Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2000, Side 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 20. júlí 2000
Þjóðhátíðin:
Lúðrasveitin spilar
ekki á hátíðinni
Þóttu of dýrir, segir Olafur Týr Guðjónsson - Dans á rósum
mun spila í þeirra stað -Aðgangseyrir hækkar í 7.500 kr.
Ólafur Týr Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri þjóðhátíðarnefndar,
segir að allur undirbúningur fyrir
þjóðhátíð gangi samkvæmt áætlun.
„Þetta er orðið mikJu léttara en áður
var, mestmegnis vélavinna þar sem
flestar einingar eru íheilu lagi. Ennú
fer okkur að vanta fólk í fíngerðari
störfm, svo sem til að mála og koma
upp skreytingum," sagði Ólafur Týr.
Sú breyting verður á dagskrá að
Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur ekki
á þjóðhátíð. Ólafur Týr var inntur eftir
ástæðu þess.
„Þeir þóttu bara einfaldlega of dýrir.
Því var ákveðið að sleppa þeim.“
Er þetta þá ekki fyrsta þjóðhátíð
aldarinnar þar sem Lúðrasveitin
kemur ekkifram ?
„Það veit ég ekkert um, ég hef ekki
verið á þeim öllum. Samningar
náðust bara ekki við þá, svo einfalt er
það.“
Ólafur Týr segir að í stað Lúðra-
sveitarinnar muni hljómsveitin Dans á
rósum leika gömlu Eyjalögin á
hátíðinni. Einnig hefur verið aukið
nokkuð við barnaefnið. Þá segir hann
að ætlunin hafi verið að endurvekja
bjargsigið, sem ekki hefur verið á
dagskrá í tvö eða þrjú ár, en horfið
hafi verið frá því vegna skjálfta og
skriðufalla. Þá segir Ólafur Týr að þar
sem mest hætta er á hruni verði komið
upp neti frá Hampiðjunni í öryggis-
skyni.
Aðgangseyrir hækkar um 500 kr. frá
því í fyrra og kostar nú 7.500 kr. í
Dalinn. Forsala aðgöngumiða verður
í íslandsbanka og kosta þeir kr. 7.000.
Gósentíð
hjá sauðfé
í mánaðartíma, eða allt frá 17.
júní skjálftanum, hefur verið hin
mesta gósentíð hjá því sauðfé sem
var í hagagöngu í vesturfjöllunum
Dalfjalli, HáogKlifi.
Girðingar þoldu ekki grjóthrunið
og síðan heíúr sauðfé átt greiðan
aðgang að þeim svæðum sem þeim
líkar. Ekki hvað síst hafa sauðir
haldið sig í Herjólfsdal, svo og á
golfvellinum við lítinn fögnuð
kylfinga. Bændur segja útilokað að
koma upp fjárheldum girðingum
nema á löngum tíma og sé ekki við
þá að sakast vegna afleiðinga
náttúruhamfara. Nú mun bærinn
hafa hlaupið undir bagga og útvegað
þessum bændum afgirt fjárhólf
suður á eyju. Aðalvandamálið er
hins vegar þessa dagana að bændur
eru svo fáliðaðir að ekki er unnt að
smala fénu og reka það í hina nýju
girðingu. Aðeins einn eða tveir úr
þeirra hópi munu treysta sér til slíkra
áhlaupsverka og er nú verið að leita
leiða til að útvega sjálfboðaliða til
smalamennsku. A meðan unir féð
sér hið besta á grænum grundum
golfvallarins.
Mikil umræða hefur verið um
sauðfjárhald á Heimaey í vor og
sumar og er nú svo komið að
mörgum finnst mælirinn vera orðinn
fullur og vel það. Garðeigendur hafa
í allt sumar mátt þola ágang sauðíjár
og eru sumir þeirra hreinlega búnir
að gefast upp á garðræktinni. Benda
þeir á að þar sé ekki jarðskjálftum
um að kenna.
