Fréttir - Eyjafréttir - 10.08.2000, Síða 7
Fimmtudagur 10. ágúst 2000
Fréttir
7
lákshöfn sem eru eign Heijólfs hf. Þar
komu ífam mótmæli Vegagerðarinnar
vegna afstöðu stjómarinnar sem taldi
að ef ekki næðist samkomulag milli
Herjólfs og Vegagerðar um nýtingu
mannvirkjanna yrði beitt öðrum
leiðum til að þvinga Herjólf til að láta
mannvirkin af hendi. „Einnig kom
fram efi sumra aðila er að málinu
komu að Herjólfur hf. myndi hafa
heimild til að bjóða í rekstur ms.
Herjólfs vegna stórrar eignaraðildar
ríkisins. Það varð því að samkomulagi
milli Vegagerðar og Herjólfs að leita
eftir lögfræðilegu áliti á þessum
málum. Var Baldur Guðlaugsson hrl.
fenginn til verksins og niðurstaða hans
var sú að Heijólfur hf. hefði fulla
heimild til að bjóða í verkið og einnig
taldi hann líklegt að samkeppnisráð
myndi mæla fyrir um á grundvelli
heimilda sinna að Heijólfur hf. skyldi
gegn eðlilegu gjaldi veita nýjum
rekstraraðila aðgengi að farþega-
mannavirkjum félagsins í Vest-
mannaeyjum og Þorklákshöfh."
Grímur sagði að ekki hefðu farið fram
frekari viðræður milli aðila en í júlí sl.
barst stjóm Herjólfs erindi frá Vega-
gerðinni þar sem sent var uppkast að
samningi um leigu á mannvirkjum
félagsins og í samningnum var
ákveðin leiguupphæð og fleira. „Þetta
er undarleg aðkoma að málinu af
hálfu Vegagerðar ríkisins og minnir
meira á annars konar stjómarhætti en
lýðræði. Stjóm Heijólfs hefur svarað
þessu bréfi Vegagerðar á þann hátt að
ekki hafi verið uppi áform um að
leigja eignir félagsins en stjómin sé þó
tilbúin til viðræðna um þessi mál og
önnur sem að útboði á rekstri Heijólfs
snúa óski Vegagerðin eftir því. I
framhaldi af því hefur Vegagerðin
síðan haft samband við stjómar-
formann og óskað eftir viðræðum um
málin fyrripartinn í ágúst.
Uppsagnir á starfsfólki
liggja í loftinu
Það er ljóst að Heijólfur hf. stendur nú
frammi fyrir því að þurfa að taka
ákvörðun um hvort segja á upp
starfsfólki. Þeir sem lengstan upp-
sagnarfrest hafa þurfa uppsögn með 6
mánaða fyrirvara og síðan em það 5,
4, 3 og niður í eins mánaðar upp-
sagnarfrestur sem starfsfólk Herjólfs
hefur. Eftir samtal stjómarformanns
við fulltrúa Veggerðarinnar er ljóst að
til að tryggja það að Herjólfur hf. sitji
ekki uppi með starfsmenn sína á
launaskrá eftir 1. janúar 2001, ef
einhver annar aðili en Herjólfúr hf.
mun sjá um rekstur ms. Heijólfs eftir
þann tíma, verður fyrirtækið að segja
upp starfsfólki sínu með samnings-
bundnum fyrirvara. Uppsagnir valda
alla tíð óróa og óvissu og það er ekkert
grín að segja upp öllu starfsfólki heils
fyrirtækis. Hjá Herjólfi starfa 25
manns og allt þetta fólk hefur
íjölskyldur á bak við sig. Verði af
þessum uppsögnum munu þær koma
róti á allt þetta fólk. Það er stjóm-
endum Herjólfs hf. allt annað en ljúft
að þurfa að grípa til uppsagna en fáir
aðrir kostir em í stöðunni vegna þess
að ákveðið hefur verið að fara með
rekstur ms. Heijólfs í útboð," sagði
Grímur.
