Fréttir - Eyjafréttir - 10.08.2000, Síða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 10. ágúst 2000
Bókvitið
'askana
Sitthvað gert fyrir
sauðkindina
Ég þakka tengasyninum kærlega
fyrir áskorunina. Ég veit að nú eftir
þjóðhátíð hlýtur hann að vera vel
lesinn þar sem það hlýtur að hafa
verið rólegt að gera í veitingatjaldinu
og kjörið að kíkja í bók í pásunum.
Annars þykist ég þó vita að ástandið
við pottana og pönnurnar í veitinga-
tjaldinu hefði örugglega sómt sér vel
sem sögusvið í bók eftir Stephan
King og þar er Magnús auðvitað á
heimavelli.
En það er rétt hjá tengdasyninum
að ég hef mjög gaman af að lesa
bækur eftir sígilda íslenska höfunda
og þar er Kiljan í miklu uppáhaldi.
Mjög minnisstætt er að lesa t.d.
Sjálfstætt fólk og hverju sumir eru
tilbúnir til að fóma fyrir sjálfstæðið.
En Bjartur er óneitanlega mjög
minnisstæður og allt grásleppuátið.
En hvað gera menn ekki fyrir
sauðkindina og þarf ekki að leita langt
yfir skammt Én hér læt ég staðar
numið og skora á nágranna minn
Eyjólf Guðjónsson, skipstjóra sem
næsta bókaunnanda og ekki er verra
að hann stendur hér mér við hlið.
Sigurður Georgsson er bókaunnandi
vikunnar
Stundum heyrum við illca
Á söngvakeppni barna á þjóðhátíðinni Beckham og Owen.
slógu tveir bræður eftirminnilega ígegn Eruðþið meðlimir íeinhverjum féiagsskap? Báðir
og stóðu uppi sem sigurvegarar í eldri í skóiaiúðrasveitinni. Guðmundur í Golfklúbbnum og
flokki. Þeir sungu sigurlagið úr Euro- Skátunum, Hjörleifurí fótboltanum í ÍBV.
vision, lag hinna dönsku Olsenbræðra og Uppáhaldssjónvarpsefni? Bíómyndir, Friends og
þóttu standa sig með prýði. Hinir Vík milli vina.
íslensku Olsenbræður eru Eyjamenn Uppáhaldsbók? Guðmundur: Harry Potter bækurn-
vikunnar. ar. Hjörleifur: Draugar vilja ekki dósagos.
Fullt nafn? Hjörleifur og Guðmundur Hvað metiðþið mest í fariannarra? Heiðarleika og
Davíðssynir. stundvísi.
Fæðingardagur og ár? Guðmundur 9. Hvað fer mest í taugarnar á ykkur í fari annarra ?
október 1987, Hjörleifur 22. maí 1990. Lygi og stríðni.
Fæðingarstaður? Guðmundur í Fallegasti staður sem þið hafið komið á?
Danmörku, Hjörleifur í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Búum hjá foreidrum Hver átti hugmyndina að þvíað syngja þetta lag?
okkar, Davíð Guðmundssyni og Okkurdattþetta bara íhug.
Aðalheiði Jensdóttur, ásamt systur okkar Fannst ykkur þetta besta Eurovisionlagið? Já,
Nönnu Berglind. þetta var best, Þjóðverjarnir voru næstbestir.
Menntun og starf? Erum báðir í Voruð þið ekkert taugaóstyrkir? Nei.
Hamarsskóla. Var gaman á þjóðhátíð? Já!
Laun? Bara verðlaun fyrir söng á Eitthvað að lokum? Fly on the wings of love!
þjóðhátfð.
Bifreið? Ferraribílarnir eru flottir.
Helsti galli? Mamma segir að
stundum heyrum við illa.
Helsti kostur? Mamma segir að
þegar við heyrum, þá séu ýmsir
kostir við okkur, við séum Ijúfir og
góðir.
Uppáhaldsmatur? Pitsur eru
góðar.
Versti matur? Þorramatur og
slátur.
Uppáhaldsdrykkur? Faxe Kondi,
sem er danskur drykkur.
Uppáhaldstónlist? Flestallt, fyrir
utan óperumúsík.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þið gerið? Að ferðast til
útlanda.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þið gerið? Að taka til í herberginu
og passa Nönnu.
Hvað mynduð þið gera ef þið
ynnuð milljón i happdrætti?
