Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2000, Page 13

Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2000, Page 13
'immtudagur 7. desember 2000 Fréttir 13 Sturla Böðvarsson samgönguráðherra skrifar: Staðreyndir um Herjólfsmál Þegar álit Kærunefndar útboðsmála lá fyrir sendi fjármálaráðuneytið álitið til Vegagerðarinnar og þá fyrst var gengið frá undirritun samnings. Það og fleira virðist hafa farið framhjá talsmönum Heijólfs í tilraunum sínum til að ófrægja Vegagerðina og samgönguráðherra. Vegagerðin og ekki síður samgönguráðherra virðist hafa átt að þeirra mati að víkja til hliðar öllum reglum og vönduðum vinnubrögðum sem settar eru í þágu ríkissjóðs, þeirra sem gera tilboð og um leið í þágu þeirra sem eiga að njóta þjónustu feijunnar Herjólfs í þessu tilviki. Til slíkra vinnubragða munu þeir ágætu menn ekki þvinga mig. Að undanfömu hafa risið deilur vegna útboðs á rekstri Heijólfs. Spjótum hefur verið beint gegn mér. Helur mátt lesa í Frétmm harkalegri viðbrögð en efni standa til og í raun hreinar árásir. Hafa hin breiðu spjót ekki verið spömð. Af því tilefni vil ég gefa lesendum Frétta stutt yfirlit um stað- reyndir málsins. 1. Árið 1993 fól þáverandi sam- gönguráðherra Vegagerðinni að sjá um rekstur feija og leita hagkvæmustu leiða við rekstur þeirra, þar á meðal með útboði. Rekstur Grímseyjar- feijunnar Sæfara var boðinn út þegar í framhaldi þessarar ákvörðunar. Með útboði þeirrar ferju lækkaði kostnaður ríkisins verulega. Hefur rekstur Sæfara gengið með ágætum, og ánægja ríkt með þjónustu feijunnar. Á þessum tíma kom ekki til útboðs á rekstri Herjólfs og Baldurs vegna andstöðu forsvarsmanna Herjólfs. Utboði var því frestað. I stað þess var gerður samningur um rekstur Hetjólfs sem gilti til ársloka 1999. I grundvallar- atriðum var eins staðið að málum gagnvart Baldri. Öllum mátti vera ljóst að stefnt var að útboði rekstursins að samningstímanum loknum. Enda verður að telja með öllu óeðlilegt að enginn hvati sé til rekstrarhagræðingar hjá fyrirtækjum sem njóta jafnhárra styrkja úr ríkissjóði og ferjufyrirtækin hafa gert. 2. Þegar ég tók við ráðuneyti sam- göngumála lá fyrir að undirbúa útboðið. Var sá undirbúningur settur af stað um mitt sumar 1999. Eftir viðræður við forsvarsmenn Heijólfs var þeim gefinn enn lengri aðlög- unartími sem nam einu ári og var ákveðið að útboðið miðaði við að samningur á grundvelli útboðs tæki gildi í ársbyrjun 2001. Ákveðið var að láta sama gilda um Breiðafjarðar- feijuna Baldur. 3. Rekstur ferjusiglinga í Isa- fjarðardjúpi var boðinn út án þess að athugasemdir væru gerðar. Hvað varðar Hríseyjarferjuna þá var ákveðið að fresta áformum um útboð hennar uns nýja ferjan hefði hafið rekstur. Smíði hennar og afhendingu seinkaði mikið og verulegar framkvæmdir þurfti í höfnunum svo rekstur væri tryggður. Nú er unnið að undirbúningi á útboði Sævars. 4. Vegna undirbúnings útboðs á rekstri Heijólfs var samþykkt í fjár- lögum fyrir árið 2000 heimild til að ráðstafa hlut ríkisins í Herjólfi hf. Engar athugasemdir komu fram í þinginu við afgreiðslu þeirrar heim- ildar. Að fengnu lögfræðilegu áliti var ákveðið að stjóm Heijólfs mætti gera tilboð í ferjusiglingar þrátt fyrir eignarhlut ríkisins, enda lá fyrir ein- dreginn vilji forsvarsmanna Heijólfs til þess. Sama gilti um Baldur. 