verið
mjög sveiflukenndir í leik okkar og
það þurfum við að bæta.“
Sóknarleikurinn hejurjyrst ogfremst
verið í sviðsljósinu hjá IBV eins og
Landflutningar
og Sæhamar
sigruðu
Verðlaun voru afhent á sunnudag
í Firmakeppni GV en alls tóku 63
fyrirtæki þátt í þeirri keppni. I
síðasta blaði birtum við úrslit en
þá vantaði hluta þeirra.
Úrslit, án forgjafar:
1. FV Landflutningar 76 h.
Spilari Aðalsteinn Ingvarsson
2. Sparisjóður Vestm. 76 h.
Spilari Júlíus Hallgrímsson
3. fslandsbanki 78 h.
Spilari Atli Aðalsteinsson
Urslit, með forgjöf:
l.Sæhamar 56 h.
Spilari Einar P. Eiríksson
2. Vífilfell 62 h.
Spilari Vignir A. Svavarsson
3. Bæjarveitur Vestm. 68 h.
Spilari Sigurgeir Jónsson
UNGU mennirnir hafa verið áberandi í liði IBV í sumar. Hjalti
Jónsson er einn þeirra og hefur hann náð að festa sig í liðinu.
undanfarin ár, en núnafyrir að vera
slakur. Eitt mark í fimm síðustu
leikjum fyrri umferðar, er það ekki
óviðunandi?
„ Jú, jú. Okkur hefur gengið illa og
við emm kannski verstir í að nýta
færin sem við höfum fengið. Við
höfum verið að skapa okkur mörg
ágætis færi í þeim leikjum sem búnir
em. Eins og t.d. leikurinn í Grindavík,
þar fáum við jafnvel fleiri færi en þeir,
við kláram þau bara ekki og þetta
dettur bara fyrir þá.“
Er liðið þá í einhverjum vítahring þar
sem pressan yfir markaleysinu vofir
yfirþeim?
„Eg veit það nú ekki. Þetta er
svolítið skrítið. Við vomm að spila
ágætlega gegn KR, svo opnast flóð-
gáttimar gegn Leiftri í bikamum og
svo fer allt aftur í baklás þannig að
maður hefur ekki neina eina skýringu
á þessu, enda ef svo væri þá væri liðið
ekki í þeirri stöðu sem það er í.“
Það hafa verið miklar hrókeringar
milli leikmanna innan vallar, þegarþú
hugsar til baka telurðu að það hefði
kannski verið betra að halda sömu
uppstillingu og keyra tnenn í gang?
„Við höfum þurft að prófa nýja
hluti en það hefur gengið svona upp
og ofan. Hins vegar má alltaf deila um
það hvað sé rétt og hvað sé rangt í
þessu. IBV hefur hins vegar verið að
ganga í gegnum miklar breytingar
síðustu tvö ár og kannski sérstaklega í
ár. Það tekur tíma fyrir nýjan þjálfara
að koma nýrri taktík að hjá nýjum
leikmönnum. Við emm líka að taka
inn unga leikmenn og þeir einfaldlega
verða að fá tíma þó svo að það sé ekki
yfir neinu að kvarta vegna þeirra
frammistöðu."
Ætlar ekki að gefast upp?
Er farið að hitna undir Kristni í
þjálfarastöðunni?
„Eg veit nú sem minnst um það, er
maður ekki alltaf síðastur að frétta
svoleiðis?"
En þú hefur ekkert íhugað að segja
starfiþínu lausu?
„Nei, ég hef ekkert verið að íhuga
það.“
En hvað umframhaldið?
„Nú er næsti leikur gegn IA á
heimavelli og 24 stig eftir í pottinum.
Menn hafa oft miðað við 38 stigin til
að vinna deildina en ég tel að það
verði minna í ár, deildin er það jöfn.
Við verðum bara að taka hvem leik
fyrir sig og sjá svo til eftir síðasta leik
hvar við stöndum. Við emm búnir að
missa þessi lið dálítið á undan okkur
en við verðum bara að bíða og sjá.
