Fréttir - Eyjafréttir - 10.08.2000, Side 1
27. árgangur • Vestmannaeyjum 10. ágúst 2000 • 32. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
Glæsileg flugeldasýning
Þjóðhátíðarinnar 2000 verður sennilega minnst sem einnar af stærstu þjóðhátíðum
sem haldnar hafa verið og sjaldan eða aldrei hafa fleiri tekið þátt í brekkusöngnum
en að þessu sinni. Hátíðin hófst í blautu en stilltu veðri á föstudaginn en eftir það fór
veður batnandi og var komið logn og blíða síðdegis á sunnudagskvöldið.
Hápunktarnir þrír, brennan, flugeldasýningin og brekkusöngurinn brugðust ekki og er
alltaf að koma betur og betur í Ijós hvað þessir viðburðir hafa mikið aðdráttarafl.
Þjóðhátíðargestir voru flestir sér og öðrum til sóma. Mynd Guðmundur Sigfússon.
Þjóðhátíðin 2000:
Gestir hátt
í 10.000
Þjóðhátíð í Eyjum lauk á mánudag.
Þeir þrír aðilar, Flugfelag Vest-
mannaeyja, Flugfélag Islands og
Herjólfur sem fluttu þjóðhá-
tíðargesti til og frá Eyjum segja að
þeir hafi verið til mikillar fyrir-
myndar og ekki komið til neinna
vandræða þrátt fyrir að lokast hefði
fyrir flug frá Eyjum kl. 22.00 á
mánudagskvöldið vegna þoku. Ef
allt er talið saman má gera ráð fyrir
að milli 6000 og 6500 manns hafí
komið til Eyja yfir þjóðhátíð með
þessum aðilum. Þjóðhátíðargestir
hafa því verið á milli 9000 og 10.000
sem er með því mesta.
Bragi Ólafsson, afgreiðslustjóri
Hugfélags Islands í Vestmannaeyjum,
sagði að frá fimmtudeginum þar til
lokaðist fyrir flug á mánudegi hefðu
Flugfélagið flutt 1537 manns til Eyja.
„Þetta er líklega mesti fjöldi sem við
höfum flutt vegna þjóðhátíðar. Það
virtist óvenjulega mikil eftirspum eftir
ferðum strax tíu dögum fyrir
þjóðhátíðina," sagði Bragi.
A fimmtudeginum flutti Rugfélagið
380 manns til Eyja, 794 á föstu-
deginum, 190 á laugardegjnum og
173 á sunnudeginum. „A mánu-
daginn fluttum við svo 1009 manns
frá Eyjum, en þegar við hættum
klukkan tíu um kvöldið voru 150
manns eftir sem áttu bókað á okkar
vegum.“
Bragi vildi taka það fram að þrátt
fyrir að lokast hefði fyrir flug hefðu
farþegar verið til mikillar fyrirmyndar.
„Þeir sem biðu eftir flugi á mánu-
deginum voru stillt og prútt fólk í alla
staði og þeir sem ekki komust með
tóku því með stakri ró.“
Magnús Jónasson framkvæmdastjóri
Heijólfs hf. sagðist vart muna eftir
jafn miklum fjölda sem komið hefði
til Eyja með Heijólfí sérstaklega
vegna þjóðhátíðar. „Við fluttum um
3500 þjóðhátíðargesti í þjóðhátíðar-
vikunni," sagði Magnús. „Fyrir
tveimur árum byijuðum við að bjóða
upp á næturferðir og höfum verið með
þær síðan yfir þjóðhátíð og hafa þær
verið vel nýttar. Við höfum einnig
fengið þá farþega sem ekki hafa
komist frá Eyjum með flugi vegna
þoku og fóru þeir síðustu frá Eyjum í
gærmorgun, eða þeir sem á annað
borð ætluðu að fara.“
Magnús bætti og við að forsala hefði
verið mjög góð og farið mun fyrr af
stað nú en áður og vildi hann meina
að slíkt væri óháð spám um veður.
Þá flutti Leiguflug ísleifs Ottesen
milli 500 og 600 farþega þannig að
allt í allt hafa þjóðhátíðargestir af
fastalandinu verið milli 6000 og 6500.
Á sú tala við sunnudaginn því fólk var
að koma á hátíðina bæði laugardag og
sunnudag. Samkvæmt þessu hafa
milli 9000 og 10.000 manns sótt
þjóðhátíðina 2000 sem er með því
allra mesta.
Valur Andersen hjá Flugfélagi
Vestmannaeyja sagði að hann hefði
flutt um 1000 þjóðhátíðargesti til Eyja
frá Bakka, en hann var með fjórar
flugvélar í notkun yfir þjóðhátíðina
„Þetta er mikið breytt frá því sem áður
var, vegna þess að traffíkin byrjaði
strax á miðvikudaginn og við vorum
stöðugt að alla hátíðina. Vegna þoku
gátum við hins vegar ekki flogið með
fleiri en 750 manns til baka. Þeir
síðustu fóru frá Eyjum fyrir hádegi á
þriðjudeginum, en þá náðum við að
fara sex ferðir áður en þoka lagðist
yfir.“
Valur sagði að flugið hefði gengið
vel og farþegar upp til hópa verið
prúðir og til ágætrar fyrir myndar.
„Ég er þó feginn að þessi töm skuli
vera búin,“ sagði Valur.
Áhugi á
Herjólfi
Eins og kunnugt er hefur útboð
verið auglýst á ferjusiglingum
milli Vestmannaeyja og
Þorlákshafnar.
Samkvæmt heimildum Frétta er
töluverður áhugi fyrir útboðinu og
hafa nokkrir aðilar sótt útboðsgögn
til Vegagerðarinnar. Tilboðum í
þessa þjónustuæð Eyjamanna á að
vera búið að skila fyrir 11. sept-
ember nk. Að sögn Magnúsar
Jónassonar, framkvæmdastjóra
Herjólfs hf, sem nú hefur þessa
þjónustu með höndum hafa þeir
Herjólfsmenn sótt útboðsgögnin,
enda ekkert launungarmál að
Herjólfur hf. mun bjóða í verkið.
„Við höfum ekki haft tíma til að
skoða gögnin ítarlega enn þá, en sú
vinna fer að fara í gang,“ segir
Magnús.
Sjá bls. 6.
ci öiYtvm svidum1
TM-ÖRYGGI
FYRIR
FJÖLSKYLDUNA
Safiieinar öl! tryggtugamálin
, einfalclan og
nan liáu
Sumaráætlun
frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alladaga. kl. 08.15 kl. 12.00
Aukaferöir fimmtud., föstud. og sunnud.
kl. 15.30 kl. 19.00
{t^Herjólfur
Sími 481 2800 -Fax 481 2991