5. Við gerð útboðslýsingar var leitað umsagnar bæjaryfirvalda í Vest- mannaeyjum. Leitast var við að tryggja sem best hagsmuni Eyja- manna. Gengu bæði Guðjón Hjör- leifsson, bæjarstjóri, og Ámi Johnsen, alþingismaður, mjög hart fram í því að tryggja það - svo sem eðlilegt er. Aðrir þingmenn en Ámi Johnsen höfðu engin afskipti af málinu gagnvart ráðuneytinu. Um útboð á vegum ríksins gilda skýrar reglur og lög. Samkvæmt útboðsreglum verður ekki undan því vikist að taka lægsta tilboði svo fremi að tilboðið sé metið full- nægjandi. Tilboð lægstbjóðenda, Samskipa hf., var metið gilt og fullnægjandi. 6. Eftir að tilboð vom opnuð gerðu talsmenn Heijólfs hf. harða hríð að Vegagerðinni og töldu kostnaðarmat hennar óraunhæft og að tilboð lægst- bjóðenda gæti ekki staðist. Á fundi sem ég átti með talsmönnum Heijólfs gerði ég þeim ljóst að ekki yrði undan því vikist að taka lægsta tilboði og semja við Samskip. Ef þeir efuðust um útboðið og mat á tilboðum gætu þeir leitað álits Kæmnefndar útboðs- mála. Engin loforð vom gefin af minni hálfu. Eg taldi hins vegar, miðað við aðstæður, mjög mikilvægt að Kæm- nefnd útboðsmála fengi færi á að gefa álit svo fyrir lægi hvort gengið hefði verið á rétt Eyjamanna við gerð útboðsgagna og við mat á tilboðunum. 7. Hér var komið að þeim kafla í þessu máli sem hefur orðið talsmönnum Herjólfs og fleiri sjálfskipuðum sér- fræðingum málsins tilefni til stór- felldra árása á mig. Vegna þess að tilboðsfrestur var að renna út var það skylda mín að fela Vegagerðinni að standa þannig að málum að allar regl- ur væm í heiðri hafðar og að hags- munum ríksins væri ekki fómað eða stefnt í óvissu vegna þess að tilboðs- fresturinn var að renna út. Væri ekki gengið frá samningi eða samkomulagi við Samskip áður en útboðsfrestur rynni út var lægstbjóðandi laus allra mála og Vegagerðin þannig ber að því að gæta ekki hagsmuna ríkissjóðs. Ég gaf því þau fyrirmæli til Vegagerð- arinnar að þannig yrði staðið að málum að stjóm Heijólfs gæfist færi á því að kæra til Kæmnefndar útboðs- mála en hagsmunir ríkissjóðs jafn- framt tryggðir með því að fara að útboðsreglum. Til þess að tryggja alla þætti var gert skriflegt samkomulag við Samskip um að fyrirtækið stæði við sitt tilboð en undirritun samn- ingsins væri frestað vegna kæm stjómar Herjólfs svo álit Kæmnefndar fengist og athugasemdum stjómar Heijólfs hnekkt eða fengin staðfesting á að gagnrýni á útboðið væri réttmæt. Niðurstaða Kæmnefndar útboðsmála varð sú að útboðið og mat á tilboðum var í alla staði rétt af hálfu Vega- gerðarinnar. Kæmnefndin gerði engar athugasemdir við vinnu Vegagerðar- innar. Ekkert kemur fram í áliti Kæmnefndarinnar þess efnis að skort hafi upplýsingar frá stjóm Heijólfs svo nefndin gæti tekið afstöðu til kær- unnar frá stjóm Heijólfs. 8. Eins og lesendum Frétta er væntanlega ljóst dró stjóm Herjólfs kæm sína til baka og ætlaði þannig að koma í veg fyrir að fjallað væri um útboðið af Kærunefnd útboðsmála. Allt bendir til þess að stjóm Herjólfs hafi bmgðið á það ráð þegar hún áttaði sig á því að málstaðurinn var vonlaus og ekkert annað upp úr því að hafa en kostnað sem því fylgdi að hafa lög- menn á launum við að skrifa greinargerð um mál sem fyrirfram var tapað vegna þess að Vegagerðin hafði farið að öllum reglum og lögum. Hefði þeim verið alvara þá hefðu þeir látið vinna í málinu í stað þess að kalla eftir fresti ljómm dögum eftir að þeir höfðu átt að skila inn greinargerð til nefndarinnar. Allur málatilbúnaður og framganga stjómar Heijólfs gagnvart Vegagerðinni og ráðuneytinu er stjóm og framkvæmdastjóra Heijólfs hf. til vansa. 