Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2000, Síða 19
Fimmtudagur 20. júlí 2000
Fréttir
19
Landssímadeild karla: Fylkir 2 - IBV 3
Mikilvæsur sijur
Fyrir leik Fylkis og ÍBV á sunnu-
daginn var IBV í sjötta sæti með 11
stig að lokinni fyrri umferð og því
lífsspursmál fyrir liðið að sigra í
leiknum til að halda í vonina um
Evrópusæti. Eyjamenn áttu líka
möguleika á að að stöðva sigur-
göngu Fylkis sem sat á toppi
deildarinnar. Það gekk eftir og
sigruðu Eyjamenn 2-3.
Fyrri hálfleikur byijaði Ijörlega og
eftir aðeins hálfa^ mínútu var staðan
orðin 0-1 fyrir ÍBV. Tómas Ingi
Tómasson sem nú var í byijunarliðinu
í fyrsta skipti í sumar var þar að verki
eftir ágæta sendingu Hlyns Stefáns-
sonar.
ÍBV var mun sterkari aðilinn í fyrri
hálfleik en það var hins vegar eftir
frekar klaufalegt brot fyrirliðans að
Fylkismenn fengu aukaspymu sem
þeir skoruðu upp úr. En aðeins
nokkrum sekúndum síðar var IBV
komið í sókn og upp úr þurru þmmaði
Momir Mileta boltanum inn af 30
metra færi efst upp í markvinkilinn og
er markið áreiðanlega eitt af glæsilegri
mörkum ársins.
Seinni hálfleikur var hins vegar
ekki eins góður af hálfu ÍB V, Fylkis-
menn pressuðu liðið framar og áttu
leikmenn IB V erfitt með að leysa það.
Fylkismenn jöfnuðu með frekar ódým
marki þegar um stundarfjórðungur
lifði eftir af leiknum en Hlynur
Stefánsson fór fyrir sínum mönnum á
lokakaflanum og skoraði sigurmarkið
tíu mínútum fyrir leikslok.
ÍBV var töluvert frískara í fyrsta
leik sínum í seinni umferð Lands-
símadeildarinnar en í þeirri fyrri.
Mikið munar um að Tómas Ingi er
kominn í liðið, hann tekur boltann og
heldur honum þangað til færi gefst til
sóknar. Tómas má hins vegar passa
sig, augljóst var að hann tók leikinn
ekki nógu alvarlega, hann var með
klaufaleg brot og reyndi meðal annars
að slá boltann úr höndum markmanns
Fylkis fljótlega eftir að hann fékk að
líta gula spjaldið en í þetta skiptið
slapp hann. Hann slapp hins vegar
ekki í seinni hálfleik þegar hann fékk
sitt annað gula spjald, bæði spjöldin
frekar klaufaleg og þar með missir
hann af mikilvægum leik gegn
Skagamönnum í kvöld. Spuming er
hvort Kristinn þjálfari hefði ekki mátt
taka Tómas útaf í byrjun seinni
hálfleiks því hann var greinilega
þreyttur. En sigurinn gefur liðinu von-
andi meira sjálfstraust enda ekki á
hveijum degi sem ÍBV sigrar á
útívelli, hvað þá efsta lið deildarinnar.
Hlynur Stefánsson fyrirliði liðsins
var að vonum ánægður með sigurinn.
„Þessi leikur spilaðist mjög vel fyrir
okkur. Við höftim verið mjög ráðandi
í þeim leikjum sem við höfum verið
að spila í sumar og verið meira með
boltann en ekki náð að klára dæmið.
Það hefur ekki gengið upp hjá okkur
og þar af leiðandi ákváðum við að
breyta aðeins skipulaginu, liggja
aftarlega á vellinum og leyfa þeim að
koma framar á völlinn og bíða eftir að
þeir gerðu mistök, ná svæðum til að
sækja hratt á þá. Það hefur einmitt
verið einkennandi fyrir leik Fylkis að
liggja aftarlega og sækja hratt en liðið
minnir mann svolítið á IBV liðið
1998, enda er Bjami mjög hrifinn af
þeirri leikaðferð sem liðið spilar.
Tommi kom sterkur inn í þetta hjá
okkur, hélt boltanum vel og var
duglegur í því að koma mönnum inn í
leikinn með góðum stoðsendingum."
Um framhaldið hafði fyrirliðinn
þetta að segja. „Maður þorir lítið að
segja um framhaldið. Þessi leikur var
mjög góður af okkar hálfu og auðvitað
vonar maður að hann sé vísir að því
sem koma skal. Ef við náum upp
sömu baráttu og sigurvilja og í
Fylkisleiknum þá er allt mögulegt.
