Fréttir - Eyjafréttir - 10.08.2000, Side 13
Fimmtudagur 10. ágúst 2000
Fréttir
13
Á þjóðhátíð yfir hálfan hnöttinn
-í boði vina og vandamanna
LÚÐVÍK og Lillý: -Núna getum við sýnt tengdasonunum hvað það er sem er svona heillandi við
þjóðhátíðina.
Þeir gestir sem trúlega hafa verið
lengst að komnir á þjóðhátíð eru
heiðurshjónin Lillý Jóhannesdóttir
og Lúðvík Sigurðsson sem komu
alla leiðina frá Sidney í Ástralíu.
Þau skemmtu sér konunglega og
hefðu ekki viljað fyrir nokkurn
pening viljað sleppa því að ferðast
um hálfan hnöttinn til að mæta í
Dalinn. Það sérstaka við ferðalagið
er að þeim var boðið til Islands af
fjölmörgum Islendingum sem þau
hafa rétt hjálparhönd í Ástralíu.
Lillý og Lúðvík, sem bjuggu í Vest-
mannaeyjum, tluttu ásamt fjölda
Islendinga til Ástralíu í kreppunni
1968 og settust að í Olympíuborginn
Sidney þar sem þau búa enn þann dag
í dag. Þau eiga fjögur böm, Jóhannes
er 44 ára, Hlöðver 42, Marta 37 og
Margrét 32 ára. Bamabömin em 11 og
langömmubörnin 3 og öll búa þau í
Ástralíu. „Við komum síðast fyrir sex
ámm og lentum þá líka á þjóðhátíð,"
segir Lillý.
„Við höfum reynt að heimsækja
gamla landið reglulega á fímm til sex
ára fresti en það var ekki ætlunin að
koma í ár. Eg varð sextug á árinu og af
því tilefni fómm við hjónin í siglingu
um Kyrrahafið með viðkomu á mörg-
um Kyrrahafseyjum. Þegar við
komum heim var þrisvar hringt í mig
og ég spurð að því hvort ég hafi kíkt á
póstinn í tölvunni minni. Eg lét verða
af því að kveikja á tölvunni og þá
blasir við mér bréf til mín þar sem
okkur Lúðvík er boðið til Islands.
Fyrstu viðbrögð vom að ég byrjaði að
hlæja. Eg sá svo að þetta var fúlasta
alvara og hér emm við mætt.“
Alls standa um 50 manns að
gjöfinni og hafa flestir þeirra á ein-
hvem hátt notið gestrisni eða aðstoðar
Lillýjar og Lúðvíks á ferðum sínum í
Ástralíu. „Þau sem safna fyrir ferða-
laginu em ekkert skyld okkur en
seinna komu systkini okkar að
söfnuninni. Eg var svo þakklát og
ánægð að ég held að ég hafi grenjað í
heila viku á eftir,“ segir Lillý og hlær.
„Það er algjört æði að hafa komist á
þjóðhátíðina sem var stórkostleg í ár.
Svo eigum við hana alla á spólu sem
Simmi Gísla gaf mér. Tengdasynir
okkar hafa mikið heyrt þjóðhátíð og
eru alveg veikir, þá langar svo að
koma og núna get ég sýnt þeim hvað
það er sem er svona heillandi við
þjóðhátíðina."
Það er ekki að heyra á Lillý og
Lúðvík að þau hafí búið rúmlega þijá
áratugi í útlöndum. Þau tala mjög
góða íslensku og reyndar betur en
margur sem hefur búið hér alla sína
tíð. Og þau íylgjast vel með því sem er
að gerast í Vestmannaeyjum. „Við
kaupum Fréttir og það hjálpar ekki
lítið við að fylgjast með fólkinu í
Eyjum. Tölvan hjálpar mikið því í
gegnum Netið er maður svo nálægt þó
ijarlægðin sé mikil á landakortinu. Þá
leggjum við áherslu á að viðhalda
íslenskunni.“
Lillý og Lúðvík fóru frá Eyjum á
mánudaginn og ætla að dvelja í
Reykjavík í viku áður en þau halda til
Ástralíu. „Nú eru Olympíuleikamir í
Ástralíu á næsta leiti en þeir byrja 15.
september. Það er mikið verk fram-
undan og sem varaformaður íslend-
ingafélagsins hef ég í mörg horn að
líta þegar við komum út því félagið
kemur að móttöku íslenska olympíu-
liðsins. Annars eru Olympíuleikarnir
það besta sem komið hefur íyrir borg-
ina því hún er orðin svo falleg. Allur
undirbúningur hefur gengið mjög vel
og eru þeir þó nokkuð á undan
áætlun.“
Að lokum sögðust Lillý og Lúðvík
vilja koma á framfæri jiakklæti til allra
sem buðu þeim til Islands og ekki
síður eru þau þakklát fyrir frábærar
móttökur.
ÞÓR Vilhjálmsson formaður ÍBV-íþróttafélags og Árni Johnsen
voru klæddir í sitt fínasta púss við setninguna.
BARNADAGSKRÁIN var góð á þjóðhátíðinni og þar er söngva-
keppni barna fyrirferðarmikil. Hún María Birgit Gala, 8 ára úr
Hafnarfirði, sigraði í yngri flokknum.
PÁLL Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2, flutti hátíðarræðuna í ár.
HRÓI höttur mætti í Dalinn í nokkrum eintökum.
Spurt er.
Prófaðir þú
við timbur-
monnum a
Knstmann Karlsson stor-
kaupmaður:
’ „Nci, ég þurfti ckki
á slíku að halda."
Tómas Sveinsson, matreiðslu-
maður:
___________ „Nei, enda smakk-
aði ég það ekki. var
að vinna alla
þjóðhátíðina og því
ósköp lítið timbr-
aður. En einhver
sagði mér að þetta
hefði selst upp."
Hólmfríður Ólafsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur:
' „Nei, þurfti ekki á
því að halda og
þekki engan sem
prófaði það. En mér
var sagt af einum
sem ældi einhver
ósköp eftir slíka
inntöku, kannski á
það bara að vera svoleiðis, það sé
hluti af verkun lyfsins."
Halldór Halldórsson, sjúkrahús-
ráðsmaður:
_ „Nci. ég þorði það
abyggilega orðið
veikur af því. Svo
hef ég ekki nokkra
trú á svona undra-
lyíjum og lield að
lýsið sé langtum
betra. Einn gúlsopi áðuren maður
fer inneftir og svo annar áður en
maður fer að sofa. Það klikkar
ekki.“
Magnús Sveinsson Klctti:
„Nei, og þurfti ekki
á því að halda."
Ómar Garðarsson, Fréttum:
„Já, en ég veit ekki
hvort það hafði
nokkur áhrif. Enda
var þetta afskaplega
lítið sem ég innbyrti
og seint byrjað (eins
i -v i ogminnervani)svo
að það er líklega
ekkert að marka."