Pabbi er að fara að kaupa nýtt hús
fyrir Tölvun og við myndum lána
honum upp í þau kaup. Gefasvo
afganginn til líknarmála.
Uppáhaldsstjórnmálamaður?
Enginn.
Uppáhaldsíþróttamaður? Giggs,
Nýfæddir <?cr
Vestmannaeyingar
Þann 9. júlí eignuðust Elísa Elíasdóttir og Magnús Benónýsson dóttur.
Hún vó 14 '/2 mörk og var 54 cm að lengd. Hún hefur verið skírð Elín
Elfa og er hér á mynd með systkinum sínum fr. v. Halla Þórdís, Benóný
Sigurður og Anna Vigdís Ljósmóðir var Valgerður Olafsdóttir.
Orðspor_____________________________JHf
- Mikið er talað um Brekkusöng eftir þjóðhátíðina og ekki að ósekju, vegna
flutnings þjóðsöngs íslendinga þar í brekkunni. Eru ekki allir á eitt sáttir um ágæti
þessa framtaks Brekkusöngtjórans. Telja margir að þarna sé verið að misþyrma
einum ágætum lofsöng, sem hann mun víst heita hjá Matthíasi og benda á ýmis
viðurlög við misþyrmingum á einu af sameiningartáknum þjóðarinnar. Að ekki sé
nú talað um að fólk sé að kyrja jafn dýrt kveðið í misjöfnu ástandi til anda og
líkama. Aðrir eru þeir sem lofa framtakið og benda á að aldrei hafi verið hægt fyrir
íslenskan alþýðumann að syngja þjóðsönginn, en nú hafi lagið verið fært að
sönggetu alþýðunnar og muni allt móverkið verða til þess að efla íslenska
þjóðarvitund og stolt, enda mun öll Brekkan hafa staðið upp og lagt hönd á
hjartastað í slíkri sæluvímu þjóðarstoltsins að minnti á ameríska sápuóperu. Ekki
þar fyrir að slíkt sé ekki við hæfi þar sem (slendingar ku hafa fundið Ameríku og
gott ef ekki allan heiminn. Svo bæta ýmsir við að þá sé skondið að sönghæfa
útgáfan skuli verða til í Eyjum og hjá Eyjamönnum, sem lengi hafa viljað sem
minnst af eyjunni norður af Vestmannaeyjum vita. Segja þeir himir sömu að nú
hafi eyjan í norðri verið innlimuð í eitt skipti fyrir öll í Vestmannaeyjaklasann.
- En af þjóðhátíð. Eins og Eyjamenn vita eru tvær klíkur sem standa fyrir
uppsetningu tveggja mjög svo ólíkra mannvirkja á þjóðhátíð. Þetta eru malarar og
hálfvitar. Var mjög svo haft á orði á þessari þjóðhátíð að vitinn þeirra hálfvita væri
svo Ijótur að skömm væri að í Dalnum. Þeir hálfvitar eru þó sallarólegir yfir
þessum rógi, sem þeir telja að sé kominn úr herbúðum þeirra myllumalara sem
ekki geta á heilum sér tekið vegna einberrar öfundar í garð hálfvita. Benda þeir á i
því sambandi að öfund þeirra minni á þegar maður nær sér í góða og fallega konu,
að þá verði að finna henni eitthvað til foráttu. Þannig sé og innsta eðli þeirra
myllumalara.
- Nú þegar búið er að vígja stafkirkjuna og guð búinn að taka í sátt heiðinn
arkitektúr af viði, þá er ekki seinna vænna að finna nafn á kirkjuna, eins og venja er
með höfuðkirkjur. Ýmsar hugmyndir hafa verið reifaðar og þykir mörgum
pólitískum samherjum Árna Johnsen í kristi vel við hæfi að kenna kirkjuna við
Árna. Upp á latínu væri það á þessa leið: Domum gloria ad sanctum Arnae
Joensen.
Á dÖflTTTTÍ 4*
10. ágúst Eyjaefni á Fjölsýn. Kl. 20.00
10. ágúst Stafkirkjuvígslan. Kl. 20.30 þjóðháfíðin 2000, eins og hún leggur sitg EvrópuleikurinnH!!! IBV gegn
skoska liðinu Hearts á Laugardals veHinum í Reykjavík. Skorist nú enginn undan að mæta á völlinn
12. ágúst Kókakólamófíð í golfi hefst klukkan
12.-13. ágúst 13.00 Bikarkeppni FRÍ.