Til eru þeir sem segja að rollur í
Eyjum séu orðnar heilagar eins og
nautpeningur á Indlandi. Spyija
menn sig hvort bæjarstjóm eða
lögregla geti ekkert gert til að koma
böndum á rollukallana en sumir í
þeirra hópi virðast geta vaðið yfir allt
og alla án þess að tekið sé í taumana
af yfirvöldum.
Þetta er skaði því flestir stunda
sinn búskap af myndarskap en þeir
hljóta að líða fyrir trassahátt hinna.
A Akureyri hefur verið tekið á
þessum málum af myndarskap. Þar
leigir bærinn afgirt beitilönd þeim
sem vilja halda búfé gegn hóflegu
gjaldi. Þeir einir fá að halda búfé þar
nyrðra sem hafa leyfisbréf fyrir slíku
auk þess sem stíft er gengið eftir að
reglum sé framfylgt.
Þetta virðist mögulegt á Akureyri
en ekki í Vestmannaeyjum þar sem
fáeinir útvaldir fá að fara sínu fram.
Leikskólinn Betel
auglýsir laus störf
Auglýst er 75% staða við leikskólann Betel
ásamt 50% stöðu afleysingarmanneskju. Um
er að ræða skemmtileg og fjölbreytt störf í
líflegu umhverfi. Umsóknum er svarað af
leikskólastjóra á staðnum.
Andrés Sigmundsson skrifar:
Lækkun á
hitaveitunni
-Auknar niðurgreiðslur frá ríkinu
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráð-
herra ákvað í síðasta mánuði í
samræmi við byggðaáætlun 1999-
2001 að auka niðurgreiðslur á raforku
og heitu vatni frá rafkyntum hita-
veitum. Þessi ákvörðun iðnaðarráð-
herra snertir okkur Eyjamenn heldur
betur og lagar stöðuna í pyngjunni
okkar. Stjóm bæjarveitna fundaði sl.
mánudag og þar var samþykkt að
lækka verðið á hitaveitunni þannig að
frá 1. júní verður tonnið af heitu vatni
á kr. 66.15. í janúar sl.var verðið á
heita vatninu kr: 69.40. Niðurgreiðsl-
urnar frá ríkinu voru í janúar sl. kr.
72.90 en em nú kr. 82.70. Bæjarstjóm
mun taka þessa ákvörðun fyrir á
fimmtudag, þ.e.a.s. í dag. Bæjar-
stjómin mun að sjálfsögðu fagna
þessum ákvörðunum. Sambærileg
lækkun verður hjá þeim er kynda með
rafmagni. Óhætt er að segja að
myndarlega sé tekið á þessum málum
í iðnaðarráðuneytinu og ættu notendur
Sumar-
útsala
20-70%
afsláttur
Verslunin
jíiwb&r
Miðstræti 14 Vestmannaeyjum
í eyjum að finna verulega fyrir
þessum auknu niðurgreiðslum í buddu
sinni. Ef þessar niðurgreiðslur frá
ríkinu kæmu ekki til væri verðið á
húshitunarkostnaði rúmlega tvöfalt
meiri en hann er nú.
Gott mál ekki satt.
Höfundur á sœti í stjóm Bœjarveitna
Starfsmenn Eyjablikks leita eftir
þunnhærðum manni á
fertugsaldri. Síðast spurðist til
hans við lundaveiðar í Elliðaey
eítir leik Fylkis og ÍBV. Hann er
klæddur í upplitaðan
Fylkisbúning. Þeir sem verða
hans varir eru vinsamlegast
beðnir um að faðma hann að sér
og senda hann aftur niður í
Eyjablikk, þar sem tekið verður
vel á móti honum - einum færri.
Skanssvæðið
vígt 30. sept.
Á síðasta fundi menningarmála-
nefndar var ákveðið að vígsla
söguminjasvæðisins á Skansinum
verði 30. september nk.
í Landlyst verður til húsa ágrip af
sögu hússins svo og læknasögu
Vestmannaeyja. Á sama fundi kom
einnig fram að búið er að opna
sýningu á útgerðarsögu Vestmanna-
eyja í Byggðasafninu.