Fréttir - Eyjafréttir - 10.08.2000, Síða 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 10. ágúst 2000
Aðalufundur Herjólfs hf.
y
Ottast afleiðingarnar
flytjist forræðið annað
-sagði stjórnarformaður en ókveðið er að rekstur ferjusiglingar milli lands og Eyja verði boðinn út
HER3ÖLFUR
HER3ÓVFUR
minuviim
Á aðalfundi Herjólfs hf. í síðustu
viku komu fram áhyggjur stjórn-
arformanns um að breytt
rekstrarfyrirkomulag á Herjólfi
þjónaði hagsmunum Vestmanna-
eyinga. Þar á hann við þá ákvörðun
Vegagerðarinnar að bjóða út rekst-
urinn frá og með næstu áramótum.
Herjólfur hf. á möguleika á að
bjóða í reksturinn en sú óvissa um
framhaldið sem útboðinu fylgir
gerir það að verkum að nú vofa yfir
uppsagnir á allri áhöfninni. Rekstur
Herjólfs hf. gekk nokkuð vel á
síðasta ári og skilaði hagnaði. Fund-
urinn fór fram um borð í Herjólfi.
Óttast afleiðingar útboðs
Grímur Gíslason, stjómarformaður
Herjólfs hf., flutti skýrslu stjómar og
sagði að nú væm blikur á lofti í rekstri
félagsins. „Mér sýnist að það sé að
verða að veruleika að rekstur siglinga
Herjólfs verði boðinn út. Það er ný-
mæli og miidl breyting frá því sem
verið hefur. Eg hef sagt áður og segi
enn að ég óttast þessa breytingu og
held að tíminn eigi eftir að leiða í ljós
að þessi hún mun ekki verða til
hagsbóta fyrir íbúa í Vestmanna-
eyjum, sagði Grímur.
Hann sagðist hafa rætt þessi mál,
ásamt framkvæmdastjóra og bæjar-
stjóranum í Eyjum, við samgöngu-
ráðherra, fulltrúa samgönguráðuneytis
og fulltrúa Vegagerðar. „Niðurstaða
þeirra viðræðna leiddi til þess að í lok
ársins var gengið frá framlengingu
rekstrarsamnings, eða svokallaðs
þjónustusamnings, til ársloka 2000.
Var áðurgildandi samningur fram-
lengdur óbreyttur að öðm leyti en því
að viðhaldsliður samningsins var
hækkaður í 29 milljónir með þeim
ákvæðum að ef viðhald færi yfir 29
milljónir myndi Vegagerðin bera 75%
af þeim umframkostnaði en ef viðhald
yrði undir 29 milljónum myndi
Hetjólfur endurgreiða Vegagerðinni
75% af mismuninum. Samningurinn
með þessum breytingum var vel
ásættanlegur og má segja að með
honum hafí Vegagerðin loks viður-
kennt að viðhaldsliður samningsins
sem gerður var á sínum tíma var
vanreiknaður eins og reyndar
stjómendur Herjólfs bentu á þá og
hafa gert alla tíð síðan.“
Ekki aítur snúið í
útboðsmálinu
Grímur sagði að fyrsta verk fráfarandi
stjómar hefði verið að knýja á um
framlengingu rekstrarsamnings við
Vegagerðina sem rann út um síðustu
áramót en án árangurs. „Samgöngu-
ráðherra og fulltrúar áréttuðu að
rekstur Herjólfs yrði boðinn út á árinu
og sá aðili er fengi reksturinn að af-
loknu útboði tæki við rekstrinum I.
janúar árið 2001. Á þessum fundum
var gerð skýr grein fyrir andstöðu
stjómar Herjólfs og bæjaryftrvalda í
Vestmannaeyjum við útboðshug-
myndir en ljóst var að samgöngu-
ráðherra hafði tekið um það ákvörðun
að málið færi í þennan farveg og ekki
yrði til baka snúið með það. Var í því
sambandi vísað til EES samnings og
ákvæða hans en mín tilfinnig er sú að
þar hafi einungis verið fundin leið til
að skjóta sér á bak við. Það er nokkuð
ljóst að þar sem ríkisvaldið vill fara
eftir ákvæðum EES samnings er það
gert en ef það hentar ekki er fundin
leið til að komast á svig við hann. Það
er rrún skoðun og reyndar fleiri að
slíkt hefði vel verið framkvæmanlegt
ef vilji hefði verið til en svo var ekki.
