Fréttir - Eyjafréttir - 10.08.2000, Qupperneq 15
Fimmtudagur 10. ágúst 2000
Fréttir
15
Landssímadeild karla: Keflavík 1 - ÍBV 2
Hlynur halar inn stinin
Eyjamenn voru ákveðnir í að
þjófstarta Þjóðhátíðinni þegar IBV
fór til Keflavíkur og keppti gegn
heimamönnum í þrettándu umferð
Landssímadeiidar karla á fimmtu-
dagskvöldið. Hlynur Stefánsson
sýndi ailar sínar bestu hliðar í
leiknum og tryggði iiðinu enn og
aftur sigurinn með marki eftir
aukaspyrnu Momirs Mileta, en sá
síðarnefndi lagði upp bæði mörk
ÍBV. Lokatölur urðu 1-2 útisigur
og virðist liðið vera á góðri siglingu
um þessar mundir.
Það hefur oft einkennt lið ÍBV,
bæði í handbolta og fótbolta að þegar
síga fer á seinni hluta íslandsmótsins
verða liðin nánast óstöðvandi. Þannig
virðist það ætla að verða í sumar með
meistaraflokk karla og ef frá er talinn
ósigurinn gegn Stjömunni á útivelli er
liðið að spila besta fótboltann af þeim
tíu sem skipa Landssímadeildina. En
leikurinn fór fjörlega af stað og liðin
skipmst á að sækja.
Eftir tíu mínútna leik komst Momir
upp í vinstra homið, leit upp og sendi
beint á fætuma á Steingrími Jóhannes-
syni sem brást ekki bogalistin og kom
ÍBVíO-1.
Eftir þetta sóttu Keflvíkingar nokk-
uð stíft á meðan ÍBV beitti skyndi-
sóknum. Birkir Kristinsson stóð sína
vakt af prýði ásamt því að vamarmenn
ÍBV sáu til þess að Keflvíkingar
skomðu ekki mark í fyrri hálfleik.
Seinni hálfleikur var ekki síðri en sá
fyrri. Keflvíkingar jöfnuðu um miðj-
an hálfleikinn eftir að hafa haft
undirtökin framan af. En Hlynur
Stefánsson fyrirliði tryggði liðinu þrjú
mjög dýrmæt stig þegar hann setti
boltann í netið af stuttu færi eftir
aukaspymu Momirs Mileta. Stuttu
áður hafði Páll Almarsson átt hörku-
skalla að marki sem markvörður
Keflvíkinga varði í hom og hinum
megin áttu Keflvíkingar m.a. skot í
stöng.
En 2-1 sigur IBV var staðreynd og
liðið þar með komið í annað sæti
deildarinnar með 23 stig en
Fylkismenn, sem eiga leik til góða á
ÍBV em með 26 stig. Útlitið virðist
því vera öllu betra en fyrir um mánuði
þegar liðið var um miðja deild og
virtist vera að missa af toppbaráttunni.
í leiknum vantaði þá Hjalta
Jóhannesson og Tómas Inga Tómas-
son sem báðir vom meiddir. Tómas
Ingi á við tognun að stríða en talið er
að hann verði klár í slaginn gegn
Hearts í kvöld. Hjalti meiddist hins
vegar nokkuð illa á æfingu á
miðvikudagskvöld og er nokkuð ljóst
að hann spilar ekki meira með í
sumar. Hjalti reif vöðva í læri lítillega
en það blæddi inn á vöðvann sem
gerir málið erfiðara og því verður
IBV að sjá á eftir bæði bakverði og
kantmanni enda Hjalti með ein-
dæmum sókndjarfur á vinstri
kantinum.
Keflavík 1 - ÍBV 2
ÍBV spilaði 4-4-2
Birkir Kristinsson, Páll Guð-
mundsson, Hlynur Stefánsson,
Kjartan Antonsson, Páll Almarsson,
Momir Mileta, Hjalti Jónsson, Bjami
Geir Viðarsson, Ingi Sigurðsson,
Goran Aleksic, Steingrímur Jóhann-
esson.
Varamenn sem komu inná: Baldur
Bragason og Jóhann Möller.
