Fréttir - Eyjafréttir - 10.08.2000, Blaðsíða 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 10. ágúst 2000
Landa-
KIRKJA
- lifandi samfélag!
Fimmtudagur 10. ágúst:
Kl. 14.30. Helgistund á Heil-
brigðisstofnuninni, dagstofu 3.
hæð. Sr. Þórey Guðmundsdóttir
verður gestaprestur og annast
helgistundina. Heimsóknargestir
hjartanlega velkomnir.
Laugardagur 12. ágúst:
Kl. 11.00. Útfararguðsþjónusta
Sigurgeirs Ólafssonar Vídó.
Sunnudagur 13. ágúst:
Kl. 11.00. Messa með altarisgöngu.
Af því að margir Eyjamenn em í
orlofi núna eru þeir sem þó eru
heima hvattir til að mæta og bjarga
messusókninni. Kaffisopi á eftir í
Safnaðarheimilinu.
Hvíta-
SUNNU-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Biblíulestur
Laugardagur
Kl. 20.30 Bænasamkoma
Sunnudagur
Kl. 11.00 Vakningarsamkoma
Allir hjartanlega velkomnir
Hvítasunnukirkjan
Aðvent-
KIRKJAN
Laugardagur 12. ágúst
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Biblían
talar
sími
481-
1585
LEIKSTJÓRINN Sveinn Magnús Sveinsson og Gunnar Sigurðsson, framleiðslustjóri
Tökur að hefjast
á Pysjuþjófnum
Yngri flokkar
Annar
flokkur
að missa
flusið
Annar flokkur karla sem hefur
staðið sig hvað best af yngri
flokkum IBV virðist nú vera að
missa af fslandsmeistaratitlinum en
liðið var lengi vel í efsta sæti A-
riðils en hefur nú tapað þremur
leikjum í röð og hefur misst
Fylkismenn, efsta lið riðilsins fimm
stigum fram úr sér en Fylkismenn
eiga einn leik til góða.
Síðastliðið þriðjudagskvöld mætti
liðið Skagamönnum á Hásteins-
vellinum en fyrri leik liðanna upp á
Skaga endaði með 2-3 sigri IBV. En
Skagamenn náðu fram hefndum og
sigruðu í leiknum með sömu marka-
tölu. Leikurinn fór fram við frekar
erfiðar aðstæður, suekkingsvindur var
á annað markið og blautt. En þrátt
fyrir að leika með vindinn í bakið
lentu strákamir undir 0-1 en staðan í
hálfleik var 1-2 fyrir gestina. ÍBV
spilaði ágætlega í leiknum en þrátt
íýrir það náðu þeir aðeins að bæta við
einu marki ásamt því sem LA skoraði
í seinni hálfleik og því fór sem fór.
Mörk IBV: Gunnar Heiðar og Unnar
Hólm.
Eins og getið var í Fréttum fyrr í
sumar, standa fyrir dyrum tökur á
mynd sem bera mun heitið
Pysjuþjófurinn. Plúsfilm sér um
tökurnar en þetta er samstarfs-
„Vestmanna
eyjar eru
ógnvekjandi
staður"
Á vefsíðu Soccernet síðastliðinn
þriðjudag er birt viðtal við David
Winnie um væntanlegan leik IBV
og skoska liðsins Hearts í
forkeppni Evrópukeppni
félagsliða sem fara mun fram í
kvöld á Laugardagsvellinum.
Winnie leikur nú með KR en lék
áður með Dundee og Aberdeen.
Winnie er í viðtalinu með ýmsar
skondnar skýringar á því hvers
vegna leikurinn fer fram á
Laugardalsvellinum en ekki á
Hásteinsvelli, heimavelli IBV.
Winnie segir meðal annars að
vegna þessa muni IBV eiga undir
högg að sækja gegn Hearts. „Þar
sem leikurinn fer fram í Reykjavík
mun það veita Hearts meðbyr,
vegna þess hversu erfltt er að leika
í Vestmannaeyjum. Á heimavelli
er ÍBV miklu sterkara.“
Og Winnie heldur áfram.