Þetta em allt úrslitaleikir sem eftir em
og reyndar er Tómas Ingi í banni í
leiknum gegn IA í kvöld en þá vona
ég að aðrir leikmenn grípi gæsina.
Það er bara sigur sem kemur til greina
hjá okkur í þeim leikjum sem eftir em,
við megum ekki gera fleiri jafntefli
það er á hreinu." sagði Hlynur.
Fylkir 2 - IB V 3
ÍBV spilaði leikkerfið 4-5-1: Birkir
Kristinsson, Hjalti Jóhannesson,
Kjartan Antonsson, Hlynur Stef-
ánsson, Páll Guðmundsson, Momir
Mileta, Hjalti Jónsson, Bjarni Geir
Viðarsson, Ingi Sigurðsson, Goran
Aleksic, Tómas Ingi Tómasson.
Varamenn sem komu inn á: Jóhann
Möller, Steingrímur Jóhannesson
og PálþAlmarsson.
Mörk IBV: Tómas Ingi, Momir og
Hlynur.
Landssímadeild kvenna: ÍBV 2 - Valur 2
Dýrkcypt mínúta
Á mánudagskvöldið mættust á
Hásteinsvellinum ÍBV og Valur í
Landsímadeild kvenna. Leikurinn
var nánast eign IBV frá upphafi til
enda en augnabliks einbeit-
ingarleysi varð til þess að leikurinn
endaði með jafntefli 2-2.
Augljóst var strax frá fyrstu mínútu
að stelpumar ætluðu að sýna gest-
unum litla gestrisni og þar með sýna
áhorfendum sitt rétta andlit. Þrátt fyrir
nánast stöðuga sókn í fýrri hálfleik var
uppskeran frekar lýr, aðeins eitt mark.
Það skoraði Bryndís Jóhannesdóttir
eftir glæsilega stungusendingu Kelly
Shimmin.
Til marks um yfirburði ÍBV í fyrri
hálfleik þá áttu Valsstúlkur aðeins tvö
skot að marki ÍBV og það fyrra kom
eftir tæplega hálftíma leik.
Seinni hálfleikur byrjaði ljómandi.
Reyndar þurftí Bryndís að fara af velli
í upphafi hans en samt sem áður
skoraði IBV eftir aðeins mínútu og
þar var að verki Englendingurinn
Samantha Britton. Eftir markið fóru
stelpumar að slaka á og virtist sem
liðið væri ömggt með að fara með
sigur af hólmi. En Valsstúlkur em
reyndari en það að leyfa ÍBV að slaka
á með aðeins tveggja marka forskot
og á aðeins einni mínútu tókst þeim að
jafna metin. Mörkin tvö verða ekki
skrifuð á neinn einn leikmann, heldur
var liðið allt sofandi og því fór sem
fór.
Eftir þessa útreið á 58. mínútu fóm
stelpumar aftur í gang og tóku völdin
aftur á vellinum. Næst því að skora
komst Hjördís Halldórsdóttir sem átti
þrumuskot í slá, en ÍBV náði hins
vegar ekki að bæta við mörkum þrátt
f'yrir nokkuð þunga sókn og því varð
niðurstaðan jafntefli.
Það er óhætt að segja að þessi
mínúta hafi verið dýrkeypt. Þær
skomðu tvö mörk sem verður bara að
skrifast á einbeitingarleysi. Við
héldum að þetta væri komið þegar við
komumst í 2-0, þvílík gleði og
hamingja með markið hjá Sammy.
„Við höfðum leikinn nánast í hendi
okkar og áttum að klára hann og það
er því sorglegt að tapa. Við ætlum
okkur að einbeita okkur að bikar-
keppninni og gera vel þar.“ sagði
Sigríður Ása Friðriksdóttir eftír
leikinn.
HJÖRDÍS var mjög góð í leiknum og var nálægt því að tryggja
Eyjakonum sigur.
35 mörk í þremur leikjum
í yngri ílokkunum gekk mikið á í
síðustu viku og mátti sjá 35 mörk í
aðeins þremur leikjum.
I tveimur leikjum í þessari marka-
veislu voru það A- og B-lið fjórða
flokks ÍBV sem fengu heldur háð-
uglega útreið gegn Skagamönnum.
Til að gera langa sögu stutta tapaði
A-liðið 0-12 en B-liðið bætti um
betur og tapaði 0-16. Reiknað var
með að Skagamenn væm með betra
liðenÍBV, en ekki sem nemur 12-15
mörkum og hljóta þessir leikir að
vekja upp áleitnar spumingar um
leikaðferðir liðanna.
Seinna um kvöldið snerist dæmið
við þegar annar flokkur karla tók á
móti KR. Annar flokkur hefur farið
hamfömm í sumar og ef strákamir
halda rétt á spilunum eiga þeir
raunhæfa möguleika á a.m.k. einum
titli. Var leikurinn gegn KR hin
mesta skemmtun og var Vestur-
bæjarliðið rassskellt af frískum
Eyjapeyjum 8-1.