Umsókn um vínveitingar
týnd og tröllum gefin?
A starfsárinu sótti stjóm Herjólfs um
leyfi til vínveitinga um borð í skipinu.
Þessi umsókn var send inn í lok
síðasta árs en enn hafa engin svör
borist við erindinu og virðist sem það
sé týnt einhversstaðar í kerfinu. „Það
er mitt mat að á fínu veitingahúsi, eins
og Heijólfur er, sé hreint hallærislegt
að neytendur, sem áhuga hafa, geti
ekki fengið sér léttvín eða áfengt öl
með matnum. Það er nú hægt á
flestum áningarstöðum við þjóðvegi
landsins og hvers vegna þá ekki líka á
stað eins og í Heijólfi."
A síðasta ári flutti Heijólfur 78.518
farþega á móti 78.817 árið 1998 sem
SigurðurVE 15:
Aflaskip með
merka sögu
er nánast sami flutningur bæði árin.
24.230 bílar vom fluttir með skipinu á
móti 23.627 bílum árið á undan sem
er 3% aukning milli ára. 23.932
lengdarmetrar af flutningabílum vom
fluttir með skipinu á móti 27.992
metrum árið 1998 sem er 15%
minnkun. Þessi samdráttur helgast
aðallega af minnkandi flutningi á
ferskum fiski frá Eyjum. Þá vom seld
26.563 svefnrými á móti 24.705 árið á
undan sem er 7% aukning.
Fyrstu sex mánuði þessa árs hafa
verið fluttir 36.249 farþegar sem er
14% aukning miðað við sama tíma í
fyrra. 11.267 bfiar hafa verið fluttir
sem er 12% aukning milli ára, 13.548
svefnrými hafa verið seld sem er 20%
aukning og 12.799 lengdarmetrar af
flutningabflum hafa verið fluttir sem
er nánast það sama og á sama tíma í
fýrra.
Verkefni nýrrar stjómar
Grímur segir að nýrrar stjómar bíði
það verkefni að fara í gegnum
útboðsgögn og ákveða hvort gera eigi
tilboð í rekstur ms. Herjólfs. „Þetta er
stórt mál og framtíð fyrirtækisins er í
húfi. Það er mikilvægt að vanda vel til
þeirrar vinnu sem framundan er í
þessum efnum því ljóst er að
Herjólfur hf. hefur ekki íjárhagslegt
bolmagn til að vera með undirboð til
að hljóta verkið. Þá bíða viðræður við
Vegagerðina vegna landgöngumann-
virkjanna og nýtingar þeirra. Upp-
sagnir starfsfólks eru yfirvofandi
vegna útboðs á rekstri skipsins og ljóst
er að samningamál koma til kasta
nýrrar stjómar verði rekstur ms.
Herjólfs áfram í höndum Herjólfs hf.
að loknu útboði.
Hjá Herjólfi hf. starfa nú 27
starfsmenn í 25 stöðugildum sem er
sami starfsmannafjöldi og undanfarin
ár. Öllum starfsmönnum Herjólfs hf.
þakka ég vel unnin störf og gott
samstarf á árinu. Samstjómarmönnum
mínum í stjóm Herjólfs þakka ég
einnig gott og ánægjulegt samstarf á
starfsárinu."
A fundinum var mikil umræða um
framtíð Heijólfs. Kom fram hjá öllum
heimamönnum sem til máls tóku að
þeir vom móti útboði og hræddir við
að forræðið flyttist annað. Fulltrúi
Vegagerðarinnar á fundinum sagði að
Eyjamenn hefðu ekkert að óttast því
þjónustan yrði ekki minnkuð og taldi
hann að farmiðaverð yrði óbreytt.
