Fréttir - Eyjafréttir - 10.08.2000, Side 9
Fimmtudagur 10. ágúst2000
Fréttir
9
□tíðarinnar og hann er
ánægður með hvernig til tókst að þessu sinni:
gbúin að sanna
j fjölskylduskemmtun á Islandi
með girðingu eykur líkur á því að sl£k
mál komist upp. Það voru fleiri
fíkniefnalögreglumenn núna en verið
hafa áður og þeir voru með tvo hunda
sér til aðstoðar í stað eins áður. Það er
alltaf verið að herða þetta eftirlit og
það er greinilega að skila sér. Við
vitum að auðvitað er þessi eitur-
lyfjaviðbjóður alltaf til staðar og er
lörmung að þurfa að fá þetta inn á
rjóðhátíð. En lögreglan lagði sig alla
'ram og náði þessu. Fyrir þjóðhá-
íðina var gerð leit hjá fólki í
íeykjavík á leið á þjóðhátíð.“
Það vekur einnig athygli að ekkert
rauðgunarmál kom upp á hátíðinni?
„Já það vekur athygli okkar og er
mjög ánægjuleg frétt, því við höfum
staðið í basli með slík mál undanfarin
ár. En eins og ég segi, fólkið sem kom
á þjóðhátíðina, kom til þess að
skemmta sér en ekki til þess að verða
sér til skammar. í þessum málum er
aukin gæsla líka að skila sér og
vonandi verður áframhald á ánægju-
legum fréttum sem þessum.“
Trú á unga fólkinu
Birgir sagði að hann vissi ekki um
kærumál sem komið hefðu til kasta
lögreglu. „En auðvitað eru alltaf ein-
hveijir pústrar. Ég var nú mikið á vakt
á hátíðinni og fannst reyndar nokkuð
skrítið að aldrei varð ég vitni að
neinum slagsmálum inni í Dal í öllum
þessum Qölda. Ég held að unga fólkið
sé jafnvel orðið miklu siðmenntaðra
en eldri kynslóðin var í gamla daga.
Það voru reyndar ein slagsmál sem ég
varð vitni að og þau voru á Húkk-
araballinu og það var eldri maður sem
þar átti í hlut. Ég er að minnsta kosti
mjög ánægður með hversu fólk var
rólegt og góð stígandi í hátíðinni. Ég
held að fólk hafí líka orðið svo ánægt
á sunnudeginum þegar komin var
alger blíða, koppalogn og sól. Þannig
að það varð ekkert vesen og þessi
þjóðhátíð er ein sú besta sem ég hef
upplifað, hvemig sem á er litið. Það er
alltaf verið að reyna að bæta
þjónustuna og umgjörð hátíðarinnar.
Það var til dæmis tekin upp muna-
gæsla íyrir nokkrum árum. Þangað
geta gestir komið með pjönkur sínar
og fengið geymdar. Með þessu er
komið í veg fyrir stuld úr tjöldum.
Við erum ekki að horfa í það, að ef
við getum bætt þjóðhátíðina og tryggt
öryggi gesta, þá kemur það til góða á
næstu þjóðhátíð. Og við munum
halda áfram á þessum nótum, hver svo
sem verður í þjóðhátíðamefnd."
Eyjamönnum þykir vænt um
sína þjóðhátíð
Hvað finnst þér um áhuga heima-
manna sjálfra á þjóðhátíð er hún söm
og áður?
„Mér finnst Eyjamenn ekkert
áhugaminni um þjóðhátíð en áður var
og að þeim þyki vænt um sína þjóð-
hátíð. Ef þeir koma ekki á þjóðhátíð,
verður engin þjóðhátíð vegna þess að
hátíðin byggist mikið upp á hvítu
tjöldunum og að íjölskyldumar komi í
Dalinn, eins og mér fannst raunin
núna. Það er kjaminn í þjóðhátíð og
er ekkert flóknara en það. Mér finnst
þjóðhátíðin hafa verið að breytast
undanfarin ljögur til fimm ár. Við
emm að bæta okkur í bamaefni, sem
ÍJ i f Tfflfi fjrBr Rjgiw (■LJPI > is2i35f$p’i
ÞEIM fjölgar hópunum sem mæta á þjóðhátíð í búningum og hefur Henson tekið upp þann skemmtilega
sið að verðlauna skemmtilegustu búningana. Að þessu sinni voru það þessar kúrekastelpur sem báru
sigur úr býtum.
skilar þá frekar fjölskyldum í Dalinn.
Við emm því frekar lausir við þá
yngstu, sem em einir á ráfi og hvað
það varðar emm við alltaf að koma
sterkari inn. Fólk er mjög ánægt með
hátíðina í ár og í íyrra, og þegar koma
svona góðar þjóðhátíðir, sem fara vel
fram, þykir öllum vænt um
þjóðhátíðina sína. Fólk sér því að hún
er að breytast í þá átt að verða fjöl-
skylduvænni og fólk hugsar með sér
að það vilji vera á þeirri næstu. Fyrir
undanfamar þjóðhátíðir hefur verið
mikil umræða um að von væri á svo
mörgum og að allt færi í vitleysu með
villuráfandi ungmenni í Dalnum.