Mörk IBV: Gunnar Heiðar, Tómas,
Unnar 2. Olgeir og Atli sitt markið
hvor.
Á mánudagskvöldið var strákunum
hins vegar komið niður á jörðina
þegar þeir sóttu Fylkismenn heim.
Fylkir var fyrir leikinn í þriðja sæti,
ijómm stigum á eftir ÍBV og hefði
sigur í þeim leik komið þeim í ágætis
fjarlægð frá toppnum. En
Fylkismenn vom ákveðnari frá
upphafi og unnu leikinn 3-1 eftir að
ÍBV hafði jafnað leikinn 1-1. Þrátt
fyrir tapið er ÍBV í efsta sæti A-
deildar annars flokks með 16 stig en
helsti keppinautur liðsins, Fylkir er í
öðm sæti, stigi á eftir ÍBV en Fylkir á
leik til góða.
Mark IBV: Olgeir
KFS áfram í efsta
sæti
KFS sótti heim sameiginlegt lið ná-
gránna sinna í Hamar/Ægir og fór
leikurinn fram í Hveragerði.
Eyjamenn vom lengi í gang í
leiknum, vom undir í hálfleik 2-0 en
sóttu í sig veðrið í seinni hálfleik og
unnu leikinn 2-4.
Jón Bragi Amarsson, fyrirliðinn
sterki hjá KFS, sagðist vera ánægð-
ur með sigurinn. „Þetta var mjög
lélegt hjá okkur í fyrri hálfleik og
áttum undir högg að sækja enda
vomm við 2-0 undir í hálfleik. Við
ákváðum svo bara að fara að taka á
þeim og spila eins og menn og það
gekk eftir. Það tók okkur ekki
nema um þrjár mínútur að jafna
leikinn og sjö mínútur að komast
yfir. Eftir að við náðum tveggja
marka forystu bökkuðum við aðeins
án þess þó að hleypa þeim eitthvað
inn í leikinn. Þessi sigur var
nauðsynlegur fyrir okkur enda
ætlum við okkur að komast í
úrlsitakeppnina í haust þannig að ég
get ekki verið annað en ánægður
með sigurinn.“
KFS hefur verið að bæta leik sinn
jafnt og þétt og trónir nú á toppi síns
riðils í 3. deildinni.
Vigdís og Kristinn í
landsliðið
Vigdís Sigurðardóttir, markvörður
Islandsmeistara ÍBV, var nú á
dögunum valin í 18 manna leik-
mannahóp íslenska kvennalands-
liðsins í handknattleik. Liðið kemur
saman til æfinga 14.-28. júlíog em
æfingamar liður í undirbúningi fyrir
undankeppni Evrópukeppni lands-
liða. Farið verður í æfingaferð til
Noregs í byrjun september og leikið
þar við norsk félagslið.
Kristinn Jónatansson, leikmaður
með ÍBV í handknattleik, var svo í
síðasta mánuði valinn í landslið
íslands skipað leikmönnum 18 ára
og yngri.
Lithái í
handboltann
Lið mfl. karla ÍBV í handknattleik
hefur fengið til liðs við sig Litháa í
stað Miro Barisic sem lék með ÍBV
á síðasta leiktímabili. Fyrir er
Lithái í liði ÍBV, Aurimos, sem lék
með ÍBV liðinu á síðasta tímabili en
nýi leikmaðurinn heitir Vindaugas
Andriuska og er örvhent skytta.
Framundan
Fimmtudagur 20. júlí
Kl. 20.00 IBV-ÍA Landsímadeild
karla
Föstudagur 21. júlí
Kl. 20.00 ÍBV-Breiðablik Bikar
kvenna, undanúrslit
Kl. 20.00 KFS-Grótta eða á laugar-
dag kl. 14.00.
Laugardagur 22. júlí
Kl. 14.00 Fjölnir-ÍBV 4.fl. karla A
Kl. 15.30 Fjölnir-ÍBV 4.fl. karla B
Sunnudagur 23. júlí
Kl. 14.00 Fram-ÍBV 4.fl. karla A
Kl. 15.30 Fram-ÍBV 4.fl. karla B
Kl. 20.00 Stjaman-ÍBV Landsíma-
deild karla
Þriðjudagur 25. júlí
Kl. 20.00 Breiðablik-ÍBV Lands-
símadeild kvenna
Kl. 20.00 Keflavík-ÍBV 2.fl. karla
Miðvikudagur 26. júlí
Kl. 14.00 ÍBV-KR 4.fl. karla A
Kl. 15.30 ÍBV-KR 4.fl. karla B