A aðalfundinum voru eftirtaldir
kjömir í stjóm fyrirtækisins. Frá Vest-
mannaeyjabæ vom kjörin Grímur
Gíslason og Þorgerður Jóhannsdóttir
og varamenn fyrir þau Sigurbjörg
Axelsdóttir og Ragnar Óskarsson. Frá
ljármálaráðuneyti var tilnefndur
Kristmann Karlsson og til vara Auróra
Friðriksdóttir. Frá samgönguráðuneyti
var tilnefndur Stefán Jónasson og til
vara Guðbjörg Sigurgeirsdóttir og frá
almennum hluthöfum var kjörinn
Heiðmundur Sigurmundsson og til
vara Stefán Friðrlksson.
A fyrsta fundi skipti stjómin með
sér verkum og var Grímur Gíslason
kjörinn formaður, Heiðmundur Sigur-
mundsson varaformaður og Krist-
mann Karlsson ritari.
eyjafrettir.is
eyjafrettir.is
eyjafrettir.is
eyjafrettir.is
eyjafrettir.is
eyjafrettir.is
Hagleiksmaðurinn Tryggvi Sig-
urðsson skilaði í síðustu viku líkani
af Sigurði VE 15, flaggskipi
Isfélagsins í hendur Sigurði Einars-
syni forstjóra félagsins. Sigurður
VE er eitt mesta aflaskip í allri
útgerðarsögu Islands og hefur
skilað á land vel á aðra milljón
tonna frá því hann kom til landsins,
1. september 1960. Líkanið er mikil
listasmíð og á eftir að sóma sér vel í
höfuðstöðvum Isfélagsins.
Þúsund tonna togaramir
Líkanið er í hlutföllunum 1 á móti 50
og er ekki annað að sjá en þarna sé
komin nákvæm eftirmynd af Sigurði
VE eins og hann er í dag. En skipið
hefur gengið í gegnum miklar
breytingar frá því það kom til
landsins. Þá sögu hefur Tryggvi kynnt
sér vel. Upphaflega var Sigurður
síðutogari og var í eigu Einars
Sigurðsonar ríka, föður Sigurðar,
forstjóra ísfélagsins. „Sigurður var
smíðaður í Sebeck-skipa- smíða-
stöðinni í Bremerhaven árið 1960 og
var einn fjögurra svokallaðra þúsund
tonna togara sem Þjóðveijar smíðuðu
fyrir Islendinga á þessum árum,“ segir
Tryggvi. „Hinir voru Víkingur AK,
Freyr RE og Maí GK. Maí var seldur
til Noregs 1977, Freyr seldur til
Englands 1963 og var einn alfrægasti
landhelgisbrjóturinn. Hét hann þá
Ross Revenge en Víkingur er enn
gerður út frá Akranesi og var honum
breytt í nótaskip eins og Sigurði,"
segir Tryggvi sem kynnt hefur sér
sögu skipsins mjög vel.
Ekki var Sigurður full þúsund tonn,
mældist hann nákvæmlega 985 tonn.
„Þessi fjögur skip mörkuðu ákveðin
tímamót í útgerðarsögunni. Fyrir það
fyrsta voru þau stærstu síðutogarar
sem smíðaðir vom fyrir Islendinga og
jafnframt þeir síðustu. Einnig vom
þetta síðustu síðutogaramir sem
Þjóðveijar smíðuðu og á ámnum eftir
1960 taka skuttogaramir við. Síðustu
síðutogamir sem Þjóðverjamir
smíðuðu og síðustu síðutogaramir
sem Islendingar létu srmða."
Öflugt skip
Sigurður er mikið skip og öflugt.
Hann er 72,5 Im á lengd, 10,31 m á
breidd og ristir 8,1 m. Upphafleg
aðalvél var 2200 ha Werkspoor sem
brotnaði árið 1978 og var sett í hann
2400 ha Nohab Polar vél. Honum var
breytt í nótaskip árið 1974, byggt var
yfir hann 1976 og ber hann í dag um
1500tonnafloðnu.