Maður vonar bara að við tökum seinni
umferðina með trompi. Við verðum
alla vega að reyna að vinna fleiri leiki
en í fyrri umferðinni, það er
ómögulegt að vinna bara fjóra leiki af
átján.“ sagði Kristinn að lokum.
Mikilvægur leikur í kvöld
I kvöld mætir ÍBV Skagamönnum í
toppleik elleftu umferðar Landssíma-
deildarinnar. Með sigri gæti liðið
komið sér í Ijórða sæti, tveimur
stígum á undan IA sem er sem stendur
í því fjórða, og þar með haldið
draumnum lifandi. IBV mun þó ekki
geta stillt upp sínu allra sterkasta liði,
Tómas Ingi verður í leikbanni og
einnig félagi hans Kjartan Antonsson
en þegar þetta er skrifað em aðrir
heilir og tilbúnir í slaginn.
Annar flokkur kv. í
undanúrslit
Annar flokkur kvenna undir
stjórn Jóns Olafs Daníelssonar
hefur verið að sækja í sig veðrið
eftir frekar brokkgenga byrjun.
Stelpumar spiluðu á þriðju-
dagskvöldið í átta liða úrslitum og
var leikið í Grindavík gegn heima-
stúlkum. Eyjastelpur vom mun betri
allan leikinn og unnu sannfærandi
sigur 2-4, eftir að hafa komist í 4-0.
Mörk ÍBV: Kelly 2, Ema 1,
Margrét Lára 1.
Léttast - þy ngjast - h ressast
Frábærar vörur sem hafa hjálpað tugum
milljónum manna um allan heim í þyngdar-
stjómun og heilsu. Sífelldar endurbætur og
nýjungar. Frí sýnishorn, stuðningur, ráðgjöf
Helga Tryggva • Sími 862 2293
Fæðu og heilsubót
FASTEIGNAMARKAÐURINN í
VESTMANNAEYJUM
Opið 10.00-18.00 alla virkadaga.
Sími 481 1847- Fax 481 1447
Viðtalstími lögmanns 16.30-19.00 þri. til fös.
Skrifstofa í Rvk. Garðastræti 13,
Viðtalstími mánudaga kl. 18 ■ 19, sími 551 3945
Jón Hjaltason hrl., löggiltur fasteignasali
Guðbjörg Ósk Jónsdóttir,
löggiltur fasteigna- og skipasali
eyjafrettir.is
Virkur miðill á Netinu
FLUGFELAG ISLANDS
Sumaráætlun gildir til 1. október
Fjórar feröir á dag
Bókanir og upplýsingar um flug í s. 481 3300
www.flugfelag.is
Spurt er????
Komast
ÍBV-
stelp-
urnar
í bikar-
úrslitin?
(ÍBV lcikur við Brciðahlik annað
kvöld uni það hvort liðið leikur í
úrslitum)
Stefán Sævar Guðjónsson, mat-
reiðslumaður:
„Ekki spurning.
Auðvitað gera þær
það. Eg hef mikla
trú á þessum stelp-
um, þær hafa spilað
frábærlega í sumar."
Þuríður Guðjónsdóttir:
„Það held ég alveg
eindregið og tel það
mjög líklegt. Þær
hafa staðið sig vel,
þetta er góður hópur
og ég held að þær
klári dæmkV'
Svanhildur Guðlaugsdóttir,
Friðarhafnarskýlinu:
„Engin spurning.
Þær standa sig vel.
Reyndar er enginn
leikur unninn fyrir-
fram en þær hafa allt
til að bera til að
komast alla leið."
Þór Valtýsson, Húsey:
„Eg vona það.“
Friðrik Friðriksson, veitustjóri:
„Eg tel það nokkuð
Ijóst. Heimavöll-
urinn vegur þungt
og þær sigra Breiða-
hlik örugglega."
Ingi 'l'ómas Björnsson, skatt-
stjóri:
„Eigum við ekki að
segja að þeim lakist
núna að komast ylir
jafnteflisfárið og
vinna. Þær hafa
verið að missa unna
leiki í jafntefli að
undanfömu en ég
hef trú á því að nú klári þær
dæmið."