Mörk ÍBV: Steingrímur Jóhann-
esson á 10. mínútu eftir sendingu
Momirs Mileta
Hlynur Stefánsson á 84. mínútu eftir
sendingu Momirs.
HLYNUR fór fyrir
sínum mönnum af
mikilli röggsemi.
Stjórnaði vörninni eins
og hershöfðingi og brá
sér í sóknina þegar
mikið lá við. Það
skilaði einu marki og
þremur stigum í
jöfnum og
skemmtilegum leik.
uhtsiv
Knattspyma karla: Mikilvægir leikir framundan
Evrópuleikur í kvöld
-og Valur í bikarnum á sunnudaginn
ÍBV mætir skoska Iiðinu Hearts í
Evrópukeppni félagsliða á í kvöld
en leikurinn fer fram á Laugar-
dalsvellinum í Reykjavík. Eins og
allir vita hefur Hásteinsvöllur verið
á undanþágu hjá Evrópska knatt-
spyrnusambandinu og því mætast
liðin á Laugardalsvellinum.
Ingi Sigurðsson, leikmaður IBV
sagði í samtali við Fréttir að honum
litist mjög vel á að mæta Hearts í
kvöld. „Það er alltaf gaman að taka
þátt í Evrópukeppninni og ég býst
ekki við að það verði neitt öðruvísi í
ár. Við munum að sjálfsögðu fara í
leikina til þess að vinna þá en við
vitum hins vegar að Hearts er þriðja
sterkasta lið Skotlands og hefur
komist næst því að narta í hælana á
stórveldunum skosku, Celtic og
Rangers. En við ætlum að láta þá hafa
fyrir þessu og ekki gefa tommu eftir.
Þeir munu sjálfsagt spila nokkuð hart,
eins og flest lið á Skotlandi gera en þá
er bara að láta hart mæta hörðu.“
-En nú verður leikurinn á Laugar-
dalsvellinum, er völlunnn og umgjörð
hans ekki of stór fyrir ÍBV ?
„ Nei, nei. Við höfúm margir spilað
nokkrum sinnum þama, bikarúrslita-
leik og svo á móti Stuttgart fyrir
tveimur árum þannig að ég kvíði því
ekki að spila á Laugardalsvellinum.
Ég tala nú ekki um ef það verður vel
mætt á leikinn þá verður þetta bara
ennþá skemmtilegra. Hins vegar er
ömgglega hálffúlt að spila fyrir
tómum Laugardalsvellinum en líklega
þurfum við ekki að kvíða því. Við
ætlum okkur bara að komast áfram.
Við emm taldir lakara liðið í þessu og
ég tel það vera ágætt en það hefur
hentað IBV best í gegnum árin að vera
að spila gegn fyrirfram áætluðum
sterkari liðum. En við munum að
sjálfsögðu ekkert gefa eftir í þessu."
Bikarleikurinn
Svo er leikur í átta liða úrslitum í
bikamum gegn Val á sunnudaginn,
em menn eitthvað famir að velta þeim
leik íyrir sér ?
„Nei, ég held að það sé óhætt að
segja að menn séu nánast ekki neitt
famir að velta sér upp úr þessum leik.
Við emm bara að einbeita okkur að
næsta leik sem er evrópuleikurinn, við
ætlum að standa okkur þar og svo
tökum við bara næsta verkefni."
Valsmenn hafa verið á ágætri siglingu
í sumar og bara tapað tveimur leikjum
í I. deildinni, búast menn ekki við
erfiðum leik ?
, Jú, að sjálfsögðu munu þeir mæta
grimmir í leikinn en það breytir engu
hver mótherjinn er þegar komið er
þetta langt í keppninni. Þetta er bara
einn leikur og hann verður að vinna.
Aðalmálið var að fá heimaleik og við
fengum hann, nú verðum við að nýta
okkur það. Við munum ekki vanmeta
Valsliðið því við vitum að við eigum
að geta gert ágæta hluti í þessari
bikarkeppni og við þurfum bara að
standa við það.“
ÍBV býður upp á pakkaferðir á
leikinn í samráði við Heijólf en einnig
verður hægt að kaupa miða í forsölu
hjá Herjólfi, í Skýlinu og bensín-
stöðvum Esso í Reykjavík. Miðaverð
á Ieikinn er 1000 kr. í forsölu, annars
1200 en fyrir böm kostar miðinn í
forsölu 300 en annars 500 á leiknum
sjálfum. Leikurinn átti að hefjast
klukkan átta en vegna sjónvarps-
útsendingar til Skotlands mun hann
hefjast klukkutíma fyrr, eða klukkan
19.00.