Auðvitað höfum við fengið eitthvað af
slíkum ungmennum líka, en lög-
gæslan hefur verið mjög góð og
umgjörðin alltaf að batna. Þetta er að
skila sér í betri þjóðhátíð og ég er
mjög bjartsýnn á næstu þjóðhátíð."
Er byijað að undirbúa hana?
„Nei, við klámm þessa áður en við
fömm að pæla mikið í henni. En að
sjálfsögðu verður farið að huga að
henni í haust.“
Hlegið að mér þegar ég
segist vera að hætta
Nú hefur þú sjálfur sagt það margoft
að þú ætlaðir að hætta afskiptum af
þjóðhátíðinni, að minnsta kosti hætta í
þjóðhátíðamefnd. Einhverjar slíkar
yfrrlýsingar núna?
„Ég var búinn að lofa ljölskyldunni
því að þetta yrði sú síðasta og jafnvel
fleirum. Það hlæja allir upp í opið
geðið á mér. Það getur vel verið að ég
hlæi að öllum á næsta ári af því að þá
hætti ég. En þjóðhátíð hefur verið
hluti af lífi mínu og mér finnst alltaf
gaman að taka þátt í henni ekki síður
en undirbúningnum og atinu í
kringum þetta. Oðru vísi væri maður
ekki í þessu. Það er mjög skemmtilegt
fólk að vinna í kringum þjóðhátíð og
við höfúm haldið vel utan um hana frá
því að IBV var stofnað árið 1997.
Þetta er fjórða þjóðhátíð okkar Stebba
og Silla og frábærir strákar að vinna
með og ekki allt tóm leiðindi í
sambandi við þetta. Þannig að þetta er
PÉTUR Blöndal alþingismaður mætti á þjóðhátíð með börnum
sínum og bjó í tjaldi í Dalnum. Hér er hann í léttri sveiflu á stóra
pallinum.
sig
skemmtilegt þegar vel gengur, en eins
og ég segi veit ég ekki hvað skeður
næst.“
Lúðrasveitin skilar alltaf
sínu
Hvemig fannst þér lúðarsveitin standa
sig í ár?
„Mér fannst lúðrasveitin standa sig
mjög vel eins og alltaf og skilar alltaf
sínu. Þannig að það er engu við það
að bæta frekar. Ég fór inn í Dal
sérstaklega til þess að hlusta á
lúðrasveitina og þetta var mjög gott
hjá þeim, enda setja þeir lúðra-
sveitarmenn alltaf skemmtilegan svip
á þjóðhátíð. Þó að þessi krísa hafi
komið fyrir þjóðhátíðina núna, er það
ekkert til þess að blása út. Við erum
að semja við fjölda manns fyrir hverja
þjóðhátíð og ýmsir samningar í gangi,
svo það er engin furða þó að einhver
snurða hlaupi aðeins á þráðinn við
lúðrasveitina eins og aðra. Mér finnst
þess vegna engin ástæða til þess að
fjargviðrast út af því.“
Göngustíg í Dalinn
Eru einhver atriði sem þú vilt að betur
megi fara fyrir næstu þjóðhátíð?
„Já, það er eitt mjög mikilvægt
atriði, sem mér finnst að þurfi að vera
komið í lag fyrir næstu þjóðhátíð og
það er göngustígur inn í Dal. Það er
ekki hægt að horfa upp á það lengur
að fjöldi fólks þurfi að ganga eftir
akveginum úr og inn í Dalinn. Við
verðum að taka okkur taki og leggja
göngustíg inn í Dal fyrir næstu þjóð-
hátíð. Eins og þetta er núna býður
þetta slysahættu heim. Það yrði sorg-
legt ef slys þyrfti til að af slíkri
framkvæmd yrði.“
Verður búið að hlaða upp nýtt þjóð-
hátíðarborð fyrir næstu þjóðhátíð?
„Já ég ætla að vona það, svo menn
geti hætt þessu fíflaríi og það verður
ekki verra en það gamla borð sem
menn kölluðu þjóðhátíðarborð. Það
verður mjög veglegt og fínt og öllum
til sóma. Það er búið að skipuleggja
Dalinn frá a til ö. Þetta kostar
peninga, en það kemur að því að menn
fari að framkvæma eftir þeim
teikningum sem samþykktar hafa
verið. En tíminn einn leiðir í ljós
hvenær það verður gert.“
Birgir segist vilja þakka Vest-
mannaeyingum fyrir góða þjóðhátíð
og gestum af fastalandinu. „Það er
full ástæða til þess að þakka fólki sem
sýnir þjóðhátíðinni ræktarsemi með
því að mæta í Dalinn og skemmta sér
þar með sínu fólki. Ég hef sjaldan séð
svona margar fjölskyldur í Dalnum að
deginum til eins og nú. Við reyndum
líka að vanda til í bamadagskránni og
það er greinilega að skila sér.
Fjölskyldurnar voru að skila sér í
Dalinn snemma dagsins og í góðu
veðri er þetta frábært. Svo er fólk að
fara á milli tjalda og fá sér kaffi. Þetta
er það sem gerir þjóðhátíð að þjóð-
hátíð. Ég vil bara fyrir hönd þjóðhá-
tíðamefndar þakka gestum hátíðar-
innar fyrir prúðmannlega framkomu
og góða skemmtum og vonast til að
sjá allt þetta fólk í Dalnum á næsta
ári.“
Benedikt Gestsson