Fréttir - Eyjafréttir - 10.08.2000, Qupperneq 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 10. ágúst 2000
Biggi Gauja, formaður þjóðhátíðarnefndar segir frá undirbúningi hi
Þjóðhátíðin er mar
-sem stærsta og fjölmennastc
Birgir Guðjónsson hefur
átt sæti í þjóðhátíðar-
nefnd síðasliðin fjögur
ár og verið viðloðandi
þjóðhátíðarundirbúning
frá því hann var peyi.
Aðrir í nefndinni eru
Sigurður Þórarinsson,
Stefán Agnarsson,
Sigurfinnur Sigur-
finnsson, Tryggvi Már
Sæmudsson, Olafur Týr
Guðjónsson og
Friðberg Egill
Sigurðsson, en þrír
síðast töldu eru nýir í
nefndinni. Hann segir
alla þessa peyja
frábæra að starfa með
og að þeir hafi allir
mikinn metnað fyrir
hönd þjóðhátíðar og
Vestmannaeyja. Fréttir
fengu Birgi í spjall um
þjóðhátíð, undirbúning
hennar og dulitla
framtíðarsýn.
Gleði og sorg
Birgir sagðist vera mjög ánægður með
þjóðhátíðina í ár og hvernig til tókst.
Hann sagðist þó harma hið hörmulega
ilugslys sem varð í Skerjafirðinum
sem hefði sett dapurlegan svip á lok
mjög vel heppnaðrar þjóðhátíðar, þar
sem farþegar vélarinnar hefðu verið
gestir á þjóðhátíðinni. „Annars er
hljóðið í mér mjög gott. Ég get ekki
sagt annað. Við vomm heppnir bæði
með veður og fólk. Reyndar hófst
hátíðin með smá þoku og bleytu fyrsta
daginn, en lagaðist svo. A laugar-
deginum hefði veðrið verið orðið í
betri kantinum og á sunnudeginum var
veðrið stórkostlegt og hefði ekki getað
orðið betra. Flugið stóðst mestan
tímann, þó að þoka hefði verið fyrst til
að byrja með, en þegar upp er staðið
held ég að ekki sé hægt að flytja fleira
fólk hingað þessa daga sem hátíðin
stendur, með þeim flugkosti sem er í
boði og Hetjólfi.“
Ánægja með gæslu og
lögreglu
Birgir sagðist vilja taka fram hversu
þjóðhátíðamefndin væri ánægð með
/V .r-
, ■ 1
1 . tLj ! X 1 VV * |1 \ fw
HÆST reis brekkusöngurinn þegar Árni Johnsen fékk 10.000 manna Brekkukórinn til að standa upp
og syngja þjóðsönginn.
gæslu og eftirlit lögreglu og björg-
unarsveita. „Þetta kom allt heim og
saman og heppnaðist mjög vel.
Gæslan stóð sig frábærlega og var
mjög aukin. Við vomm með 60
manns á næturvakt og þrjátíu á
dagvaktinni. Það var líka ákveðið að
girða svæðið af og það kom ágætlega
út. Við afmörkuðum golfvöllinn og
komum upp girðingu við innmkk-
unnarskúrinn, sem ég tel skref fram á
við til þess að auðvelda gæslu og
eftirlit. Þetta var til mjög mikilla bóta,
enda var orðið ófremdarástand í mkk-
unarmálum og sú nýbreytni tekin upp
nú að mkka allan sólarhringinn.“
Birgir sagði að þjóðhátíð væri mjög
hefðbundin og ekki mikið um miklar
breytingar. „Enda þurfum við þess
ekki. Þjóðhátíðin er margbúin að
sanna sig sem stærsta og íjölmennasta
fjölskylduskemmtun á Islandi. Eins
og núna lögðum við nokkuð meira í
flugeldasýninguna, enda var hún
stórkostleg. En við reynum alltaf að
bæta einhveiju við og fara eftir
kröfum þjóðhátíðargesta á hverjum
tíma, en við emm líka íhaldssamir.
Sem dæmi um það má nefna bjarg-
sigið, sem reyndar hefur fallið niður
undanfarin tvö ár, en ástæða þess er sú
að ekki hefur fengist Eyjamaður til
verksins. Núna fékkst Eyjamaður og
þrátt fyrir nokkra þoku, þegar sá dag-
skrárliður var, tókst sigið mjög vel.“
Aukin gæsla skilar árangri
gegn fíkniefni
Eitt þeirra vandamála sem iðulega
hafa fylgt útihátíðum, er notkun ólög-
legra vímugjafa, hvað segir Birgir um
slfkt að lokinni þessari þjóðhátíð?
„Fjöldi mála tengd fíkniefnum var 17
á þessari hátíð, en að sama skapi vom
þau ekki stór. Ég er ekki í vafa um að
aukin gæsla og afmörkun svæðisins
ÞJÓÐHÁTÍÐARTJÖLDIN setja alltaf sterkan svip á þjóðhátíðina og að mati sumra FYLGST með flugeldasýningunni. Arnar og Elfa horfa stóreygð á ljósadýrðina sem
er hvergi meira fjör. Halli Steini og hans fólk er á þeirri skoðun. birtist í flugeldunum.