Það hefur verið mikið hjartans mál hjá
Vegagerðinni, eða í það minnsta
einhverra starfsmanna hennar, að
rekstur Herjólfs yrði boðinn út og
virðist sem þeim hafi tekist að fá
núverandi samgönguráðherra til að
fallast á að fara með málið í þann
farveg.“
Hver er ávinningurinn?
Grímur sagðist ekki sjá ávinninginn af
útboði fyrir ríkissjóð. „Ferðatíðni
ræður mestu um kostnaðinn því laun
og olíukostnaður vega þyngst í rekstr-
inum sem og tryggingar og viðhald.
Allt fastir póstar sem ekki verða
hreyfðir með útboði á rekstrinum. Það
er því eitthvað annað en fjárhagslegir
hagsmunir sem horft er til í þessu
sambandi,“ sagði Grímur sem óttast
að hagsmunir Eyjamanna verði fýrir
borð bomir, hverfí forræðið úr
höndum heimamanna. „Utboðsgögn
þau sem nú liggja tilbúin hef ég ekki
séð en samkvæmt upplýsingum sem
ég hef fengið þá mun í þeim gert ráð
fyrir að Vegagerðin ákveði gjaldskrá,
ferðaáætlun, aukaferðir, opnunartíma
skrifstofu og stjómi viðhaldi skipsins.
Það forræði sem við Eyjamenn höfum
haft á skipinu er því alfarið komið í
hendur skriffinna sem sitja á
skrifstofum sínum í við Borgartún í
Reykjavík og hafa takmarkaðan
skilning á þörfum útkjálkafólks eins
og Eyjamanna.
Þessi breyting hlýtur einnig að kalla
á breyttar áherslur og hugsanagang
þeirra sem koma til með að reka
Herjólf. Til þessa hafa stjómendur
Heijólfs fyrst og fremst hugsað hlutina
út frá þjónustu við Eyjamenn og reynt
að koma til móts við þarfir og kröfur
íbúa í Eyjum innan þess ramma sem
sniðinn hefur verið með fjármagni
sem veitt hefur verið til rekstrarins Það
hefur ekki verið hugsunin að Heijólfur
hf. safnaði einhveijum auði til að
hluthafar högnuðust á eign sinni
heldur að láta reksturinn ganga upp og
þjónusta vel. Sá aðili sem tekur að sér
reksturinn að afloknu útboði hlýtur að
hugsa á annan hátt. Þá verður
reksturinn fyrst og fremst hugsaður ffá
viðskiptalegu sjónarmiði en ekki
þjónustu. Eg get nefnt lítið dæmi um
þetta. Undanfarin tvö ár hefur komið
erindi til stjómar Heijólfs um að setja
upp aukaferð til að flytja 10. bekkinga
upp á land í skólaferðalag strax að
loluiu síðasta samræmda prófinu. Var
þetta lagt upp sem ákveðið forvamar-
starf til að bregðast við vandamálum
sem skapast höfðu hjá þessum hópi
unglinga. Stjóm Heijólfs brást vel við
þessu erindi og setti á þessar ferðir þó
að tilkostnaðurinn við þær væri nálægt
hálfri milljón en tekjumar nánast
sáralitlar svo að umtalsvert tap var á
þessum ferðum. Hvað myndi nýr
rekstraraðili gera í máli sem þessu að
loknu útboði? Eg held að flestir geti
getið sér til um það að rekstraraðila,
sem hefur skipið til rekstrar að loknu
útboði, dytti ekki til hugar að efna til
slíkrar ferðar og tapa á henni Ijár-
munum. Það segir sig alveg sjálft og
hver þokkalega þenkjandi maður sér
þetta. Þetta er aðeins eitt dæmi af
mörgum um það hvemig hætt er við
að breytingin verði varðandi rekstur
Herjólfs. Eg get nefnt annað dæmi.
Myndi nýr rekstraraðili breyta áætlun
og kosta til þess einhverju fé vegna
auglýsinga og auknum launakostnaði
vegna íþróttaviðburða eins og dæmi
em um að Heijólfur hafi gert. Ég held
ekki því tekjumar vega ekki upp þann
kostnað sem lagt hefur verið í titiellum
sem þessum og nýr rekstraraðili sem
er að reka Herjólf sem bisness-
fyrirtæki myndi reikna út og komast
að því að hann tapaði á breytingunni
og segði því nei við öllu slíku kvabbi."
Erfiðleikar í samskiptum við
Vegagerðina
Stjómin hefur átt í stappi við
Vegagerðina vegna landgöngumann-
virkja í Vestmannaeyjum og Þor-