„Vestmannaeyjar eru mjög
ógnvekjandi staður. Völlurinn er
á milli tveggja stórra fjalla og þar
sem nýlega hafa orðið miklir
jarðskjálftar á Suðurlandi sem
náðu allt að 6,5 stigum á Richter,
og fundust vel í Eyjum hefði stjórn
Evrópukeppninnar aldrei leyft að
leikirnir færu fram þar.“
Segir Winnie að eftir síðasta
jarðskjálftann hefði grjót fallið á
völlinn og að menn óttuðust að
helmingur fjallanna myndi hrynja
yfir hann. „Eyjarnar eru á virku
eldfjallasvæði og þess vegna mjög
næmar fyrir öllum titringi. En
þar sem ákveðið hefur verið að
flytja leikinn til Reykjavíkur þurfa
leikmenn Hearts ekki að óttast
slíkt ofanflóð úr fjöllum.“
verkefni 17 Evrópuþjóða, ein mynd
gerð í hverju landi, og verða
myndirnar sýndar í sjónvarpi í
öllum löndunum.
Leikstjóri og framleiðandi er Sveinn
Magnús Sveinsson hjá Plúsfilm, en
hann var hér á ferð fyrr í sumar við að
velja leikendur og kanna aðstæður.
Með honum núna er í för Gunnar
Sigurðsson, framleiðslustjóri sem
einnig mun leika bæjarstjórann í
Vestmannaeyjum. Á sunnudag er svo
væntanlegt hingað aðalgengið með
ljósabúnað, krana og fleira en alls
verða átta manns í tökuliðinu.
I gær voru þeir Sveinn Magnús og
Gunnar önnum kafnir við að velja þtjá
aðalleikendur úr hópi 20 krakka og
auk þess aukaleikara. Þeir báðu um
að koma á framfæri að þá vantar
gamalt reiðhjól, helst ljótt og illa farið
en ökuhæft. Þá vantar einnig kassabíl
auk þess sem þeir óska eftir aðstoð
pysjusafnara við tökur á myndinni.
Þeir sem vildu sinna þessu geta hringt
ísíma 893 9038.
Þeir félagar vildu þakka fyrir einkar
góðar viðtökur í Eyjum, allir væru
reiðubúnir til aðstoðar og hefðu tekið
öllu þeirra kvabbi einkar ljúflega.
„Kannski er það vegna þess að ég er
ættaður úr Eyjum og menn hafa
kannast við svipinn,“ sagði Sveinn
Magnús. Tökur hefjast í dag og verði
veður hagstætt er ráð fyrir gert að
þeim ljúki upp úr miðri næstu viku.
Árangurinn fáum við svo væntanlega
að sjá í sjónvarpinu í vetur.
Stelpumar
Annar flokkur kvenna keppti á
miðvikudaginn gegn Val og fór
leikurinn fram í Reykjavík. Stelp-
umar hefðu með sigri getað strítt
Valsstúlkum sem eru í efsta sæti A-
riðils. IBV á hinsvegar tvo leiki inni
á Val en þar sem níu stig em í efsta
sætið verður að telja möguleika
liðsins á meistaratign hverfandi.
Leikurinn tapaðist 2-1 en mark ÍBV í
leiknum skoraði Kelly Shimmin.
Stelpumar mættu svo Val í
undanúrslitum bikarkeppninnar hér í
Eyjum en úrslit vom ekki kunn þegar
blaðið fór í prentun. Sömu sögu er að
segja um leiki 4. flokks kvenna sem
kepptu einnig gegn Val í gær.
Á flugi í Herjólfsdal
ÍÞRÓTTIR unglinga eru að ná fótfestu á þjóðhátíð á ný. Keppt hefur verið í frjálsum írþóttum undir
stjórn Ungmennafélagsins Óðins og Fimleikafélagið Rán hefur boðið upp á sýningu. Hér er Þórsteina
Sigurbjörnsdóttir í Rán á flugi yfir höfðum fjölmargra gesta sem fylgdust nieð.