Þegar þúsund tonna togaramir
komu var hnignunarskeið síðutogar-
anna hafið en þeir höfðu m.a. verið
undirstaðan undir efnhagsframfömm
á íslandi um miðja öldina. Þrátt fyrir
það náði Sigurður að verða aflahæsti
togari landsins í átta ár af þeim níu
sem hann var gerður út sem síðutogari
og síðustu árin var hann í samkeppni
við skuttogarana.
Sigurður var gerður út frá Reykja-
vík og var þá skráður RE 4. Ekki var
byrjunin björguleg því skipið fór
aðeins tvo eða þrjá túra eftir að hann
kom til landsins. Þá var honum lagt í
tvö áren hóf þá síldarflutninga. Skipið
hóf svo aftur veiðar árið 1962 undir
stjóm hins fræga aflamanns, Auðuns
Auðunssonar. Guðbjöm Jensson tók
við af honum árið 1965 og eftir eitt ár
tók Arinbjöm Sigurðsson við af
honum. Var hann með Sigurð til
ársins 1973 þegar hlutverki hans sem
togara lauk en árið eftir er honum
breytt í nótaskip. Þá tók Kristbjöm
Amason við Sigurði og er skipstjóri
enn í dag en í nokkur ár var Haraldur
Agústsson skipstjóri á móti honum.
2200 vinnustundir
„Þúsund tonna togaramir voru af
mörgum taldir fallegustu skip á íslandi
enda vom þau byggð áður en skipa-
smiðir týndu beygjuvélinni," segir
Tryggvi sem tekist hefur að gera mjög
nákvæma eftirmynd af Sigurði. „Þetta
gæti verið 31. líkanið mitt og ég er
með nokkur í smiðum. Grindin er úr
krossvið sem síðan er klædd með
sérstökum módelvið og sparslað í með
módelsparsli. Til að fullkomna verkið
er líkanið sprautað með bfialakki og
það gerir Darri í Bragganum. Yfir-
bygging og búnaður er úr krossviði.
Það hafa farið 2200 klukkutímar í
smíðina eða sem svarar meira en einu
ársverki."
Tryggvi segist hafa byijað á verkinu
fyrir þremur árum og hófst það með
gagnasöfnun. „Ég byrja á að verða
mér út allar þær teikningar sem ég
kemst yfir og breyti þeim í þá stærð
sem ég ætla að hafa líkanið í. Einnig
tek ég mikið af myndum. Undir-
búningurinn kostar miklar pælingar og
leit að hlutum sem hægt er að nota. Er
maður alltaf með augun opin, m.a.s.
inni í leikfangabúðum. En í þessu
verki naut ég líka Adda bróður míns
sem er stýrimaður á Sigurði," sagði
Tryggvi að lokum.
Sigurður er trúlega mesta aflaskip
Islandssögunnar og hefur verið
aflahæsta skip landsins bæði sem
togari og nótaskip. Mest hefur árs-
aflinn komist í um 50.000 tonn á ári.
Ekki var hægt að fá nákvæmar tölur
um hvað mikinn afla Sigurður hefur
komið með að landi í þau tæp 40 ár
sem liðin eru frá því hann kom til
landsins. En Sigurður Einarsson,
forstjóri ísfélagsins, segir að það hljóti
að vera vel á aðra milljón tonna.
I blíðunni á dögunum voru skipslíkanasmiðirnir og bræðurnir Andrés Sigurðsson og Tryggvi Sigurðsson
að máta módel sín af Sigurði VE við frummyndina þar sem hún lá við Nausthamarsbryggju. A
myndinni eru þeir ásamt nokkrum úr áhöfn Sigurðar VE. Andrés, sem er þriðji frá vinstri, á líkanið sem
er fjær en Tryggvi, sem stendur næst honum, smíðaði líkanið nær sem Isfélagið á.