KFS í úrslit
Fulltrúar Vestmannaeyinga í 3.
deild karla, KFS, tryggðu sér sæti í
úrslitakeppni deildarinnar í fyrsta
skipti í sögu félagsins og reyndar í
fyrsta skipti í sögu beggja félag-
anna, Framherja og Smástundar,
þegar liðið sigraði Reyni frá
Sandgerði í hörkuviðureign. KFS
vann leikinn 2-1 og þarf þvf aðeins
jafntefli úr síðasta leik til að tryggja
sér efsta sætið í riðlinum og fá þar
með auðveldari mótheija í 8-liða
úrslitum.
Eins og áður sagði var um að
ræða hörkuviðureign enda Sand-
gerðingar þekktir fyrir margt annað
en prúðmennsku á vellinum.
Dómari leiksins, heimamaðurinn
Leiknir Ágústsson, var í stökustu
vandræðum með að halda aftur af
leikmönnum enda fór svo að
Jóhann Sveinn Sveinsson, leik-
maður ÍBV sem er í láni hjá KFS
fór meiddur af leikvelli eftir grófa
tæklingu gestanna og er jafnvel
óttast að hann hafi skaðað liðbönd í
ökla.
En þó að KFS missti jafn sterkan
leikmann og Jóhann útaf þá virtist
það ekki koma að sök og leikurinn
hélst í jafnvægi. Heimamenn
skomðu fyrsta mark leiksins og þar
var að verki markahrókurinn Sindri
Grétarsson og var hann þar með að
skora sitt tíunda mark í þremur
leikjum. Staðan í hálfleik var 1-0
og ljóst að seinni hálfleikur yrði
hörkuspennandi.
Þrátt fyrir að heimamenn væru
með undirtökin jöfnuðu gestirnir
fljótlega og leikurinn því galopinn.
En Sindri var ekki sáttur við að gera
jafntefli og skoraði hann sigur-
markið þegar um 15 mínútur lifðu
eftir af leiknum. KFS hélt sínum
hlut og hefði jafnvel getað bætt við
fleiri mörkum en inn vildi tuðran
ekki og eins marks sigur liðsins því
staðreynd.
ÍBV mætir
búlgörsku liði
Dregið hefur verið dregið í
Evrópukeppni félagsliða í hand-
knattleik og ljóst að kvennaliðs ÍBV
bíður nokkuð strembið ferðalag.
Liðið mætir búlgarska liðinu Pirin
Blagoeygrad og fer fyrri leikurinn
fram í Búlgaríu fyrstu helgina í
október en seinni leikimir viku
seinna hér í Eyjum.
I samtali við Fréttir sagði
Þorvarður Þorvaldsson í handknatt-
leiksráði að líklega yrði reynt að
kaupa útileikinn til Eyja og spila
báða Ieikina hér. Ef það gengi ekki
eftir þá væri möguleiki að reyna að
spila báða leikina úti en Þorvarður
sagði að það yrði síðasti kostur að
spila heima og heiman.
Erlendur leikmaður, sem ÍBV
hefur haft undir smásjánni, mun að
öllum líkindum ganga til liðs við
ÍBV.
Framundan
Fimmtudagur 10. ágúst
Kl. 19.00 Laugardalsvöllur ÍBV-
Hearts Evrópukeppni félagsliða
Föstudagur 11. ágúst
Kl. 19.00 ÍBV-ÍA Landsímadeild
kvenna
Sunnudagur 13. ágúst
Kl. 18.00 ÍBV-Valur bikarkeppni
kai la 8-liða úrslit
Mánudagur 14. ágúst
Kl. 19.00 Fram-ÍBV 2.11. karla
Kl. 18.00 Stjama-ÍBV 3. fl. kvenna
Þriðjudagur 15. ágúst
Kl. 19.00 Grindavík-ÍBV 2. fl.
kvenna