9. Með samkomulaginu sem gert var milli Vegagerðarinnar og Samskipa var tryggt að Kæmnefnd útboðsmála fengi tækifæri til að gefa álit sitt áður en skrifað væri undir samninginn. Það var því eðlilegt að vegamálastjóri óskaði eftir áliti Kærunefndar útboðs- mála þegar stjóm Herjólfs hafði kallað aftur sína kæm. Vegamálastjóri og hans starfsmenn höfðu legið undir árásum og áttu því mikið undir því að fá staðfest að þeir hefðu unnið eðlilega að útboðinu. Eins og fram hefur komið af minni hálfu þá hefði samn- ingur við Samskip sem lægstbjóðenda verið í uppnámi hefði Kæmnefndin gert alvarlegar athugasemdir við út- boðið. Þegar álit Kæmnefndar útboðs- mála lá fyrir sendi fjármálaráðuneytið álitið til Vegagerðarinnar og þá fyrst var gengið frá undirritun samnings. Það og fleira virðist hafa farið framhjá talsmönum Heijólfs í tilraunum sínum til að ófrægja Vegagerðina og sam- gönguráðherra. Vegagerðin og ekki síður samgönguráðherra virðist hafa átt að þeirra mati að víkja til hliðar öllum reglum og vönduðum vinnu- brögðum sem settar em í þágu ríkissjóðs, þeirra sem gera tilboð og um leið í þágu þeirra sem eiga að njóta þjónustu ferjunnar Herjólfs í þessu tilviki. Til slíkra vinnubragða munu þeir ágætu menn ekki þvinga mig. Þegar rekstur Herjólfs og annarra ferja var settur undir Vegagerðina var staðfest að ferjuleiðin milli lands og Eyja væri hluti af þjóðvegakeríinu. Allri óvissu var eytt hvað það varðaði. Var það gert í þágu íbúa Vestmanna- eyja. Bygging vega og brúa er í dag boðin út. Þjónusta og viðhald vega- kerfisins er jafnframt í vaxandi mæli boðin út. Sem dæmi má nefna að öll þjónusta og viðhald vegakerfisins í Rangárvallasýslu er veitt af verktaka sem bauð í það verk sem var áður unnið af starfsmönnum Vegagerðar- innar. Þingmenn Suðurlands hafa sætt sig við þá skipan og hún hefur gefist vel. Þjónusta Herjólfs er tryggð, og það er von mín að hún muni jafnvel aukast. Með hagkvæmu tilboði gefst tækifæri til þess að kosta aukna og betri þjónustu, m.a. í Vestmanna- eyjum. Það er hlutverk mitt og eindreginn vilji sem samgöngu- ráðherra að stuðla að því að svo verði. Skipta þar engu máli árásir einstakra manna í minn garð. Ég tek þær sumar auðvitað nærri mér, en verð við þær að búa eins og hverja aðra ágjöf sem yfir ríður. Mikilvægast er að stefnan er rétt og land er fyrir stafni. Gengið verður hart eftir því að nýr rekstar- araðili Herjólfs þjóni Eyjamönnum svo sem best má verða. Að lokum þetta. Það er von mín að þessu deilumáli sé lokið. Ríkið hefur nú eignast öll hlutabréfin í Herjólfi hf. Var gengið til samninga um kaupin og verður að telja þann samning hag- stæðan fyrir Vestmannaeyjabæ. Nutu Eyjamenn þar sem fyrr afburða dugnaðar og útsjónarsemi bæjar- stjórans Guðjóns Hjörleifssonar. Eins og lesendum Frétta er væntanlega ljóst dró stjóm Heijólfs kæru sína til baka og ætlaði þannig að koma í veg fyrir að fjallað væri um útboðið af Kærunefnd útboðsmála. Allt bendir til þess að stjóm Heijólfs hafí bmgðið á það ráð þegar hún áttaði sig á því að málstaðurinn var vonlaus og ekkert annað uppúr því að hafa en kostnað sem því fylgdi að hafa lögmenn á launum við að skrifa greinargerð um mál sem fyrirfram var tapað vegna þess að Vegagerðin hafði farið að öllum reglum og lögum. Hefði þeim verið alvara þá hefðu þeir látið vinna í málinu í stað þess að kalla eftir fresti fjórum dögum eftir að þeir höfðu átt að skila inn greinargerð til nefndarinnar. Allur málatilbúnaður og framganga stjómar Heijólfs gagnvart Vegagerðinni og ráðuneytinu er stjóm og framkvæmdastjóra Heijólfs hf. til vansa.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.