Fréttir - Eyjafréttir - 10.08.2000, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 10. ágúst 2000
Þakkir vegna
Stafkirkju
A síðasta fundi bæjarráðs, sem
haldinn var 2. ágúst, færði bæjanáð
þakkir öllum þeim sem unnið hafa
við Stafkirkjuna og Skanssvæðið.
Sérstaklega var Árna Johnsen
þakkað frumkvæði hans í málinu.
Þá var bæjarbúum og gestum
þakkað fyrir góða þátttöku og um-
gengni.
ísfélagshúsin til sölu
ísfélag Vestmannaeyja hefur boðið
bænum til kaups húseignimar að
Hilmisgötu 2 og Vestmannabraut
37b, til niðurrifs eða annarra nota.
Söluverð húsanna er 3 milljónir
króna. Bæjarráð hefur falið bæjar-
stjóra að afla nánari upplýsinga.
5,6 milljónir í
ógóða
Á fundi bæjarráðs lá fyrir bréf frá
Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags
íslands. Þar kemur fram að ágóða-
hlutur Vestmannaeyjabæjar fyrir
árið 2000 erkr. 5.618.200.
Skanssvæðið
skipulagt
Hinum nýju byggingum á Skanss-
væðinu hefur nú verið komið inn á
skipulag og lóðum þeirra valin
nöfn. Þær byggingar sem fyrir voru
á svæðinu, stóðu áður við
Strandveg en bæði þær og nýju
byggingarnar verða eftirleiðis við
Skansveg. Byggingarnar verða nú
númeraðar þannig við Skansveg:
Salemishús Skansvegi 1, Landlyst
Skansvegi 2, Inntakshús RARIK
Skansvegi 3, Stafkirkja Skansvegi
4, Bátaskýli Skansvegi 5, Inntaks-
hús Skansvegi 7.
Lögregla þakkar
samstarfsfólki
Lögreglan vill þakka öllu sam-
starfsfólki sínu yftr þjóðhátíðina
fyrir gott samstarf og vonar að það
haldi áfram þó svo að hátíðin sé
búin að sinni. Þetta var mikill
styrkur og gerði lögreglumönnum
kleift að vinna starf sitt betur og
með betri árangri.
Coca Cola og
Viking ó laugardag
Golfiðkun lá niðri í Eyjuni yfir
þjóðhátíð en nú er völlurinn á ný
kontinn í leikhæft ástand. Á
laugardag verður Coca Cola og
Vikings mótið, höggleikur með og
án forgjafar. Athygli er vakin á því
að mótið hefst kl. 13 á laugardag.
Eldsvoði
Eldur kom upp í íbúðarhúsi við
Brekastíg á föstudag og urðu
talsverðar skemmdir á húsi og
innanstokksmunum. Ekki er vitað
um eldsupptök en grunur leikur á að
kviknað hafi í út frá rafmagni.
86% ónægðir
í skoðanakönnun eyjafrettir.is þar
sem spurt er afstöðu til stað-
setningar stafkirkjunnar kemur í ljós
að 86% eru ánægðir en 14% voru á
móti.
ísfélag og Vinslustöð:
Lokað í ágúst
Hin árlega sumarlokun frysti-
húsanna stendur nú yfir. Oftast
nær hefur sú lokun staðið fram yfir
miðjan ágústmánuð en að þessu
sinni verður lengra stopp hjá
Isfélaginu, þar hefst vinna á ný
þann 4. september.
Hörður Óskarsson, fjármálastjóri
Isfélagsins, segir að þetta sé í fyrsta
sinn sem svo lengi sé lokað, tveimur
vikum Iengra stopp en venjulega.
„Ákvörðun var tekin um þetta í
desember sl. og ég held að það komi
vel út. Fólk vissi um þetta með
góðum fyrirvara og hefur skipulagt sín
sumarleyfi með hliðsjón af því.
Okkur hefur haldist mjög vel á fólki í
sumar vegna þessa. A undanfömum
árum höfum við verið að fara af stað
eftir lokun upp úr miðjum ágúst og
höfum þá ekki vitað hvort fimmtán
manns eða fimmtíu mættu til starfa.
Eg held að fólk sé mjög sátt við þetta,
ég hef a.m.k. ekki heyrt annað. Það
verður því rólegt hjá Isfélaginu
þennan mánuð og enginn bátur frá
okkur á sjó,“ sagði Hörður.
Hjá Vinnslustöðinni er einnig lokað
og verður fram í seinni hluta ágúst.
Þar em aðeins iðnaðarmenn að
störfum í viðhaldsvinnu. Ekki er þar á ný en sumarlokunin verður
nákvæmlega vitað hvenær vinna hefst a.m.k. fram til 20. ágúst.
VINNA hefst aftur í frystihúsunum í lok mánðarins.
Afgreiðslu enn frestað
Umsókn þeirra Sigmars Georgs-
sonar og Gríms Þ. Gíslasonar, um
leyfi til að byggja veitinga- og
ráðstcfnuhús ofan á vatnstankinum
í Löngulág, er enn í meðförum
skipulags- og bygginganefndar.
Á fundi nefndarinnar, 27. júlí, kom
fram að grenndarkynning hefði farið
fram og Ijórar athugasemdir borist, frá
húseigendum að Smáragötu 1 og 2,
Fjólugötu 8 efri hæð og Fjólugötu 29
efri hæð.
