Fréttir - Eyjafréttir - 10.08.2000, Side 16
HAGLEIKSMAÐURINN Tryggvi Sigurðsson skilaði í síðustu viku líkani af Sigurði VE 15, flaggskipi
ísfélagsins í hendur Sigurði Einarsssyni forstjóra félagsins. Sigurður VE er eitt mesta aflaskip í allri
útgerðarsögu íslands og hefur skilað á land vel á annarri milljón tonna frá því hann kom til landsins, 1.
september 1960. Líkanið er mikil listasmíð og á eftirað sóma sér vel í höfuðstöðvum ísfélagsins.
Kom til að skemmta sér
-segir Karl Gauti, sýslumaður
Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum,
segist mjög ánægður með hvernig til hafi tekist í
löggæslumálum á þjóðhátíð í ár.
„Þetta gekk allt samkvæmt áætlun enda kunna menn orðið
vel til verka, og engin meiri háttar óhöpp sem upp komu.
Við lögðum mikla áherslu á leit að fíkniefnum og
árangurinn varð eftir því, eða um helmingi meira magn en
gert var upptækt í fyrra. Það ár var líka helmings aukning
frá árinu þar áður sem segir okkur að neysla þessara efna
virðist vaxandi. Það má segja að þetta hafi ekki komið
okkur á óvart, þetta var svipað og við áttum von á. I
heildina erum við mjög sáttir við gang mála á þjóð-
hátíðinni, fólk virðist hafa komið hingað í þeim tílgangi að
skemmta sér en ekki að vera til vandræða og auðvitað
gieðjast allir yfir því,“ sagði Karl Gauti.
Rútuferðir - Bus tours
ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
®4811909-896 6810-fax 4811927
Hörmulegt
flugslys
Kl. 20.30 á mánudagskvöld varð
hörmulegt flugsiys þegar flugvél,
sem var að koma frá Eyjum, fórst á
Skerjafirði.
I flugvélinni, eins hreyfils vél,
Cessna 210, frá Leiguflugi ísleifs
Ottesen, voru fimm farþegar auk
flugstjórans. Allir voru farþegamir á
leið heim eftir að hafa verið á þjóð-
hátíð í Eyjum. Vélin ienti í sjónum
eftir að drapst á hreyfli hennar en ekki
er með vissu vitað um ástæður þess að
hreyfillinn misstí afl.
Flugmaðurinn og tveir farþeganna
létust í slysinu en þrjá tókst að lífga
við og voru þeir enn í lífshættu í gær
þegar þetta er skrifað.
Bjami Halldórsson, flugumferð-
arstjóri í Vestmannaeyjum, segir að á
mánudagskvöld, þegar flugvélin fór
héðan, hafi ekkert verið að veðri enda
mun slysið ekki tengjast veður-
farslegum aðstæðum. Síðasta vél,
sem fór frá Eyjum á mánudag, var
Fokkervél frá Flugfélagi fslands sem
héðan fór um miðnættí.
Vestmannaeyingar tóku slysið nærri
sér enda um gesti þeirra að ræða. Sást
þetta best af því að víða var flaggað í
hálfa stöng í Eyjum á þriðjudaginn.
Sameining í biðstöðu
Sameiningarmál ísfélagsins og
Vinnslustöðvarinnar eru í biðstöðu
þessa stundina.
Þau mál virtust að mestu frágengin í
júlí en á stjómarfundi hjá Vinnslu-
stöðinni, sem haldinn var rétt fyrir
þjóðhátíð, var ákveðið að bíða aðeins
með næstu skref.
Samkvæmt heimildum Frétta þýðir
þetta ekki að nein breytíng sé fyrir-
sjáanleg á samrunaferlinu. Á þessum
fundi vom lögð fram drög að sam-
runaáætlun, þau drög vom sumir
stjómarmanna að sjá í fyrsta sinn og
þóttí eðlilegt að þeir fengju tíma tíl að
kynna sér þau betur. Því var ákveðið
á fundinum að gefa mönnum tíma til
að fara vel yfir stöðuna sem ætti vænt-
anlega að vera ljós á næsta stjómar-
fundi.
Stóraukin sala á bjór
Sala á áfengi var með líflegasta móti fyrir þessa þjóðhátíð. Sveinn
Tómasson, ríkisstjóri í Vestmannaeyjum, segir að salan fyrir þjóðhátíð hafi
aukist um 25% milli ára.
Áfengi seldist í útsölunni í Vestmannaeyjum fyrir um 20 milljónir króna fyrir
þjóðhátíð að þessu sinni og væntanlega hafa gestir af meginlandinu komið með
vænan slurk af guðaveigum með sér. Sveinn segir að aukningin komi aðallega
frarn í bjómum, lítil aukning hafi verið í sölu sterkra drykkja ef þá nokkur.
Vikutilboð*
*vikuna 10.- 16. ágúst
Homeblestm
129,- áSur 169,-
Irópi 3x1/4 Itr
169,- áSur 199,-
SmMissWpr.
349,- áður 439,-
ll/lcl/ities Sevilia kex
135,- áíurlBB,-
ISE
221,- átur 269,-
Minslrels225gr.
199,- áður 246,-
Tetlfpops
99,- áður 129,-
MBM Choco 250gr.
219,- áður2BI,-