Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2000, Qupperneq 20
/
FRETT
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 • Fax 481-1293
((Daglegar
■jr ferðir milii -uBí' “IWJ’- 1
jj lands og Eyja Bútuferðir - Bus tours
§ Landflutninqar Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
J FV (3)4811909 - 896 6810 -fax4811927
Vilhjálmur Bergsteinsson
» 481-2943
* 897-1178
Nær stöðugt
brætt hjá
báðum
verksmiðjum
Loðnuveiðar eru enn í fullum gangi
þótt nokkuð hafi dregið úr afla frá
því sem best var í júnímánuði
þegar mokveiði var á loðnu-
miðunum.
Loðnan hefur verið að veiðast á
mjög stóru svæði eða allt frá Langa-
nesi og vestur að grænlensku lögsög-
unni. Hörður Óskarsson, hjá ísfé-
laginu, segir að hjá þeim hafi verið
brætt nær stöðugt að undanfömu.
Sigurður VE landaði á föstudag í
síðustu viku rúmum 1200 tonnum og
svipuðu magni á þriðjudag. Önnur
skip ísfélagsins hafa landað í Krossa-
nesverksmiðjunni fyrir norðan.
Skip Vinnslustöðvarinnar, Kap og
Sighvatur Bjamason, hafa landað
öllum sínum loðnuafla hér heima og
séð verksmiðjunni fyrir hráefni sem
dugað hefur til vinnslu fjóra til fimm
daga vikunnar. „Þetta er búið að vera
alveg ljómandi. Unnið virka daga og
frí um helgar, varla hægt að hugsa sér
það betra svona yfir sumartímann,"
sagði einn bræðslukarla hjá Vinnslu-
stöðinni.
Handboltinn í
fótboltann
Firmakeppni Handknattlciks-
deildar IBV 2000 í knattspyrnu
verður haldin á Helgafellsvelli
laugardaginn 29. júlí.
Hvert lið er skipað sjö leikmönnum
og að sögn Gísla Rúnars Guð-
mundssonar framkvæmdastjóra móts-
ins verða öll lið að hafa sérkenni, til
dæmis búninga. Gísli Rúnar sagði
vegleg verðlaun væm í boði.
Unnið er af fullum krafti við dýpkun innsiglingarinnar innan við Hringskersgarð. Eins og greint hefur
verið frá er kostnaður vegna sprenginga við dýpkunina fjórar milljónir króna. I blíðunni um helgina var
unnið á fullu við að moka upp milljónunum með stórvirkum tækjum. Mun verkið hafa gengið vel.
Kalli komst
ekki á
St. Andrews
Kylfingurinn knái úr GV, Karl
Haraldsson, sem hafði fengið boð
um að keppa í golfi fyrir Islands
hönd á St. Andrews vellinum í
Skotlandi, auk þess að fylgjast með
British Open mótinu, varð að
aflýsa för sinni.
Karl var á miðvikudag að vinna
ásamt fleiri félögum sínum við að
hlaða þjóðhátíðarbálköstinn á Fjósa-
kletti. Þá vildi svo illa til, þegar hann
stökk ofan af bílpalli, að hann rak
sköflung hægri fótar í bretti og
meiddist illa. Við læknisskoðun kom
í ljós að brestur var í beini og útséð
um að Karl muni leika golf næstu
dagana.
Það var ekki einungis Skotlands-
ferðin sem þar með var fyrir bí heldur
varð Karl einnig að hætta þátttöku í
Meistaramóti GV. Eru þetta að
sjálfsögðu mikil vonbrigði fyrir
þennan unga kylfing sem náð hefur
frábærum árangri í íþróttinni.
Stórleikur hjá stelpunum
Kvennalið ÍBV á fyrir höndum
erfiðan leik í undanúrslitum Coca
Cola bikarsins þegar liðið tekur á
móti Breiðabliki á Hásteinsvellinum
á föstudagskvöldið.
Þetta er annað árið í röð sem ÍBV
spilar í undanúrslitum, í fyrra spiluðu
stelpumar gegn KR en töpuðu á
heimavelli l-3. 1997 komst ÍBV hins
vegar í undanúrslit og þá mættust
þessi sömu lið á sama vellinum. Þá
vann Breiðablik 4-1 eftir að staðan
hafði verið 1-1 í hálfleik. Liðin hafa
mæst einu sinni í ár í Landssíma-
deildinni, leikurinn fór fram á Há-
steinsvelli og endaði 3-3. En hvað
finnst Heimi Hallgrimssyni um að
mæta Breiðabliki í undanúrslitum?
„Við hefðum átt að vinna þær héma
í deildinni fyrr í sumar, dómarinn kom
þeim inn í leikinn og þær fá eiginlega
þessi þrjú mörk, sem þær skora,
gefins. Við ætlum okkur að vinna
leikinn og við eigum að vinna á
morgun. Þetta er stærsti leikurinn til
þessa sem meistaraflokkur kvenna
hefur komist í en ef allar leggja sig
fram þá eigum við að ná lengra, ég
tala nú ekki um það ef það mæta nú
margir áhorfendur til að styðja við
bakið á stelpunum. Við eigum ekki
lengur séns í deildinni þannig að þetta
er kannski spuming um líf eftir
þjóðhátíð. Ef við komumst í úrslita-
leikinn, sem er síðasti leikur ársins þá
er auðveldara og skemmtilegra að
halda dampi út tímabilið. En um
leikinn sjálfan vil ég sem minnst
segja. Reynslan vinnur náttúmlega
með Blikum og þær vita hvað það er
skemmtilegt að komast í bikarúrslitin
en við emm lfka með reynslumikla
leikmenn, Karen og Sammy hafa
spilað nokkra svona leiki og svo emm
við með 2-3 landsliðsmanneskjur og
það mun mæða mikið á þeim í
leiknum. En ég veit það að þetta
verður hörkuleikur, góð skemmtun og
vonandi náum við góðum úrslitum,“
sagði Heimir að lokum og vildi hvetja
fólk til þess að koma á völlinn á
morgun klukkan 20.00.
Breiðablik er á toppi deildarinnar eftir
1 - 3 sigur á KR og hefur á að skipa
landsliðsmönnum í hverri stöðu
þannig að ekki veitir af stuðningi.
viWL^Aymuvals
189,- áður 269,-
Loréal cleanings wipes
498,- áður 573,-
Pringles snakk
218,- áður 279,-
Malta/hrísbitar
298,- áður 289,-
súpur:
Sveppa: 86,- áður!05,-
Asoas/kiúkl.: 108.- áður 128,-
hykkmjúlk 0,5 l.ferna
119,- áður 142,-
Alldays innlegg 20 stk. 159,- áður 197,-
Alldays innlegg large/small: 279,- áður 339,-