Á þessum fundi frestaði skipulags-
og bygginganefnd enn erindi þeirra
félaga og óskaði eftir leiðréttum
teikningum þar sem hæð hússins yrði
færð í umrædda hæð og bílastæði og
umhverfi hússins útfærð betur af
skipulags- og byggingafulltrúa og
bæjartæknifræðingi í samráði við
umsækjendur. Þá er þess óskað að
umsækjendur skili inn tölvuunnum
ljósmyndum af fyrirhugaðri byggingu
frá öllum hliðum. Þegar þessar
upplýsingar liggja fyrir, verður
erindið tekið fyrir til endanlegrar
afgreiðslu.
FRAMKVÆMDIR á brunninum hafa legið niðri undanfarið.
Lundauppskriftakeppni Frétta og Magga Braga:
Síðasti skiladagur 14. ágúst
Nú fer hver að verða síðastur að
senda inn lundauppskrifir í lunda-
uppskriftakeppni Frétta og Magga
Braga. Síðasti skiladagur er mánu-
daginn 14. águst og vegleg
matarkarfa í verðlaun fyrir frum-
Icgustu, og ekki síst bragðbestu
uppskriftina.
Áð sögn Magnúsar Bragasonar
hefur töluvert af uppskriftum borist í
keppnina og er dómnefnd valinkunnra
sælkera nú þegar búin að setja sig í
stellingar. „Lundinn er mjög vel
fallinn til að matreiðast á hinn fjöl-
breyttasta veg. Hann má grilla, sjóða,
steikja og grafa, svo eitthvað sé nefnt
og borðast jafnt heitur sem kaldur."
Maggi benti ennfremur á að ýmis-
legt meðlæti mætti hafa með
lundanum. Miðað við þær uppskriftir
sem ég hef kíkt á og borist hafa í
keppnina er fólk alveg ótrúlega frjótt,
þegar meðlætið er annars vegar, hvort
heldur í sósugerð og eða salötum. „Ég
vil skora á alla sem kunna eitthvað
fyrir sér í matreiðslunni að drífa nú í
að senda inn uppskriftir íyrir 14. águst.
Ég veit að í eldhúsum Eyjamanna
leynist mörg galdrauppskriftin, sem á
fyllilega skilið að komast til fleiri að
njóta.“ Uppskriftimar má senda á
ritstjóm Frétta, merkt „Lundaupp-
skriftakeppni Frétta og Magga Braga",
eða í tölvupósti: frettir@eyjar.is
Tvöfalt fleiri bókanir
en í vikunni ó
undan
í dagbók lögreglu íyrir síðusm viku
vom 356 færslur eða um tvöfalt
fleiri en í vikunni þar á undan.
Þama er enda um þjóðhátíðar-
vikuna að ræða og því ekki óeðli-
legt að bókunum fjölgi verulega.
Miðað við þann fjölda fólks sem
sótti hátíðina telur þó lögregla að
hún hafi að mestu Ieyti faiið vel
fram.
Beinbrot og
eignaspjöll
Tíu líkamsárásir vom tilkynntar
lögreglu á þjóðhátíðinni og fimm
þeirra kærðar. Var þetta allt frá
smápústrum upp í alvarlegar árásir
sem enduðu með líkamsmeiðingum
eins og beinbroti. Þá var tilkynnt
um 20 þjófnaði, eitt innbrot og 15
eignaspjöll.
Aukning í
fíkniefnum
Alls komu upp 25 fíkniefnamál á
þjóðhátíð, misjafnlega alvarleg.
Var fólk handtekið með allt frá
einni „Rip Fuel“ töflu upp í 20
grömm af amfetamíni. í tveimur
þessara mála er gmnur um sölu og
dreifingu fíkniefna. Þá var fíkni-
efna leitað á fjölda fólks yfir
helgina. Talsverður viðbúnaður var
hjá lögreglu vegna fíkniefna, t.a.m.
vom tveir fíkniefnahundar hér yfir
þjóðhátíðina og fjórir óein-
kennisklæddir lögreglumenn sem
unnu að þessum ntálum auk allra
þeirra lögreglumanna sem voru á
vðktum.
Þrír stútar ó
mónudag
Fjórtán vom bókaðir vegna um-
ferðarinnar á þjóðhátíð. Á mánu-
dag vom þrír teknir grunaðir um
ölvun við akstur. Gerist það nánast
á hverri þjóðhátfð að fólk fer of
snemma af stað á mánudeginum
eftir alla drykkju helgatinnar og er
ekki í ökuhæftt ástandi. Þá var
tilkynnt um fimm umferðaróhöpp í
vikunni en ekkert þeirra alvarlegt.
Þess má geta að yfir 400 bifreiðir
vom stöðvaðar um helgina til að
kanna ástand ökumanna.
Kveilct í tjöldum
vegna leti
Á mánudag bar rnikið á því að
kveikt væri í tjöldum í Dalnum.
Virðist svo sem sumir þjóðhá-
U'ðargestir nenni ekki að pakka
tjaldinu saman heldur kveiki í því
ásamt öðm rusli. Minnir þetta hvað
helst á aðfarir hersveita sem em á
undanhaldi og skilja eftir sig
tjúkandi rústir.
FRETTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig i lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.